Morgunblaðið - 29.06.1960, Page 3
Miðvikudagur 29. júní 1960
MORGVNBLAÐIÐ
3
Brezki togarinn, varðskipið Þór og brezka herskipið Duncan.
— Landhelgin
Frh. af bls. 1
ur frá Akranesi og aðstoðar síld-
veiðibáta ef með þarf.
Fleiri fyrir innan
Þá er Mbl. enn fremur kunn
ugt um það, að 13 brezkir tog-
arar hafi verið að veiðum á
þessum slóðum, þar á meðal
nokkrir aðrir innan fiskveiði-
takmarkanna, innar en Nort-
hern Queen, en þeir sigldu all-
ir út fyrir takmörkin þegar í
stað. Northern Quenn var að
hífa inn trollið þegar Þór kom
að togaranum.
Tilkynning Landhelgisgæzlunnar
Mbl. fékk svohljóðandi tilkynn
ingu um mál þetta frá Land-
helgisgæzlunni;
„Um kl. 14,30 í dag kom flug-
vélin Rán að brezka togaranum
Northern Queen GY 124 að veið-
um um 2 sjóm. innan fiskveiði-
takmarkanna norðvestur af
Grímsey. Flugvélin hafði sam-
band við varðskipið Þór, sem var
á svipuðum slóðum og kom þeg-
ar á vettvang. Frá varðskipinu
var togarinn einnig staðsettur
innan fiskveiðitakmarkanna, og
tókst Þór að koma mönnum um
borð í togarann þegar hann var
að taka inn vörpuná.
Skipstjóri togarans lokaði sig
inni í brúnni og einnig var loft-
skeytaklefanum læst, þannig að
varðskipsmenn komust ekki
þangað inn. Skömmu síðar kom
brezka herskipið Duncan og setti
sjóliða vopnaða kylfum um borð
í togarann, áður en hægt væri að
færa hann til hafnar.
Skipherra Þórs, Þórarinn
Björnsson, mótmælti þessum að-
Brutust iiin
SIGLUFIRÐI, 28. júni. — Lög-
reglan hér tók í nótt tvo inn-
brotsþjófa, sem lagt höfðu leið
sína í pylsuvagn, sem hér er
starfræktur. Var hér um tvo að-
komumenn að ræða, .annan frá
Keflavík, en hinn frá Hafnarfirði.
Gistu þeir fangageymslur lög-
reglunnar í nótt. — Stefán.
gerðum herskipsins og krafðist
þess að herskipið léti togarann af
hendi. En skipherra Duncans
taldi- atburðinn hafa skeð á opnu
hafi og neitaði að sleppa togar-
anum, og krafðist þess að varð-
skipsmenn yrðu sóttir þangað.
Eftir nokkurt þóf fluttu svo sjó-
liðar af Dunean varðskipsmenn
yfir í Þór. — Mótmælti skipherra
Þórs harðlega öllu þessu ofbeldi
herskipsins“.
★
Eftir að Genfar-ráðstefnunni
um víðéttu landhelginnar lauk,
ákváðu brezkir togaraeigendur
sem kunnugt er, að togarar þeirra
skyldu ekki fara inn fyrir 12
milna mörkin næstu 3 mánuði.
Sá tími er ekki útrunninn fyrr
en um miðjan næsta mánuð.
Frá því hefir verið skýrt hér
i blaðinu, að brezkir togaramenn
hafi ailoft verið að veiðum alveg
á 12 mílna mörkunum og jafnvel
farið inn fyrir þau, þó ekki
lengra en svo, að erfitt mundi
hafa reynzt að sanna sekt þeirra,
ef þeir hefðu verið teknir af varð
skipum. Virðast togaramenn með
þessu háttalagi hafa verið að
reyna á það hvort verndar væri
að vænta frá brezkum herskip-
um, ef íslenzku- varðskipin
reyndu að taka þá.
Togararnir hafa sífellt gerzt
ágengari í þessum ögrunum sín-
um, og er skemmzt að minnast at-
burðanna við Hvalbak s.l. fimmtu
dag. 1 gær taldi Landhelgisgæzl-
an, að engin vafi g æti leikið á
því, að um freklegt brot væri að
ræða af hálfu Northern Queen
Hlaut hún því að skerast í leik-
inn og og hindra lögbrot togar-
ans.
Hins vegar verður að telja að
Landhelgisgæzian hafi farið skyn
samlega að, er hún varaðist að
efna til árekstra, þar sem vafi
gæti leikið á um íéttmæti aðgerð-
anna. Þess vegna verða íslending-
ar ekki sakaðir um tilraunir til
að efna til árekstra eða æsinga í
þessu máli, né heldur bera þeir
ábyrgð á því, ef þessi atburður
verður til þess að spilla á ný sam-
skiptum Breta og íslendinga.
Samtal
Breta
í GÆR heyrði fólk á Norður-
landi samtal milli tveggja
brezkra togara um atburðina
við Grímsey. Var annar Bret-
inn að skýra hinum frá því,
að Þór hefði sett menn um
borð í Northern Queen.
— Hvað gerðist, spurði þá
hinn.
— Það eru líka komnir
menn um borð frá Duncan,
svo þetta er allt í lagi, — við
höfum þetta.
— Já, það getur verið, svar-
aði hinn, en hann var örugg-
Iega fyrir innan línuna.
Síðan fóru þeir að tala um
fiskiriið.
Brezki togarinn og varðskipið Þór.
STAKS1EIIMAR
Formannaskipti hjá SÍS
Sigurður Kristinsson hefur nú
látið af formennsku í stjórn Sam
bands íslenzkra samvinnufélaga.
Margir höfðu gert ráð fyrir því,
að sá maður sem um langt skeið
hefur verið varaformaður stjórn-
ar Sambandsins, yrði nú kosinn
formaður í stað hans. En niður-
staðan varð ekki sú. Eysteinn
Jónsson, sem verið hefur vara-
formaður SÍS, var ekki kosinn
formaður. í stað hans var kosinn
einn af reyndustu kaupfélags-
stjórum landsins, Jakob Frí-
mannsson, framkvæmdastjóri
Kaupfélags Eyfirðinga á Akur-
eyri.
En bak við þessa kosningu
liggur löng barátta og mikil átök
bak við tjöldin innan foringja-
liðsins og meðal leiðtoga Fram-
sóknarflokksins. Liðsoddar Fram
sóknar höfðu ákveðið að Eysteinn
Jónsson skyldi verða formaður
SÍS, eftir að Sigurður Kristinsson
hefði látið af því starfi. Skyldi
með því innsiglað enn hið nána
samband milli Framsóknarflokks
ins og samvinnufélaganna.
En mikillar andspyrnu gætti
þegar í upphafi meðal SÍS-manna
gegn þessari fyrirætlun leiðtoga
Framsóknarflokksins. Töldu
margir samvinnumenn það mjög
óheppilegt að undirstrika þannig,
að SIS væri aðeins hjáleiga frá
höfuðbóli Framsóknar.
Verkfallshættan
Tíminn ræðir í gær í foryStU-
grein sinni aðvörun Ólafs Thors,
forsætisráðherra, í þjóðhátíðar.
ræðu sinni gegn þeirri hættu, sem
hlotizt gæti af verkföllum, eins
og nú er málum komið í hinu ís-
lenzka þjóðfélagi.
Tíminn kemst síðan að orði á
þessa leið:
„Undir þau orð forsætisráðherr
ans er óhætt að taka, að verkföll
væru næsta óæskileg. Þetta gera
launastéttirnar sér vissulega
ljóst. Þær vilja að núv. stjórn-
arstefna fái nokkur tækifæri til
þess að sýna sig í framkvæmd.
Nú gerast ekki heldur neinir til
þess að æsa til tafarlausra verk-
falla, eins og foringjar Sjálf-
stæðisflokksins gerðu strax eft-
ir að efnahagsráðstafanirnar
höfðu verið gerðar vorið 1958, og
voru þær þó launastéttunum
hvergi nærri eins tilfinnanlegar
eins og þær sem nú voru gerðar.
Samt fóru forkólfar Sjá'lfstæðis-
flokksins þá strax af stað og
hvöttu til kauphækkana og verk-
falla."
„Rífa verður niður — a
Aðalmálgagn Framsóknar-
flokksins viðurkennir þannig, aS
verkföll „væru næsta óæskileg“,
eins og málum horfir nú. Blaðið
segir líka, að nú hvetji enginn til
verkfalla. En er því nú í raun
og veru þannig farið?
Hafa ekki kommúnistar einmitt
haldið uppi heiftþrunginni bar-
áttu gegn efnahagsráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar með allskonar
hótunum um að ,,rífa þurfti nið-
ur skaðræðiskerfi ríkisstjórnar-
innar“? Og hafa ekki Framsókn-
armenn einmitt tekið undir
þetta? Vissulega hafa þeir gert
það. En sá skilningur Tímans,
sem kemur fram í þeira
ummælum hans „að verkföll
væru næsta óæskileg“ er auð-
vitað góðra gjalda verður. Hitt
er vitað, að Framsóknarmenn
voru allra manna ákafastir í því
á fulltrúafundi Alþýðusambands
íslands um daginn, að hvetja til
verkfalla og annarra ráðstafana
til þess að eyðileggja viðreisnar-
ráðstafanir rikisstjornrinnar.