Morgunblaðið - 30.06.1960, Qupperneq 10
10
MORCVIVBT. 4 ÐIÐ
Fimmtudagur 30. júní 1960
JMfttttnttliftiritf ^
Útg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
NÝ ÓHAPPAVERK
DREZKI flotinn hefur hafið
" ný óhappaverk og vald-
beitingu á íslenzkum fiski-
miðum. Eru það vissulega
hin mestu ótíðindi. Eftir að
Genfarráðstefnunni lauk,
ákváðu brezkir togaraeigend-
ur, að togarar þeirra skyldu
ekki fara inn fyrir 12 mílna
mörkin næstu þrjá mánuði.
Er sá tími ekki útrunninn
fyrr en um miðjan júlí. ís-
lendingar höfðu ennfremur
rökstudda ástæðu til þess að
ætla að brezka flotamálaráðu-
neytið hefði ákveðið að láta
ekki herskip sín styðja brezka
togara til landhelgisbrota, a.
m. k. ekki innan þessara fyrr-
greindu þriggja mánaða.
Stöðug-t ágengari
En Adam var ekki lengi í
Paradís. Brezku togararnir
hafa sífellt gerzt ágengnari á
miðunum hér undanfarnar
vikur. Eins og skýrt hefur
verið frá hér í blaðinu hafa
brezkir togarar alloft verið
að veiðum alveg á 12 mílna
mörkunum og jafnvel farið
inn fyrir þau. Er greinilegt,
að togaramenn hafa haft í
frammi hreinar ögranir við
íslenzku landhelgisgæzluna
um leið og þeir virðast hafa
verið að reyna fyrir sér um
það, hvort verndar væri að
vænta frá brezkum herskip-
um, ef íslenzku varðskipin
reyndu að taka þá.
Nú hefur það gerzt, að
brezkt herskip hefur beitt
íslenzku landhelgisgæzl-
una valdi, hindrað íslenzka
varðskipsmenn í að færa
landhelgisbrjót til hafnar
og flutt íslenzka löggæzlu-
menn með ofbeldi úr
brezkum togara yfir í Þór,
sem staðið hafði landhelgis
brjótinn að verki.
Alvarlegur atburður
Um það skal ekkert fullyrt
á þessu stigi málsins, hvort
þetta muni verða upphaf að
nýju valdbeitingartímabili
brezka flotans á íslandsmið-
um, eða hvort hér sé um að
ræða einstaka ofbeldisaðgerð
af hálfu yfirmanns þess
brezka herskips, sem tók að
sér að hindra varðskipið Þór
í að koma lögum yfir land-
helgisbrjótinn Northern
Queen. Hér er vissulega um
mjög alvarlegan atburð að
ræða. íslendingar hafa lagt
sig fram um að forðast
árekstra, og stuðla að bættri
sambúð íslendinga og Breta.
Því fer víðs fjarri að hægt sé
að saka okkur um tilraunir
til æsinga í þessu máli.
Brezki flotinn og þeir sem
honum stjórna bera því alla
ábyrgð á því, ef nú hefjast ný
átök og íllindi milli íslend-
inga og Breta.
En það er vissulega
hörmulegt, ef brezka
stjórnin liefur ekki lært
meira af reynslunni en
svo, að hún lætur nú flota
sinn hefja nýjar hernaðar-
aðgerðir gagnvart íslend-
ingum.
MIKIÐ ÁFALL
PNGUM blöðum er um það
" að fletta, að hið geysilega
verðfall á fiskimjöli er mikið
áfall fyrir sjávarútveg okkar
íslendinga. Við höfum á und-
anförnum áratugum lagt
mikla áherzlu á að byggja
síldarverksmiðjur og fiski-
mjölsverksmiðjur víðsvegar
um land. Enda þótt Norður-
landssíldveiðin hafi oft brugð
izt, þá hefur þó síldar- og
fiskimjöl jafnan hin síðari ár
verið mikilvæg útflutnings-
vara.
Sérstaklega hefur fram-
leiðsla fiskimjölsins farið
vaxandi með ári hverju. —
Reynt hefur verið að hagnýta
hverskonar fiskúrgang til
mjölvinnsiu. Segja má einnig
að sæmilegt verð hafi verið
fyrir þessa vöru fram til síð-
ustu ára.
Eins og kunnugt er, eru það
fyrst og fremst Perúmenn,
sem valda hinu geysilega verð
falli á fiskimjölinu. Þeir hafa
á örskömmum tíma aukið
framleiðslu sína á fiskimjöli
gífurlega og fellt þar með
verðið á þessari vöru á heims-
markaðnum, eins og raun ber
vitni.
Aukin notkun
Enda þótt ekki sé von-
laust um að mögulegt
reynist að auka notkun
fiskimjöls í ýmsum lönd-
um, er mjög hæpið að gera
sér von um hækkandi verð
lag á þvi á næstunni.
Eins og áður er sagt, hlýtur
þessi mikla verðlækkun á af-
urðum okkar íslendinga að
valda sjávarútveginum og
fiskimönnum miklum erfið-
leikum. Er vandséð, hvernig
fram úr þeim verður ráðið.
En vitanlega verður allt gert
sem unnt er til þess af hálfu
íslenzkra aðilja að firra
hreinum vandræðum af þess-
um sökum.
Q' - ' s * '
Flugvél - veitingastofa
FLUGVÉLARNAR eldast
fljótt nú á tímum hinna öru
framfara —■ svo fljótt, að
menn vita stundum naumast,
hvað þeir eiga við þær að
gera.
Flugvirkínn kom til skjalanna
„Hassin Jukka“ — en svo
heitir flugvélin, sem hér birtast
myndir af, hefur komið að góðu
hætt var að nota hana til flutn-
inga og ákveðið var, að hún
skyldi höggvin upp, gat Erkki
ómögulega hugsað sér, að enda-
lok „Hassin Jukka“ yrðu svo
ömurleg.
Veitingasala fyrlr böm
Hann gerði því ráðstafanir til
að éignast flugvélina — og inn-
réttaði hana með það fyrir aug-
um að hafa i henni veitingasölu,
<5>1
í D A G verður Belgíska
Kongó sjálfstætt riki. Mynd
in sýnir íulltrúa ríkisstjórn-
ar Belgíu, van der Meersch,
óska hinum 34 ára gamla
Patrice Lumumba til ham-
ingju, er Lumumba hafði
ioks tekizt að mynda ríkis-
stjórn þá er nú tekur við
völdum í landinu.
sumartímann, en allt árið um
kring eru híns vegar framreidd-
ar veitingar inni í flugvélinni.
Þar inni er mjög vistlegt og
hlýtt.
Skemmtilegur staður
gagni við flutninga fyrir finnska
herinn.
Flugvirkinn Erkki Skogster
var um árabil nátengdur flug-
vélinni, sem hann þar af leið-
andi hafði tekið miklu ástfóstri
við. Og þegar að því kom, að
aðallega fyrir börn. Þannig er
hún nú staðsett í heimabæ hans,
Hameenlinna, og nýtur þar mik-
illa vinsælda.
Undir vængjum flugvélarinn-
ar hefur hann borð og stóla, þar
sem hægt er að fá veitingar um
Ekki má svo gleyma pallinum,
sem byggður hefur verið úti á
væng flugvélarinnar, en hann er
mjög vinsæll, þegar vel viðrar.
Börnin skernmta sér vel í flug-
vélinni. Það virðist vera næstum
því eins spennandi og vera myndi
ef flugvélin væri á lofti.
Onassis-J? jóiiin
skilin
NEW YORK, 27. júní: _ Tina
Onassis hefur nú fengið löglegan
skilnað frá manni sínum olíu-
kónginum, Skilnaðurinn fékkst í
Alabama-ríki í Bandaríkjunum,
en Alabama er eitt þeirra fylkja,
sem hefur hvað rýmst laga-
ákvæði í þessu efni. Það var upp
lýst, að Tina hafði sakað mann
sinn um „andlegar misþyrming-
ar“.