Morgunblaðið - 21.12.1960, Síða 19
Miðvikudagur 21. des. 1960
M O R C 11N R L A Ð1Ð
19
— Aukin
hernaðarþýði ng
Framh. af bls. 1
lagsins, og því hafi nýlega ver-
ið ákveðið, að stjórn og ábyrgð
vamarstöðvanna á íslandi
skyldi fengin flotanum, í stað
flughersins, sem áður hafði
stjórn þar á hendi.
★ ★ ★
Talið sé, að Sovétríkin eigi a.
m. k. fjórtán kafbáta, búna eld-
flaugum. Þessir kafbátar þurfi
að fara um siglingaleiðirnar fyr-
ir austan eða vestan ísland til
þess að komast á aðalathafna-
svæði sitt, sem verður væntan-
lega á norðanverðu Atlantshafi.
.— Bandaríku kjarnorkukafbát-
arnir, sem búnir éru Polaris-
eldflaugum, þurfi einnig að fara
um sömu slóðir til þess að kom-
ast til Noregshafs og Barents-
hafs.
★ ★ ★
Þessar staðreyndir auki hern-
aðarlega þýðingu siglingaleið-
anna við ísland. Og nú hafi
Bandaríkjamenn hug á að koma
á hreyfanlegum kafbáta-,,varn-
argarði" á þessum slóðum, sem
hljóti aðstoð flugeftirlitssveita
frá íslandi.
— í fréttinni segir, að írland sé
sérstaklega mikilvægt hernaðar-
lega, með tilliti til þess mögu-
leika ,að árás verði gerð á Noreg.
Sólarhring á
kafi í fúa-
mýri
HÚSAVÍK, 20. des. — f gær,
er Bjarni Bjarnason á Héðins-
höfða var á gangi um Héðins-
liöfðamýrar, þóttist hann
heyra til einhverrar skepnu,
sem hann sá þó ekki. Hann
fór að athuga þetta og rakst
þá á dálítið gat í snjóinn og
sá þar haius á hesti. Hesturinn
Íhafði sokkið í fúamýri og
stóð ekkert upp úr nema haus
inn og hafði sketlt að honum.
Mun hesturinn því hafa verið
í mýrinni a.m.k. sólarhring,
því svo langt var liðið siðan
snjókomu þeirri, er var um
helgina slotaði. Hjálp var
strax sótt og hesturinn dreg-
inn heim á sleða, er dráttar-
vél var beitt fyrir. Var þetta i
6 vetra hryssa, tamin, og var /
I hún nær dauða en lífi. Var 1
hún flutt á sleða að Héðins-
höfða og tekið til við að
nudda hana. Einnig var og
sóttur dýralæknir sem gaf
henni meðul. Hryssan hresst-
ist furðu fljótt og er talið að
hún muni ná sér á skömmum
tíma. — Fréttaritari.
— Alsir
Frh. af bls. 1
franska ríkinu. 2) Sjálfstætt og
óháð Alsír. 3) Alsír í tengslum
við Frakkland. — Taldi de
Gaulle liggja í augum uppi, að
síðasti möguleikinn yrði valinn
★ „Vér erum reiðubúnir"
De Gaulle talaði frá Elyssee-
höllinni. Ræðan stóð aðeins tólf
mínútur, og hann talaði blaða
laust að vanda. Forsetinn sagði
m. a.: — Já, vér gerum tillögur
um frið. Hvenær sem er erum
vér reiðubúnir að ræða við full-
trúa frá þeim, sem berjast gegn
okkur. Jafnskjótt og árekstrum
og átökum lýkur, getur ríkis-
stjórnin rætt fyrir opnum tjöld-
um um sjálfsákvörðunarréttinn
við fulltrúa allra pólitískra að-
ila í Alsir — og þá fyrst og
fremst fulltrúa serknesku upp-
reisnarmannanna. — Enn frem
ur sagði de Gaulle: — Ég hefi
valið þá leið, sem fara ber, svo
sem er hlutverk mitt og skylda
— og ég bið frönsku þjóðina um
að samþykkja þessa leið. —
Erginn getur gengið þess dul-
inn, hve mikilvæg úrslit þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar verða. Níu
tíunduhlutar Alsírbúa eru mú-
hammeðstrúarmenn. Alsír fram-
tíðarinnar verður þess
vegna fyrst og fremst ,,alrírskt“
Það eru hinir innfæddu Alsírbú-
ar, sem sjálfir skulu ráða mál-
um sínum, og það verður á þeirra
valdi að stofna ríki með eigin
stjórn, eigin stofnunum og eig
in lögum. En, auk múhammeðS'
trúarmannanna, eru meira en
tnilljón íbúa landsins af evrópsk
um stofni. Þeir eiga einnig sinn
rétt. Hvað, sem gerast kann, er
Frakkland staðráðið í að vernda
þá og múhammeðstrúarmenn þá
sem óska að vera áfram franskir
borgarar.
★ Frá Allsherjarþinginu
Þess má geta hér að lokum
að í gær var samþykkt á Alls
herjarþingi SÞ tillaga Asíu- og
Afrikuríkja, sem fól í sér við
urkenningu á sjálfsákvörðunar.
rétti og sjálfsstjórnarrétti Alsir
búa — og að SÞ skuli styðja þá
til sjálfsstjórnar. Hins vegar var
felldur sá hluti tillögunnar
raunar meginhlutinn — að SÞ
skyldu sjálfar gangast fyrir og
hafa eftirlit með þjóðaratkvæða
greiðslum í Alsír um þessi mál
— Island var í hópi þeirra, er
greiddu atkv. með þessum hluta
tillögunnar. -- Frönsku fulltrú
arnir sóttu ekki fundinn.
Nýtt, bandarískt
gervitungl
WASHINGTON, 20. desember.
Bandaríkjamenn skutu í dag á
loft nýjum gervihnetti, „Discov-
erer 19“, og komst hann á fyrir-
hugað'a braut sína um jörðu. —
Hlutverk hins nýja gervihnattar
e>r fyrst og fremst það að vara
við eldflaugaárásum á Banda-
ríkin — en fyrri Discoverer-
gervitungl hafa ekki gegnt slíku
hlutverki.
Ferðamenn
streyma
um Akureyri
AKUREYRI, 20. des. — Mjög
mikið hefur verið um ferðamenn
á leið gegnum Akureyri undan-
farna daga, eins og alltaf er fyr-
ir jólin. Þó mun aðalumferðin
ekki byrjuð enn, a.m.k. ekki með
flugvélunum.
í gærkvöldi fóru héðan með
Heklu austur um 80 farþegar.
Með Esju fóru í dag 30 farþegar
vestur um. Og í kvöld kom Gull
foss hingað að sunnan. Höfðu 132
farþegar verið með frá Reykja-
vik, en þeir skiptust á ísafjörð,
Siglufjörð og Akureyri. Og loks
hefur Flugfélag íslands flutt 130
farþega gegnum Akureyri í gær
og í dag. — Stefán.
Bókasýning
í Guðspekifélags
húsinu
BÓKASÝNING var nýlega opn-
uð i Guðspekifélagshúsinu. Þar
eru til sýnis yfir 500 bækur
ensku, dönsku og íslenzku um
margs konar hugeðlisvísindi:
guðspeki, sálfræði, yöga, heim-
speki, trúarbragðafræði, sálar-
rannsóknir o. fl. Á sýningunni
er fjöldi erlendra bóka, serri
ekki hafa sézt hér í bókabúðum
áður. Þarna eru bækur eftir
marga þekkta höfunda, t. d. sál-
fræðinginn C. G. Jung, Poúl
Brunton, Ramacharaka, Yogan-
anda, Martinus, Baily, Sri Ram
og fjölda annarra. Þar er margt
nýrra bóka, enda hefur félag
ungra guðspekinema lagt sér-
staka áherzlu á, að kynna yngri
höfunda og þá merku þróun og
aukningu þessara fræðigreina,
sem átt hefur sér stað á síðustu
áratugum.
Sýningin er opin frá kl. 5—10
alla virka daga og mun standa
til áramóta. Hún verður opin
frá 2—10 á annan jóladag.
— Utvarpið
Framh. al bls. 11
að rannsaka möguleikana á að
koma því upp.
I gær var það sérstaklega til
hátíðabrigða hjá útvarpinu að
starfsfólkinu var boðið til sam
kvæmis í útvarpsbyggingunni
°g byggingin við Skúlagötu 4 var
öll flóðjýst.
Geta má þess að á þessum 30
árum, sem útvarpið hefir starf
að hefir það verið til húsa á
þremur stöðum hér í bænum,
fyrst í Edinborgarhúsinu við
Hafnarstræti, þá í Landsímahús
inu og nú loks við Skúlagötu 4.
Má gera ráð fyrir að það hús-
rými verði brátt of lítið svo ört
fer starfsemi bess vaxandi.
— Alþingi
Framh. af bls. 1
gefið út svohljóðandi bréf:
„Forseti Islands
gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki
Alþingis, veiti forsætisráðherra
umboð til þess að fresta um
sinn fundum Alþingis, 81. lög-
gjafarþingi, frá 20. desember
1960, eða síðar, ef fundir drag-
ast, enda verði þingið kvatt til
fundar á ný eigi síðar en 16.
janúar 1961.
Gjört að Bessastöðum,
20. desember 1960
Ásgeir Ásgeirsson
Ólafur Thors
Forsetabréf um frestun
á fundum Alþingis.
Samkvæmt þessu umboði lýsi
ég hér með yfir því, að fundum
Alþingis, 81. löggjafarþings, er
frestað frá deginum í dag og
verður það kvatt til fundar á
ný eigi síðar en 16. janúar 1961.
Leyfi ég mér að árna háttvirt-
um alþingismönnum og starfs-
mönnum Alþingis gleðilegra
jóla og farsæls nýárs.
Féll úr rafmagnsstaur
Hefur legið 3 daga meðvitundariaus
SL. LAUGARDAG féll piltur
niður úr rafmagnsstaur á
Blönduósi og hlaut mikil
meiðsli. Yar hann enn meðvit-
undarlaus í gær. Pilturinn, sem
er 18 ára gamall, heitir Ragnar
Karlsson úr Reykjavík. Var
hann að vinna uppi í staurnum
er slysið varð.
Ragnar mun hafa verið að
færk sig til í staurnum, og losað
öryggisbeltið, sem menn hafa
jafnan um sig er ,þeir eru að
vinnu uppi í staurum. Var fallið
mikið, 7—8m., og jörð freðin.
Ekki hefur verið hægt að
kanna meiðsli Ragnars til hlítar’
en hann liggur enn meðxitund-
arlaus á sjúkrahúsinu á Blöndu-
ósi. Er talið að hann sé höfuð-
kúpubrotinn, nefbrotinn og hafi
hlotið einhver ö*»»»ur smávægi-
legri meiðsli.
Af.s. Gullfoss
fer frá Reykjavík mánudaginn 26. þ.m. ki. 12 á há-
degi til Hamborgar og Kaupmannahafnar.
Farþegar eru beðnir að koma til skips kl. 11
H.f. Eimskipafélag íslands
Þakka innilega öllum þeim mörgu vinum og frændum
sem glöddu mig á 70 ára afmælisdaginn minn 6/12, með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Sérstaklega þökkum við hjónin skólastjóra, kennur-
um og starfsfólki Langholtsskóla fyrir ánægjulegt sam-
sæti og veglega gjöf. Einnig þeim börnum skólans sem
gáfu mér fagra blómvendi.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.
Sigmar G. Þormar.
Innilegustu þakkir til allra, sem heimsóttu mig, færðu
mér gjafir og hlýjar kveðjur á sjötugsafmæli minu
15. des. s.l. — Lifið heil. — Gleðileg jól.
Eiríkur Bcnjamínsson frá Hesteyri.
Hjartans þakkir öllum þeim mörgu, er minntust mín
á einn og annan hátt á sextugsafmæli mínu, og gerðu
mér daginn ógleymanlegan. -— Með beztu jólakveðjum.
Lára Pálsdóttir, Syðri-Rauðalæk.
Maðurinn minn og faðir okkar
JÓN ÞORFINNSSON
Freyjugötu 5, Sauðárkróki,
lézt að heimili sínu 20. desember.
Guðrún Árnadóttir og börn.
Konan mín
ANNA ARADÓTTIR
frá Þverhamri,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. þ.m.
kl. 10,30 f.h.
Þorsteinn Stefánsson.
Útför
SIGTRYGGS JÓNSSONAR
Suðurgötu 13,
fer fram frá Fossvogskirkju, klukkan 1,30 e.h., fimmtu-
daginn 22. desember.
Fyrir hönd aðstandenda.
Jónína Jónsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar og
tengdamóður
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR
Oddur Bjarnason,
Sigríður Oddsdóttir, Pálína Oddsdóttir,
Hafsteinn Sölvason, Kristján Magnússon.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu
okkur hjálp og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu
minnar og móður
GUÐRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Hamri.
Guðmann Jónsson, Haraldur Haraldsson.
Þökkum innilega alla samúð við andlát móður, tengda-
móður, systur og ömmu okkar
GUÐRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR
Kjartan Jónsson, Ingibjörg. Þorsteinsdóttir,
Dagbjört Guðnadóttir, Þorsteinn Kjartansson,
Guðmundur Kjartansson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og útför móður okkar
GUÐRlÐAR EIRlKSDÓTTUR
frá Þjórsártúni
Inga Ólafsdóttir,
Huxley Ólafsson, Eggert Ólafsson.