Morgunblaðið - 24.07.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.07.1960, Blaðsíða 22
22 MORCVMJt’ZIHtí Sunnudagur 24. júlí. 1960 r ur látið^í væri af s hafði séð og sko huguðtí siíndhöll um og sagðist va að lýfeá'Tmfningu sem hann -jhafði Sund er eina íþrottin þar sem börn setja heimsmet Rœtt við Mr. William Berge Phillips, ritara ástralska sundsambandsins, um vísindi og sund NÝLEGA var hér á ferð Ástralíumaðurinn William Berge Phillips, en hann er einn af framkvæmdastjórum alþjóðasamtaka Lion-klúbb- anna. Phillips kom með Loft- leiðurn frá New York, þar sem hann hafði setið ráð- stefnu Lion klúbba og var nú ferðinni heitið til Rómar, þar sem Phillips verður dómari við súndkeppni Olympíuleik- anna, en hann er einn af for- ustumönnum sundmála í Ástralíu, ritari ástralska sundsambandsins, og er vara- formaður alþjóða sundsam- bandsins. Stórhugur Reykvíkinga Fréttamaður íþróttasíðunnar hitti liTr. JPhillips að máli í Hótel Borg ög leitaði frétta af undir- búningi Ástraliumanna fyrir Olympíuleikina, en Ástralíumað- urinntsagðist ekki vilja tala um t' — maðurinn, sem synda 2 ára gamall. ^Gullmaðurinn“ frá Melftourne-leikjunum fyýr en hann hefði sjálf 'ljjós, hve hrifinn hann st(jrhug Reykvíkinga til s^ndmenntunnar. Hann ög skoðað hina fyrir- í Laugardaln- varla eiga orð til sinni yfir því séð þar. Við erum af mörgum taldirl mesja sundþjóð heimsins, sagði 'Mr,. Phillips, en þó eigum við ejikj 'súndlaug eða höll sem Jtæmisf í íhálfkvist við þá er þið eruð að reisa í Laugardalnum. — =3dr. phTlHps sagðist ekki hafa Ijséð eftir að taka þennan krók á leið sjna tíl að kynnast landi og §>jóð. -Hann hafði kynnzt Erlingi Pálssýfli 'sog Benedikt Waage (endd''með*merki Norrænu sund- keppijjirínar og ÍSÍ í barminum) og satSiÍt hafr verið mjög ánægð ur méð aðjh«yr« um sundskyldu i skólúm innt-Ulo*. „Þegar ég br ; um þetta er þetta ef til vill ekki svo undravert, því gegnum kynn ingu mína af Lion hef ég upplýs- ingar um það að miðað við fólks- fjölda eru hér fleiri Lion-klúbb- ar en í nokkru öðru landi í heim inum, en einmitt það er gott dæmi um samtakamátt þjóðar- innar og framfarahug um bætt- an aðbúnað samfélagsins. 94 þjóSir í FINA Mr. William Berge Phillips er, eins og skýrt hefur verið frá, varaformaður FINA, alþjóða sundsambandsins. í Róm mun hann sitja ráðstefnu sambands- ins, en hún er ávallt haldin í sambandi við Olympiuleikina. Á ráðstefnunni munu verða mætt- ir fulltrúar frá næstum öllum aðildarþjóðum sambandsins, en þær eru 94 talsins. Mr. Phillips var kjörinn varaformaður sam- bandsins 1948, en þá var ráðstefn an haldin í Melbourne. Taka þátt í öllum greinum Ástralíumenn munu taka þátt í öllum greinum sundsins á Olympíuleikunum, en fulltrúar þeirra hafa ekki enn verið vald- ir og verður úrtökumótið haldið 7. ágúst. Hörð og tvísýn keppni er um hvert sæti og eiga Ástralíu menn t. d. sex menn er synda 100 metrana undir 56 sek. 28 sundmenn til Rómar — 100.000 dalir — Ákveðið er að senda 28 sund- menn og konur til keppninnar í Róm. 4 taka þátt í dýfingum og 10 manna sundknattleikslið verð ur á Olympíuleikjunum frá Ástra líu Kostnaðurinn við að koma þessum þátttakendum til Rómar og heim aftur er gifurlegur, í allt mun það vera eitthvað um 100.000 dalir (3 milljónir og 800 þús. ísl. kr.), sagði Mr. Phillips brosandi. Yngstu keppendurnir 14 ára í Olympíuliði Ástralíumanna eru áberandi ungir menn og kon ur, eða réttara sagt drengir og stúlkur. — Yngstu þátttakend- urnir í ár verða, bringusunds- stúlkan Jane Hogan og flugsunds drengurinn Kevin Berry, þau eru jafnaldra, bæði 14 ára. Konradssystkinin með og Frazer Úrtökumótið er ekki afstaðið myndu verða í liðinu. John Kon- radssystkinin John og Elsa myndu verða í liðnu. John Kon- rad mun keppa í 400 og 1500 metra frjálsri aðferð og Elsa í 400 metra frj. aðferð og jafnvel 100 metrum líka. John er nú 17 ára en Elsa 16 ára. Dawn Frazer, sem vann 100 metra skriðsund kvenna á síðustu Olympíuleikj- um og setti heimsmet, mun að líkinchim keppa í 100 og 400 metra frj. aðferð og einnig í 100 m. flugsundi. ,,En þú skalt taka eftir nýju nafni“, sagði Mr. Phillips og brosti. Robert Windle. Hann er 15 ára, og syndir 1500 metrana á 63 sek. skemmri tíma en Konrad gerði á hans aldri. Við vonum að Robert verði annar á Olympiu leikunum, sagði Mr. Phillips. 6 undir 56 sek. Við getum aðeins sent tvo keppendur í hverja grein sunds- ins, svo þu sérð að keppnin er geysi hörð, þegar við eigum sex menn sem synda 100 metrana undir 56 sek., hélt Mr. Phillips áfram. Og til þess að þú trúir mér skal ég telja þá upp . Fyrst er að telja heimsmethaf- ann John Devitt. Heimsmetið hans er 54.6 sek. J. Henrick, sá er vann sundið á Olympíuleikj- unum ’56 á bezt 55.4 sek. Jeffrey Shipton á 55.7 sek., John Konrad Frá leik Ármanns og Þróttar í meistaraflokki kvenna. íslandsmótið í útih andknattleik Daun Rraser, setti nýtt heims- met í 100 m skriðsundi kvenna á Olympíuleikjunum 1956 Keppir nú í flugsundi. á 55.8 sek., David Djckson á 55.8 sek og John Moncton á 55.9 sek., en hann á heimsmetið í 100 m. baksundi 61.4 sek. Miklar vonir, cn keppni verður hörð Mr. Phillips sagði að Ástralíu- menn gerðu sér miklar vonir með stóra sigra í sundgréinum Olymp- íuleikanna og hefðu þeir þar drjúgar ástæður til, þótt Banda- ríkjamenn og Japanir myndu koma sterkari en nokkru sinni fyrr til leikanna. 4v200 m boð- sund karla, frjálsaðferð og 4x100 m kvenna frjálsaðferð, telja Úti-handknattleiksmót íslands hófst á Ármannssvæðinu á föstu dagskvöldið. Mótið var sett með Ástralíumenn að þeir vinni, þar sem þeir eiga heimsmet í báðum þessum greinum. Sömuleiðis 4x100 m fjórsund karla og einn- ig miklar vonir með að vinna þá grein kvennasundsins. — Sveit kvenna í þessu sundi er ekki af verri endanum. Fyrsta hlutann syndir heimsmethafinn í 100 m bringusundi kvenna, næsta hluta heimsmethafinn í 100 m frjálsri- aðferð, þriðja hlutann syndir stúlka, sem er aðeins 3 sek. und- ir heimsmetinu í 100 m baksundi og síðasta hlutann syndir heims- methafinn í 100 m flugsundi kvenna Vísindi og sund Er við spurðum Mr. Pillips um ástæðuna fyrir gengi Ástralíu- manns og kvenna í sundkeppn- um og jafnframt eftir hinum unga aldri sundfólksins, brosti Mr. Phillips og sagði: Ástæðan er sú að okkur hefur tejíizt að sameina vísindi og sund. — Af þeim sökum höfum við komizt að því að sund er eina íþrótta- greinin, sem stunduð er í dag, þar sem hægt er að gera börn að afreksfólki. — Taktu eftir litla drengnum eða stúlkunni, sem leik ur sér hálfan eða allan daginn á barnaleikvellinum eða í húsa- garðinum. Þegar þau hátta al- sæl eftir leiki dagsins, þá hafa þau ef til vill hlaupið lengri vega lengd ,en millivega eða jafnvel langhlaupari gerir. — Ög mark- aðu eitt, sagði Mr. Fhillips: Þau sofna áhuggjulausari en nokkur langhlaupari getur nokkru sinni gert, vegna þess að þau eru ekki farin að skynja áhyggjur. Framh. á bls. 23. virðulegri athöfn og skipuiag hið bezta. Leikið er á tveim völlum. í 2. fl. kvenna sigraði Ármann Fram 3:2, Fram vann ÍR í meist- araflokki karla 14:9 og KR Ár- mann 19:9, en í meistaraflokki kvenna var ekki marktalan út- Gunnlaugúr Hjálmarsson skor- ar fyrir ÍR í leiknum á mótl Fram í m.fl. karla. — Fram vann 14:9 kljáð, en þar vann Ármann Þrótt með yfirburðum. Mótið heldur áfram á morgun og keppa þá Ármann og Ketflvík ingar í 2. fl. kvenna. í a-riðli mfl. kvenna keppa F.H. og Val- ur og í mfl. karla Keflavík g F.H. og Ármann og Fram. Knattspyrna um allt land Þetta eru sigurvegarar KR í 4. fl. A í Knattspyrnumóti Reykja- víkur. Þessir ungu knattspyrnumenn báru ótvírætt sigurorð af jafnöldrum sínum í mótinu, með að skora 22 mörk í mótinu en fengu á sig aðeins 2 mörk. — Þeir unnu leiki sína sem hér segir: KR:Valur 2:0 — KR:Fram 2:0 — KR:Víkingur 8:2 og KR:Þróttur 10:0. — Þjálfari drengjanna er Guðbjörn Jónsson, fyrrverandi knattsepyrnukappi, og bonmn til aðstoðar Örn Jónsson. — í dag fara tveir leikir fram I 1. deild knattspyrnumóts íslands. Fram og Valur lei'ka í Laugar- dalnum kl. 20:30 og ÍBK og Ak- urnesingar leika á vellinum í Njarðvíkum kl. 16,00. Unglingadagurinn Það verður nóg að gera hjá yngstu flokkunum í knattspyrnu um allt land, en 3., 4. og 5. flokk ar knattspyrnufélaganna halda upp á Unglingadag KSÍ í dag með leikjum á knattspyrnuvöll- um um allt land. í Reykjaví'k keppa 5. flokks menn félaganna, þeir sem ekki hafa keppt áður á árinu. Leikirnir fara fram kl. 10:30 f.h. og keppa KR og Valur á KR-vellinum og Fram og Vík- ingur á Framvellinum. Um kvöldið leika svo Valur og Fram úrslitaleik í landsmóti 5. flokks. og er sá leikur forleikur Fram og Vals í 1. deild sem fram fer á Laugardalsvel'ldnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.