Morgunblaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 29. júní 1960 MOUCrnvnr <4 »fð 13 Héðinshöfði kemur ekki til greina í sunnudagsblaði Morgunblaðsins er þess getið að listaverkanefnd hafi í alvöru mælzt til þess við bæjarstjórnina að fá húsið Héð- ins'höfða fyrir samastað undir „borgarsafn Reykjavíkur“. Þetta virðist í fljótu bragði ákaflega meinlaus uppástunga og hentug til að vekja athygli á til- veru nefndarinnar, en í fram.- kvæmd væri hún vægast sagt óráð, sem vonandi er að bæjar- stjórnin skilji. Héðinshöfði er timburhús, eins og skýrt er tek- ið fram í umræddri frétt og kem- ur þar af leiðandi ekki til greina sem staður fyrr safn af neinu tagi. Sagt er að húsið sé asbest klætt, og á það víst að réttlæta hæfni þess sem frambærilegan geymslustað fyrir safn. Slíka við báru tekur enginn alvarlega, sem hugarfarslega er ekki staðráðinn í því að drýgja glæp á kostnað framtíðarinnar. Ekki mun almenningi enn hafa verið gerð nein grein fyrir því hve „borgarsafnið“ (sem auð- vitað á að heita Listasafn Reykja 15 sm. snjólag stöðv- aði vinnu og kennslu Hlíðardalsskóli í Ölfusi SKÓLASLIT fóru fram í Hlíð- ardalsskóla 1. maí, en kvöldið áður höfðu kennarar kvatt nem endur á sérstakri kvöldvöku, þar sem allir kennararnir mæltu nokkur kveðjuorð til nemenda. Lýstu þeir ánægju sinni yfir samstarfinu við nem- endur á liðnum vetri og óskuðu þeim velfarnaðar. Skólastjóri er Júlíus Guðmundsson, en auk hans störfuðu við skólann þrír stundakennarar á liðnum vetri. Síðastliðið haust innrituðust í skólann 85 nemendur, sem skipt ust í fjóra bekki gagnfræðastigs- ins. Fjórir nemendur hættu námi á skólaárinu vegna las- leika eða af öðrum orsökum. TJnglingaprófi lauk 31 nemandi. Landspróf þreyta nú ellefu nem endur. í 4. bekk voru sex nem- endur, og luku þrír þeirra gagn- fræðaprófi, en þrír ganga undir próf 3. bekkjar Menntaskólans, og mun það nýmæli, að nemend ur gagnfræðaskólans læri eftir námskrá 3. bekkjar Mennta- skólans Hæstu einkunnir við skólann voru sem hér segir: í 1 bekk Ásta Guðmundsdótt- ir, 8,20, í 2 bekk Harri Guð- mundsson 8,51, í 4 bekk Guðný Kristjánsdóttir, 8,79, og er það jafnframt hæsta einkunn skól- ans á þessu vori, en prófum landsprófsdeildar er ekki lokið. Allir nemendur hafa á skóla- árinu unnið meðfram námi sínu einhver dagleg störf í þágu skólans, og eftir að prófum lauk unnu þeir að því dagana fyrir skólaslit að gera hreinan allan skólann og prýða umhverfi hans. Nú er unnið að því að breyta skólanum og heimavist nem- enda í sumargistihús, sem fyrir hugað er að taki til starfa 18. júní. Mun dvalarstaður þessi verða mjög vistlegur og að- hlynning góð, og eru líkur á að hann verði fjölsóttur af gestum. Staddur í Hlíðardalsskóla, 24. maí 1960, Helgi Sveinsson. víkur) er auðugt að listaverkum, — en í réttu hlutfalli við fjölda safngripa hlýtur húnæðisþörfin að vera. Eitt er víst, að tugir heimilissafna í Reykjavík bera langt af „borgarsafninu" að vali, gæðum og fyrirferð. Væri það bæði tímabær og þakkarverð framtakssemi, að listaverkanefnd in fengi Listamannaskálann leigð an til að sýna okkur, hve mörg og hve dýrmæt listaverk við eig- um sameiginlega, — svo og hvað hvert þeirra hefur kostað og hvaðan þau eru upprunnin. Þess háttar heimildarskýrslur fylgja oft safngripum í erlendum söfn- um, og þykir þar engin goðgá. En hér eru skattgreiðendur og list- unnendur ekki virtir þess að sýna þeim blaðaljósmyndr af þeim listaverkum, sem þeir eru látnir borga, og eiga hlutdeild í. Sýn- ing þessi mundi væntanlega vekja athygli og glæða áhuga á góðu málefni. Og færi svo, að sýningin fyndi náð fyrir augum Reykvíknga þá er „borgarsafn- inu“ líka borgið. Þá þarf það aldrei framar að biðja um að láta rottur éta sig eða eyða sér í eldi, að Héðinshöfða. S. B. JÚ, það reyndist rétt vera að þetta væri Bjarni Guðjónsson, sem kom á móti fréttamanni blaðsins á götu, og í fylgd með honum Elna kona hans. Þau hjón in eru sjaldséðir gestir á ís- landi, hafa verið búsett í Banda- ríkjunum í 16 ár. Nú búa þau í hinni sólríku Suður-Karolínu, sem er á sömu breiddargráðu og nyrsti oddi Afríku. Og sem við stóðum þarna á götunni í aus- andi rigningu, hlaut talið fyrst að berast að veðrinu. — í Suður-Karolínu er yndis- legt veðuriag, sagði Bjarni. Vor- Nýr barnaskóli í bygg- ingu á Hvammstanga Fréttir úr Vestur Húnavatnssýslu V. Hún. 19. júní 1960. Sl. vetur var með eindæmum snjóléttur og síðarfar hagstætt. Einnig hefur vorið verið mjög hagstætt og sauðburður gengið yfirleitt vel. Grasspretta er orðin allgóð og mun sláttur hefjast al mennt um mánaðarmótin næstu. Vegalagningar í sýslunni munu verða með svipuðum hætti í sumar og þær hafa verið á undanförnum árum, unnið all víða en lítið á hverjum stað. Brú á að byggja á Tunguá á Vatns- nesi, en hún hefur verið mikill farartálmi að undanförnu. Mink ur var kominn á Vatnsnsið en ekki hefur hans orðið vart þar í vor. Kf. V. Húnvetningá tók í notkun verzlunar- og vöru- geymsluhús í sl. mánuði. Eftir um það bil hálfan mánuð mun viðbygging við sjúkrahúsið á Hvammstanga taka til starfa eft ir að hafa verið 4 ár í byggingu. Kostnaður við bygginguna og tæki til starfrækslu mun verða hátt í 4 millj. Hafin er á ný vinna við barnaskólann á Hvammstanga og er hugmyndin að hann verði gerður fokheldur á þessu ári, enda bráð nauðsyn á að hann komist upp sem fyrst Góð veiði vestra ALASUNDI, 27. júní: — Þær fréttir berast frá útgerðarstöð Norðmanna á V-Grænlandi, að skipin afli nú vel þar, einkum á Stóra-Lúðubanka. Þykja horfur óvenjugóðar. Vann forseta- eiðinn LEOPOLDVILLE, 27. júní. — (Reuter). — Joseph Kasavubu vann í dag eið sinn sem fyrsti forseti hins verðandi lýðveldis Kongó. Athöfnin fór fram í þing- húsinu, en þar höfðu safnazt sam an undir forystu Alberts Kalinjis andstæðigar Lumumba, hins verð andi forsætisráðherra landsins. Heimtuðu þeir, að fylgismenn Kasavubu fengju meiri ítök í stjórn landsins og að Kasai hérað ið yrði sjálfstætt ríki. Öflugur lögregluvörður var við þinghúsið og kom ekki til alvar- legra átaka. Baldvin Belgíukonungur hefur þegið boð um að vera viðstaddur hina hátíðlegu stofnun lýðveld- isins, á fimmtudaginn. þar sem kennt er í gömlu sam- komuhúsi og mun óvíða á land- inu vera lélegri aðstaða við barna fræðslu í svipað stóru þorpi og Hvammstangi er. Héraðsskólinn á Reykjum i Hrútafirði starfaði með svipuðu sniði og að undanförnu, stund- uðu þar nám um 90 ungmenni. Stjórn og reglusemi í skólanum undir stjórn Ólafs H. Kristjáns- sonar, skólastj. er og hefur verið með ágætum. íbúar sýslnanna sem að skólanum standa eru á- nægðir mð árangur skólastarfs- ins, sem sést bezt á því að rúm- ur helmingur nemanda hefur að undanförnu verið úr nærliggj- andi sýslum. Sr. Stanley Melax, Briðabólstað, lætur nú af prests- störfum eftir 40 ára þjónustu, fyrst á Barði í Fljótum, síðan að Breiðabólstað í Vesturhópi. Fréttaritari. — Bretinn flaug Framh. af bls 11 málafélags íslands á heiður skilinn fyrir allan undirbún- ing að mótinu, f. h. stjórnar Flugmálafélags íslands. Það eru flugmálafélög hvers þátt- tökulands, sem útnefna kepp- endur og eru hinir formlegu þátttakendur í mótinu, sem haldið er að tilhlutan F.A.I. alþjóðasambands flugmálafé- laga. Volkswagen-umboðið á íslandi útvegaði fyrir milii- göngu þeirra Sigfúsar for- stjóra og Schneider útflutn- ingsstjóra Volks sagen-verk- smiðjanna „Combi-bíl“ að láni og reyndist hann ómetanlegur styrkur því alls þurfti' að keyra yfir 4000 km. til þess að sækja sviffluguna á hina ýmsu lendingarstaði. Og síðast en ekki sízt ber að þakka Nord- Rhein-Westfáliseher Luft- sportverband. sem af höfðings skap lánaði íslendingum end- urgjaldslaust beztu sviflugu sína, Ka-6, og studdu að auki íslenzka liðið á allan hátt. Þessi keppni var ómetanlegur skóli yrir íslendingana, bæði varðandi skipulagningu og framkvæmd slíkra móta og eins flugið sjálft. Leifur Magnússon. ið byrjar um miðjan febrúar, og blómin fara þá að springa út. Og þarna er langt vor, hver blómategundin tekur við af ann- arri. Munur eða í New York, þar sem vetrinum lýkur svo að segja einn góðan veðurdag og við tek- ur heitt sumar. Hjá okkur verður aldrei of heitt, því við búum um 320 km. frá sjó og uppi í fjöll- unum, í um 550 m. hæð yfir sjáv- armáli. — Dóttur okkar finnst nú ekk- ert að rigningunni. Hún er ný- trúlofuð hér í Reykj avík og verð- ur hennar tæplega vör, skaut Elna inn í. Ég man að ég hirti heldur ekkert sérlega mikið um veðrið þessi 13 ár, sem ég bjó hér. Frú Elna er danskrar ættar, en talar íslenzku eins og hún hefði alltaf búið hér. — En við fengum snjó í vetur í Suður-Karolínu, og eins fyrir 2 árum. Þá hafði ekki sést þar snjór í 20 ár, segir Bjarni. Það þótti okkur skemmtilegt. Það lagðist 15 cm. snjólag á allar göt- ur niðri í bænum og allt upp í um 20 cm. hjá okkur uppi í hæðunum. Skólum var lokað og fólk komst ekki í vinnuna í 3 daga, því engar ýtur eru til eða tæki til að moka. En svo kemur sólin og hún er ekki iengi að bræða burt snjóinn á þesSum suð- lægu slóðum. ★Flytur inn vélar frá Danmörku — Þið fóruð ekki upphaflega til að setjast að í Bandaríkjun- um, Bjarni, var það? — Nei, ég fór út fyrir Inn- flytjendasamband vefnaðarvöru- kaupmanna árið 1944, en þá voru allar vörur fluttar inn frá Banda ríkjunum. Og ég ætlaði upphaf- lega að fara heim, þegar því starfi væri lokið. En áður en stríðinu lauk fékk ég mig lausan og stofnaði fyrirtækið Edda Int. Corp. ásamt bandarískum manni. Við höfðum dálítil viðskipti við ísland til að byrja með. En nú flytjum við mest stórar vefnað- arvöruvélar fyrir iðnaðinn inn til Bandaríkj tr\na frá Danmörku. Síðan 1950 höfum við hatt skrif- stofu í Greenville í Suður-Karol- inu, en viðskipti okkar eru mest orðin í Suð-austurríkjunum. Við bjuggum í New Yo\k og ég þurftl því alltaf að vera að ferðast þessa 1300 km. leið. Árið 1957, eftir að einkadóttir okkar lauk sinni skólagöngu, fluttumst við svo suðureftir. Og þar búum við nú í bæ, sem er á stærð við Reykja- vík. — Eru nokkrir íslendingar þar? — Tvær íslenzkar konur, giftar Bandaríkj amönnum, búa skammt frá, önnur í 16 km. fjarlægð og hin í nærri 50 km. fjarlægð frá heimili okkar. Hingað kemur nú í byrjun júlí nágranni okkar frá Greenville, þekktur ungur píanó leikari. ★ Efnir til hljómleika. Þetta er 27 ára gamail piltur, Richard Cass að nafni, einhver eftirsóttasti píanistinn af yngri kynslóðinni hjá Col- umbía Artists. Hann hef- ur fengið mjög góða menntun, bæði heima í Bandaríkjunum og eins í Ecole Normale í París, og hélt 58 hljómleika á sl. ári í Bandaríkjunum og Kanada. Þeg- ar ég hlustaði á hann leika í Carnegie Hall í apríl sl. og frétti að hann mundi verða á leið heim frá París í sumar, þá fannst mér að íslendingar mættu til með að fá að hlusta á hann, fyrst hann færi svo að segja um hlað hjá ykkur. Ég kom því þessvegna í kring að hann gæti stanzað hér og við eigum von á honum til að halda hljómleika í Austurbæjarbíói svona viku af júlí. — Er mikið tónlistarlíf 1 Greenville — Já, já, við höfum sinfóníu- hljómsveit og tónlistarfélag, sem fær listamenn til að koma á sama hátt og hér. En sinfóníu- hljórasveitin er rekin með sama sniði og tónlistafélagið þar, styrktarfélagar greiða ákveðið ársgjald. — Og hvernig lízt þér á þig hér eftir allan þennan tíma? — Framfarirnar eru stórkost- legar. Ég held bara að þetta sé of erfitt fyrir þessa einu kyn- slóð, sem nú er uppi, og allt verð ur að gera. Það vakti athygli mína að nokkur hálfbyggð hús, sem ég sá í aprílmánuði 1959, eru ekki tilbúin enn. En stórhug inn vantar ekki hér. Mér finnst líka allt þetta nefndarfargan og öll þessi skriffinnska keyra úr hófi. Það ættu fleiri að snúa sér að framleiðslunni sjálfri. Mér þykir ákaflega gaman að vera loks kominn hingað heim í almennilegt sumarfrí, sagði Bjarni að lokum. Mig langar til að geta skrppið norður í Þing. Bjarni Guðjónsson er ættaður úr Húnaþingi, frá Leysingjastöð- um, sonur Guðjóns Jónssonar Ásgeirssonar Einarssonar þing- manns, sem bjó á Þingeyrum. Tilkynning til kaupenda Morgunblaðsins utan Reykjavíkur Póstkröfur voru nýverið sendar til kaupenda blaðsin* úti um land, sem fá blaðið beint frá afgreiðslu þess í Reykjavík. Athugið að innleysa kröfurnar, sem allra fyrst svo komizt verði hjá að stöðva út- sendingu blaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.