Morgunblaðið - 08.12.1960, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 8. des. 1960
MOftC T’WrtTAÐlh
17
Loftur Loftsson,
útgerðarmaður — Kveðja
LOKIÐ er æfi ötuls og góðs
verzlunar- og útgerðarmanns.
Loftur Loftsson, lengst af
kenndur við Sandgerði, verður
til grafar borinn í dag. —
Loftur Loftsson er fæddur 15.
febrúar 1884, í Götu á Akranesi,
sonur Lofts Jónssonar og Val-
gerðar Eyjólfsdóttur. Lofti auðn
aðist ekki að sjá föður sinn,
því hann druknaði 8. jan. 1884,
eða rúmum mánuði áður en
Loftur fæddist. Faðir hans var
þá aðeins 33 ára.
1 uppvexti sínum stundaði
Loftur hverja þá vinnu sem til
íéllst, en aðallega þó verzlunar-
störf, var innanbúðar, eins og
kallað var.
Fljótlega beindist hugur Lofts
lengra en til innanbúðarstarf-
anná. Árið 1906 kaupir hann,
ásamt fjórum öðrum Akurnes-
ingum, 12 tonna mótorbát. Var
það annar mótorbáturinn, sem
kom til Akraness. Gerðu þeir
þennan mótorbát út á vetrar-
vertíðinni, frá Hólmanum í Vog-
um.
1907 hyggja þeir vinirnir og
jafnaldrarnir Loftur og Þórður
Ásmundsson til verzlunarrekst-
urs á Akranesi. Til frekari und-
irbúnings slíks rekstrar fór
Loftur þá nokkra mánuði til
Reykjavíkur, til þess að læra
þar ýms verzlunarfræði ' og
tungumál. Það þurfti nokkuð fé
til að stofna verzlun, en þessir
ungu menn áttu enga peninga,
svo heitið gæti, en þeir áttu
trúna á landið og lífið og kraft-
inn í sjálfum sér og það var
nóg, því aðrir höfðu líka trú
á þeim — og sumir þeirra áttu
peninga til að iána þeim, eða
góð ráð, eða aðra hjálp beina
og óbeina.
Verzlunin byrjaði hjá þeim
árið 1908. Brátt urðu þeir fé-
lagarnir mjög vinsælir, bæði
heima og heiman. Þeir höfðu
mikla verzlun upp um allan
Borgarfjörð, Hvalfjörð og víðar.
Fluttu þeir vörurnar á bátum
til Seleyrar, Borgarfirði og á
ýmsa staði í Hvalfirði.
Bændur þurftu þá, eins og nú,
mikið af fi.ski. Eitt árið, nánar
til tekið 1913, skrapp Loftur
til Sandgerðis til að kaupa þar
fisk af Matthíasi Þórðarsyni,
sem þá átti Sandgerðisstöðina.
í viðræðum við Matthías kom
það fram, að Matthías vildi vera
laus við þann rekstur og selja
stöðina. Er ekki að orðlengja
það, að þeir Loftur og Þórður
kaupa stöðina af Matthíasi, á-
samt fjórum mótorbátum, sem
stöðin átti. Þár með hefst rekst-
ur þeirra í Sandgerði, ásamt
útgerð og fiskkaupum. Þegar
hér var komið skipta þeir fé-
lagar með sér verkum, þannig,
að Þórður sér um allan rekstur-
inn á Akranesi, en Loftur sér
um allan rekstur utan Akra-
ness. Árið 1914 flytur Loftur til
Reykjavíkur og hefur skrifstofu
þar.
Sandgerði var á þessum tíma
lítil útgerðarstöð, hafði engin
vegasambönd, engan síma og
litla bryggju, en menn hpfðu
trú á staðnum sem góðum út-
gerðarstað — en það þurfti að,
gera margt og mikið til að bæta
aðstöðuna og það sá Loftúr fylli-
lega, enda lét hann gera það
sem fært var, næstu árin á eft-
ir. Aðkomubátunum fjölgaði,
voru oft í viðlegu þetta 12 til
20 bátar á vetrarvertíðinni. Auk
þessa hafði Loftur svo fiskkaup
í Reykjavík og síldarútgerð á
Norðurlandi. Árið 1919 varð
þeim, eins og fleirum, allerfitt
þegar saltsíldin féll sem mest.
Fyrir varfæmi Lofts, fram yfir
ýmsa aðra, hefði þó getað verr
farið á þeim vettvangi. Einnig
urðu þeir fyrir nokkru tapi
vegna saltfisksverðfalls.
Árið 1919 skipta þeir félag-
arnir með sér eignum og tekur
þá Loftur að sér allt fyrirtæk-
ið utan Akraness. Rak hann
það þá áfram með svipuðum
hætti og áður.
Síðan hefur Loftur alltaf
stundað útgerð og fiskkaup með
viðurkenndum dugnaði og ár-
vekni. Frá því 1936 hefur hann
rekið útgerð sína frá Keflavík
og nú síðast í félagi við son
sinn Ólaf.
Útgerðarsaga íslendinga hefur
fylgt sama lögmáli og gildir á
hafinu, að hún er alltaf í bylgj-
um. Það eru bylgjutoppar og
dalir. — Það gengur vel og það
gengur illa — það er sjaldan
slétt og fellt.
Loftur hefur orðið að taka
því, eins og aðrir, þa<$ hefur
gengið vel og það hefur gengið
illa. Loftur var alltaf tilbúinn
að taka upp bardagann aftur,
þótt illa gengi í bili og hann
hefur sigrað í þessari baráttu.
Hann starfaði ótrauður að þess-
um málum alveg fram á síðasta
dag í þessu lífi. Þetta sem hér
hefur verið sagt, eru aðeins
nokkrir punktar úr starfi hans.
Loftur var mjög dulur maður
og seintekinn. Hann var mjög
athugull og fljótur að átta sig
á hlutunum. í vinahóp var hann
glaður og skemmtilegur og hvers
manns hugljúfi. — 20. okt. 1920,
giftist Loftur eftirlifandi konu
sinni, Ingu Ólafsdóttur frá
Þjórsártúni. Eignuðust þau 6
börn og eru 5 þeirra á lífi,
þau Ólafur, útgerðarmaður, gift-
ur Sveinbjörgu Jónatansdóttur,
Loftur fiskifræðingur, giftur
Rannveigu Ágústsdóttur, Inga
Heiða, gift Gunter Slent, prófess
or í Berkeley, Rósa Valgerður,
gift Birni Sveinbjörnssyni, sýslu
manni og Júlíus E. Huxley, nem
andi í Ameríku.
Loftur var mjög heimilisræk-
inn og hugsaði vel um heimilið.
Eg tel mig engan lasta þótt eg
segi, að ég þekki engan mann
sem var jafn' barngóður og Loft-
ur. Þar á ég ekki við, að hann
hafi aðeins verið góður sínum
börnum, því það út af fyrir sig,
tel eg ekki sérstaklega til barn-
gæzku, heldur hitt, að það var
sama hvaða börn hann sá, hon-
um þótti vænt um öll börn —
enda hændust böm sérstaklega
fljótt til hans. Tengdaforeldrum
sínum reyndist hann eins og
bezt verður á kosið og var mik-
ill kærleikur þeirra í milli.
Eg var svo heppinn að starfa
hjá Lofti í mörg ár og þaðan
á ég margar ánægjulegar endur-
minningar. Hann gaf mér ýms
ráð og heilræði — eitt man eg
sérstaklega, sem var: Ef þú
lofar einhverju, þá mundu það
og efndu það, því talað orð á
að vera jafnvel sterkara en
samningur.
Loftur hafði hreina og ákveðna
trú á Guð og lífið sem við tek-
ur, þegar héðan er farið, og
fyrst og fremst var hann alltaf
tilbúinn undir vistaskiptin. —
Eg sendi þér Loftur mínar
beztu hugar kveðjur og þakka
langa og góða vináttu. Far þú
heill,' vinur, í Guðs friði.
Huxley Ólafsson.
HALLÓ! HALLÓ!
„Baby-doll"
Telpunáttföt nýkomin. Kvennáttkjólar í úrvali með
ermum og stór númer. Undirkjólar, kvenbolir, kven-
buxur úr „tricotine", svartar og mislitar í öllum
stærðum. Einnig stór númer. Ef ekki er allt eins og
það á að vera, þá bara panta, þá kemur það.
Allt á okkar viðurkennda lága verði.
Nærfataverksmiðjan LILLA HF.
Smásalan Víðimel 63.
Hef opnað lækningastoíu
í Austurstræti 7. Sérgrein: augnlækningar.
Viðtalstími 10—12 og 4—6, laugardaga 10—12.
Sími 19142.
PÉTUR TRAUSTASON.
Tilboð
Tilboð óskast í gamla vatnstankinn í Keflavík til
niðurrifs og brottflutnings. Tankurinn er úr stáli
og rúmtak hans er 500 tonn. Tilboð sendist skrifstofu
minni eigi síðar en 14. þ.m' og verða þau opnuð
þann dag kl. 3 e.h.
Bæjarstjórinn í Keflavík, 4. des. 1960.
Eggert Jónsson.
v. f&iSfWI&te ^c..v. * . v
............. | 1111,,; , , ,
Automatic gerð 320 er skemmtileg vél,
sem auðveldlega saumar hnappagöt, bætir,
rykkir, fellir og faldar.
NYKOMNAR
HIISIAR HEIMSÞEKKTU
SINGER
SAUMAVÉLAR
4 GERÐIR
> *:• V *.« V V V v ♦«
m
|i
P
|
É
t
Gerð 306 er zig-zag vél, hentug til að ganga
frá saumum og gera linappagöt, auk þess
saumar hún faliegt beint spor.
,♦ ♦ ♦ ♦ ♦ •:♦ •*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ •*♦ ♦*♦ ♦*♦ ■
Gerð 201 er létt og hentug í meðförum,
saumar beinan saum greitt og áferðar-
fallega.
Gerð 185 er minni vél á lágu verði, þægi-
Ieg fyrir allan venjulegan saum.
Komið og reynið
SINGER
saumavélarnar sjálf
Þær létta yður saumaskapinn
Spara tíma og peninga
SINCER fæst með
hagstæðum greiðsluskilmálum
AUSTURSTRÆTI