Morgunblaðið - 05.01.1961, Síða 2

Morgunblaðið - 05.01.1961, Síða 2
2 MORGUNBLA91Ð Fhnmtudagur 5. janúar 1961 Tekjutap vegna afla- brests og verðfalls meira en 500 millj. kr. Ummœli forsœtisráðherra á fullum rökum reist 1 ÁRAMÓTARÆÐU sinni sagði Ólafur Thors, for- sætisráðherra, að áætla mætti tekjutap þjóðarbúsins vegna aflabrestsins og verð- fallsins a. m. k. 5ð0 millj. kr. og að þetta tekjutap hefði orðið til þess, að ekki hefði verið hægt um þessi áramót að létta byrðum af almenn- ingri eins og ríkisstjórnin hefði óskað og vonað. • Það er alkunnugt, að mikið verðfall varð á fiski- mjöli og lýsi frá þvi á haust- mánuðum 1959 fram á mitt sumar 1960. Sé verðmæti framleiðslu ársins 1960 reikn að á meðalútflutningsverði ársins 1960, kemur í ljós, að það er 166 millj. kr. lægra, heldur en ef það er reiknað á meðalútflutningsverði árs- ins 1959. Verðmæti sildar- aflans norðanlands og sunn- an er 156 millj. kr. Iægra árið 1960, heldur en það var árið 1959, sé framleiðsla beggja áranna reiknuð á verðlagi ársins 1959. Reikn- að á sama hátt, er verðmæti afla togaraflotans 175 millj. kr. lægra árið 1960 heldur en árið 1959. Séu þessar tölur < > Iagðar saman fæst útkoman 495 millj. kr., en það er sú lækkun á framleiðsluverð- mæti ársins 1960 sem leiddi af verðfalli og aflabresti. • Þar við bætist svo, að um áramótin 1959/60 voru miklar birgðir af mjöli og lýsi í landinu, sem seldar voru á lágu verði á árinu 1960. Fyrir þessar afurðir fékkst 87 millj. kr. lægri upphæð en fengizt hefði, ef þær hefðu verið seldar á meðalútflutningsverði ársins 1959. • Tíminn bendir á, að útflutningur fyrstu 11 mán aða ársins 1960 sé ekki lægri en útflutningur fyrstu 11 mánaða ársins 1959, og spyr, hvernig sú staðreynd geti samrýmzt þeirri tölu, er forsætisráðherra nefndi i áramótræðu sinni. Því er til að svara, að á árinu 1959 jukust birgðir útflutningsaf- urða um 200 millj. kr., en munu væntanlega hafa lækk að nokkuð á árinu 1960. Að þessu leyti komu áhrif lækk unar framleiðsluverðmætis- ins ekki fram í útflutningi ársins 1960, en munu vænt- anlega koma fram í útflutn- ingi ársins 1961. Þar við bæt ist enn, að aukning varð á framleiðsluverðmæti þorsk- afla bátaflotans á árinu 1960 samanborið við árið 1959. Sú aukning varð þó minni en svaraði til aukinnar rúm- lestatölu þeirra skipa, sem þátt tóku í veiðunum og aukinnar notkunar veiðar- færa. Þær verðhækkanir, sem nýlega hafa orðið á skreið og saltfiski, hafa ekki teljandi áhrif á útflutnings- verðmæti ársins 1960, þar sem þær áttu sér stað svo seint á árinu, en þær mnnu hafa nokkur áhrif á árinu 1961. • Sú lækkun á fram- leiðsluverðmæti sjávarafurða vegna verðfalls og aflabrests, sem að framan getur, er enn alvarlegri vegna þess, hve tilkostnaður við framleiðsl- una hefur aukizt mikið á undanfömum árum. Lands- menn hafa stóraukið fiski- skipastólinn. Notkun veiðar- færa hefur einnig stórank- izt. Mikið hefur verið keypt af fiskileitartækjum, nóta- bátum og kraftblökkum. Til þess að standa undir öllum þessum aukna kostnaði hefði framleiðsluverðmætið þurft að aukast mikið. Svo hefur þó ekki orðið vegna verð- fallsins og aflabrestsins, heldur hefur framleiðsluverð mætið minnkað. • Þá vefengir Tíminn einnig ummæli forsætisráð- herra um gjaldeyrisstöðuna og aukningu sparifjár. Þau ummæli voru að sjálfsögðu hyggð á tölum bankanna um þessi efni. Samkvæmt þeim batnaði gjaldeyrisstaðan um 274 millj. kr. frá því að efnahagsráðstafanimar voru framkvæmdar (Iok febrúar) til 21. des sl. Áhrifa efna- hagsráðstafananna á spari- fjármyndunina fór ekki að gæta fyrr en í aprílmánuði, en frá þeim tíma til nóvem- berloka jukust spariinnlög banka og sparisjóða um 217 millj. kr. á árinu 1960, en höfðu aukizt um 163 millj. kr. á sömu mánuðum ársins 1959. Stjórn Oums hlaut þingtraust Vientiane, Bangkok, 4. jan. ÞINGIf) í Laos tók í dag ákvörð- un um að veita hinni nýju stjórn Boun Oum prins fullt traust. — Féllu atkvæði um málið 41—0. Boun Oum, sem stjómað hefur með konunglegri tilskipan ;iðan 12. des. sl. ávarpaði þingheim og sagði, að stjórn sín myndi berj- ast til hins ítrasta gegn hvers kyns innrás og íhlulun um mál- efni landsins. Phoumi Nosavan, yfirmaður hers hægrisinna ávarpaði einnig þingið og sagði, að barizt yrði gegn íhlutun kommúnista í Laos, en aðstoðar annarra ríkja yrði ekki leitað nema því aðeins að Rússar og Norður-Vietnahm héldi áfram að senda vinstri mönnum vopn og vistir. Þá yrði leitað aðstoðar Sameinuðu þjóð- anna eða annarra samtaka. Fregnir af bardögum í Laos eru fáar og ósamhljóða. Fró Vi- entiane berast fregnir um að (hægrimönnum hafi orðið nokk- Uð ágengt í baráttunni um borg- ina Xing Kihoung en Tass frétta- Stofan segir að hægrimenn hafi Qiátið undan síga. Á Ieið til New Yorfc ' Atvinumálaráðherrann í stjórn Ðoun Oum prins kom við í Bang kok í dag á leið sinni til New *York, en þar hyggst hann tala toiáli ríkisstjórnar sinnar við Sameinuðu þjóðimar. Kvaðst hann hafa meðferðis skjöl er taiyndu sanna Hammarskjöld, aðalritara samtakanna, vopna- sendingar frá N-Vietnam og Rússlandi tid vinstri manna í Laos. Hann kvaðst mundu leggja til að skipuð yrði nefnd og send til Laos. Skyldi hún helzt eingöngu skipuð fulltrúum hlutlausra ríkja. Árás á flugvél Þá hafa borizt fregnir um að bandarísk flugvél hafi orðið fyr ir árás er hún var á flugi á al- mennri flugl. yfir Laos. Ekki er ljóst hverjir hafi staðið fyrir þeirri árás, en flugvélin komst lítið skemmd til Vientiane. T elpa verður fyrír bíl 1 FYRRAKVÖLD varð 12 ára telpa íyrir bíl á Laugamesveg- inum. Ungur piltur í nýlegum bíl hafði ætlað að krækja fyrir aftan telpuna þar sem hún var á leið yfir akbrautina. Pilturinn var lítt vanur akstri og missti stjómina á bílnum á hálkunni og varð telpan þá fyrir honum. í fyrstu ádeit hún sig hafa sloppið ómeidda, en í ljós hefir komið að hún hefir brákazt á öðrum fæti, skráimast í andliti og víðar. Páll Melsted stór- kaiiumaður látinn i PÁLL Melsted, stórkaupmaður, lézt að heimili sínu, Freyjugötu 42, síðdegis í gær, 66 ára að aldri. Páll hafði verið rúmfast- ur um nokkurra mánaða skeið, en fyrst kennt lasleika fyrir um tveim árum. Páll lætur eftir sig konu og tvö uppkomin böm. Páll var þjóðkunnur maður fyrir afskipti af verzlunar- og viðskiptamálum Í NA /S hnúior \ y SV S0 hnútor tk Snjó/temú 9 Ú3r%. V S/úrtr IC Þrvmur W;s, KuUuM HHnkit H Hm» I L Lmgi I SUÐVESTUR af Reykjanesi er 990 mih. lægðarnsiðja á hreyfingu NAN eftir eða skammt undan suðurströnd Is- lands. Þessa leið hafa flestar lægðir farið síðan fyrir jól, og mun veðurlag því verða svipað næsta sólarhring og ver ið hefur siðasta hálfan mán- uð. A-belgingur annað slagið á Suðurlandi og þíðviðri, en hægari A-átt og sums staðar lítið frost fyrir norðan. Veðurhorfnr: SV-mið: Austan stormur, rigning. SV-land: Hvass aust- an, þýðviðri, rigning með köfl um. Faxaflói, Breiðafjörður og miðin: Allhvass A, þýðviðri. Vestfirðir til Áustfjarða: Vaxandi A-átt, víðast frost- laust og úrkomulaust að mestu. Vestfjarðamið til Austfjarðamiða: Allhvass eða hvass A, dálítil slydda eða rigning. SA-land og SA-mið: Vax- andi A-átt, hvassvirðj með nóttunni, slydda og síðar rigning. Snjóbarðar ekki viðurkenndir OFT í haust hafa Mbl. bor- izt um það fyrirspurnir, hvort búið væri að veita snjóbörðum, sem svo mjög hafa rutt sér til rúms á bíl- um hér á landi, viðurkenn- ingu Bifreiðaeftirlitsins. Um það var talað eins og bugsan legan möguleika þegar um- ferðarlögin voru endurskoð- uð á árunum. í gær átti Mbl. stutt samtal við Gest Ólafsson fulltrúa Bif- reiðæftirlitsins um þetta mád. Ekki viðurkenndir Gestur sagði að i bifreiðalög- unum yæri ekki tekið fram með berum orðum að löggilda ætti snjóbarða en ljóst er af orða- laginu að við þá er átt. — Nei við höfum enn sem komið er ekki veitt þeim viðunkenningu sem útbúnað á bílum þegar ekið er í snjó og hálku. í þessu efni höfum við stuðzt við aðgerðir Norðmanna. Þeir hafa ekki enn veitt snjóbörðunum slíka viður- kenningu, sagði Gestur enn- fremur. Sprenging í kjarn- orkuverksmiðju Stórt svæði hættulegt vegna geislavirkni Ekki heldur á móti En Bifreiðaeftirlit ríkisins hef ur heldur ekki tekið afstöðu gegn notkun snjóbarða og bílar embættisins eru á snjóbörðum um þessar mundir. Reynsda marma af snjóbörð- unum er ágæt þegar snjór er á vegum en þeir hafa ekki sýnt neina yfirbuxði þegar ekið er á ísingu og sveldi. Margir telja að það nægi til aukins öryggis, að hafa snjóbarðana á afturhjólun- um eimxm, en svo er ekki. Of fá þverbönd En varðandi snjókeðjumar sagði Gestur Ólafsson, að það væri skoðun bifreiðaeftirlits- manna, að þverbönd væru alltof fá í snjókeðjunum. Tók hann sem dæmi snjókeðjur á felgu- stærð 700x15. í þeirri keðju em 12 þverbönd, en ef vel ætti að vera, þyrftu þau að vera 20. Þá nemur alltaf að minnsta kosti eitt þverband við jörðu í senn. roAHO, 4. jan. — (Reuter- NTB) — í nótt varð spreng- ing í kjarnorkuhreyflaverk- smiðju í Idaho og létu þrír menn lífið — hermenn er voru að verði í byggingunni. Lík eins þeirra var flutt á brott með sjúkrabifreið, en lík hinna tveggja varð að einangra í rústum verk- smiðjubyggingarinnar vegna geisIavirknL • Sundraðist Samkvæmt upplýsingum bandarísku kjarnorkumála- nefndarinnar sundraðist verk smiðjan gersamlega. Stórt svæði þar um kring er talið hættulega geislavirkt, en sem! stendnr er það til bjargar, að vindur stendur af byggð. Full- trúi kjarnorkumálanefndar- innar sagði í dag, að óljóst væri hvort sprengingin hefði verið kjarnorkusprenging eða kemísk sprenging en menn vonuðu fastlega hið síðar- nefnda. # Rannaóknir A daginn vinna í verksmiðju þessari hátt á fjórða þúsund manns. I verksmiðjunni var gerð ur fyrsti bandaríski kafbáts- hreyfillinn, sem knúður var kjarnorku og þar var nú unnið að rannsóknum og tilraunum með smíði kjarnorkuhreyfla i flugvélar. Bótornii fornir HÚSAVÍK 4. jan. — Héðan fara allir stærri bátarnir til fjar- lægra verstöðva á komandi vetrarvertíð, nema einn, Hag- barðxir, sem gerður verðxir út eins og undanfarin ár frá Húsa- vík. Héðinn, Belga, Pétur Jóns- son og Smári verði gerðir út frá Sandgerði. Helgi Flóventsson frá Keflavík, en Stefán Þór er leigðxir tid Flateyrar. Fóm bátar þessir allir í gær og dag áleiðis suðxxr, nema Helga, sem þó er ferðbúin, en ófarin. — Silli. ísland - Noregur Nordmannslaget FÉLAGBÐ ísland—Noregur og Nordmannslaget halda saxneigin- legan skemmtifund á þrettándan um, 6. janúar í Tjamarkaffi kl. 8 e.h. Sendiherra Norðmanna á fs- landi, hr. Bjame Börde, mun flytja nýjárskveðju, Kristmann Guðmundsson skáld stutt erindi og Eggert Guðmundsson listmál- ari mun teikna myndir með að- stoð fundarmanna. Ýmislegt ann- að mun verða til skemmtunar og dansað verður fram á nótt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.