Morgunblaðið - 01.02.1961, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 1. febr. 1961
Þrír kunnustu bjálfararnir
skipuleggja þjálfunarmót
Vonir um varanlegan árangur
ÞJÁLFARAMÁL KSÍ ogl
hinn mikli vandi félaganna I
í þeim efnum hefur verið
allmjög á dagskrá að undan-
förnu. Blaðið skýrði frá um-
ræðum um þjálfaramál á
þingi KSÍ og spunnust um-
ræður þar um.
En nú hefur KSÍ látiS til
skarar skríða í þessum efn-
um. Hefur það á grundvelli
samþykktar ársþingsins skip-
að þriggja manna nefnd sem
á að fjalla um og skipuleggja
þjálfunarmál. — Grundvöllur
Holland hefnr
vinning yfir
Englnnd
Við höfum nú fengið nánari
vitneskju um landsleika-
skipti Hollendinga og Eng-
lendinga fáhugamannalið).
Var hér í gær skýrt frá því
að þessi lönd hefðu átt nokk
ur viðskipti saraan á sviði á-
hugaknattspyrnu.
Frá því 1948 hafa áhuga-
mannalið landanna leikið 4
leiki — tvo í hvoru landi.
Leikirnir hafa farið þannig:
Engl. Holland
f Englandi .. 2 5
I Englandi .. Z Z
t Hollandi ..0 1
I HoIIandi .. 3 1
Hvenær leikirnir fóru fram
vitum við ekki, utan það að L
síðastnefndi leikurinn fór /
fram 1959. 7
starfs nefndarinnar verður
án efa svipaður og er á
Norðurlöndum.
Hina nýju nefnd skipa Óli
B. Jónsson, Karl Guðmunds-
son og Reynir Karlsson. Eru
þetta allt valinkunnir menn
og má hiklaust ætla að um
mikinn og jákvæðan árang-
ur verði að ræða hjá nefnd-
inni.
* NEFNDARÁLITIÐ
Á ársþingi KSÍ voru þessi
mál ekki rædd af mikilli alvöru
almennt. En samþykkt var álit
það er stjómskipuð nefnd hafði
skilað stjórn KSÍ. Það álit er
þannig:
1. Unnið verði að því að stofna
til samtaka meðal allra þjálf-
ara á landinu, er hefði það
meginmarkmið að samræma
allar þjálfunaraðferðir, svo og
að vinna að hagsmunamálum
þjálfara.
2. Kosin verði á ári hverju sér-
stök þjálfaranefnd, en höfuð-
verkefni hennar verði:
a. að standa fyrir þjálfaranám
skeiðum, sem haldin verði
á hverju ári með sérstökum
stighækkandi prófum á svip
uðum grundvelli og t. d.
lijá Dönum.
b. vinni að því að útvega sam
bandsaðilum þjálfara og
hlutist til um, að allir, sem
knattspyrnu iðka, geti feng-
ið góða og rétta tilsögn í
íþróttinni.
c. vinni að því að koma þjálf-
urum á námskeið ytra eftir
efnum og ástæðum.
d. vinni að því að fá reynda
erlenda þjálfara til þess að
standa fyrir þjálfaranám-
skeiðum hér heima.
e. vinni að því að koma á
knattspyrnukennslu í skól-
um.
3. Stjórn sambandsins vinni að
því við rétta opinbera aðila,
að a. m. k. einn íþróttakenn-
ari (landsþjálfari), sem tekur
laun af ríkisfé, verði látinn
starfa undir stjórn Knatt-
spyrnusambands Islands.
Eins og menn munu sjá er
álit þetta á breiðum grundvelli
og skipar hvergi þröngt fyrir
og er aðeins málamyndalausn.
En hið ágæta val KSf-stjórnar-
innar á nefndarmönnum ætti að
tryggja að málin komast í þann
farveg sem æskilegastur er —
að grundvöllurinn verði svipað-
ur 'rér og á Norðurlöndunum og
að minnsta kosti Z nefndar-
anna hafa nú kynnzt.
Má því horfa bjartsýnum aug
um til framtíðarinnar þegar
staðið er loks á tímamótum til
hins betra í þessu málum.
Skíðamót
INNANFÉLAGSMÓT Skíða-
deildar Ármanns var haldið í
Jósefsdal um helgina. Keppt var
í svigi i ölium flokkum karla og
kvenna. Þátttakendur í mótinu
voru um 50.
Úrslit urðu þessi:
1. Stefán Kristjánsson (svigim.
Ármanns 1961) 48,9 sek.
2. Ingólfur Árnason 50,9 sek.
3. Þorsteinn Þorvaldss. 6'7,9 sek.
Unglingaflokk fl5—19 ára):
1. Björn Bjarnason 53,6 sek.
2. Sigurður Guðmundss. 56,9 sek
3. Georg Gunnarsson 59,1 sek.
4. Guttormur Jónsson 66,7 sek.
' Davíð Guðmundsson KR keppti
ÍSLANDSMÓTH) í handknatt
Ieik er umfangsmesta íþrótta-
mót hvers árs. Áhorfendafjöld
inn skiptir þúsundum yfir allt
mótið, þar er líka líf í tusk-
unum. Hér sést að stúlkurnar
geta spriklað eigi síður en
karlmenn.
Ljósm. Sv. Þormóðsson
í Jósefsdal
sem gestur og fékk 46,6 sek.
Drengjaflokk. (14 ára og yngri):
1. Georg Guðjónsson 39,3 sek.
2. Gísli Erlendsson 50,4 sek.
3. örn Ingvarsson 50,8 sek.
Kvennaflokkur:
1. Sesselja Guðmundsdóttir —
(svigm. Árm. 1961) 40,5 sek.
2. Halldóra Árnadóttir 45,2 sek.
3. Kristjana Jónsdóttir 48,4 sek.
Telpnaflokkur:
1. Guðrún Björnsdóttir 38,5 sek.
Miki'U mannfjöldi var í Jós-
efsdal um helgina, um 70 manns,
og var yngri kynslóðin þar í
meirihluta og er gott til þess að
vita að vaxandi áhugi er meðal
2.25 m
i hástökki
„SILFURMAÐURINN“ frá
Róm í hástökki, Rússinn
Brummel hefur unnið það ó-
trúlega afrek að stökkva 2,25
m í hástökki, en það er 3 cm
hærra en staðfest heimsmet
„undramannsins“ Thomas frá
Bandaríkjunum var.
Brummel er ungur maður,
sem átt hefur óvenjulega
hraða og örugga framabraut
í hástökki. í sumar sem Leið
átti hann sigri að fagna yfir
Thomas ásamt landa sínum
Shavlakadse.
Skjaldarglúna
ármanns í kvöfd
í KVÖLD kl. 8.30 fer fram að
Hálogalandi Skjaldarglíma Ár-
manns. Meðal keppenda eru
flestir beztu glímumenn lands-
ins, 8 frá Ármanni, 2 frá UMFR
og 1 frá UMF Vöku. Meðal þeirra
eru Trausti Ólafsson, Kristmund
ur Guðmundsson og Hilmar
Bjarnason. Þeir eru einna líkleg-
astir til að vinna skjöldinn — en
eitt er víst að keppnin verður
skemmtileg.
Keppt er um nýjan skjöld sem
Eggert Kristjánsson hefur gefið.
Armann býður drengjum und-
ir 14 ára aldri til mótsins ókeyp-
is. Eru þeir hvattir til að nota
sér boðiö og kynnast ísl. glímu.
hennar á skíðaiðkun. Veður yar
ágætt þar efra og snjókoma
seinnihluta dags. Stefán Krist-
jánsson lagði allar brautir á mót
inu.
í ráði er að halda Stórsvigmót
Ármanns x Jósefsdal um næstu
helgi og verða allir beztu skíða-
menn Reykjavíkur meðal kepp-
enda.
EKKERT ELðí'liS ER FOLEKOUIB /ílll KÆLISKÁPS
★ Kelvinator kæliskápurinn er árangur áratuga þróunar bæði tæknilega og að ytra útliti
K E L V I N A T 0 R
Fullkomin 5 ára ábyrgð er tekin á mótorum i Kel-
vinator kællskápnum. — Ársábyrgð er að öðru leyti.
Höfum eigið viðgerðarverkstæði að Laugavegi 170.
Sími 17295, sem annast allar viðgerðir og vara-
þlutasölu.
Höfiim nú fyrirliggjandi eftirtaldar stæðir: 6,—7,7, og 10,1 rúmfet.
Kynnið yður hina hagkvæmu afborgunarskilmála.
I
mertei
bi
bœliábá,
’pámá
— Györ/ð s v o ve/
að / í t a in n
M M Austurstræt
JrtGKlCL sími ii6«7-