Morgunblaðið - 03.02.1961, Blaðsíða 1
24 slður með Barnalesbok
48. árgangur
27. tbl. — Föstudagur 3. febrúar 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Santa María 1 höfn:
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm—mi»
Bros - og tár
d vöngum farbeganna, er JbeiV funau
loks fast land undir fótum
Recife, Brasilíu, 2. febr.
— (Reuter/NTB)
SVO VIRÐIST sem Santa
Maria-ævintýrið, sem verið
hefur aðalefni blaða og
fréttastofnana um allan heim
undanfarna 11 daga, sé nú
hrátt á enda — og uppreisn-
arforinginn Henrique Galvao
og menn hans, sem tóku
lystiskipið herskildi og hafa
síðan siglt því í krákustígum
um Atlantshafið — og nú
40 stiga frost
í Bandaríkjunum
j New York, 2. febrúar
(NTB-AFP).
Á STÓRUM svæðum i norðaust-
ur- ogr miðhluta Bandaríkjanna
var dagurinn í dag eínhver hinn
kaldasti, sem um getur í sögu
landsins. Á nokkrum stöðum
mældist frost allt upp í 40 gráð-
ur. I New York varð frostið mest
19 gráður.
loks til hafnar hér — eigi
tæpast annars úrkosti en
þiggja boð Brasilíustjórnar
um að hljóta hæli þar í landi
sem pólitískir flóttamenn. —
Skipið liggur nú á innri höfn
inni í Recife, og verið er að
flytja farþegana, 586 að tölu,
og flesta af hinni upphaflegu
skipshöfn til lands í dráttar-
bátum. — Eigfendur skipsins
hafa fengið úrskurð brasil-
ísks undirréttar um, að það
H kyrrsett og afhent
. Þessum úrskurði má
þó áfrýja innan níu daga —
og þann tíma er ekki hægt
að leggja löghald á skipið.
Galvao hefur ekki fengið
heimild til að taka vistir og
eldsneyti í Recife — og skip-
ið hefur olíuforða til aðeins
fimm daga siglingar, og
drykkjarvatn og matvæli um
borð geta varla enzt nema
fjóra daga enn. — Loks ligg-
Frh. á bls. 23
X>e CauIIe alsalar
sér alræ ðisvaldi
París, 2. febrúar.
(NTB-Reuter)
CHARLES de Gaulle forseti
hefir ákveðið að biðja ekki
um framlengingu þess alræð-
isvalds á nokkrum sviðum,
sem þingið veitti honum fyrir
einu ári í sambandi við janú-
ar-uppreisnina í Alsír, en
þingheimildin rennur út n.k.
sunnudag.
Forsetinn telur aðstöðu sína
orðna það styrka, ekki sízt
eftir sigur þann, sem hann
vann í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni í Alsír og Frakklandi í
byrjun janúar, að þessi vald-
heimild sé nú ekki lengur
nauðsynleg.
Læknarnir þrír, sem veittu blaðinu upplýsingar um hálsbólguna. — Talíð frá vinstri: dr. Jón
Sigurðsson, borgarlæknir, dr. Óskar Þórðarson, yfirlæknir Bæjarsjúkrahússins, og Arinbjörn
Kolbeinsson, sérfræðingur í sýklarannsóknum, sem fengizt hefur við ræktun og rannsókrir á
sýklunum.
Pensillin heldur velli
í baráttunni viö skæða
hálsbdlgusýkla
Rætt v/ð Jbrjá sérfræðinga um
hálsbó/gufaraldur i bænum
STARFSMENN Morgunblaðsins hafa ekki farið varhluta af háls-
bólgunni, sem gengið hefur hér í bæ undanfarnar vikur og víðar
um land. Við fórum að velta því fyrir okkur, hvort þessi háls-
bólgufaraldur væri ekki skæðari en menn eiga að venjast af þess-
um tiltölulega meinlausa sjúkdómi og við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að svo er.
Ástæður til þess að sjúkdóm-1 áður, eru meðal annars þessar:
urinn er varhugaverðari nú en I 1) Sýklarnir sem háls-
Macmillan
og Kennedy
LONDON, 2. febr. (Reuter) —
Tilkynnt var opinberlega hér í
dag, að Macmillan forsætisróð-
Iherra fari til Wasihington
snemma í apríl nk. til viðræðna
við Kennediy Bandaríkjaforseta.
Kemur Macmillan væntanlega
til Waslhington 3.—4. apríl.
Home lávarður, utanríkisráð-
herra Bretlands, mun hitta
Macmillan í Washington — en
forsætisráaherrann kemur við í
Vestur-Indíum á leið sinni vest-
ur um haf.
Nýr kjarnorku-
kafbátur
Newport, Virginia, 2. febrúar
(NTB-AFP).
HER VAR hleypt af stokkunum
í dag kjarnorkukafbátnum „Sam
Houston". Er það 23. kjarnorku-
Ikafbátur, Bandaríkjanna, og sá
sjöundi af þeim, sem getur skot-
ið eldflaugum af Polaris-gerð.
Sjóslys í Grindavík I gær
IMaður drukknaði er
trilla með 3 fórst
í HINU fegursta veðri, logni
og glampandi sólskini, urðu
allmargir Grindvíkingar í
gær laust eftir kl. 3 sjónar-
vottar að hörmulega sjóslysi
í hinni þröngu og hættulegu
innsiglingu inn í höfnina þar.
Ólag reið á trillubát, sem
var að koma úr róðri og
færði hann í kaf. — Einn
þriggja manna, sem á bátn-
um voru, fórst með honum.
Var það þrítugur maður,
Ingibergur Karlsson frá
Karlsskála í Grindavík. Öðr-
um manni var bjargað all-
löngu seinna og var hann
talinn í nokkurri hættu í
gærkvöldi. Þriðja manninum
á bátnum var bjargað
skömmu eftir að sjóslysið
varð.
★ Brim við innsiglánguna
Grindavíkurbátar höfðu farið
í róður í hinu ákjósanlegasta
veðri og sjólag hafði verið að
sama skapi.
Um nónbil í gær fóru bátarni!r
að koma að. Var nú öðru vísi
umhorfs við hina svörtu strönd,
því um hádegisbilið haíði byrj-
að að brima og komið var for-
áttubrim er bátarnir komu að.
Nokkru áður en báturinn
kom að sjálfri innsiglingunni,
er liggur í mjóu sundi, hafði
vélbáturinn Ólafur sætt lagi
og komizt heilu og höldnu inn
um sundið. Höfðu þeir á bátn-
um síðan sætt lagi og voru
komnir inn í sjálfa rennuna,
er ólag kom og skipti engum
togum, að það reið yfir bát-
inn, sem hvarf mönnum sjón-
um sem1 í landi voru og fylgst
höfðu með honum.
Skipsmenn á vélbátnum
Ólafi sneru þegar út til hjálp
ar hinum nauðstöddu mönn-
um og þegar þeir komu á stað-
inn, fundu þeir einn maiui-
anna þriggja. Hélt hann sér
Framhald á bls. 23.
bólgunni valda eru óvenju-
öflugir og eru ónæmir fyrir
flestum fúkalyfjum nema
penisillíni.
2) Óvenjumikið hefur bor
ið á slæmum eftirköstum og
fylgikvillum, eins og gigtsótt
og nýrnabólgum.
3) Sjaldgæft er að svo
skæður hálsbólgufaraldur
sem þessi gjósi upp af völd-
um þeirra sýkla, sem hlut
eiga að máli, en þeir heita
streptokokkus hæmolyticus.
Hingað til hafa lyf af s.o-
nefndum tetracyclin-sambönd-
um ráðið niðurlögum þessara
sýkla „og hafa þau áreiðanlega
valdið mörgum vonbrigðum þeg
ar þau verkuðu ekki núna“, eins
og Arinbjörn Kolbeinsson, lækn
ir, komst að orði í gær.
Þegar Morgunblaðið frétti um
hálsbólgu þessa, fékk það leyfi
heilbrigðisyfirvaldanna til að
ræða við þrjá lækna um feril
hennar og áhrif. þá dr. Jón Sig-
urðsson, borgarlækni, dr. Óskar
Þórðarson, yfirlækni Bæjarspít-
alans, og eins og fyrr getur
Arinbjörn Kolbeinsson, sérfræð-
ing í sýklarannsóknum. Hann
hefur haft yfirumsjón með rækt
un þessara hálsbólgusýkla í
Rannsóknarstofu Háskólans:
„Þessi faraldur hefði orðið
mjög skæður, ef penisillín hefði
ekki verið fyrir hendi", sagði
sýklafræðingurinn á fundinum
í gær. Og hann bætti við:
„Sennilegt er, að sýklamir
sem valda hálsbólgunni nú séu
aldir hérna heima, vegna þess
að þeir hafa meiri mótstöðu
gegn fúkalyfjunum en „frænd-
ur“ þeirra í útlöndum“.
Framhald af þessari frétt er
á blaðsiðu 3.