Morgunblaðið - 30.12.1960, Blaðsíða 3
Föstudaeur 30. des. 1960
MORCUNltLAÐIÐ
3
ERLLNliUR Pálsson, yfirlög-
regluiþjónn, sagði okkur í gær,
að á gamlárskvöld yrði kveikt
í 65 brennum viðsvegar um
bæinn. Það gefur því auga
Ieið að strákarnir í bænum
hafa nóg að starfa síðustu dag
ana fyrir áramótin við að
safna kössum, timbri, tunnu-
gjörðum, hjólbörðum og ýmis
konar skrani, og hlaða þvi
upp í stóra hrauka.
★
Við fréttum, að á Ægissíð-
unni væru nokkrir drengir að
hlaða upp brennu á vísindaleg
an hátt. í stað þess að nota
gömlu aðferðina við að hlaða,
höfðu þeir smíðað gálga úr fisk
hjallaspírum, sem auveldaði
þeim allt verkið.
Þegar blaðamaður Mbl.
öslaði upp að brennunni
yfir snjóalög og freðna fold
á háhæluðum skóm, sátu strák
arnir hinir roggnustu uppi á
kestinum og hlógu dátt. Iss,
blaðamaður í háhælðum
skóm! Það var skárri ljós-
myndarinn sem kom í gær og
tók af þeim myndir. Þess utan
voru þeir búnir að fella gálg-
ann og lá hann á hliðinni
þar skammt frá.
Brátt vaknaði þó forvitni
þeirra og þeir klöngruðust nið
ur af kestinum, einn og einn
í senn.
Brennan hlaðin upp með aðstoð gálgans.
— Eg er einn af fram-
kvæmdastjórunum, tilkynnti
snaggaralegur strákur hátíð-
lega. Við erum þrír alls og
heitum Arni, Láki, afsakið
Þorlákur, og Reynir.
— Búnir að vinna lengi við
þetta?
— Björgunarbátar, gall í
einum. Síðan heyrðist hvíslað:
— Hún hefur ekki minnsta
vit á hverskonar bátar þetta
eru, við bara teljum henni
trú um að þetta séu björgun-
arbátar.
Svo var skellihlegið.
á Ægissíðunni
— Svona um það bil þrjár
vikur, höfum gengið um bæ-
inn og beðið karlana, afsakið
karlmennina, um að gefa okk-
ur hitt og þetta drasl.
Það var auðheyrt, að fram-
kvæmdastjóranum þótti hlýða
að vanda málfar sitt sem bezt,
enda fullviss um að allt sem
hann segði færi á prent.
★
Umhverfis brennuna höfðu
drengirnir raðað þremur bát-
um, tveimur heilum og einum
allmikið sködduðum. Hvað
höfðu þeir nú grafið þá upp?
— Þetta eru nót ....
En ábyrgðartilfinning fram
kvæmdastjórans kom í veg
fyrir að farið væri með fleip-
ur í blöðin, og við sættumst
á að þetta væru 10 ára gaml-
ir nótabátar, sem fyrir löngu
væru komnir úr umferð.
★
— Ekki er ykkur þó trúandi
fyrir að kveikja í brennunni,
spyrjum við með eilítilli van-
þóknun.
— Nei, það gerir hann
Frikki, svöruðu þeir allir í
kór.
— Hvaða Frikki?
— Hann Frikki á Þormóðs-
1Í
Strákarnir sátu hinir roggnustu
uppi á kestinum og hlógu dátt.
stöðum, fínn kall hann Frið-
rik. Hann keyrði fyrir okkur
alla kassana og er búinn að
lofa að svetta olíunni á eld-
inn. Löggan hefur ekkert hing
að að gera, Frikki sér um allt,
þetta er nefnilega sérleyfis-
brenna.
Og svo gaus upp hlátur að
nýju.
— Er þetta í fyrsta sinn sem
þið hlaðið upp brennu?
— Onei, aldeilis ekki, við
gerum það á hverju ári.
— Alla tíð, síðan við höf-
um verið lifandi, sagði annar
með sannfæringarkrafti.
— Hvað ertu búinn að vera
lifandi lengi, væni
I 12 ár, svaraði hann og
faldi sig bak við annan strák.
★
Við kvöddum þessa vini
okkar með mestu virktum og
óskuðum þeim góðrar skemmt
unar, þegar loga tæki í
brennunni. A leiðinn niður í
bæ keyrðum við meðfram
Ægissíðunni og töldum brenn-
urnar þar og í Skjólunum. A
þessu svæði fundum við 7
brennur með stuttu millibili
og alls staðar gaf að líta ungl-
inga og drengi önnum kafna
við að hlaða upp brennur og
bálkesti úr kössum, timbri og
gömlum bátum. Já, það brenn
ur víða glatt á gamlárskvöld.
Hg.
Aftur flogið til
Norðurlands
Fólk streymir úr jólafríi
STAKSTEIIMAR
í GÆRMORGUN batnaði
veður norðanlands og hófust
þá aftur flugsamgöngur, en
ekkert hafði þá verið flogið
í tvo daga út á land, nema
til Vestmannaeyja. í gær
brá svo við að flugvellirnir
norðanlands opnuðust en
Vestmannaeyjaflugvöllur lok
aðist. —
Voru farnar þrjár ferðir til
Akureyrar í gær og fjórða það-
an. f einni ferðinni var komið við
á Sauðárkróki. Einnig var flogið
á Egilsstaði, ísafjörð, Patreks-
fjörð, Þingeyri, Flateyri og Þórs-
höfn. En fjöldi fólks beið alls
staðar eftir að komast til Reykja
víkur úr jólafríi.
Fyrsta Grænlandsflugferðin
Sólfaxi Flugfélags íslands fer
fyrsta Grænlandsflugið, skv. hin-
um nýja samningi, sem sagt hef-
ur verið frá hér í blaðinu, í dag.
Upphaflega var áformað að flug-
ið hæfist upp úr áramótum, en
skv. sérstakri beiðni verður flog-
in ein ferð fyrir áramót. Sólfaxi
var í gærkvöldi að koma til
Reykjavíkur frá Glasgow og
Kaupmannahöfn, og flýgur héð-
an til Syðri-Straumfjarðar, þar
sem han tekur áríðandi flutning
til Kulúsúk.
Hlífar-fundur
HAFNARFIRÐI. — Verkamanna-
félagið Hlíf hélt fund á miðviku-
dagskvöldið og var hann fjöl-
mennur. Var þar gengið frá til-
lögum að breytingum á samning-
um við atvinnurekendur, en þær
voru í samræmi við samþykktir
síðasta Alþýðusarabandsþings í
launamálum.
Öðruvísi mér áður brá
Upplitið á stjórnarandstöða-
blöðunum er smáskntið i gær.
Veldur því vaxtalækkunin, sem
Seðlabankinn hefur ákveðiS
eftir tilmælum ríkisstjórnariirn-
ar. Eins og fyrri dagimt
eru forsíðufréttir systurblað-
anna nærri samhljóða. í Þjóðn
viljanum segir:
„Þessi vaxtalækkun er ótví-
rætt merki um að ríkisstjórnia
er komin á undanhald frá við-
reisnarstefnu sinni“.
Og Tíminn segir:
„Ríkisstjórnin virðist loks
vera farin að draga í Iand með
viðreisnina, þótt hægt fari*.
Þjóðviljinn segir auk þess, að
undanhald ríksstjórnariirnar frá
viðreisnarstefnunni se hafið.
Þessar yfirlýsingar andstóðu-
blaðanna finnst okkur dáliiið
kynlegar, því að þessi góðu blöð
liöfðu frætt okkur á því þegar
í maí og júnimánuði, að við-
reisnin væri hrunin.
Þrengingar eðlilegar
Og ekki er að undra. bótt
þrengiirgar séu í herbúðum
stjórnarandstæðinga, jafn harð-
snúin og stjórnarstefnan er.
Stjórnarandstöðublöðin höfðu
sem sagt sagt hana dauða í maí
og júní. Þegar kom lengra fram
á sumarið, var húir að hrynja
smátt og smátt, en nú um áramót-
in er því lýst yfir, að undanbald-
ið og hrunið sé að byrja. Þetta
getur maður sannarlega kallað
að fara aftan að siðimum. F»íst
er viðreisnin hrunin, svo er hun
að hrynja smám saman og loks
mörgum mánuðum seinna byrj-
ar hún að hryirja.
En þegar við allt þetta bætist,
að svo fjarri fer, að um hrun
sé að ræða, að begar ern að
koma í ljós ávextir viðreisnar-
innar, þá er von að fari um
stjórnarandstæðinga, sem sjálf-
sagt hafa trúað hví sjálfir. að
viðreisnarráðstafanirrrar mundu
ekki ná tilætluðum árangri og
verið staðákveðnir í að sjá til
þess að svo færi, ef með þyrfti.
Samstaðan í launa- og verk-
fallapólitík er Ijósasti votturinn
um, að stjórnarandstæðingar
hafa hugsað sér að kollvarpa
viðreisnarráðstöfunum, ef sýnt
væri að þær færu ekki ut nm
þúfur af sjálfu sér, en reynslan
hefur orðið sú, að ekki hefur
tekizt að koma á neinum verk-
föllum og allur almenningur er
ánægður með hve einarðlega
hefur verið brugðizt við hinum
mikla vanda.
Eru þeir ofríkismenn?
f ritstjórn-»rgrein Tímans í
gær er rætt um varnarmálin.
Þar er vikið að Bandaríkja-
mönnum og um þá segir:
„Þeir virðast ekki taka það til
greina, ;>ð fslendingar lýstu yfir
því við inngönguna í Atlants-
hafsbandalagið, að þeir mundu
ekki una hersetu á friðartínmm
og í samræmi við það var það
ákvæði sett í hervarnarsáttmál-
ann að hartn væri uppsegjan-
legur með lVi árs fyrirvara".
Eftir þessum orðum Tímans
að dæma, virðist það blað halda
þvi fram, að Bandaríkjamerm
séu ofríkismenn, sem ekki virði
gcrða samninga ag hyg.gist
sitja á íslandi í trássi við ís-
lenzk stjórnarvöld. Slilc yfir-
lýsing hefur ekki áður sézt í
blaði, sem lýðræðissinnað hefur
viljað telja sig, og er þvi ástæða
til að biðja um fyllri skýringu
ritstjórans. En fer honum ekki
að skiljast, að það er með þess-
um skrifum hans sjálfs, sem
hann hefur komið „kommúnista-
orðinu“ á blað sitt og þvj nt í
bláinn kveinstafirnir um það,
að Morgunblaöið hafi þar verið
að verki.