Morgunblaðið - 26.01.1961, Síða 3

Morgunblaðið - 26.01.1961, Síða 3
Fimmtudagur 26. Jan. 1961 MORGVNBLAÐ1Ð 3 * STAKSTEIMB Þvættingur Framsóknarmanna um landbúnaðarmálin Sveinn Tryggvason, fram. kvæmdastjóri framleiðsluráðs Iandbúnaðarins hefur upplýst, að árið 1960 muni aukning mjólkurframleiðslunnar nema a.m.k. um 6 millj. lítra. Virðist bændum og öðrum, sem þessi mál athuga, þetta benda til þess, að staðhæfing ar Framsóknarmanna um að landbúnaðurinn sé stöðugt að dragast saman vegna viðreisnar stefnu núverandi ríkisstjórnar, hafi við rök að styðjast? Vissu- lega ekki. Framsóknarmenn hafa hér farið með þvætting og rök Ieysur, eins og þeirra er vandi. Hin mikla aukning mjólkurfram Ieiðslunnar á s.1. ári, sýnir að sem betur fer heldur frámleiðsl an áfram að aukast. Afleiðing af „bjarg- „ráðunum“ Á það má hinsvegar benda Í þessu sambandi að vegna efna- hagsráðstafana vinstri stjórnar innar vorið 1958 sköpuðust bænð um meiri erfiðleikar en nokkru sinni fyrr á síðustu áratugum. Af því leiddi nokkurn samdrátt framleiðslunnar, þannig að í árs Iok 1959 varð t.d. að flytja inn töluvert magn af smjörL Vinstri stjórnin vann einmg það afrek að stöðva svo að segja allan inn flutning á beltisdrá.ttarvéIum til Iandsins á árinu 1958. Á því ári var aðeins futt inn ein lítil beltisdráttarvél. Sannleikurinn er sá, að á áv inu 1960 héldu bændur áfram ræktunar- og byggingarfram- kvæmdum með eðlilegum hraða. Hér í blaðinu í gær var til dæm is birt samtal við Friðjón Þórð. arron, sýslumarm í Bnalasýslu, þar em skýrt var frá fram- kvæmdum bænda í því héraði, sem eingöngu er byggt bændum og sveitafólki. Stórfeldum rækt unarframkvæmdum var haldið þar uppi og mjög verulegar fram kvæmdir voru unnar á sviði byggingarmála. Það er líka at- hyglisverð staðreynd, sem sýslu. maður Dalamanna segir frái í þessu samtali, að á árinu 1960 lækkaði tekjuskattur á fólki í Dalasýslu úr rúmlega 400 þús. kr. árið 1959 niður í aðeins 58 þús. kr. Á sama tíma hækkuðu bætur almannatrygginga í þessu blómlega sveitahéraði úr einni millj. kr. 1959 í 2,2 millj. kr. árið 1960. Vitanlega hefur þetta veruleg áhrif á hag og afkomu bænda. Rangfærslur búnaðarmálast j órans Steingrímur Steinþórsson hef. I ur almennt verið talinn meðal I fremstu og drengilegustu- manna Framsóknarflokksins. Það óhapp I henti hann þó um síðustu ára- mót að flytja þjóðinni mjög viH andi upplýsingar ,í yfirliti um landbúnaðarmál. I þessu yfirliti ■ lagði búnaðarmálastjóri áherzlu I á að sanna, að um mikinn sam- drátt væri að ræða í fram- kvæmdum bænda og að stjórnar j stefnan þjarmaði mjög að land j búnaðinum. Búnaðarmálastjóri þagði um það, að sjóðir Búnaðar bankans lánuðu meira á s.l. ári en nokkru sinni fyrr til fram. kvæmda í sveitum landsins. Hann þagði yfir því, að núver- andi landbúnaðarfláðherra kom á mcdkilegri Iagfæringu á af- urðasölulögunum, sem tryggir | bændum bætta aðstöðu og betra verð em áður fyrir framleiðslu sína. Búnaðarmálastjórinn þagði I einnig um það að bændur áttu | um síðustu áramót hægara með að gera upp reikninga sína eu Imörg undanfarin ár. Þaö má alltaf búast við að svona fari... — Ætlarðu að skrifa um Þorlákshöfn eða hafnleysu? — Eg ætla að skrifa um bát inn þinn. — Það er lítið að skrifa. — Hvernig vildi þetta til? —Hann slitnaði af legufær- unum á sunnudag og rak upp — Hvað gerðu björgunar- mennirnir, þegar þeir voru búnir að athuga aðstæðurnar? — Þeir settu bönd á hann og drógu hann lengra upp í fjöruna við hverja öldu. — Heldurðu að hann sé brotinn Björgunarmennirnir bíða eftir fjöru og fá sér kaffisopa í bílnum. Þetta eru allt vanir menn, og sem dæmi má nefna, að sl. laugardag björguðu þeir tveimur bátum, sem höfðu sokkið í Hafnarfjarðarhöfn. — Hvað er hann tryggður fyrir mikið? — Sautján eða átjánhundr- uð þúsund. Það er ekkert. Nýr sams konar bátur kostar ná- lægt þrem milljónum. — Var hann tilbúinn á ver- tíð. — Já, og ég var búinn að kosta upp á hann hundrað þúsund krónum í haust. Það er slæmt að verða fyrir þessu, þegar búið er að semja og vertíð að toyrja. Það er óvíst að hann verði tilfoúinn á þessa vertíð. Hann getur bro.tnað enn meira. — Hvað ætlarðu að gera, ef hann er mikið brotinn? — Ég verð þá að fá mér annan bát. Annað er ekki hægt. — Eg fer ekkj að hætta eft- ir öll þessi ár. Eg verð að gera það, þó ekki væri nema vegna skipshafnarinnar. Það er voða legt að verða fyrir þessu í miðri vertíð. En það má alltaf búast við að svona fari, meðan höfnin er ekki betri en þetta. i fjöruna, og hérna liggur hann eins og þú sérð. — Hvar varst þú þá? — Eg var heima á Eyrar- bakka. Það var hringt til mín um klukkan hálf átta og sagt, að foáturinn væri kominn upp í fjöru. — Hvað svo? — Eg hafðf samband við Samátoyrgð íslands, þegar ég var búinn að sjá bátinn og mennirnir frá Björgun komu um hálf fjögur á mánudags- nóttina. — Hvað gerðu þeir? — Þeir athuguðu aðstæður við björgunina. — Hvernig var veðrið? — Það var austan tíu og talsverður sjór. Báturinn valt sitt á hvað, en var óskemmd- ur fyrst þegar hann kom í fjöruna. Járnskúffan undir kilinum bjargaði honum. — Já, hann er fullur af sjó. Það hækkar og lækkar i hon- um við flóð og fjöru. Hann er brotinh á bakborðssíðu og hlýtur að vera meira brotinn á stjórnborðssíðu. Hann hefur alltaf legið á henni. Hluti af dýparmælinum er líka brot- inn og fisksjáin. .— Hvenær var fjara á mánu dagsnóttina? — Það var klukkan fimm um morguninn. — Hvað var þá gert? — Ekkert. — Ekkert? — Já, ekkert fýrr en seinni partinn í dag (þriðjudag). — Hvenær kom ýtan? — Hún kom ekki fyrr en seinnipartinn í dag. — Hvað er báturinn mörg tonn? — Þrjátíu og níu. bróka bátinn og gera allt klárt til að kippa honum undan sjó fyrir háflóð, en það var klukk an hálf fimm á mánudagsmorg un. Síðan drógu þeir bátinn ofar í fjöruna í hvert sinn, sem alda reið undir hann. Með þessum viðbrögðum telja þeir síg hafa varið bátinn að mestu fyrir broti. Báturinn er lítið brotinn, að sögn þeirra, að- eins slitkjölurinn, flaskað úr aðalhylki og hampþéttingín orðin laus. Þeir telja að lítill sjór sé í bátnum, a.m.k. ekki til skaða. A næstu fjöru ætla þeir að draga bátinn á bak- borðshliðinni á sliskjum um hundrað metra leið, sem ýtan heíur hreinsað af grjóti. Þar á hann svo að standa, þar tii hægt verður á stórstreymi að íleyta honum út aftur. — Þetta er það eina sem hægt að gera sagði Kristinn Einarsson að lokum, og við vonumst til, að báturinn brotni ekki við flutninginn. Mennirnir frá Björgun h.f. voru setztir inn í bíl, sem stóð skammt frá bakkanum, og voru að drekka kaffi. Ýtan var hætt að hreinsa grjótið ofan af sandinum. Það var komið flóð og ekkert að gera nema bíða. Kristinn Einars- son, fulltrúi hjá Samábyrgð Islands, kallaði og bauð upp á kaffi, spurningarnar dundu á honum og björgunarmönn- unum: Þeir fengu tilkynningu um að bátinn hefði rekið upp í fjöru um niu leytið á sunnu- dagskvöld og voru komnir nið ur að Vatnagörðum eftir hálf tíma. Undirbúningurinn tók um einn og hálfan tíma. Þeir kváðust hafa verið búnir að Siguröur Guðmundsson, skipstjóri og eigandi Faxa. ★ — Ert þú i.e.s. sagði skip- stjórinn allt í einu og leit upp? — Já, og þetta er ljósmynd- ari. Faxi ÁR 25, áður Ingólfur frá Fáskrúðsfirði, þar sem hann liggur í fjörunni. Báturinn er fimm ára gamall, en Sigurður Guðmundsson hefur átt hann í þrjú ár. Áður átti hann hát með sama nafni. (Ljósm. Sveinn Þormóðsson). BATURINN lá á stjórnborðs- síðunni í fjörunni eins og hvítur hvalur og sjórinn freyddi fyrir aftan hann. Það var fjara og ýta vann að því að hreinsa grjótið ofan af sandinum og gera rás til að fleyta honum út aftur á stór- streymi. Uppi á bakkanum var kranabíll og frá honum lágu vírar út í bátinn. Aðrir vírar lágu einhvers staðar úr myrkrinu út í stjórnborðssíð- una. Nokkrir menn frá Björg- un h.f. voru á vakki í kring- um kranabílinn og fremst á bakkanum stóð skipstjórinn Sigurður Guðmundsson og horfði á bátinn í fjörunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.