Morgunblaðið - 30.06.1960, Síða 8
8
MORGVNBIAÐIÐ
Fimmtudagur 30. júní 1960
ÞAÐ voru samtök jap-
anskra stúdenta, sem stóðu
fremst í flokki í róstunum
miklu í Tókíó og urðu þess
valdandi, að Eisenhower
forseti varð að hætta við
för sína til Japans. Samtök
þessi voru upphaflega
stofnuð og alin af komm-
únistum, en síðar hafa þau
klofnað frá kommúnista-
flokknum japanska vegna
þess að þau voru enn öfga-
fyllri og óstýrilátari en
kommúnistar gátu sætt sig
við. —
0 Ávöxtur frjálsræðis
Stúdentasamtökin kallast á
japönsku Zengakuren. Orðið
hefur enga sérstaka merkingu,
en er til búið úr skammstöfun
á heitinu Samband sjálfstjórn-
arfélaga stúdenta. Þetta er
samband félaga og einstakir
stúdentar eru ekki meðlimir
í því, heldur tilheyra þeir sín
um háskólafélögum, sem síð-
an ákveða hvort þau gerast
aðitjar að Zengakuren-sam-
bandinu í Tokíó.
í Zemgakuren eru samtals
250 stúdentafélög og er heild-
arféiagatala þeirrá 290 þús.,
en það er um það bil helm-
ingurinn af öllum háskóla-
stúdentum í Japan.
Sambandið var stofnað 1948
á hinum umbrotasömu her-
námsárum, þegar japanska
þjóðin öll, háskólarnir og
stúdentarnir fengu skyndilega
svo víðtækt skoðanafrelsi, að
slíkt hafði aldrei áður þekkzt
í Japan. Nú gerðist það meira
að segja í fyrsta skipti í sögu
Japan að menn fengu að ræða
írjálslega um vinstri-skoðan-
ir.
Nú var kommúnistaflokkur
ieyfður í Japan og atti hann
miög virkan þátt í stofnun
Zengakuren á þeim forsend-
um, að „þjóðleg stúdenta-
fylking getur orðið þýðingar-
mikið vopn í baráttunni gegn
ríkisvaldinu“. Árið 1950
skýrðu kommúnistar frá því,
að 5000 stúdentar í Tokíó-há-
skóla værvr meðlimir flokks-
ins og að 300 stúdentasellur
hefðu verið stofnaðar út um
gervallt land.
Virðist þá hafa verið há-
mark áhrifa kommúnista. Eft-
ir það fór að draga úr áhrif-
um þeirra í stúdentasamtök-
unum og stafar það af ágrein-
ingi eða hreinum klofningi,
sem varð milli kommúnista-
flokksins og forustuliðs Zen-
gakuren.
• Klofningur vinstr!-manna
Kommúnistaflokkurinn var
andvígur því, að Zengakuren
yrði byltingarhreyfing, fannst
að félagsskapurinn drægi með
því athygli frá sjálfum flokkn
um. Kommúnistarnir gáfu út
fjölda fyrirmæla og tilskip-
ana til flokksmanna sinna í
Zengakuren, að þeir ættu að
takmarka starfssvið sitt við
málefni stúdenta og háskóla.
Mislíkaði kommúnistum, þeg-
ar það kom fyrir, að Zenga-
kuren tók forustuna frá sjálf-
um flokknum í ýmsum þjóð-
legum baráttumálum. Þrátt
fyrir klofninginn hefur stjórn
Zengakuren-stúdentar leggja til atlögu.
ofstækisfyllri en kommúnistar
Zengakuren margsinnis lýst
því yfir, að hún stefni að bylt-
ingu og kommúnistaþjóðfélagi
1 Japan.
Japanskir stúdentar og
menntamenn þjást af einskon-
ar öfugum MaCarthyisma.
Það er í tízku að vera vinstri-
sinnaður og ekkert annað er
þolað nema vinstriskoðanir.
Beita þeir alla sem eru á ann-
arri skoðun sömu kúgunarað-
gerðum og McCarthy var van-
Eftir John Campbell
ur í Bandaríkjunum Þetta
andrúmsloft vinstristefnu
skýrir það, hversvegna hin
harðskeytta og vel skipulagða
vinstrisinnaða forusta Zenga-
kuren félagsskaparins hefur
getað haldið slíkum járnaga
á stúdentunum, sem raun ber
nú vitni.
• Fordæmdir sem trotskíistar
Á 14. þjóðþingi Zengakuren,
sem haldið var 1959, var talið
að aðeins 37% af 350 fulltrú-
um væru kommúnistar. Hin
63% tilheyrðu .„aðalfylking-
unni“ svokölluðu, en hún er
lengra til vinstri en Kommún-
istarnir. Við hliðina á þeim er
í rauninni lítið á kommúnista
sem íhaldsmenn. Ágremingur-
inn kom berlega í ljós á þessu
þingi, því að hópur flokks-
bundinna kommúnista, sem
viidu skipa eftirlitsnefndir til
að stuðla að íhaldssamari
stefnu, var rekinn úr fundar-
sal og þegar þeir neituðu að
fara með góðu móti voru þeir
bornir burt með valdi.
Þá greip kommúnistaflokk-
urinn til hefndarráðstafana,
rak 72 forustumenn Zenga-
kuren úr kommúnistaflokkn-
um og fordæmdi þá sem
trotskíista.
Zengakuren-forustan svar-
aði með níði um komni-
únista. Sögðu þeir að komm-
únistar væru orðnir gamlir
kyrrsetumenn, kjarklausir og
hefðu misst allt samband við
byltinguna. Þeir bættu því við,
að Krúsjeff forsætisráðherra
Rússlands væri „gamall aft-
uihaldssamur steingerfingur“.
Eftir þennan klofning hafa
hinir róttækustu verið alráðir
í Zengakuren-félagsskapnum
og þeir hafa leitt félagsskap-
inn til æ róttækari og æsilegri
aðgerða.
Það voru Zengakuren-stú-
dentar, sem ruddust inn í að-
aiflugstöðvarbyggihguna við
Tokíó í janúar sl. þegar Kishi
forsætisráðherra ætlaði að
íijuga til Bandaríkjanna til að
undirrita hinn nýja öryggis-
eátlmála ríkjanna. Lögreglan
reyndi árangurslaust í margar
klukkustundir, að koma stú-
dentunum út af flugvellinum
og á meðan var Kishi forsætis-
ráðherra ekið um hliðargötur
og bakhlið til flugvallarins,
en þvrilvængja lögreglunnar
flaug yfir og sendi tilkynn-
íngar í radíó um það, hvar
stúdentahóparnir héldu sig.
Lögreglan forðast eins og hún
getur að beita stúdentana
valdi, því að þá yrði hún ásök
uð um að vera farin að taka
upp sömu aðfarirnar og tíðk-
uðust fyrir stríð.
• Veldur áhyggjum
Japanskir háskólar og stú-
dentar þeirra vilja varðveita
háskólafrelsið ,sem þeim var
veitt á bandarísku hernámsár-
unum. Það má því heita, að
háskólarnir sjálfir en ekki lög-
reglan ráði lögum og lofum á
lóðum háskólanna. Stjórnir
háskólanna eru hikandi við
að beita refsiaðgerðum gegn
meðlimum Zengakuren. En
aukið vald samtakanna veld-
ur flestum áhyggjum, bæði
stjórnarvöldum og stjórnar-
andstöðunni. Jafnaðarmenn
og kommúnistar eru líka
áhyggjufullir yfir því, hve ó-
stýrlátir stúdentarnir eru. Hef
ur það nokkrum sinnum kom-
ið fyrir, að blað kommúnista
gefi út yfirlýsingar um að
kommúnistaflokkurinn beri
enga ábyrgð á ýmsum óhæfu-
verkum Zengakuren.
Forustumenn Zengakuren
stjórna stúdentunum nú með
járnhnefa, en þeir eru farnir
að leita víðar og hyggjast færa
út völd sín. Starfsmenn þeirra
eru nú að leita fyrir sér um
samtsarf við kennara og
æskulýðsfélög og jafnvel
kvennasamtök. Sjást þess
merki að Zengakuren menn
eru byrjaðir á endurskipu-
lagningu ýmissa gamalla fé-
lagssamtaka á þessum sviðum.
Rósturnar í Tokíó og á
Haneda-flugvelli við borgina,
þegar Hagerty blaðafulltrúi
kom þangað voru aðallega
eða jafnvel eingöngu skipu-
lagðar af Zengakuren félags-
skapnum. Það voru einnig
einskonar stormsveitir Zenga-
kuren sem gerðu „sjálfsmorðs
atlöguna“ að þinghúsinu í
Tokíó.
• Minnihlutinn stjórnar
En hvað hafa þeir mikinn
stuðning meðal japansks al-
inenings?
Hin róttæka forusta Zenga-
kuren heldur völdum í stú-
dentasamtökunum með hinum
venjulegu aðferðum kommún-
ista til að stjórna og ráða með
litlum minnihluta. Þeir fylla
kosningafundi og hafa alltaf
betur en andstæðingarnir með
sterku skipulagi á félagsmái-
um. En af 600 þúsund háskóla-
stúdentum í Japan er ekki tal-
ið að meir en 30 til 40 þúsund
séu öruggur stuðningsmenn
vinstri forustunnar.
Og kommúnistar eru ekki
enn búnir að gefa upp alla
von um, að þeim takist að
siða þessa róttæku ólátabelgi
og innlima þá að nýju í
kommúnistaflokkinn. Samt
sagði málgagn kommúnista í
Japan, Akahata, nýlega í for-
ustugrein: „Við skulum greina
skýrt á milli smáhópa óðra
trotskíista sem ráða öllu í
stjórn Zengakurens og
þröngva vilja sínum upp á
stúdentana . . .“
Þessi skoðun kommúnista
er, þótt undarlegt megi virð-
ast einnig skoðun japanskra
stjórnarvalda.
(Observer — Öll réttindi
áskilin).
Linoleum c þykkt
(brezkar) fyrirliggjandi
O. V. Jóhannsson & Co.
Hafnarstræti 19 — Símar: 12363 og 17563
Sölumaður óskast
Óska eftir sölumanni til starfa við fast-
eignasölu hér í bænum. — Upplýsirigar kl.
5—8 í síma 23059.
Óska eftir að taka á leigu
geymslupláss
bílskúr eða bragga. — Upplýsingar í síma
32881.