Morgunblaðið - 29.06.1960, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.06.1960, Qupperneq 11
Miðvik'udagur 29. júní 1960 MORCVTSBLAÐ1Ð 11 Bretinn flaug á þridzkunni FRÁ 4. til 18. júní var 8. heimsmeistaramótið í svif- flugi haldið á flugvellinum Butzweilerhof við Köln. — Þar kepptu 55 flugmenn frá 23 löndum í þessari fal- legu íþrótt, og í fyrsta skipti voru núna íslending- ar með í leiknum. Eftir fyrsta alþjóðasvifflug- mótið, sem haldið var á Wass- erkuppe í Þýzkalandi 1937, stóð til að gera svifflug að olympískri keppnisgrein, en heimsstyrjöldin sá um að frest ur yrði á þvi. Þegar svo séð varð, að ekki yrði keppt í svif- flugi á Olympíuleikunum 1948 ákvað FAI (Alþjóða-Flugmála sambandið) að efna sjálft til keppni, sem haldin var sama ár í Sviss með bezta árangri. Var þá þegar ákveðið að halda slíkt mót annað hvert ár og skyldi sigurvegarinn bera tit- il heimsmeistara. 1950 var mót ið í Svíþjóð, 1952 á Spáni, 1954 Englandi, 1956 Frakklandi, 1958 Póllandi, og nú í áttunda skiptið, aftur í fæðingarlandi svifflugsins. í tveimur flokkum Keppt var núna í tveim flokkum, svokölluðum „opn- um“-flokk, þar sem gerð og útbúnaði svififlugnanna eru engin takmörk sett, og í „standard“-flokk en þar eru svifflugurnar einfaldari að gerð og nokkrum takmörkum háðar, t.d. er hámarks væng- haf 15 metrar, radiotæki bönn uð o. s. frv. Þessi seinni flokk- ur var stofnaður eftir mótið 1956 og skyldi sérstaklega örva smíði minni og ódýrari svifflugna, sem þó hefðu sveitinni, Björn Jónsson, far- arstjóra, var að finna á Bútxweilhof-flugvelli daginn sem undirritaður kom á mót- ið. Þetta var fjórði keppnis- dagurinn og Þórfaallur Filipp- usson, eini keppandi íslands, var langt kominn í svifflugu sinni í áttina til Oerlinghau- sen, 162 km. norðaustur af Köln. Þar sem þetta var svo- kallað markflug, voru hinir íslendingarnir, þeir Ásbjörn Magnússon formaður íslenzku svifflugnefndarinnar og Gísli Sigurðsson þegar lagðir af stað í bíl til að sækja Þórhall og sviffluguna ásamt þeim Þorgeiri Pálssyni og Sverri Fararstjórarnir, Ásbjörn Magnússon og Björn Jónsson og „rúgbrauðið", sem Volkswagen-verksmiðjurnar lánuðu ís- lendingunum. Þeir þeyttust um allt V-Þýzkaland og sóttu sviffluguna þar sem hún lenti, því næsta morgun þurfti allt að vera klappað og klárt. en Jensen á 0-2 ^ Eftir Leif Magnússon, verkfræðinema í Hannover Þóroddssyni, sem þrátt fyrir ungan aldur eru báðir upp- rennandi svifflugmenn.. Á stórri töflu voru keppnisnúm- er og lengdartími jafnóðum birt og fréttir bárust, og glaðn aði yfir Birni þegar Nr. 50, íslenzka númerið var komið á sirm stað. Þórfaallur hafði náð alia leið og var með mjög sæmilegan flugtíma. Hann hafði, ásamt þeim Þorgeiri og Sverri, verið við æfingar í Oerlingfaausen fyrir mótið og þekkti því staðinn vel. Jensen lenti í fjörunn! Björn sagði mér nokkuð frá því hvernig gengið hefði fram ur gat huggað sig við það, að jafnvel maður sem Johnson (USA), sem enn á 9 ára gam- alt heimsmet í langflugi (861 km.), komst heldur ekki nærri alla leið! Næst var lang flug í áttina til Kiel. Þeir fremstu komust til Hamborg- ar, um 380 km. vegalengd. Þórhallur fékk 240 stig þenn- an dag og hækkaði úr 33. í 31. sæti. Þriðja keppnisdaginn var frjálst langflug innán landa- mæra Þýzkalands. Veðri hagaði líkt og fyrri daginn svo bezt myndi vera að stefna aftur á Kiel. ,,Cow- boy” Jensen spurðist fyrir hvert lengst væri hægt að lslenzka sveitin: Þorgeir, Sverrir, Gísli, Björn, Þórhallur og Ásbjörn. (Ljósm. Leifur Magnússon) ágæta flugeiginleika. Reynsl- an hefur líka orðið sú, að þessar ódýrari svifflugur hafa í keppni sízt gefið „opna“- flokknum eftir, og er það kannske sönnun þess, að meira er komið undir manmnum en tækinu. Fluga nr. 50. Aðeins einn úr íslenzku að þessu. Fyrsti dagurinn byrjaði reyndar ekki glæsi- lega. Þraut dagsins var flug frá Köln til Koblenz og til baka aftur, samtals 172 km. Munaði ekki nema tæpum tveim km. að Þórhallur næði alla leið, en hann varð að lenda á smábletti hjá gasstöð í útjaðri Kölnar. Þetta kostaði náttúrlega mörg stig, en mað- fljúga, og fékk það, svar, að fjærsti púnkturinn væri fjar- an á eyjunni Feihmarn. „Þá lendi ég þar“, sagði Jensen. Þennan dag setti Þórhallur nýtt íslandsmet í langflugi, flaug frá Köln til Flensborg- ar, 447 km. en það samsvarar vegalengdinni frá Keflavík norður á Langanes. 19 svif- flugur komust til Fehmarn þar sem þessi dagur varð óvænt búbót hjá ferjumanninum, — og Jensen lenti þar í fjörunni. Eftir þessar þrjár þrautir voru Pólverjarnir í öllum fyrstu sæiunum, en Þórhallur nr. 27 með samtals 1654.6 stig. Pólverjar vöktu mesta athygli Næsta dag, fimmta keppn- isdag, ákvað mótsstjórnin 317 km. þríhyrningsflug. Skyldi fljúga frá Köln til Hamm, þá til Hirzewhain og þaðan aftur til Kölnar. Við flugtaxsbraut- ina var þegar kominn hópur af svifflugum, Haase, Þýzka- landi, , sem sigraði á síðasta móti, viar þarna með nýja plastik-svifflugu, Phönix FS 24. Jensen hinn danski, sem haíði keppnisnúmer 2 á sinni svitfiugu, hafði málað lítið U íyrir framan töluna, svona til minningar um fallinn fugl! Ameríkanarnir, sem varla virtust tala við hvorn annan nema í gegnum „walkie- talkie", voru að útbúa sína menn, þá Sohreder, þann sem villtist bak við járntjald- ið á dögunum, Johnson og Bikle, en hann var einn manna með Schweizer-svifflugu. Johnson var þarna með nýja, dreka mikinn, sem hann og kona hans hafa verið að smíða undanfarin ár í stofunni heima hjá sér. Einna mesta atfaygli vöktu þó Pólverjarn- ir með sínar „legustóls“-svif- flugur. Þar liggur flugmaður- inn að mestu á bakinu svo skrokkur flugunnar er mjög grannur og þar af leiðandi loftviðnámið lítið. Fjórar þjóð ir, þ. á. m. Rússar, höfðu á síðustu stundu hætt við þátt- töku í mótinu. Sögðu sumir, að Rússum hefði þótt það mið ur bærilegt til afspurnar að verða dregnir á loft af her- fiugvélum Strauss ráðherra. Eins og laxveiðimenn Ein af annari voru svifflug- urnar dregnar á loft og nú var ekki annað að gera en bíða, því þær áttu að lenda aftur í Köln, þ. e. ef allt gengi að óskum. Það þurfti þó ekki að bíða lengi eftir fyrstu lend- ingartilkynningunum. Hver af öðrum neyddust flugmennirn- ir til að lenda á miðri leið, en slangur var þó komið fram Ihjá fyrsta vendipúnkti og þeirra á meðal var Þórhallur. Litlu síðar voru allir pólsku legustólarnir lentir, sömuleið- is heimsmeistarinn Haase og Ameríkanarnir ne.na Bikle. Fjórar svifflugur voru nú komnar yfir annan vendi- punkt og höfðu tekið stefnu á Köln. Eftir 7 tíma flug þaut svo fyrstur yfir markið Þjóð- verjinn Huth, „der Lange“, sem var ákaft fagnað, enda hafði hann tryggt sér með þessu flugi fyrsta sætið í sín- um flokk. Litlu síðar sást önn ur sviffluga í aðflugi, en mjög lágt. Var þar kominn Engler.d ingurinn Nick Goodfaart, en óhugsandi virtist að hann næði inn yfir marklínuna. Hann hvarf á bak við flug- skýli, kom svo fram hjá því, ennþá fljúgandi, sveif síðan að því er virtist óralengi á enskri þrjósku einni saman rétt yfir grastoppunum yfir marklínuna og lenti nokkrum centimetrum handan hennar. Sá þriðji og síðasti, sem þrí- hyrningnum lauk, var Daninn Seistrup. Eftir svona flug eru svifflugmenn í svipuðu skapi og laxveiðimenn, sem hafa ný- lokið við að landa eínum 30 punda! í 28. sætl Nú barst tilkynning að Þór- hallur hefði lent 20 km. aust- ur af Köln, en hefði þó ekki sézt yfir öðrum vendipunkt, svo óvíst var hvort flugið yrði tekið gilt alla þessa leið. Enda kom það á daginn að faann hafði eins og margur annar lent í mestu vandræðum Þjóðverjinn Heinz Huth, heimsmeistari 1960. Hann er 51 árs og á margra ára þjálfun að baki. að finna þenna stað, sem var í miklu skóglendi. Bikle hafði 1 iangan tíma elt Þórhall í þeirri von að hann þekkti stað hælti betur og fann vendi- punktinn rétt eftir að Þórhall- ur hafði gefið upp leitina og snúið til Kölnar. Síðasta daginn var 200 km. þrihyrningsflug, sem reynd- ist mörgum erfitt. Þórhallur náði þó 11. sæti í sínum flokk eftir 79 km. flug og í heild hlaut hann 2709,1 stig og 28. sætið. Sigurvegari í „opna“- flokknum varð mjög óvænt Argentínumaðurinn Hossinger með 5102,7 stig. „Standard“- flokkinn og mótið í heild vann elzti þátttakandinn, hinn 51 árs gamli Heinz Huth með 5619,1 stig, en hann varð þríðji í Póllandi 1958. Ómetanlegur skóli Þátttaka í mótum sem þessu er dýr og flestum einstakling- um ofviða. Hafa því margir hjálpsamir lagt þar hönd á plóginn. Svifflugnefnd Flug- Framh. á bls. 13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.