Morgunblaðið - 01.02.1961, Page 20

Morgunblaðið - 01.02.1961, Page 20
20 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 1. febr. 1961 Helzt var það ostur sem við hnupluðum. Það var mesta furða, hvað hann gat bætt upp pylsur og smábrauð. Einu sinni hafði ég í einni kjörbúðinni, laumað undan osti og Bob öðrum anum sínum, en þá komumst við í hann krappan og fengum að vita, hvað hræðsla var. Bob var í þann veginn að sleppa út, eftir að hafa borgað poka af kartöfl- um, þegar búðarmaðurinn spurði: — En hvað svo um ost- inn í vasanum? Bob setti upp undrunarsvip og ég verð að segja að þá lék hann vel. — Æ, afsak- ið þér, því var ég alveg búinn að gleyma. Eg náði ekki andan- um fyrr en við vorum sloppin út á götuna. Það var nú það eina, sem á skorti, að Barrymore væri handtekin fyrir búðahnupl! En þegar við urðum fyrir ein- hverju happi, fóru ekki allir peningarnir í mat. Viskíflaska kostaði fjóra dali, og oft var hún það fyrsta, sem keypt var. Það var líka öruggasta leiðin til gleymsku. Einu sinni var Bob eitthvað að gá í gamla skjala- möppu, og æpti þá upp, sigri hróis andi: — Viltu sjá, Muzzy! Hann rétti upp tvö stríðsskuldabréf á tuttugu og fimm dali hvort. Eg mundi eftir þessu: við höfðum ætlað að safna okkur tíu þúsund um í svona bréfum, og höfðum komizt þetta. Við vorum heldur en ekki fljót að komast í næsta banka og svo á næstu krá. Við höfðum ekki haft annað en bjór í heila viku, fjórar dósir á dag, tvær handa hvoru okkar, en ann ars ætluðum við okkur tólf á dag. Við spiluðum svo í happ- drættisvélinni og eyddum þann ig fimm dölum í smáu, og sner um heim með tíu dali í afgang. Það kom ekki annar dagur fyrr en á morgun. Við vorum kát — það var ein- hverskonar örvæntingarkæti. Bob fót út eitt kvöldið, eftir vindling- um, við höfðum verið að spara, en ég var alveg að drepast úr tóbaksleysi. Jafnvel meðan hann var í leiðangrinum, leitaði ég dyr- um og dyngjum að vindlings- stubb, og loks fann ég einn í einum vasa hans. Þegar hann kom aftur, var ég að lesa 1 blaði og þessi stubbur stóð út úr munninum á mér. Hann ætlaði varla að ná andanum fyrir hlá-tri. En stundum var það ekki eins gaman. Eitt kvöldið þegar fór að dimma, togaði ég í keðjuna á litlum lampa, sem ég átti og var leifar af Hollywood-dýðinni. Ekk ert ljós. Peran var biluð, hugsaði ég, og reyndi annan lámpa, en það fór á sömu leið. Síðan þann þriðja, með sama árangri. Ég varð hrædd. Allt siðan Robin var forðum daga að stríða mér með tígrisdýrinu sinu í myrkrinu, eða koma stökkvandi fram og látast | vera draugur, var ég hrædd við myrkrið. Ég hljóp um alla stof- una og reyndi að kveikja á hverjum lampa, en þeir voru all- ir dauðir. Allt í einu datt mér svarið í hug. Rafmagnsreikning- urinn okkar hafði ekki verið greiddur, mánuðum saman, og j lokunartilkynningin hlaut að hafa farið fram hjá okkur. Ég sat svo í dimmunni og beið eftir Bob. Ekkert, sem nokkurn- tíma hafði komið fyrir mig, ekki einu sinni þegar ég var lokuð úti úr herberginu mínu í Hollywood, | hafði komið jafnilla við mig og þetta. Ég gat ekki annað en hugs- að til mömmu. Ég sagði við sjálfa mig, að ef ’mamma væri lifandi, myndi hún aldrei láta fara svona með mig. Þá þyrfti ég ekki annað en hringja til hennar og segja: — Mamma, það er búið að taka af mér rafmagnið, og jafnskjótt væri sendill kominn' með ávisun til að bæta úr því, og rafmagns- yfirvöldin hefðu þar að auki fengið yfir sig dembu, sem þau hefðu ekki gleymt fyrst um sinn. Hún mundi aldrei láta fara svona með mig. Ég grét. Þegar Bob kom heim, sasði ég: — Viltu ekki fara út og kaupa kerti. — Fyrir hvað? sagði hann. Hann átti eftir þrjátíu sent í vas- anum. Við sátum svo þegjandi i myrkrinu, og þegar háttatími var kominn, þreifuðum við okkur áfram eins og blind börn, inn í svefnherbergið, kysstumst og fór um að sofa. Ég hringdi til einnar fínu vin- konunnar morguninn eftir. — Það stendur víst ekki svo á fyrir •þér, elskan, að þú eigir nokkur kerti, sem þú notar ekki? Ég ætla að halda ljósakrónuveizlu í kvöld.... Hún sendi sendil með kertin. í nokkur kvöld og allt þangað til ávisunin kom frá Le- onard og við greiddum reikning- inn með fjörutíu og tveimur döl. um, sátum við í kertaljósi. XXXII. Ég var í furðu góðu standi, og Bob líka, þegar okkur barst til- boð, eins og af himnum ofan. Day Tuttle, leikhússtjóri í Wilming- ton, Delaware, ætlaði að fara að setja upp „Rauðu mylluna", en það var leikrit byggt á ævisögu málarans Toulouse-Lautrec. Hon. um hafði allt í einu dottið nafnið mitt í hug. Gæti ég hugsað mér aðalhlutverkið þarna, Marie Charet, ástkonu listamannsins? Ég undirritaði samninginn taf- arlaust. Enga hugmynd gat ég haft um, að það gæti orðið til þess, að hr. Farrell kæmi aftur fram á sjónarsviðið — til þess að koma okkur Bob út úr íbúðinni okkar. Ég byrjaði að þræla^ í þessu, lærði hlutverkið án sér- legra erfiðismuna, og hresstist í huga. Leikarinn, sem átti að leika hinn bagaða listamann, var Karl Shanzer, feiminn unglingur á tvítugsaldri, sem var hér um bil fimm fet á hæð — alveg eins og sá, sem hann átti að leika, hafði verið. Hann virtist hræddur við mig, og það veitti mér aukið sjálfstraust. Vikuna, sem við æfðum saman, reyndi ég að hressa hann við, en það getur að- eins kona gert. Ég var með hon- um á kvöldin og fór á veitinga- krár. með honum. Ég var hrifin af leik hans og þeirri rækt, sem hann lagði við hlutverkið. Hér fann maður loksins ungan mann, sem lifði og hrærðist í leikstarf- seminni. Blaðið Variety sagði leik hans „eftirtektarverðan". Til finningar mínar gagnvart Karli voru eins og verndara gagnvart skjólstæðingi — ég var hreykin af honum. Eftir að leiknum lauk, var hann húsnæðislaus og á laus- um kili. Ég sagði við hann: — Hversvegna kemurðu ekki bara og verður hjá okkur? Þú getur sofið á legubekknum, þangað til þú kemst einhversstaðar inn. Og það gerði hann í heila viku. Bog féll það þungt, að ég skyldi hafa ráðið mig svona, án þess að hann væri með, og var í döpru skapi. Fáum dögum eftir að Karl var farinn, fann hann það út, að heimilishelgin hefði verið rofin. Við þutum bæði upp. — Jæja, farðu þá bara, æpti ég að hon- um, eitt kvöld.ið. — Enginn biður big að vera hérna. Ef hann ætl- aði, eftír allt, sem við vorum bú- in að líða, að fara að leika hinn ógæfusama eiginmann í sambandi við feiminn, tvítugan ungling. . . . — Þá það, sagði Bob, og gekk til dyra með miklum virðuleik. Hann skyldi þá sofa á bekk i skemmtigarðinum, næstu viku. ÉCT nýti mér að fara í símann og bjóða nokkrum kunningjum í veizlu. — Nitu Naldi, Karli hin. um unga og fleirum. En svo kom iíka óböðinn gestur: sjálfur Farr. ell. — Np' hér átt þú eVkert e.rindi, sagði ég. Hann vildi ekki fara. Lögreglan fvlgdi honum svo á næstu stöð. Ég neitaði að leggja fram kæru; hafði fengið nóg af slíku. Eftir veizluna, þegar allir voru farnir, var ég ein heima, þegar sírennurnar fóru allt í einu að væla og ég sá kastljós leika upp og niður um húsvegginn. Ég leit út. Þarna niðri á götunni var Walter Winchell í útvarpsbíl irá lögreglunni. — Hæ, Walter, kallaði ég til hans út um gluggann. — Hvaða ferðalag er á þér? — Við fengum bendingu um, að maðurinn þinn ætlaði að skjóta þig, sagði hann. — Ég kalla þið segja fréttirnar. Komdu þá upp og bíddu hans. Ég var búin að drekka talsvert. Walter kom upp ásamt tveim lög reglumönnum, og við skröfuðum saman nokkrar minútur. Bob sýndi sig alls ekki, og allt var með ró og spekt. Walter fór að leiðast, og svo fóru þeir. En það var rétt eins og þeir, sem komu og fóru hefðu verið stilltir hvor eftir öðrum. Bob kom inn, rétt þegar hinir voru farnir út. Hann sagðist vera að sækja frakkann sinn. Það væri kalt í skemmtigarðinum. — Æ, vertu hérna kyrr, elskan, sagði ég. — Þetta hefur allt verið svo dásamlega dramatiskt hérna. Ég krækti mínum armi í hans. — Þú ætlaðir ekki að skjóta mig, var það? Winchell fékk ein- hverja bendingu um það. Bob setti upp undrunarsvip. — Auðvitað ekki! Það hafði mér aldrei dottið í hug. Hann laut niður og kyssti mig. — Þú veizt, Muzzy, að við erum bæði vit- laus. Ég veit ekki, hversvegna ég læt þig fara svona með mig, og kem jafnvel aftur eftir meiru af sama tagi — en þú ert vitlaus, við erum bæði vitlaus og ég elska þig. — Æ, elskan mín. Og ég, sem elska þig svo ljka. Eg mundi deyja ef eitthvað kæmi fyrir þig. Það var byrjað að birta á glugganum, þegar við sofnuðum, hvort í annars örmum. Kannske hefur „Rauða Myll- an“ verið heppni fyrir okkur. Við Bob réðum okkur bráðlega bæði í sumarleikhús, sem lék „Himinsængina“. Við tókum okk ur saman og sluppum vel frá því. Næst komu „Sérherbergin“. Og í Columbus, Ohio, um miðja nótt, vaknaði Bob við kvalakast. Þetta var lifrarsjúkdómurinn aft ur — í þriðja sinn! Eg var al- veg frá mér. Hafði ekki Ross varað mig við því, að_þriðja eða fjórða kastið gæti orðið ban- vænt? Eg þaut með Bob í sjúkra húsið og í fjóra daga gat hann ekki leikið. Og svo kom hann á fætur, fölur og niðurdregínn. — Já, þetta var vont; það jafnast engar kvalir við þetta, sagði hann. — Framvegis læt ég mér nægja bjór — ekkert sterkara. Þú skalt sjá til, Muzzy. Fáum dögum síðar var hann farinn að dreypa á viskíi. — Ertu alveg frá þér? sagði ég. — Ætlarðu að ganga af sjálfum þér dauðum? En hann vildi ekki hlusta á mig. — Svona ljtið getur ekki gert mér neitt. Eg er af- skaplega hraustbyggður. Held- urðu að Barrymorarnir séu þeir einustu, sem eru seigir? Og svo sótti bráðlega allt í sama horfið. Nú ferðuðumst við Bob saman eins og áður, rétt eins og ekkert hefði gerzt síðan við vorum á slíku ferðalagi síðast. Við höfð- umst að mestu við í litlum bún- ingsherbergjum, og reyndum að láta ógert að drekka þangað til eftir sýningu. Þó bar það oft við, að við vorum ágæt í fyrsta þætti, dálítið glensgjörn í öðrum og loks vel hátt uppi í þriðja. Fólki fannst þetta dularfullt, því að enginn hafði séð okkur við barinn í hléinu. Ekki vissi það, að hóstadropaglasið í búnings- herberginu, hafði raunverulega inni að halda viskí af sterkasta tagi. Eg man eftir einni viku í Lichfield, Connecticut. Við héld um okkur sæmilega allsgéðum og allt gekk prýðilega. Á laug- ardagskvöld héídum við gildi. Þarna í ríkinu eru engar sýning ar á sunnudögum, svo að við höfðum góðan tjma til að jafna okkur. Þarna var ekkert áfengi selt eftir miðnætti, sunnudags- nótt, enda þótt menn mættu drekka það, sem á borðið var þegar komið, eftir þann tíma. Við þutum úr leiklhúsinu í gistihúsið, og náðum þangað að- eins fyrir miðnætti, og pöntuð- um okkur sterka sjússa í hvelli. Þeir entust ökkur avo fram á morgunstundina. Við höfðum líka gleðskap dag- inn eftir á leiðinni á næsta við komustað. Eg man óljóst eftir ökuferðinni, en hitt man ég, að ég reifst grimmilega við Bob í gistihúsinu, um að komast í leik húsið í tæka tíð. Það sem .siðar gerðist, sagði umboðsmaðurinn okkar, Jules Ziegler, okkur seinna. Klukkan var orðin átta, og við vorum enn ekki kornin í leikhúsið. Leikstjórinn reif hár sitt af gremju. Kortér yfir átta, enginn Diana, engin Wilcox. Tjaldið átti að fara upp hálfníu, og salurinn var þéttskipaður. Tuttugu mfnútur yfir átta kom- um við. — Þú komst inn, Diana, með tvo vinstriskó á fótunum, sagði Jules, — og Bob kom slagandi á eftir þér. Eg fór með ykkur bæði í bún- ingsherbergin. Eg gat ekki hugs að mér nema eitt úrræði. Eg tók heljarmikinn slopp, sem þarna hékk, rennvætti hann í vatni, ýtti ykkur svo saman, sivo að þið sneruð hvort að öðru og föðm uðuð hvort annað, fleygði svo rennblautum sloppnum yfir höf uðin á ykkur og batt hann um ykkur. Þú öskraðir eins og verið væri að drepa þig, og Bob spark aði og bölvaði og svo lét ég leik sviðsþjónana halda ykkur og jós síðan yfir ykkur hverri vatns- fötunni eftir aðra og öskraði sjálf ur, svo að ekki heyrðist til ykk ar. — Þið sleppið ekki næstu tíu SUlítvarpiö Miðvikudagur 1. febrúar 8.00 Morgunútvarp. — Bæn (Séra Jón Auðuns dómprófastur). — . 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tón leikar. — 9.10 Veðurfregnir. -• 9.20 Tónleikar. — 12.00 Hádegisútvarp. v (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50 ,,Við vinnuna": Tónleikar. 15.00 Miðdegisútvarp: Fréttir. — 15.05 Tónleikar. — 16.00 Fréttir og til- kynningar — 16.05 Tónleikar. 18.00 Utvarpssaga barnanna: ,,Atta börn og amma þeirra í skógin- um“ eftir Önnu Cath.-Westly IX. (Stefán Sigurðsson kenn- ari les). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.00 Tilkynningar. 1930 Fréttir. 20.00 Myndir frá Afríku; II. (Benedikt Gröndal alþingismaður tekur sam an dagskrána). 20.35 Tónleikar: Tvö verk eftir How- ard Hanson, „Söngur lýðræðis** og „Saknaðarljóð í minningu um Serege Koussevitsky (Kór East- man tónlistarskólans og East- man-Rochester sinfóníuhljómsv. flytja; höfundurinn stjórnar). 21.00 „Tökum saman höndum“, dag- skrá á vegum Sambands bind- indisfélaga í skólum. a) Ræða (Ragnar Tómasson for- maður sambandsins). b) Sitt af hverju úr félagslífi nemenda í Verzlunarskóla Is- lands og sögu skólans. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmur (3). 22.20 Upplestur: „Endurfæðing", smá- saga eftir Jakob Thorarensen — (Margrét Jónsdóttir). 22.40 Harmonikuþáttur (Henry J. Ey- land og Högni Jónsson). 23.10 Dagskrárlok. Fimmtudagur 2. febrúar 8.00 Morgunútvarp. — Bæn (Séra Jón Auðuns dómprófastur). — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tón leikar. — 9.10 Veðurfregnir, — 9.20 Tónleikar. — 12.00 Hádegisútvarp. (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50 „Á frívaktinni": SjómannaþáttuF 1 umsjá Kristínar Önnu Þórarins dóttur. 14.40 „Við sem heima sitjum“. Svava Jakobsdóttir hefur umsjón með höndum). 15.00 Miðdegisútvarp: Fréttir. — 15.05 Tónleikar. — 16.00 Fréttir og til- kynningar — 16.05 Tónleikar. 18.00 Fyrir yngstu hlutendurna. Gyða Ragnarsdóttir og Erna Aradóttir sjá um tímann. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.00 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: Boston Promenade hljómsveitin leikur lagasy^pu úr bandarískum söngleikjum. Stjórnandi: Arthur Fiedler. 20.30 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Lárentíusar saga Kálfssonar; XI. (Andrés Björnsson). b) Lög eftir Pál ísólfsson. c) Erindi: „Arghyrnu lát árna", — vísa Skalla-Gríms (Arnór Sigurjónsson). d) Vísnaþáttur (Sigurður Jóns- son frá Haukagili). 21.45 íslenzkt mál. (Dr. Jakob Bene- diktsson.) 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmur (4). 22.20 Ur ýmsum áttum (Ævar R. Kvar an leikari). 22.40 Kammertónleikar: Strengjakvart ett nr. 2 í C-dúr op. 36 eftir Benjamin Britten (Zorian-kvart- ettinn leikur). 23.10 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.