Morgunblaðið - 12.10.1960, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.10.1960, Blaðsíða 10
r I 10 MORnuJSBLÁÐlÐ Miðvik’udagur 12. Okt. 1960 f DAG eiga menn að vera þannig klaeddir hversdags- lega, vilji þeir fylgja nýjustu tízku: Jakki úr grófu tweed og buxur úr loðnu kambgarni. Jakkinn er gjarnan í dökkum litum, brúnn eða ólívugrænn. Litirnir á buxunum eru fjöl- breyttari, allt frá gráu og ljós drappiituðu til grænna lita og svo yrjóttar. blár, oft lítillega munstuð, og svo milligrár litur, einnig munstraður jafnvel með íofn- um silkiþráðum. Jakkarnir hæfilega síðir Jakkinn má ekki vera það síður að hann sé til þvingun- ar. Hann fellur laust að lík- amanum og axlapúðar fyrir- finnast ekki; örlítið stopp gef- ur öxlunum fallegri svip. Buxurnar þrengri Buxurnar eiga að vera þröngar. Uppbrotið er horfið. Margiit vesti Við einlit föt eru venjulega notuð vesti í fallegum, ljósum litum, og stundum úr rús- skinni. Neðsta hnapn vestis- Lítill maður í stórum frakka — stór maður í litlum frakka, þannig hefur herratízkan þróazt. Frakkinn til vinstri er frá 1957 en sá til hægri samkvæmt allra nýjustu tízku. ins er ekki hneppt. Og umfram allt er það brýnt fyrir mönn- um að vera ekki hræddir við að nota sterka liti. Þægilegir frakkar Það erxj frakkarnir, sem hafa vakið mesta hrifningu á haust-tízkusýningunni 1960. Stóru, þungu frakkarnir, sem gleyptu hvern meðalmann, eru nú alveg horfnir úr sög- unni og í staðin komnir stutt- ir og léttir frakkar, sem falla þétt að líkamanum. Þeir eru margir hverjir með stórum krögum, sem gott er að bretta upp fyrir eyrun. Mun heppi- legri flíkur í hvassviðrum og köldum vetrarveðrum en gömlu frakkarnir. Támjóir skór Það hefur vakið undrun, hversu skórnir eru támjóir, og efast margir um að þeir geti verið þægilegir. En þeir, sem hafa gengið í slíkum skóm, eru allir á einu máli um að þeir séu þeir lang þægileg- ustu, sem þeir hafi nokkru sinni stigið í. Hattarnir Hinn vinsæli Mr. Higgins- hattur í örlitlu breyttu formi nýtur nú mestra vinsælda. HERRATÍZKAN — hvílíkur hégómi. Karlmaður, sem ber virðingu fyrir sjálfum sér, hugsar ekki um slíkt. —Þannig tala margir menn, en sem bet- ur fer ekki allir. Aðrir segja: — Það er kominn tími til að gera breytingu á karlmanna- fötum, þær hafa sama sem engar verið síðustu áratugina. Tímarnir hafa breytzt og föt- in breytast líka. Ekki alls fyrir löngu var hleypt af stokkunum tízku- sýningu á karlmannafatnaði, sem vakti mikla athygli, og nú er svo komið að herrafata- tízkusýning er árlegt fyrir- brigði erlendis. Og við skulum líta aðeins á helztu breytingarnar, sem orðið hafa á karlmannafötun- um, og helztu einkenni tízk- unnar haustið 1960. Það sem fyrst vekur athygli okkar eru Líflegir litir Grái liturinn er nú á hröðu undanhaldi, enda flestir bún- ir að fá dauðleið á honum, a. m. k. í bili. Segja mörg tízku blöð í gamni, að nú sé búið að sökkva Grámanni í jörðu niður fyrir fullt og ailt. Hversdagsfötin eru aðallega í brúnum, grænleitum og ólífu grænum litum; efnin eru létt, mjúk og með fallegum munst- um. Liturinn á kvöldklæðn- aðinum er aftur á móti dökk- Jafnvel siðir jakkar gátu ekki skýlt þvi að það var næstum pláss fyrir tvo menn í víðu buxunum, sem mest voru í tízku fyrir nokkrum árum. Nýtízkulegu, stuttu jakkarnir krefjast þess að heildarmyndin sé grennri. Og því eru buxurnar þrengri og án buxnabrots. Jakkarnir voru áður með klossalegum, breiðum krög- um, mikið stoppaðir á öxlunum og stóru hálsmáli. Jakkan- um var hneppt á miðjum maganum. Nýtízku jakkarnir falla aftur á móti þægilega að líkamanum, engir axlapúðar eru notaðir og gott að hreyfa sig í þeim vegna þess hve hátt þeir eru hnepptir. Þeir eru yrjóttir og loðnir, hattborðin fléttaður og barð- ið brotið upp að aftan. Barðið er ekki meira en 5 cm á breidd. ★ Þetta er það helzta, sem kem ur fram í herratízkunni nýju. Aðrar breytingar eru ekki um talsverðar og sumt, sem kem- ur fram er bæði til -gamans og augnayndis, en ríkust áherzla er lögð á þægindin. Má til dæmis nefna uppbrotin, sem hneppt eru upp á frakkaerm- arnar, og er sú skýring látin fylgja með, að þarna eigi menn að geyma t.d. aðgöngu- miða í leikhús og kvikmynda hús og svo minnismiðann! Lcirlr menn Grámann kvaddur Styrkur til rannsóknar- starfa í lífeðlisfrœði HOLLENZKUR maður, dr. J. E. Quintus Bosz, fyrrum ræðismað- ur íslands og Danmerkur í Sura- baya í Indónesíu, er lézt árið 1954, lét eftir sig sjóð, sem ætlað er að styrkja hollenzka, danska og íslenzka menn til náms eða rannsóknarstarfa í lífefnafræði, lyfjafræði eða í næringarefna- fræði hitabeltislanda, og veita verðlaun fyrir vísindalegan ár- angur í þessum fræðigreinum. íslenzkum aðilum hefur ekki verið kunnugt um sjóð þennan fyrr en nú í sumar. en þá kom hingað fulltrúi sjóðsstjórnar F.H. Westerling, fyrrum bankastjóri, frá Blaricum í Hollandi. Atti hann viðræður við menntamála- láðuneytið um sjóðinn og ýmis framkvæmdaatriði í sambandi við styrkveitingar úr honum- til islenzkra manna. í þeim viðræð- um tók einnig þátt dr. Níels P. Dungal, prófessor. Dr. Quintus Bosz stofnaði sjóð inn til minningar um son sinn, Harald Quintus Bosz, og var stofnféð 100.000 gyllini. Úthluta má úr sjóðnum þremur styrkjum árlega hið mesta, er samtals nemi 5.000 gyllinum, en það jafngildir um 50.500 íslenzkum krónum. Sjóðsstjórn ákveður, hverjir styrki skulí hljóta, en hún er skipuð fjórum hollenskum há- skólamönnum auk F. H. Wester- ling, sem er ritari og gjaldkeri sjóðsstjórnar. Aðsetur sjóðsins er í Utrecht í Hollandi. F. H. Westerling kvað engin fyrirmæli í stofnskrá sjóðsins um, hvernig styrkir skyldu skipt- ast milli landanna þriggja. Hing- að til hefðu styrkirnir allir runn ið til Hollendinga, þar sem tæki færi hefði ekki gefizt til að ganga frá framkvæmdaatriðum við ís- lenzka og danska aðila. Kvað hann nú ráðgert, að ís- lendingar fengju í sinn hlut alla úthlutun næsta ár, 1961. Danir árið 1962, en síðan yrði hverju sinni valið úr umsóknum frá öll- um löndunum. Þar sem stofnskrá in kveður svo á, að styrkir úr sjóðnum skuli veittir mönnum, sem stunda eða hafa stundað nám við hollenzka, danska eða íslenzka háskóla, er það skilyrði fyrir styrk til fcenaks umsækj- anda, að hann hafi um eitthvert skeið stundað nám við Háskóla íslands. Umsóknum um styrk úr minn- ingarsjóði Harald Quintus Bosz skulu sendar menntamálaráðu. neytinu fyrir 1. febrúar n.k. Um- sókn fylgi upplýsingar um náms- og starfsferil, staðfest afrit af prófskírteinum, meðmæli háskóla kennara, og ýtarleg greinargerð um rannsóknarstörf, sem umsækj andi kann að hafa unnið. Æski- legt er, að umsóknir séu ritaðar á ensku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.