Morgunblaðið - 08.12.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.12.1960, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. des. 1960 M O R C 11 N H T 4 Tt 1 h 5 Flugfélag íslands h.f.: — Hrímfaxi er væntanlegur til Rvíkur kl. 16:20 í dag frá Glasgow og Kaupmh. Flug- vélin fer til sömu staða kl. 08:30 i íyrramálið. — Innanlandsflug 1 dag: Til Akureyrar (2 ferðir^, Egilsstaða, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vestm nna eyjar og Þórshafnar. — A morgun: Til Akureyrar, Fagurhólsmýrar, Horna- fjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjarklaust urs og Vestmannaeyja. liOftleiðir h.f.: — Snorri Sturluson er væntanlegur frá N.Y. kl. 08:30, fer til Glasgow og London kl. 10:00. — Hekla er væntanleg frá Hamborg, Kaupmannahöfn, Gautaborg og Staf- angri kl. 20:00, fer til N.Y. kl. 21:30. Eimskipafélag íslands h.f.: — Brú- arfoss er í Kristiansand. — Dettifoss fór frá Rotterdam í gær til Bremen. —■ Fjallfoss fór væntanlega frá Rauf- arhöfn í gærkvöldi til Norðfjarðar. — Goðafoss er í N.Y. — Gullfoss fór frá Kaupmh. 6. til Leith og Rvíkur. — Lagarfoss er í Hull. — Reykjafoss er í Rvík. — Selfoss fór frá Rvík í gær- kvöldi til Isafjarðar. — Tröllafoss fór fr.'i Liverpool 5. til -Cork. — Tungufoss er í Gautaborg. Skipadeild SÍS: — Hvassafell er væntanlegt til Rvíkur 10. — Arnarfell er í Keflavík. — Jökulfell er í Hull. — Dísarfell fór í gær frá Hamborg áleiðis til Malmö. — Litlafell losar á Austfjarðahöfnum. — Helgafell lestar á Austfjarðahöfnum. — Hamrafell fer í dag frá Hafnarfirði upp í Hvalfj. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla fór í gærkvöldi frá Patreks- firði til Akureyrar. — Askja er 1 Liv- orno. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Austfjörðum á norðurleið. Esja fer frá Rvík kl. 19 í kvöld vestur um land i hringferð. Herjólfur fer frá Vest- mannaeyjum kl. 22 í kvöld til Rvíkur. Herðubreið er í Rvík. H.f. Jöklar. — Drangajökull H.f. Jöklar. — Langjökull er á leið til Gdynia. Vatnajökull er í Grimsby. Hafskip hf. — Laxá er í Rvík. 65 ára er í dag, 8. des., fyrr- verandi ljósmóðir Suður-Dala, frú Steinunn Guðmundsdóttir, Geirshlíð. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Garðari Svav- arssyni, ungfrú Ebba Ólafsdóttir og Höskuldur Stefánsson, blikk- smíðanemi. Heimili þeirra er að Laugarneshverfi 65. — Ennfrem- ur ungfrú Júlíana Erla Hallgríms dóttir og Örn Ingimundarson, sjó maður. Heimili þeirra er að Otrateig 44. I Eins og flestum er minnis- stætt komu hingað í fyrravor tveir danskir drengir, Jan og Kjeld, og skemmtu Reykvík ingum með söng og banjo- leik. Aðallag þeirra hét „Banjo-boy“ og varð mjög vinsælt hér á landi, sem ann arsstaðar. Síðan drengirnir voru hér á landi hafa þeir gert víðreist og eftir f jögra vikna söngferð um Þýzkaland héldu þeir til Parísar. Ríkisútvarpið í París hefur verið gagnrýnt mjög harðlega fyrir að geta aldrei sjálft fundið nýja skemmti- krafta og vildi bæta úr því. Var því ráðlagt að fá Jan og Kjeld þar sem þeir voru al- veg óþekktir í Frakklandi og gert var ráð fyrir að þeir myndu hljóta vinsældir þar, sem í öðrum löndum. En einn hængur var þó á, útvarpsráð ið kom með þá athugascmd, að danskir drengir, sem syngju á ensku og þýzku, gætu aðeins orðið vinsælir í héraðinu Elsass-Lotringen, þar sem íbúar þess skildu þýzku og einnig meðal ame- rískra og enskra ferðamanna, en aldrei meðal franskra hlust enda. Dagskrárstjórinn fékk þó Ieyfi til að reyna og nú hefur verið útvarpað nokkr- um dagskrám með Jan og Kjeld og fordómar útvarps- ráðsins algerlega hraktir, þvi að meðal frönsku þjóðarinnar hafa þeir náð gífurlegum vin sældum, og plötur þeirra selj- ast nú eins og heitt brauð í Frakklandi. Jan og Kjeld eru nú byrjaðir að læra frönsku af fullum krafti og áður en þeir fara heim til Danmerkur með foreldrum sinum í jólaleyfi, verða þeir búnir að syngja inn á fyrstu plötuna á frönsku. Drengirnir hafa notið dvalar innar í París í ríkum mæli og haf t.d. farið fimm sinnum upp í hinn fræga Eiffel-turn. Mynd þessi var tekin í New Orleans á dögunum, þegar hvítir menn mótmæltu því að börn blökkumanna fengju að gang að sömu skólum og börn þeirra. Hvítur prestur, sem samþykkt hafði að dóttir hans gengi í sama skóla og blökku- mannabörnin og fylgt henni þangað, varð fyrir ásókn hvítra .kvenna og sjást þær hér fyrir utan heimili hans og er konan með trefilinn tilbúin til að kyrkja hann með honum. Á sama hátt og hjartað lærir að elska, lærir það einnig að syrgja. — Sanial Dubay. Mannorði sínu vill enginn fórna ann- arra vegna, efcki einu sinni á altari ástarinnar. — Henrik Ibsen. Ef kona sýnir manni ekki fórnfýsi og sjálfsafneitun, getur hún aldrei hald ið hylli hans til lengdar. — Balzac. Pennavinir Bandarískan mann (21 árs) Jangar að skrifast á við Islending á svipuð- um aldri. Nafn hans og heimilisfang er: Julian Basch. L.F. Rothschild & Co., 120 Brodway, New York 5, N.Y. U.S.A. 13 ára enskan dreng, sem hefur á- huga á knattspyrnu langar til að eign ast pennavin á Islandi, skrifar á ensku. Nafn hans og heimilisfang er: George Carring, 55 Coalway Rd., Bloscwech. Walsall Staffs, England. Söfnin Listasafn Einars Jónssonar verður lokað um óákveðinn tíma. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið þriðjud., fimmtud og sunnud. fiá kl. 13,30—16. Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla úni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema nánudaga. Bæjarbókasafn Reykjavíkur sími 12308 Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29 A. tlán: Opið 2—10, nema laugardaga 2—7 og sunnudaga 5—7. Lesstofa: Opin 10—10, nema laugardaga 10—7 og sunnudaga 2—7. Útibúið Hólmgarði 34: Opið alla virka daga 5—7. Útibúið Hofsvallagötu 16: Opið alla virka daga 17.30—19.30. Listasafn Ríkisins er lokað um ó- ákveðinn tíma. ÞjóSminJasafnið: — Opið sunnudaga kL 1—4. þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 1—3. Læknar fjarveiandi (Staðgenglar í svigum) Arinbjörn Kolbeinsson til 19. des. (Bjarni Konráðsson). Erlingur Þorsteinsson til áramóta — (Guðmundur Eyjólfsson, Túng. 5). Ezra Pétursson til 17. des. (Halldór Arinbjarnar). Haraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl Jónasson). Sigurður S. Magnússon óákv. tíma — (Tryggvi Þorsteinsson). Jón Þorsteinsson til 10. des. (Tryggvi Þorsteinsson.) Oddur Ólafsson til 14. des. (Arni Guðmundsson). Munið jólasöfnun Mæðrastyrksnefnd ar. — í 24115 SENDIBILASTOÐIN Einhleypur maður óskar eftir ráðskonu. Má hafa 1—3 böm, gott sér herb. kaup eftir samkomu lagi. Uppl. Rauðarárstíg 30 2. hæð t.v. i dag og á morg un. Brúnbröndóttur köttur hefur tapast. — Uppl. í síma 11195 Amerískur prófessor óskar eftir að leigja píanó, fyrir .dóttur sína, fram í júní eða borga fyrir að stöðu til æfinga, helzt sem næst Rauðalæk. — Sími 15786. Atvinnurekendur Ungur reglusamur maður óskar eftir atvinnu strax. Hefur bílpróf, enskukunn- áttu. Allskonar vinna kem ur til greina. Uppl. í síma 10615 kl. 5—6 e.h. A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en r öðrum blöðum. — Útsvarsgjífldendur Hafnarfirði Athygli skal vakin á þvi að séu útsvör yfirstandandi árs eigi greidd að fullu fyrir 1. jan. n.k. fást þau eigi dregin frá við niðurjöfnun næsta ár. Þeim sem greiða útsvör sín' til atvinnurekenda skal sérstaklega bent á að gæta þéss að kvittanir fyrir útsvörunum séu útgefnar fyrir áramótin og greiðslum sé skilað bæjarsjóði fyrir sama tíma. Bæjargjaldkerinn Hafnarfirði. Rennibrautir (plast) og rílar fyrir rennihurðir Verzlunin DVERGHAMAR Laugavegi 168 — Sími 17296. LAN Get lánað 100—150.000,00 til 5 ára gegn góðu fasteignaveði. Þeir, sem hafa áhuga á þessu leggl nöfn, heimilisfang og upplýsingar um veð inn á afgr. Mbl. merkt: „Lán — 1905“ fyrir hádegi á iaugardag. Sú kona verður ekki fyrir vonbrigðum, sem fær HUSQUARNA Automatic í jólagjöf. Husquarna Automatic heimilissaumavélin ber hróður sænskrar iðnmenningar um víða veröld. Þér gefið það bezta ef þér gefið HUSQUARNA Auto- matic. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Komið og skoðið hinn mæta grip. eða biðjið um myndalista. HUSQUARNA AUTOMATIC léttir heimilisstörfin, sparar útgjöld. Gunnar Ásgeirsson h.f. Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.