Morgunblaðið - 21.12.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.12.1960, Blaðsíða 1
I 36 s’íður (I og II) 47 árgangur 293. tbl. — Miðvikudagur 21. deseniber 1960 Prentsmiðis Morgunblaðsins Allsherjarþingið í frí: Klofningur um Kongd HamraarskjÖld áhyggjufullur, en lýsir þó von sinni ura lausn málsins New York, 20. des. (NTB-Reuter-AFP) ALLSHERJARÞING SÞ ger- ir nú hlé á störfum sínum til 7. marz nk. — í dag var mikið rætt um Kongómálið, sem mjög hefur komið við sögu á þessu þingi, en ekki fékkst meirihluti fyrir neinni annarri samþykkt í því máli, en tillögu Austurríkis þess efnis, að málið verði á ný tekið á dagskrá þingsins eft- ir fundahléð. Var tillagan samþykkt án umræðna, eftir að tillaga frá Indlandi, Júgó- slavíu og sex Afríku- og Asíuríkjum, svo og önnur, borin fram af Bretum og Bandaríkjamönnum, höfðu verið felldar. • Báðar till. felldar I tillögu Indlands og Júgóslav- íu var gert ráð fyrir, að Lum- umba og aðrir pólitískir fangar í Kongó skyldu látnir lausir án tafar — að þing Kongó yrði kall að saman þegar í stað — að her Mobutus yrði afvopnaður og hon um meinuð afskipti af stjórnmál um og að allir belgiskir hermenn og nernaðarlegir starfsmenn eða ráðgjafar skyldu hverfa á brott úr landinu. Tvo þriðju atkvæða þarf til að tillaga skoðist sam- þykkt, en 48 þjóðir greiddu atikv. með í þetta sinn, 22 á móti, og 27 sátu hjá. Brezk-bandaríska til- lagan, sem fjallaði m. a. um stuðn Skipsbruninr: 48 fórust NEW YORK, 20. des. (NTB/ Reuter). — Það er nú vitað, að a. m. k. 48 manns fórust í eldsvoðanum, sem varð í bandaríska flugvélamóðurskip inu „Constellationr" — fund- ust lík tveggja manna i kvöld. — Tjónið af brunan- um er áætlað sem svarar 3—314 milljarð ísl. kr. — og er það nær helmingur þess verðs, sem skipið átti að kosta fullbúið. Mun bruni þessi verða til þess að tefja smíði skipsins um það bil ár, en það átti upphaflega að vrea fullsmíðað í marz næst- komandi. Samkvæmt fréttum frá AFP. fréttastofunni, hef- ir bandaríska ríkislögreglan, FBI, hafið ranrrsókn á elds- voðanum, hvort hann hafi orðið fyrir slysni — eða hvort um skemmdarverk geti verið að ræða. ing við aðgerðir þær, er Hammar skjöld gengst fyrir í Kongó, og um það að styðja Kasavubu Kongóforseta til að skapa það ástand, að unnt verði að kalla þingið saman á ný, var felld með 43 atkv. gegn 22, en 32 sátu hjá. # Hammarskjöld áhyggjufullur Hammarskjöld talaði, þegar at- kvæðagreiðslum var lokið og lýsti áhyggjum sínum vegna þess klofnings SÞ í Kongómálinu, sem þær bæru vott um. Hann kvað þó aðgerðum í Kongó mundu haldið áfram með stuðningi þeirra ríikja, sem fús væru að bera byrðarnar af þeim — og lét hann í Ijós bjartsýní á, að unnt mundi að finna lausn vandamál- anna, þrátt fyrir alla erfiðleik- ana. Benti hann á, að fyrri álykt anir öryggisráðsins og Allsherj- arþingsins í Kongómálinu yrðu að teljast í fullu gildi enn, þar sem engin ný samþykkt hefði nú verið gerð. — í gær ræddi Hamm arskjöld þann möguleika, að SÞ yrðu að kalla heim lið sitt frá Kongó, ef svo illa færi, að borg- arastyrjöld brytist út í landinu. FRÁ þingfrestun. Forseti sam einaðs þings, Sigurður Ágústs son, slær fundarhamrinum í bjölluna og slítur síðasta fúndi þingsins fyrir jól. Sitt til hvorrar handar eru skrifarar sameinaðs þings: Matthías Á. Matthíasson og Skúli Guð- mundsson. Frétta af síðustu fundum þingsins er nánar get- ið annars staðar í blaðinu. í blaði nr. II er ræða, sem Gunnar Thoroddsen, f jármála ráðherra, flutti við lokaum- ræður um söluskattinn í neðri deild. Þingmenn í jólafríi Fundum Alþingis frestað til 16. janúar ALÞINGISMENN fengu jóla- frí sitt í gær. Á fundi sam- einaðs þings, sem settur var klukkan rúmlega hálffjögur, var tekin til umræðu þings- ályktunartillaga frá Ólafi Thors, forsætisráðherra, um að fundum þingsins yrði frestað til 16. janúar. Mælti forsætisráðherra fyrir tillög- unni í örfáum orðum. — Að Alsír framtíðar- innar „alsírskt64 — sagði de Gaulle og lýsti ný- lenduskipulagið urelt París, 20. desember. (NTB-Reuter-AFP) CHARLES de Gaulle Frakk- landsforseti hélt í dag ræðu til frönsku þjóðarinnar, sem bæði var útvarpað og sjón- varpað. Þar endurtók hann tilboð sitt til alsírskra upp- rcisnarmanna og fulltrúa allra skoðanaflokka þar í landi um samningaviðræður JÓLALESBÓK Morgunblaðsins var borin út með blaðinu í gær. Er hún 48 síður að stærð og hefst á jólahug- vekju eftir séra Bjarna Sigurðsson. Lesbókin er fjölbreytt að efni. Má nefna útdrátt úr grein eftir Ólaf Dav- íðsson um kirkjusöng fyrrum, grein um elztu menningarþjóðir, smásögu eftir Pierre Boulle, kvæði um Eirík á Dröngum eftir Árna G. Eylands, grein eftir Ejnar Mikkelsen um seinustu Eskimóana á suðurströnd Grænlands, frásögn Jóns Valfells af Jólaferð á eigin bíl um þver Bandarlkin, sögu eftir Selmu Lagerlöf „Húsið á bökk- unum“, smásöguna „Varabarn'* eftir Árna Óla, Úr Jarðteinabók Þorláks helga og þá er krossgáta og verðlauna myndngáta. um framtíð Alsír, jafnskjótt og „hryðjuverkin og launsat- ursárásirnar“ væru úr sög- unni. — Forsetinn lét í ljós andúð á nýlenduskipulaginu, sem hann kvað úrelt orðið, og mælti fyrir nýju skipu- lagi í Alsír, miðað við, að það verði áfram í tengslum við Frakkland. ir Takmörkuð heimastjórn De Gaulle lagði enn áherzlu á þær fyrirætlanir sinar að veita Alsír eins konar heima- stjórn á ýmsum sviðum, með því að koma þar á fót margvís- legum stjómarstofnunum, í þeirri trú, að þjóðin geti brátt neytt réttarins til að ákveða sjálf framtíð sína. Hann hvatti kjósendur til að skipa sér ein- hr'ga um áætlanir hans við þjóð aratkvæðagreiðsluna 8. n. m., „til þess að sýna göfuglyndi Frakklands og einingu“. Forsetinn lýsti síðan þeim þrem möguleikum, sem Alsír- búar munu velja um, þegar áð- ur settum skilyrðum hefir verið fullnægt: 1) Alsír sem hluti af Framh. á bls. 19. máli hans loknu kvöddu þeir Eysteinn Jónsson og Einar Olgeirsson sér hljóðs og lýstu sig andvíga þingfrestunartil- lögunni. Töldu þeir báðir, að ekki ætti að fresta fundum til miðs janúar, með tilliti til þess, að viðræður stæðu yfir í landhelgismálinu, og auk þess væri hætta á að ríkis- stjórnin gæfi út bráðabirgða- lög. Að umræðum loknum var þingfrestunartillaga for- sætisráðherra samþykkt með 28 atkvæðum gegn 23. Þessu næst flutti forseti sam- einaðs þings, Sigurður Ágústs- son, þingheimi jóla- og nýjárs- óskir og þakkaði samstarfið á árinu. Eysteinn Jónsson þakkaði forseta gott samstarf og réttláta fundarstjórn og óskaði honum og skylduliði gleðilegra jóla. — Tóku þingmenn undir þessi orð með því að rísa úr sæum. Fundum Alþingis formlega frestað Þá tók forsætisráðherra, Ólaf- ur Thors, til máls og mælti á þessa leið: Herra forseti: Forseti íslands hefur í dag Framhald á bls. 19. Fangabúða- stjori i Auschwitz handsamaður Frankfurt, 20. des, (NTB-Reuter). RICHARD Baer, síðasti yf- irmaður Auschwitz-fanga- búðanna illræmdu hefir ver ið handtekinn eftir afar viðtæka leit, upplýsti hinn opinberi ákærandi í Frank- furt i dag. Baer var yfir- maður í Auschwitz frá því í mai 1944 þar tii í janúar 1945. — c Leitin að honum hófst eftir að skrifstofu saksókn- arans höfðu borizt upplýs- ingar um, að Baer væri á lífi og leyndist einhvers staðar í Vestur-Þýzkalandi. Var hverjum þeim, er gefið gæti upplýsingar, sem leiddu til handtöku Baers, heitið 10 þúsund marka verðlaunum — rúmlega 90 þúa. ísl. kr. — Richard Baer er nú 49 ára gamall. Aukira hernaðar- þýðing íslands? Kaupmannahöfn, 20. des. (Einkaskeyti til Mbl.) NEW York-fréttaritari Berl- ingske Tidende símar blaði sínu, að flugþjónusta árásar- viðvörunarkerfis Bandaríkj- anna á DEW-línunni svo- nefndu verði flutt til íslands frá núverandi aðalaðsetri í Artentia á Nýfundnalandi — og sé ástæðan til þessara breytinga sú, að siglingaleið- irnar milli Grænlands og ís- lands og íslands og Færeyja séu nú taldar æ mikilvægari í hernaðarlegu tilliti. ★ ★ ★ Þessar upplýsingar eru hafðar eftir hermálafréttaritara stór- blaðsins New York Times, Han- son Baldwin. — í fréttinni segir m a., að flotinn gegni nú æ veigameira hlutverki í vörnunj á norðursvæði Atlantshafsbanda Framh. á Dis. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.