Morgunblaðið - 29.06.1960, Side 8

Morgunblaðið - 29.06.1960, Side 8
8 lORCVyvr4 010 Miðvik'udagur 29. júní 1960 „Þoð vekur strax vonir þegar blessuð sólin skín 44 sagði bóndinn, er sólin hellti geislum sinum yfir Flóann i gær EFTIR svo óvenjulegan hrak- viðrakafla vekur það strax von- ir þegar blessuð sólin skín aft- ur, sagði Gunnar Sigurðsson, Aiigæsir drepn- or við Gunnars- hóima BÚSTJÓRINN á búinu að Gunnarshólma uppi við Lækj- arbotna, sagði Morgunblaðinu svo frá í gær, að skotmenn hefðu verið á ferðinni þar efra tvær nætur nú með stuttu millibili. Fyrri nóttina drápu þeir eina af fullorðnum gæsum bús ins, og fannst hún öll sundur- skotin. Fyrir nokkrum dögum fannst svo gæsarungi frá því í vor, helsærður nokkrum riff ilskotum. Hér virðast vera á ferðinni menn, sem einhverja fróun finna í því að murka lfið úr fuglum. bóndi í Seljatungu, í símtali við Mbl. síðdegis í gær, en þá var komið sólskin austur í Flóa og bændur strax orðnir léttari á brúnina. I síðustu viku var hér svo slæmt veður fjóra daga, að ekki var vinnandi úti. Bændur hér í sveit, og ég held almennt hér fyrir austan, hafa í þessari ó- þurrkasömu tíð, haldið að sér höndum við túnaslátt. Gras er nú allgott og hæfilegt til sláttar. Ef nú dregur til sólfars, sem er einlæg von okkar allra, þá mun grasið hraðvaxa. Ég tel víst að bændur muni nú ekki bíða boð- anna, heldur hefja túnaslátt al- mennt. Ef heyskapartíð yrði hagstæð, mun gott fóður aflast, en á síð- asta sumri aflaðist yfirleitt lé- legt hey vegna óþurrkanna miklu. En þegar verið er að ræða um heyskaparhorfur, þá hafa menn eins og alltaf spáð ýmsu, en flest- ir óttast að sumarið muni verða votviðrasamt. Eitt af því, sem hrakviðrin hafa orsakað, er að ekki er farið að rýja lambær. Virðist bændum fé fara illa úr ull. Óöinn og Rán sóttu veikan norskan sjómann AÐFARANÓTT þess 22. þ.m., veiktist skipverji á norsku veiði- skipi mjög hastarlega og var álit ið, að sprungið hefði í honum maginn. í>egar þetta skeði var skipið statt 12 mílur norður af Kolbeinsey og reið á að koma manninum sem fyrst undir lækn- is hendur en löng leið tii lands. Norska sendiráðið bað Slysavarnafélag íslands að beita Caffnfræðaskóli O Ansturbæjar I GAGNFRÆÐASKÓLA Austur- bæjar gengu 79 nemendur undir landspróf miðskóla. Úrslit urðu þau, að 77 stóðust miðskólapróf, þar af 64 með framhaldseinkunn í landsprófsgreinum (6 og þar yfir), eða 81%. Fjórir nemendur hlutu ágætis- einkunn í landsprófsgreinum: Hrafnhildur Lárusdóttir, 9.00, Jón Hjaltalín Stefánsson, 9.14, Gylfi Knudsen, 9.16 og Sven Þór- arinn Sigurðsson, 9.66, en það er hæsta einkunn, sem nokkur nemándi skólans hefur hlotið á landsprófi. Auk þeirra, sem nú er getið, hlaut Margrét Þ. Guð- laugsdóttir ágætiseinkunn á mið- skólaprófinu í heild, 9.02. Þeir nemendur, sem mest sköruðu fram úr, fengu verðlaunabækur frá skólanum fyrir ástundun og ágætan námsárangidr. Auk þess hlutu 3 nemendur, Gylfi Knud- sen, Páll Bragi Kristjónsson og Sven Þórarinn Sigurðsson, verð- launabækur frá Landfræðifélag- inu fyrir ágæta kunnáttu landafræði. Krús jeft ekki pennalatur NEW YORK, 27. júní. — Krús- jeff hefur ritað Dag Hammar- skjöld og óskað þess, að afvopn- unarmálið verði tekið upp í dag- skrá næsta allsherjarþings S.Þ. Krúsjeff hefur og skrifað leiðtog- um Vesturveldanna og er efni bréfsins á sömu lund og ræða Zorins á afvopnunarráðstefnunni í Genf í morgun. sér fyrir því að fengin yrði þyr- ilvængja eða sjóflugvél til að sækja manninn. Leitað var fyrst til Sjóbjörg- unarliðsins á Keflavíkurflugvelli, en það treysti sér ekki að senda þyriivængju út á hafið eða lenda þar á sjóflugvél en bauðst til að senda vél til Grímseyjar að sækja manninn. Landhelgisflugvélin Rán taldi heldur ekki gerlegt að lenda út á hafi en var tilbúin að taka manninn í Grímsey og flytja hann til Akureyrar. Var þá Varð- skipið Óðinn sem var statt fyrir norðan land fengið til að fara á móts við norska skipið, var mað- urinn fluttur yfir í varðskipið á hafi úti, sem svo sigldi á fullri ferð með manninn til Grímseyjar þar sem Rán tók við honum, og flutti hann á Sjúkrahúsið á Akur eyri þar sem allt var tilbúið að taka á móti manninum, sem ekki reyndist eins alvarlega veik- ur og haldið var og fór nann úr sjúkrahúsinu fyrir helgina. Er sjómaðurinn kom til Akur- eyrar færði Sesselja Eldjárn, for maður kvennadeildarinnar á Akureyri honum blómvönd frá Slysavarnafélaginu. Norska sendiráðið ý Reykjavík hefur sent Slysavarnaíélaginu þakkarbréf fyrir aðstoð þess. Gróðursetning í Haukadal. Haukadalur og H úsafel I sskógur FERÐAFÉLAG fslands leitar nú eftir nýjum bækistöðvum fyrir 'helgarferðir, þ. e. laugardags- og sunnudagsferðir. Eins og kunn- ugt er, heldur félagið uppi reglu bundnum ferðum í helztu sælu- hús sín allar helgar um hásum- arið, en þau eru við Kjalveg, Landmannalaugar og í Þórsmörk. Allt eru þetta vinsælir staðir og fagrir, enda dveljast nú orðið margir vikutíma þar í orlofi sínu. Hins vegar eru þetta nokkuð langar ferðir, og sumum (en ekki öllum) finnst of mikill tími fara í bílferðina í hlutfalli við dvöl á áfangastað. Það væri því æskilegt að hafa aðgang að nokkrum notalegum dvalarstöðum ekki allfjarri Reykjavík og í greiðu vegarsam- bandi, fyrir þá er það kjósa. Þrír staðir hafa einkum verið tilnefndir: Þjórsárdalur, ná- grenni Geysis og Húsafellsskóg- ur. En það er óreynt hvort fólk unir sér á þessum stöðum. Þess vegna efnir F. í. nú til helgar- ferða í Húsafellsskóg og í ná- grenni Geysis í tilraunaskyni og verða fyrstu ferðirnar kl. 14 á laugardag 2. júlí og komið aftur á sunnudagskvöld. Báðir þessir staðir hafa margt til síns ágætis. Sú var tíðin, að menn sóttu hingað frá fjarlægum löndum til þess að sjá Geysi. — Nú er daufara yfir honum. Næsti bær við Geysi er Haukadalur, hið forna höfðingjasetur. Þar hefur skógrækt ríkisins miklar framkvæmdir með höndum, og standa vonir til þess, að Hákon skógræktarstjóri verði með í ferð inni um næstu helgi og sýni gest- um skógarteigana í Haukadal og segi helztu atriði úr sögu stað- arins. Menn verða að hafa með sér tjöld og viðleguútbúnað, en hins Biskup íslands á 1000 óro afmæli Hróarskeldudómkirkju BISKUPINN yfir íslandi, herra 1 Sigurbjöm Einarsson, er fyrir skömmu kominn úr ferðalagi til Danmerkur, þar sem hann þá boð dönsku kirkjunnnar til þess að vera viðstaddur hátíð Hróars- keldudómkirkju til minningar um að þúsund ár eru liðin frá því er Haraldur konungur blá- tönn lét skírast og reisti fyrstu kirkjuna í Hróarskeldu. Hátíðin stóð dagana 12. og 13. júní sl. Auk biskups íslands voru bisk- upar frá öllum Norðurlöndum samankomnir á hinni merku há- tíð. Við hátíðamessuna, sunnudag- inn 12. júní, sem var sjónvarpað, var öll konungsfjölskylda Dan- merkur viðstödd, svo og margt annarra stórmenna. í hádegisverðarboði, að lokinni hátíðamessunnni, afhenti biskup íslands, eintak af Guðbrands- biblíu, ljósprentað, sem gjöf frá kirkju íslands. Gat hann þess í ræðu við það tækifæri, að í Hróarskeldu var fyrsta íslenzka bókin prentuð, Nýjatestamennti Odds Gottskálks sonar. Var það eitt hinna mörgu íslenzku handrita sem fór til Danmerkur, en þetta handrit kom aftur. í hátíðamessu Dómkirkjunnar, mánudaginn 13. júní, prédikaði biskup íslands. vegar má minnast þess, að greiða sala er við Geysi og auðsótt um að stinga sér í sundlaugina, ef menn óska. Enn fremur er ráð- gert að aka út að Brúará á sunnu dag og ganga þar um tfcóga eftir því, sem tími leyfir. Tjald- að verður við Laugará, og hefur Kristbergur bóndi á Laug heitið hvers konar vinsamlegri fyrir- greiðslu, sem hann mætti í té láta. í annarri leiðinni verður ekið um Ytrihrepp og Skálholt. í Húsafellsskóg verður einnig farið’kl. 14 á laugardag. Þar er náttúrufagurt svo sem kunnugt er. Þar málaði Asgrímur marg- ar fegurstu myndir sínar. Á Húsafelli mun einnig verðagreiða sala fyrir þá, er óska, en þó ekki gisting. Frekari upplýsingar fást að sjálfsögðu í skrifstofu F. í., Tún- götu 5. Fararstjóri að Geysi verður Jón Eyþórsson, en í Húsa fellsskógi Páll Jónsson og e. t. v. dr. Sigurður Þórarinsson. — Þess má geta, að sæluhúsið í Kerlingarfjöllum er algerlega lokað ferðamönnum um sinn vegna viðbyggingar, sem þar fer fram. Hins vegar eru áætlunar- ferðir um helgina á Hveravelli, Landmannalaugar og Þórsmörk og Heklu. J. Ey. Ekki tímahært að íjolga meniitaskólum FÉLAG menntaskólakennara hélt aðalfund sinn á Akureyri dagana 20. og 21. júní sl. Á fundinum voru rædd ýmis hagsmunamál menntaskólanna og menntaskóla- kennara og allmargar samþykkt- ir gerðar. Eftirfarandi samþykkt gerði fundurinn í einu hljóði um menntaskóla og húsnæðismál þeirra: „Fundurinn telur ekki tímabært að fjölga menntaskólum. í landinu meðan óleyst eru hús- næðisvandamál þeirra mennta- skóla, sem fyrir eru, og kennara- skortur háir starfsemi þeirra. — Fundurinn vill sérstaklega beina þeirri áskorun til stjórnarvalda, að þau leysi svo fljótt, sem verða má, hið alvarlega húsnæðisvanda mál, elzta og stærsta mennta- skóla landsins, Menntaskólans í Reykjavík“. í stjórn félagsins næstu tvö ár voru kosnir: Gunnar Norland, for maður, Guðni Guðmundsson, rit- ari, Guðmundur Arnlaugsson, gjaldkeri, og meðstjórnendur frá Akureyri og Laugarvatni skóla- meistararnir Þórarinn Björnsson og Jóhann Hannesson. — Hófu búskap Framh af bls. 6. var allur bústofninn. Það var nægur heyskapur á völlunum fyrir þessar skepnur. Svo brut- um við land og gerðum kart- öflugarða. Það var okkur líka til nokkurra búdrýginda þarna, að við seldum veitingar. Á þess- um árum var m,ikil mannaferð um Laugardalsvelli, enda í þjóð- braut, þegar farið var milli Þing valla og Laugardals. Komum við þarna upp dálítilli greiða- sölu, keyptum veitingatjald, sem notað hafði verið í sam- bandi við konungskomuna 1907 og seldum í því- mjólk, smurt brauð og þess háttar. Högnuð- umst við á veitingasölunni og búskapnum um 200 krónur þetta eina ár, sem við bjuggum í hell- inum.“ En hugsuðuð ykkur þó til hreyfings? „Já, þetta gat náttúrlega ekki orðið neinn framtíðarbúskapur þarna í hellinum., og þegar ég frétti um laust jarðnæði lét ég það ekki fram hjá mér fara. Úr hellinum fluttunum við að Minni-Borg í Grímsnesi og bjuggum þar í 2 ár. Síðan 10 ár að Kringlu og loks 3 ár í Aust- urey, og var það síðasta jörðin, sem við bjuggum á fyrir aust- I an. Aðal ástæðan fyrir því að við fluttumst að austan, var sú, að dóttir okkar þurfti að vera undir læknishendi fyrir sunnan. Svo var það einhverju sinni, þegar ég var á ferð í Reykjavík, að ég frétti að Eskihlíð C væri til sölu. Ég beið ekki boðanna, gerði þegar út um kaupin, fór síðan suður í Hafnarfjörð og sagði lausri Austureynni, en um boðsmaður jarðarinnar átti heima þar. Þegar ég kom sagði ég konunni, hvað ráðizt hefði í suðurferðinni, og lét hún það gott heita, þótt ég hefði engin samráð getað haft _við hana um þessa ákvörðun. Ég kunni að mörgu leyti vel við mig í Hlíð, en þar rákum við kúabú í rösk 15 ár. Túnin okkar voru 5—6 hekt- arar, en þau eru nú öll horfin undir húsin í Hlíðahverfinu. Síð- asta árið, sem við bjuggum þar var Bretinn kominn í nábýli við okkur, og þó að aldrei kæmi til beinna árekstra, kunni ég heid- ur illa við þessa nágranna. Ég gat ekki fellt mig við að breyta mínum siðvenjum, þótt þeir væru eitthvað að pota byssustingjum sínum og tólum, og ég fór allra minna ferða um túnin með mykjuvagn og aðra flutninga án þess að hirða nokkuð um þeirra „um,ferðareglur“ og vék aldrei úr vegi fyrir þeim. Stundum kom það fyrir í óþurrkatíð á sumr- in, að ég færi út á næturna að hirða um hey, og voru þeir þá ein lægt með ljóskastarana á mér, en það vara bara ágætt að rifja flekkina í skini ljóskastara. En ég varð nú samt hálf leiður á þessu þvargi. Bærinn var líka sí- fellt að fala túnin, svo að það varð úr að ég seldi allt saman. Ég var kvaddur niður á borg- arstjóraskrifstofur og þar settust að mér nokkrir ráðamenn bæj- arins og inntu mig eftir því, hvað ég vildi fá fyrir eignina. Og ég var svo vitlaus að álpast til þess að nefna ákveðna upphæð — en á samri stundu varð mér ljóst að ég hafði gert mestu skyssu ævi nainnar. Allir steinþögnuðu og var sem þeir mættu ekki mæla langa hríð, en loks var mér boð- ið að staðfesta tilboð mitt með undirskrift, og þar með var Hlíð- in seld og sveitabúskap okkar hjónanna lokið. Þá keyptum við hér húsin Þingholtsstræti 15, og ég stofnaði Indriðabúð. Hana rák- um við svo í 12 ár, en höfum leigt hana síðustu árin. Og úr þessu held ég þetta bjargist hjá okkur þótt við höfum engin umsvif i ellinni". I.K. FILMUR, FRAMKOLLUN KOPERING FÓTOFIX, Vesturveri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.