Morgunblaðið - 29.06.1960, Qupperneq 20
Svifflugmót
Sjá bls. 11.
244. tbl. — Miðvikudagur 29. júní 1960
IÞROTTIR
eru á bls. 18.
Verðfall,
sem hefur mikil áhrif
íslenzkan sjávarútveg
— segir Þórður Þorbjarnarson
7
a
MIRTÐ verðfall hefur orðið á
fiskmjöli á heimsmarkaðinum
og þykir framleiðendum mn
allan heim horfurnar bágar.
Varla er ofsagt þó áætlað sé,
að framleiðslan umfram eftir-
spurn sé nú um 100 þús. tonn,
en talið er að sl. ár hafi fisk-
mjölsframleiðslan í heild
numið um 1,5 millj. tonna,
sagði dr. phil. Þórður Þor-
bjarnarson í viðtali við Mbl.
í gær, en hann er nýkominn
heim af fundi stjórnarnefnd-
ar Alþjóðasamtaka fiskmjöls-
framleiðenda, sem haldinn
var í Hamborg.
Straumhvörf
Frá því á miðju fyrra ári hef-
ur verðfallið orðið 30% eða meira
á fiskmjölinu og eru horfur á
að framleiðslan aukizt enn. Það
er því höfuðverkefni þessara sam
taka að auka neyzlu fiskimjölsins,
enda aldrei verið jafngott tæki-
færi og nú, því fóðurnotendur
greiða sem stendur lægra verð
fyrir einingu eggjahvítuefnis 1
fiskimjöli en fyrir eggjahvítuefn-
in í fóðurkökum, þ. e. jurta-eggja
hvítuefni. Allt fram á síðasta ár
var eggjahvítuefni fiskimjölsins
mun hærra í verði.
Þessum straumhvörfum á mark
aðinum veldur hin geysimikla
framleiðsluaukning Peru — og
frá Chile berast þær fregnir, að
framleiðslan þar fari örtvaxandi,
sagði Þórður.
Getur breytzt, ef . ..
í fyrra framleiddu Peru-menn
285 þús. tonn af fiskmjöli og á-
ætlað er, að þeir framleiði 450
þús. tonn í ár. Margir eru þeirr-
ar skoðunar, að framleiðsla þeirra
fari upp í 600 þús. tonn eða jafn-
vel meira. Til samanburðar má
geta þess, að framleiðsla íslend-
inga var í fyrra um 64 þús. tonn.
Það er því augljóst, að bilið
milli framleiðslu og eftirspurnar
gæti breikkað enn nokkuð á
næstu árum — og þá hætta á
enn meira verðfalli, sagði Þórð-
ur. En málin geta líka snúizt við,
ef hægt verður að auka neyzl-
una til muna.
Peru í samtökin?
Þau lönd, sem mestra hags-
muna eiga að gæta í þessu sam-
bandi hafa nú bundizt samtökum
— og það var einmitt fundur
þeirra samtaka, sem ég sótti. —
Hafa farið fram viðræður við for
ráðamenn fiskimjölsframleiðsl-
unnar í Peru um það hvort þeir
mundu fáanlegir til að ganga í
þessi samtök — og bendir allt
til þess að svo verði. Er þá fyrst
hægt að gera sér vonir um að
hægt verði að stemma stigu fyr-
ir sílækkandi fiskmjölsverði.
Chile-menn eru líka komnir í
spilið. Þeir hafa farið að dæmi
Peru og hafið víðtæka uppbygg-
ingu fiskmjölsiðnaðarins — og er
það mál manna, að framleiðsla
þeirra verði komin upp í 200 þús.
tonn innan fárra ára.
Hve mikiL áhrif
Helztu neyzslulönd fiskimjöls-
ins eru England, Þýzkaland og
Bandaríkin — og er mjölið eink-
um notað til hænsna- og svína-
eldis. En með sameiginlegri áróð
ursherferð Alþjóðasamtaka fisk-
mjölsframleiðenda yrði sennilega
hægt að auka neyzluna til muna.
Hins vegar er ógerningur að segja
fyrir um það hversu lágt verðið
á eftir að fara — og hversu lengi
við verðum að búa við þetta lága
verð. "En það er atriði, sem kem-
ur vafalaust til með að hafa mik-
il áhrif á íslenzkan sjávarútveg.
Einn bílanna þriggja sem brunnu í fyrrinótt. (Ljósm. Mbl.)
Skeiðilatar-
kirkju geiinn
altariskross
VÍK, 25. júní: — Við fermingar-
guðsþjónustu í Skeiðflatarkirkju
á hvítasunnudag var kirkjunni
afhent vegleg minningargjöf. Er
það ljómandi fallegur altaris-
kross gefinn til minningar um
hjónin Hallgrím Brynjólfsson, f.
bónda, og Sigurveigu Sveinsdótt-
ur, sem lengi bjuggu á Felli í Mýr
dal. Börn þeirra hjóna gáfu kross
inn. Sóknarpresturinn þakkaði
gjöfina fyrir hönd kirkju og
safnaðar. — Fréttaritari.
Stórtjón af völdum bruna
f Bílasmiðjunni
MIKIÐ brunatjón varð í gær-
morgun snemma hér í bænum,
er éldur kom upp í einni deild
hins mikla fyrirtækis Bílasmiðj-
unnar við Suðurlandsbraut. — í
brunanum stórskemmdust eða
eyðilögðust þrír fólksbílar.
Það var kl. 4,20 1 gærmorgun
að slökkvistöðinni var tilkynnt
að grunsamlega mikinn reyk
legði upp frá verkstæðisbygg-
ingu Bílasmiðjunnar. Er bruna-
verðir komu á vettvang, var mik
ill eldur í verkstæði því, sem
annast sætaáklæðningu og klæðn
ingu fariþegarýmis bíla. Þar inni
stóðu í eldinum þrír bílar. Mik-
ill eldur logaði í miklum birgð-
lögðust margir nýir stólar, sem
fullgerðir voru og fara áttu í
nýjan langferðavagn sem taka
átti í notkun næstu daga.
í hart nær tvo tíma var slökkvi
liðið að ráða niðurlögum elds-
ins. Mikil verðmæti í efni og
unninni vöru fóru forgörðum,
Allskonar vörur til starfsins
brunnu. Bílarnir þrír stór-
skemmdust allir. Einn þeirra er
bíll Olafs læknis Jóhannssonar,
nýlegur bíll, sem Guðni Þórðar-
son ferðaskrifstofustjóri á. Þriðji
bíllinn var 2 dyra „sportbíll“.
Ekki er vitað með hverjum
hætti eldsupptökin urðu. Síðasti
í fyrakvöld, yfirgaf verkstæðið
um klukkan 10 um kvöldið.
Brunatjónið er metið á hundr-
uð þúsunda.
um af efni. Og í eldhafinu eyði- maðurinn, sem hætti vinnu þar
Féll
og
af hestbaki
beið bana
BLÖNDUÓSI, 28. júní: — Það
slys varð í gær, að Sigtryggur
Benediktsson á Brúsastöðum í
Vatnsdal, sem var á leið frá
Blönduósi að Höllustöðum, féll
af hestbaki og beið bana.
Nánari atvik eru þau, að Sig-
150—200 milljóna
fyrir þjóðarbúið
— segir Sturlaugrur Böðvarsson
tap
EF verð á lýsi og fiskimjöli
hækkar ekki á heimsmark-
aðinum munu Islendingar
tapa 150—200 milljónum í
ár miðað við framleiðslu
síðasta árs, sagði Sturlaug-
ur Böðvarsson, útgerðar-
maður á Akranesi, er Mbl.
átti tal við hann í gær. Og
það er ekkert, sem bendir
til að verðið hækki, bætti
hann við.
Fram á mitt síðasta ár var
heimsmarkaðsverð á fiskmjöli
miðað við eggj ahvítueiningu
18’6—20’6 shillingar, en nú
hefur það farið lægst niður í
9’3 shillinga. Verðlækkunin er
því yfir 50%.
Úr 150 i 48.
Undanfarin ár hafa engir
erfiðleikar verið á því að selja
fiskmjöl. Það hefur selt sig
sjálft. Sama er að sega um
lýsið. En nú er erfitt að selja
hvort tveggja. Við liggjum
með 8—10 þúsund tonn af lýsi
í landinu. Á sama tíma í fyrra
var allt selt. í ársbyrjun í
fyrra var verð á lýsistonninu
á heimsmarkaði 70—75 sterl-
ingspund. Nú er það komið
niður í 48—55 pund. Ég man
þá tíð, þegar lýsistonnið fór á
150 pund og þar yfir. Það var
upp úr styrjaldarárunum,
sagði Sturlaugur.
Geysilegt verðfall.
Og það eru Perúmenn, sem
valda þessu verðfalli á fiski-
mjölinu .Árið 1950 framleiddu
þeir um 12 þúsund lestir af
mjöli. Áætlað er, að fram-
leiðsla þeirra verði 6—800 þús.
tonn á næsta ári. En fyrir
nokkrum árum voru einungis
5—600 þúsund tonn á hinum
frjálsa markaði.
Perúmenn ausa fiskinum
upp úr sjónum, eins og sandi.
Mesturhluti fiskiðnaðarþeirra
byggist á þessari ansjóvetu,
en svo heitir fisktegundin,
sem þeir veiða í mjölið. Þetta
er smáfiskur, minni en síld,
segja þeir.Þar fyrir utan sjóða
þeir eitthvað lítilræði niður.
Ég sá í erlendu blaði á dög-
unum, að danskt síldarmjöl,
sem áður var á $ 140 tonnið,
er nú boðið fyrir $ 70 tonnið
frítt um borð í Danmörku. —
Perú-menn bjóða sitt mjöl á
$ 85 tonnið, komið um borð til
Hamborgar. Þetta er það síð-
asta.
Áður var þorskmjöl talið
betra og var verðmeira á mark
aðinum en síldar- og karfa-
mjöl. Nú er allt í sama lága
verðflokkinum.
tryggur hélt frá Blönduósi áleið-
is til Höllustaða í Svínavatns-
hreppi laust eftir hádegi í gær.
Hafði hann tvo til reiðar. Um
þrjúleytið sáust hestar hans
gengt Hnjúkahlíð, sem er um 3
km frá Blönduósi. Var því ekki
veitt sérstök athygli.
í morgun komu hestar Sig-
tryggs til Blönduóss með reið-
tygjum. Var hans þá þegar leit-
að. í kvöld fannst lík Sigtryggs
í vegkantinum gengt Hnjúkahlíð.
Hafði hann látizt þegar er hann
féll af hestinum, en nánari at-
vik slyssins eru ekki kunn.
Sigtryggur var á sjötugsaldri.
■—Fréttaritari.
Alhvítt oi hagli
í 18 stiga hita
KÓPASKERI, 28. júní: — í
gær var blíðskaparveður og
18 stiga hiti hér um slóðir.
En svo undarlega bar við,
að skyndilega kom hagléi
svo mikið að alhvítt varð
víða í fjöllum og víða í
byggð.
Ilalglið féll beint til jarð-
ar og var sums staðar þaö
mikið að skaflar mynduðust
milli húsa. í Klifshaga var
úrfellið slíkt að, miklir læk-
ir runnu eftir vegum þegar
er haglið tók að bráðna í
hitanum. Á næsta bæ, Sand-
fellshaga, sem er í eins kíló-
meters fjarlægð frá Klifs-
haga, kom aftur á móti okki
eitt einasta hagl úr lofti.
Hér á Kópaskeri féll ekk-
ert hagl, en fjöll hér fyrir
austa hvítnuðu.
— Fréttaritari.
1 MAÍMÁNUÐI var vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður um 22,1
millj. kr., útflutt fyrir 187 millj.,
en innflutt fyrir 209,1 millj.
Fyrstu 5 mánuði ársins eða til
maíloka var vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um 236 millj.,
fluttar út vörur fyrir 1033 millj.,
og inn fyrir 1269 millj., þar af
skip fyrir 101 millj.
í fyrra var vöruskiptajöfnuður
inn í maí óhagstæður um 81
millj. og frá jan.—maí óhagstæð-
ur um 197 millj.
Mikil síld út
af Raufarhöfn
RAUFARHÖFN, 28. júni. — Frá
því kl. 7 á mánudagsmorgun til
jafnlengdar í dag bárust hingað
um 40 þúsund mál síldar úr 70
skipum. Kl. 9 í morgun var tekið
fyrir löndunina sér og fóru um
200 fullfermd skip út úr höfninni
eftir að létt hafði verið á þeim
undir siglinguna til Siglufjarðar.
Bræðsla er í fullum gangi og
gengur vel.
Þrær verksmiðjunnar hér taka
aðeins 2500 mál, en unnið er að
stækkun þeirra og verður viðbót-
arrýmið fyrir 37,500 mál. Verður
það tilbúið eftir u. þ. b. viku.
Síðdegis í dag var mikil síld um
65 mílur ANA af Raufarhöfn. —
Mörg skip sprengdu nætur sín.
ar þar en mörg fengu einnig góð-
an afla.
Hér er gott veður og gott útlit
með veiðina. Síldin er mögur og
misjöfn.
★
Frá Akureyri var símað í gær-
kvöldi, að Auðunn og Snæfell
væru á leið til Krossaness, Auð-
unn með 1600 mál og Snæfell með
1100.
Mörg síldarskip leituðu á Aust
fjarðahafnir og kom fyrsta síld-
in til Seyðisfjarðar og Norðfjarð-
ar í gærkvöldi. Er allt tilbúið til
síldarmóttöku þar. Á Vopnafirði
er hins vegar ekki hægt að taka
á móti síld fyrr en eftir tvo daga.