Morgunblaðið - 24.07.1960, Page 6

Morgunblaðið - 24.07.1960, Page 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 24. júlí. 1960 /Ulcu^As(HS,: Hamingja BLAÐAMAÐUR nokkur spurði mig í gær: „Hvenær eruð þér hamingjusamur?“ Ég velti þessu fyrir mér: „Hvenær er ég hamingjusamur?“ Reyndar hafði ég svarið á hraðbergi: „Ég er hamingjusamur, hvenær !s^m ég lifi ekki fyrir sjálfan mig, heldur fyrir þá, sem ég elska, eða fyrir starf mitt. Já, til að öðlast hamingju fylgi ég þessum einkunnarorðum: Lifðu ekki ein- göngu fyrir sjálfan þig. Hugsaðu eins lítið um sjálfan þig og þú getur“. Við þekkjum öll menn og konur, sem hugsa ekkki um neitt nema sig sjálfa. Þeim er alltaf illt fyrir hjart- anu, meltingin er of treg og þau eru dauðþreytt að kvöldi. Hættuleg sjúkdómseinkenni! Þau greina sjúk- dóminn sjálf, og hann er hræðilegur. Ef þau hefðu engan tíma til að velta vöngum yfir, hvar þau fyndu til, myndu þau vera stálhraust. Eða þau gera sér áhyggjur af því, hvað aðrir hugsa um þau. Eru þau í raun og veru elskuð eða virt? Eru vinir þeirra góðir vinir? Er starf þeirra metið að verð- leikum? Ég þekki fólk, sem er ekki i rónni af því að einhver starfsbróðir aflar sér meiri tekna en það; é g þekki rithöfunda, sem fylgjast öfundsjúkir með því, hversu vel bækur starfsbræðra þeirra seljast; ég þekki konur, sem ekki geta stillt sig um að vega og meta skartgripi annarra kvenna. Allt þetta fólk hefir enga raunverulega ástæðu til að vera áhyggjufullt vegna afkomu sinnar. Það skort- ir ekkert. Því vegnar svo vel, að það ætti að geta verið ánægt. En það ber sífellt hlutskipti sitt saman við að- stæður annarra, þó að þar sé ef til vill ekkert sam- bærilegt að finna. Það skiptir ekki máli, hvað fólk hugsar um okkur, heldur hvað við e'um og hvað við gerum. ÍHvernig eigum við að öðlast hamingju? í stað þess að láta yður dreyma dagdrauma um það, sem þér getið ekki gert og getið ekki fengið, skuluð þér njóta þess, sem þér eigið kost á. Sönn gleði er fólgin l í því að vinna, að elska og gleyma sjiáfum sér. Þetta er hamingja þess karls og þeirrar konu, sem reyna að gera lífið ánægjulegt og létt fyrir þá, sem þau elska. Þetta er hamingja brautryðjandans, sem nemur nýtt land og hefir engan tíma til að rannsaka tilfinningar sínar. Þetta er hamingja stjórnmálamannsins, sem- vinnur 15 klukkustundir á sólarhring í þágu lands síns, i og listamannsins, sem gleymir umheiminum, er hann vinnur að listaverkum sínum. Einhver kynni að segja: „Heyr á endemi! Eigið þér við, að menn ættu aldrei að gefa sér tima til að íhuga hegðun sína í fullri alvöru? Álítið bér, að menn eigi að líta fram hjá sannleikanum um sjálfa sig?“ Nei, en ég held, að menn ættu aðeins að gefa sig að slíkri sjálfsathugun öðru hverju. Sé hún nauðsynleg, þarf hún að vera nákvæm og í fullu samræmi við sannleik- ann. Þegar athuguninni er lokið, dragið þá ályktanir af henni og hefjizt því næst aftur handa í starfi og lífi. Leyfið engum, ekki einu sinni eiginkonu yðar eða vini að ýfa sífellt upp sár yðar. Veljið yður ráðgjafa úr hópi þeirra, sem gera lífið unaðslegt, ekki úr hópi þeirra, sem gera það ógeðfellt. Þannig leitast ég við að öðlast hamingju. • f guðsgrænni náttúrunni B. B. skrifar sólbjartan sumardag á Akureyri: Nú er margt um manninn & tjaldsvæði því sem Akureyr- arbær býður ferðafólki til af- nota. í morgun taldi ég 30 tjöld stór og smá á hinni fögru grasflöt. Heilar fjöl- skyldur taka sér þarna ból- setu um stundarsakir. Ný- þvegið barnatau sá í - á einni tjaldsnúrunni i- ussuð heyrðist t og hvar; og ekki höfó on- urnar gleymt bláu kaffi- könnunni heima. Börn í sund bolum léku sér í grasinu, en yngra fólkið lá í sólbaði við tjaldskörina. Þama ríkti frið- sæld og gott samkomulag. Fólk naut sólarinnar og hins frjálsa og glaða lífs úti í guðs grænni náttúrunni. Ber að þakka Akureyrarbse af alhug fjrrir þann skilning, gem bærinn sýnir ferðafólkL Á æfingu hjá Karlakór Reykjavíkur. — Þennan kafla á aff syngja glaðlega — rétt eins og þiff hefffuff fengiff stóran happdrættisvinning, segir söngstjórinn, sem hefir stjórnað 2500 æfingum hjá kórnum. (Ljósm. P. Thomsen). Hefir haldið 86 sam- söngva erlendis Karlakór Reykjavíkur undirbýr 6. utanför sína EINS OG frá hefir verið sagt í blaðinu, skýrðu forystumenn Karlakórs Reykjavíkur frétta mönnum sl fimmtudag nokk- uð frá fyrirhugaðri söngför kórsins til Vesturheims. — Þetta er önnur för kórs- ins til Vesturheims, (hin fyrri var farin 1946), og er hún farin á vegum fyrirtæk- isins „Columbia Artists Man- agement Inc.“ í New York, sem er eitt hið stærsta sinn- ar tegundar í Bandaríkjunum. — ★ — Samningurinn við fyrirtæki þetta var gerður fyrir milligöngu Gunnars Pálssonar, hins kunna söngvara, sem eitt sinn var fé- lagi í Karlakór Reykjavikur og einsöngvari með honum, en Gunnar er fcúsettur vestanhafs. — Fjörutíu manns mun taka þátt í söngförinni, að meðtöldum söngstjóra, einsöngvurum, undir- leikara og feiarstjóra. Áður hefir verið skýrt frá, hverjir þeir eru, en tveir einsöngvaranna, Guð- mundur Guðjónsson og Kristinn Hallsson, syngja einnig með sem kórmenn. ★ Hvarvetna lofsamlegir dómar Formaður kórsins, Haraldur Sigurðsson, skýrði nokkuð frá ýmsu úr undirbúningsstarfinu að þessari utaníör, sem verið hefir mikið, og vakti nokkuð atriði úr sögu kórsins í því sambandi, einkum að því er varðar fyrri utanfarir. — Karlakór Reykja- víkur hefir fimm sinnum áður farið söngferðir til útlanda. Árið 1935 fór hann til Norðurlanda, 1937 til Mið-Evrópu, árið 1946 var hin mikla söngför til Bandaríkj- anna, en þá söng kórinn á 56 tónleikum í nær jafnmörgum borgum, og áheyrendur voru yfir hundrað þúsund. Næst fór kórinn söngför til Miðjarðar- hafslanda árið 1953, og loks var honum boðið á tónlistarhátíðina í Bergen 1956, og þá jafnframt á 50 ára afmælishátíð karlakórs- ins „Bel Canto“ í Kaupmanna- höfn. — Það má segja, að dómar um söng kórsins í þessum ferð- um hafi verið mjög á einn veg — lofsamlegir í bezta niáta. Hefir hann því hlotið talsverða frægð erlendis, enda sagði formaður- inn, að árlega bærust tilmæli um, að kórinn héldi tónleika hér og þar, en þessu væri yfirleitt ekki unnt að sinna. Finnland og Sovétríkin væru meðal þeirra landa, sem kórinn langaði mjög til að heimsækja — en það yrði að bíða betri tíma. Karlakór Reykjavíkur hefir haldið 86 söngskemmtanir er- lendis til þessa (fyrir nokkur hundruð—þúsund áheyrendur) — í ferðinni í haust mun kórinn syngja 40 sinnum á 39 stöðum; tveir samsöngvar verða í Winni- peg. — Að förinni lokinni verð- ur þá kórinn búinn að halda 126 söngskemmtanir „handan við pollinn." Auk þess hefir hann sungið á um 50 plötusíður fyrir grammófón —■ og á næstunni mun væntanleg ný hæggeng plata með scng kórsins. Þá hefir Framh. á bls. 23. • Hættusvæðið við Sog í dag skrifar Jói Velvak- anda nokkrar línur vegna bréfs „ferðalangs", sem birt- ist hér í fyrradag. Jói segir: — „Ferðalangur" skrifar Vel vakanda nýlega og talar um „hættusvæðið við Sog". Að sjálfsögðu er það rétt, að nokkra varúð þarf að sýna við Efrafall, enda er orku- verið enn í smíðum. En ekki ☆ kemur til nokkurra mála. að meina fólki að skoða virkjun- arstaðinn. Það er bæði fróð- legt og svo er gott út- sýni þarna og víða fallegt í kring. í framtíðinni mun þetta sjálfsagt verða enn fjöl- sóttari áningarstaður en nú er. Annar's var bréf Ferðalangs athyglisvert að einu leyti. „Strákarnir hans vildu endi- lega aka upp á Dráttarhlíð" (en hann hélt að það mætti ekki), og síðan hlupu strák- arnir niður hlíðina hinum megin og þar var enginn vörður og engar grindur. — Með öðrum orðum, af því að „ferðalangur" ræður ekkert við sína eigin stráka, verður hið opinbera að gæta þeirra. Hvernig væri að bæta upp- eldið? — Jói. • Misskilur strákseðlið Velvakandi hefur því einu við bréf Jóa að bæta, að hann virðist ekki skilja strákseðlið FERDINAIMD til hlitar. Það munu vera of vel uppaldir drengir, sem ekki faka til fótanna óháð vilja feðra sinna, þegar þeir koma út úr bíl austur við Efra-Sog eftir langan ökutúr. Hraustir og frískir strákar eru venjulega miklir fyrir sér og illviðráðanlegir á vissurn aldri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.