Morgunblaðið - 01.02.1961, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.02.1961, Qupperneq 14
14 MORCVNbLAÐIÐ Miðvikudagur 1. febr. 1961 Söngurinn glœðir svo margt, bœfir og hressir Rabbað við frú Sigríði Jensdóttur, áttrcela I DAG eiga tvíburasysturnar Sig ríður og Sólborg Jensdætur írá Arnardal við Isafjarðardj úp áttræðisafmæli. Þær eru báðar sjómannsekkjur og vistmenn í Hrafni9tu, dvalarheimili aldraðra sjómanna. Sólborg er því miður veikburða mjög og rúmföst og getum við því ekki rætt við hana í tilefni þessara tímamóta, en Sigríður er vel hress í anda, ern Og við góða heilsu. Hún mun í dag dveljast á heimili dóttur sinnar að Kleppsvegi 40. Við bregðum okkur inn í Hrafn istu og spyrjum eftir frú Sigríði. Góðviljaður kunningi leiðir okk- að ég kom til Isafjarðar var ég í kór hjá Jónasi Tómassyni og var einn af stofnendum Sunnukórs- ins. — Já, ég skemmti mér mikið, dansaði og hafði mikla gleði af lífinu. Mér fannst fólk þá, sem söng stundaði, hafa engu minni hæfileika en nú er og ég er viss um að það hefði getið sér góðs orðs, ef það hefði haft tækifæri til náms. Fólk var þá einnig ekki síður kátt og skemmtilegt. 1 Bol- ungarvík voru myndarlegir og fjörugir atorkumenn. * * * ur til hennar niður á saumastofu heimilisins, þar sem hún situr önnum kafin við sauma ásamt annarri konu. Upp frá saumaborð inu stendur lágvaxin hnellin kona, kvik í hreyfingum og ein- örð og hispurslaus í framgöngu. Með henni göngum við upp í vist- herbergi hennar, sem er snotur- lega búið húsgögnum í gömlum stíl að líkindum heimilismunum hennar sjálfrar frá búskaparár- unum. Veggina prýða myndir af fjölskyldu og ættmennum. Sigríður hefir dvalizt í Hrafn- istu frá því að heimilið tók til starfa og lætur vel af dvö'linni þar. Þar eru um 20 vistkonur flestar ekkjur sjómanna. — Við erum hér frjálsar, segir Sigríður, — og íþyngjum engum. Við höfum nægan og góðan mat, skemmtum okkur við spil og fleira, auk þess sem við fáum að sjá hverja kvikmynd, sem tekin er til sýningar í Laugarásbíói. .* * * — Við systurnar erum fæddar í Arnardal að Ytri-Húsum. Foreldrar okkar voru Sólborg Sigurðardóttir og Jens Jónsson. Faðir minn var sjómaður, söng- gefinn og glaðsinna. Heima í Arnardal var ég til 16 ára ald- urs en þá fór ég út í Æðey til Guðrúnar föðursystur minnar. Aldamótaárið fór ég norður til Eyjaf jarðar, var þar fyrst í káupa vinnu en fór síðan að Kjama í Arnarneshreppi og nam sauma- skap hjá Septimu Sigurðardótt- ur. — Arið 1902 fluttist ég til Bol- ungarvikur og giftist þar ungum myndarmanni, Guðmundi Jakobs syni, sem þá var þar formaður. Guðmundur var annars skósmið- ur að iðn. Hann fórst árið 1915 á bát sínum með allri áhöfn. Við eignuðumst saman 6 börn, sem »11 eru nú dáin. — Arið 1919 giftist ég Elíasi Magnússyni, sem einnig var skip- stjóri í Bolungarvík. Með honum eignaðist ég þrjár dætur og eru tvær þeirra á lífi, Guðmunda söngkona og Þorgerður, nú gift Finnboga Kjartanssyni. — Arið 1923 drukknaði seinni maðurinn minn. Hvolfdi bát hans í óveðri 7. nóvember undir Stigahlíð við Miðleiti. Þeir voru 6 á bátnum og náðust tveir þeirra. Magnús Kristjánsson skip stjóri bjargaði þeim og var bát- ur hans hætt kominn við björg- unina. — Frá Bolungarvík fluttist ég 1928 til Isafjarðar og þaðan 1932 hingað til Reykjavíkur. — Eg held að Bolungarvík sé minn kærasti dvalarstaður þótt þar hlyti ég þyngstar raunir. En hvar sem ég dvaldi var fólk mér gott og ég komst alltaf vel af. — Já, ég var sönggefin eins og faðir minn. Stundaði mikið söng í um 20 ár. Halldór Hávarðsson var söngstjóri okkar í Bolungar- vík og þar var bæði kirkjukór og blandaður kór. Við héldum söngskemmtanir, fórum jafnvel í eöngferðir til Hnífsdals, Isafjarð- ar og Plateyrar. A skemmtunum okkar voru þá ræðuhöld. Einnig héldum við leiksýningar. Skugga Sveinn var mikið leikinn. Eftir — Vinnan og söngurinn hefir gert mér lífið bærilegt. Lífið hef- ir að sönnu verið mér þungbært, en það hefirá hinn bóginn á marg an hátt verið mér gott og gjöfult. — Sölumiðstöbin Framh. af bls. 13. rétt um þetta: „að þegar tekið er tillit til viðskipta ársins 1960, munu allir stjómendur eigá inn- stæður hjá fyrirtækinu, og flest- ir sem nemur hundruðuim þús- unda“. Við útborgun á fiski er alltaf haldið eftir 5% af áætluðu söluverði trl þess að mæta skakkaföllum, ef söluáætlun, sem gerð er í ársbyrjun, skyldi ekki standast. Þegar ég því tala um að taka til-lit til viðskipta ársins 1960, á ég við þessi 5%, sem haldið er eftir. Nú er séð fyrir endann á sölu ársins 1960 og þar með, að frystihúsin fá hið áætlaða verð nokkum veg- inn. I vor og sumar, þegar fjár- hagserfiðleikar frystihúsanna voru hvað tilfinnanlegastir, var flestum frystihúsunum greitt í reikning upp í þessi 5% og myndaðist þá að sjálfsögðu skuld á viðskiptareikningum viðkom- andi frystihúsa, þar sem þessi 5% eru ekki færð inn í við- skiptareikningana, fyrr en fram- leiðslan er endanlega gerð upp. Uppihæðir þessar eru að sjálf- sögðu mismunandi háar eftir framleiðslu hvers og eins. Þá spurði hv. þ. m.: Bvernig hefur Tryggingamiðstöðin notað þetta fé:“ í ræðu minni sagði ég: „Skuld Tryggingamiðstöðvarinn ar við S. H. er nú álíka og Mið- stöðvarinnar, 4—5 milljónir króna. Þessi skuld er mynduð vegna þess, að það er mjög al- gengt, að tryggingafélög láni til báta- og skipakaupa gegn við- skiptum, og þar sem þetta er ungt félag, þá hefur það ekki getað myndað neitt eigið fé, en hins vegar hefur þótt nauðsyn- legt að veita því aðstöðu til að afla sér slfkra viðskipta, þótt í smáum stíl væri. Eru slík lán að sjálfsögðu aðeins veitt gegn venjulegum og fullum trygging- um.“ Ennfremur sagði ég: „Þess ber iþó að geta, að sumir þeirra (þ. e. stjórnendanna) . hafa eins og aðrir fengið lán hjá Trygg- ingamiðstöðinni til skipakaupa gegn venjulegu veði“. Þetta svar hefur ekki verið fullnægjandi fyrir hv. þ. m. Tryggingamiðstöðin hefur lán- að 10 útg.mönnum til að greiða fyrir bátakaupum, 150—250 þús. undir út á hvern, gegn veði í bát unum og oftast fasteignum líka. Önnur tryggingafélög 'hafa mörg hver lánað hærri upphæðir í þessu skyni. Ennfremur hefur Tryggingamiðstöðin lánað tvær milljónir króna á sama hátt til að greiða fyrir kaupum á einum togara. Það lán er tryggt með handveði í ríkistryggðum skulda bréfum og veði í fasteignum. Einn stjórnarmeðlimur hefur fengið lán til kaupa á einum vél- bát, og það var stjórnarmeðlkn- ur, sem fékk lánað til togara- kaupanna, og þarf ekki að fara í grafgötur með, hver það er. Áður komst til tals að veita öðr- — Það var auðvitað þungbært að missa menn sína báða í haf- ið á bezta aldri, annan 38 ára og hinn 45 ára. En ég hef alltaf ver- ið heilsuhraust og fólk hefir allt- af verið mér gott. Eg gæti ekki verið iðjulaus og ég er innilega þakklát fyrir það að hafa getað unnið. Ég hef alltaf lesið gler- augnalaust þar til í vetur. — Söngurinn hjálpaði til að létta undir, er á móti blés. Hann glæðir svo margt, bætir og hressir, segir þessi áttræða söngelska dugnaðarkona að lok- um. Þegar við vorum að fara, hitt- um við gamlan skipstjóra frammi á gangi. Spurði hann hvað við hefðum verið að gera þar í heim- sókn. Við sögðum honum allt af létta um það. — Já. Hún Sigríður sauma- um aðila þetta lán, en það varð ekki úr því, af því að sá aðili gat fengið hærra lán hjá öðru tryggingarfélagi. Ég er næstum því viss um, að allir nýju togar- arnir 5 hafa fengið sljk lán hjá tryggingarfélögunum gegn því að tryggja hjá þeim skipin. Þetta eru ekki lítil viðskipti; ið- gjöld af skipinu einu fyrir utan önnur viðskipti eru nokkuð á aðra milljón króna á ári. Misskilningur aff stefnt sé gegn austurviffskiptum Skömmum og níði hefur ekki linnt á stjórnendur S. H. marga undanfarna rnánuði í flokksblöð um hv. þriðja þingmanns Reyk- víkinga, og nú hefur hann sjálf- ur tekið að sér að flytja þennan óhróður inn í sali Alþingis. Hvað er hér á ferðinni, þegar árásirnar á S. H. og stjórnendur hennar yfirgnæfa allt annað? Maður gæti freistast til að halda að fjöregg kommúnista væri í húfi, ef ekki tækist að hnekkja vexti og viðgangi S. H. og þeim áformum, sem þar er verið með á prjónunum. Sú var iþó tíðin, að S. H. var ekki illa séð af hv. þriðja þingm. Reykvíkinga og fleirum hans félögum. Skyldu kommúnistar sjá fram á, að ef S. H. tekst sú markaðsuppbygg- ing í Bandaríkjunum, Bretlandi og 6-veldatollafoandalaginu, sem að er stefnt, að fljótlega kunni að draga úr viðskiptunum við sósíalisku löndin? Bn það er hreinn misskilningur hjá hv. 3ja þm. Reykvíkinga, ef hann held- ur, að þessari uppbyggingu sé á einhvern hátt stefnt gegn við- skiptunum austur á bóginn. Við þurfum á öllum okkar mörkuð- um að halda, og ef við getum selt meira, er ekki annað en auka bátaflotann. Þá er ekki hugsaff um verffmætin Háttv. þingmaður segist flytja þessa tillögu til þess að fá úr því skorið, hvort í starfsemi Sölumið stöðvarinnar sé falið fé, sem bet- ur væri komið í hækkuðu kaup- gjaldi. Eins og ég hefi rakið lið fyrir lið liggur það ljóst fyrir að svo er ekki. Orsakanna til þess, að ekki er unnt að hækka kaup- ið, er ef til vill viða að leita, en m.a. í þvi, að kommúnistar ráða mikið til yfir verkalýðshreyfing- unni og hafa oft og einatt sóað miklum verðmætum fyrir ís- lenzku þjóðinni með skefjalaus- um verkföllum, sem mjög hafa haft á sér pólitískan blæ. Þeir hafa minna hugsað um það að auka verðmæti þjóðarframleiðsl- unnar, en á henni byggjast að sjálfsögðu lífskjörin. Vitnisburffur Jóhannesar Stefánssonar Ég ætla að leyfa mér að leiða sem vitni í þessu máli mann, er hv. 3. þm. Rv. ætti að taka mark á, það er flokksbróðir hans Jó- Sólborg og Sigríöur Jensdætur kona. Það er nú kona sem tal- andi er við. Og dugnaðurinn maður. Ég held henni falli nær aldrei verk úr hendi. Hún vinn- ur allan daginn á saumastofunni og mér er nær að halda að hún haldi áfram saumaskapnum þeg- ar hún er komin upp til sín á kvöldin. Það er mikil blessuð manneskja. — vig. hannes Stefánsson forstjóri Sam vinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, og frambjóðandi A1 þýðubandalagsins. Hann fór til Englands og Bandaríkjanna s.l. haust, til þess að skoða starfsemi S.H. þar. Hann skrifaði síðan langa grein í flokksblað þeirra hv. 3ja þm. Rv., Austurland. Far- ast honum m.a. þannig orð um starfsemina 1 Bretlandi: Með leyfi hæstvirts forseta: „Mun þessi verksmiðja vera hin fyrsta sinnar tegundar í Bret- landi. Ég veitti vinnuhraðanum athygli, enda kerfisbundin véla- vinna, þar sem enginn má sker- ast úr leik, svo heildarafköst haldizt". Um starfsemina í Bandaríkjun um farast honum þannig orð m. a., með leyfi hæstvirts forseta: „Skrifstofa Coldwater er í Cryslerbyggingunni á 20. hæð og vinna þar um 30 manns .... Var fyrirtækið stofnað fyrir 12 árum, og hefur uppbygging þess verið að mestu verk Jóns Gunnarsson- ar. Árið 1955 hófst framleiðsla á tilbúnum réttum í verksmiðju fyrirtækisins í Nanticoke. Hefur neyzla tilbúins matar aukizt hröð um skrefum, sem sést glöggt á því, að þessi verksmiðja íslend- inga seldi 1 milljón punda 1955, en í ár 14% milljón og næsta ár er áætlað, að salan verði 20 millj. punda. Heildarfisksala íslend- inga til Bandaríkjanna 1955 var 24,3 millj. punda, en 1959 44 millj. Þar af fer fiskurinn í vax andi mæli til vinnslu í eigin verksmiðju S.H., því tilbúnu rétt irnir, soðinn og steiktur fiskur, vinna stöðugt á, og hafði verk- smiðja S.H. 16,1% af öllum til- búnum fiskréttum sl. ár, en mun hafa í ár 19,3%. Hafa íslending- ar áð sumu leyti haft forystu í þessu efni. Bandaríkjamenn hafa 10 punda fiskneyzlu á hvern í- búa á ári, en þeim fjölgar um 4 milljónir árlega .... Kváðu framkvæmdastjórar Coldwater, að það fyrirtæki eyddi minna í auglýsingar en sambærileg fyrir- tæki. Baráttan um markaðinn væri hörð, og auglýsingar væru mjög dýrar, en án þess að leggja mikið í þær, yrði árangur lítill. Fiskur væri tiltölulega dýr til neytenda, og þó myndi islenzki fiskurinn seldur á nokkru hærra verði en sá kanadiski. „Lærdómsríkt aff sjá þessa verksmiffju Og enn heldur Jóhannes Stef- ánsson áfram, og er nú kominn þangað, sem verksmiðjan er. Með leyfi hæstvirts forseta: „Komum við á heimili Jóhann esar (þ.e. verksmiðjustjórans), og var mjög ánægjulegt að hitta þessa landa okkar, sem vinna af dugnaði að því að koma aðalút- flutningsvöru okkar á sem hag- kvæmastan hátt til neytenda. Framleiðir þessi verksmiðja nú, en hún er ein af 30 slíkum þar í landi, um Vs af tilbúnum ósteikt um fiski í landinu. 1959 afkast. aði verksmiðjan 4500 tonnum, en forráðamennirnir telja, að næsta ár hafi afköst þessi tvöfaldast, en það eru fullnaðarafköst þessarar verksmiðju. Verður þá að byggja nýja verksmiðju, ef á að halda mörkuðunum og það sennilega í öðru ríki Bandaríkjanna, þvi vinnuaflið er fullnýtt í Nanti- coke. Þarna vinna um 300 manns þar af 4 af hverjum 5 svertingj- ar .... Ég hefi hvergi séð jafn- mikinn vinnuhraða og í þessari verksmiðju. Algerlega var bann- að að reykja í vinnutíma, og sækja þurfti um leyfi til að fara frá. Var mjög lærdómsríkt, að sjá þessa fiskverksmiðju, stór- brotinn rekstur hennar, með- höndlun freðfiskjarins, gæði hans og galla. Sjá hvernig þess- um fiski er breytt eftir kröfum markaðarins á hverjum tíma. Kynnast því, að það eru íslend- ingar sjálfir, sem fullvinna sinn fisk frá fyrstu hendi til lokastigs ins í matvörubúðina, og raunveru lega á disk neytandans. Einnig var ánægjulegt að kynnast mik- ilvægu starfi þeirra manna, sem við höfum sem fulltrúa okkar i Bandaríkjunum. Gaf sú stutta kynning vissu um, að þeir ynnu af dugnaði og fylgdust vel með tímanum. „Gætt hófsemi í hvívetna“ Niðurlag greinar Jóhannesár Stefánssonar er á þessa leið: Með leyfi hv. forseta: „Æskileg kynnisför en ekki lúxusfíakk: Ferðalög sem þessi eru dýr, og komið hefur fram í blöðum og víðar að þetta hafi verið íburðar mikið „Lúxusflakk“. Vil ég ekki ræða í þessari frásögn um skoð- anir gagnrýnenda, en að lokum segja þetta: Ef við fslendingar ætlum okkur að standast sami- keppni við aðrar þjóðir á hinum ýmsu mörkuðum. erlendis, og selja á bezta verði 96% útflutn- ings okkar, sem sjávarútvegur- inn lætur í té, þá verða þeir, sem að framleiðslunni standa hér heima og ábyrgð bera á henni, að kunna nokkur skil á kröfum neytenda og ekki sízt að þekkja þau fyrirtæki, sem fslendingar hafa stofnsett og reka á eigin á- byrgð til að gera framleiðsluna verðmætari. Ég leyfi mér að fullyrða, að i þessu ferðalagi var ekki um neinn íburð að ræða á neinn hátt eða óþarfa eyðslu, enda gætt hóf- semi í hvívetna af fararstjóra og öllum ferðafélögunum". Starfsemi, sem færir bætt lifskjör. 6g er sannfærður um að ekki er hægt að hafa betra sölufyrir- Framnald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.