Morgunblaðið - 03.02.1961, Page 6

Morgunblaðið - 03.02.1961, Page 6
6 MORKVNQLAÐIB Föstudagur 3. febr. 1961 f GÆR voru liðin 50 ár síðan Kristilegt félag ungra manna og kvenna (KFUM og K) í Hafnar- firði var stofnað. Verður þessara merku tímamóta minnst í húsi félagsins við Hverfisgötu með há tíðasamkomu á sunnudag kl. 1,30 fyrir börn og 8,30 fyrir fullorðna. Er öllum heimill aðgangur. Stofn endur félagsins voru hjónin Val- gerður og séra Þorsteinn Briem, sem var aðstoðarprestur séra Jens Pálssonar prófasts í Görð- um. Stofnuðu þau deildirnar með fermingarbörnum í Garða- sókn og var fyrsti samkomustað- urinn hjá Jóni heitnum Lauga að Brekkugötu 7. Tilgangurinn með stofnun K. F.U.M. og K. í Hafnarfirði var að sjálfsögðu kristilegs eðlis og byggt á samþykkt, sem gerð var á aþjóðafundi kristilegra félaga i ungra manna í París árið 1855, en þar segir meðal annars: „Kristileg félög ungra manna leitast við að safna saman ung- um mönnum, sem viðurkenna Jesúm Krist, Guð sinn og Frels- ara, samkvæmt heilagri ritningu, og vilja vera lærisveinar hans í trú og líferni, og starfa í sam- einingu að útbreiðslu ríkis hans meðal ungra manna". Starfar félagið á grundvelli hinnar ís- lenzku evangeliks-lútersku kirkju. Þá segir og um tilgang félags- ins: „Félagið leitast við að vekja og efla trúarlegt og siðferðilegt líf ungra manna og hlynna að andlegri og líkamlegri menningu og velferð þeirra. Þessu tak- marki reynir félagið að ná með fundahöldum fyrir unga menn og drengi, þar sem Guðs orð og 50 ára afmœli KFUM og K. í Hafnarfirði og búinn að halda ræður á sam komum. Og nú á seinni árum hafa annast ræðuflutning m. a. nokkrir menn úr KFUM í Ross-hringurinn vill (:aupa keppinautana upp KFUM og K húsið í Hafnarfirði ÞAÐ má nú segja að risarnir eru farnir að takast á og ætla að éta hvorn annan. Fréttir berast um það utan frá Englandi, að Ross togara- hringurinn hafi gert kaup- tilboð í Associated togara- hringinn. Sagt er að kaup- tilboðið sé 8,7 milljón sterl- ingspund eða sem nemur 922 milljón íslenzkar krónur. Ef úr þessu yrði, myndi Ross togarahringurinn í Bretlandi verða langsamlega stærsti og voldugasti togarahringurinn í Bretlandi. Associated hefur fram að þessu verið sterk- astur keppinautanna. Nú sem stendur ræður Ross-hringur- inu yfir 64 togurum en As- sociated yfir 63 togurum. lýsingar um hvort því verði tek- ið. Blaðið segir, að rekstur Ross hringsins hafi gengið mjög vel upp á síðkastið. Getur það þess, að hagnaðurinn af hringnum á síðasta starfsári hafi verið 600 þúsund sterlingspund eða um 63,6 milljónir króna. Var það um fimmtungi hærri ágóði en áætlaður hafði verið í rekst- ursáætlun. Hins vegar virðist reksturinn ekkj hafa gengið eins vel hjá Associated Fisheries. Að minnsta kosíi hafa hlutabréfin í félaginu lækkað nokkuð að undanförnu. Svo virðist sem Ross hringur- inn sé reiðubúinn að kaupa öll hlutabréf í Associated Fisheri- es, en líklega óskar það eftir að láta hlutabréf í Ross-hringn- um upp í hluta af kaupverðinu, og yrði Associated-hringurinn þá leystur upp og innlimaður í Ross-veldið. bæn er haft um hönd og trúar. legir og fræðandi fyririestrar eru fluttir, og með hvers konar starfsemi annarri, er má verða til að efla og þroska kristinn æskulýð“. Séra Þorsteins og konu hans naut ekki nema skamms tíma við í starfi félagsins, því að hann vígðist að Hrafnagili í Eyjafirði vorið 1911. Tók þá við foryst- unni stofnandi KFUM og K á fs- landi, séra Friðrik Friðriksson, sem búsettur var í Reykjavík. Á félagið honum mikið og gott starf upp að ynna, sem seint verður fullþakkað. Fyrstu árin gekk hann til dæmis tvisvar í viku suður í Fjörð og hélt fundi með æskufólki. — Það eru vafa- laust margir, sem minnast þeirra daga þegar séra Friðrik las á fundum upp úr þá óprentaðri skáldsögu sinni, Sölva. Fleiri góðir menn gerðu sér einnig ferð á fundi hafnfirzks æskufólks á þessum árum, og má þar til nefna séra Bjama Jónsson vígslu biskup, sem var jafnan boðinn Reykjavík og unnið þar gott starf. Um starfsemi félagsins á fyrstu árunum er það annars að segja, að árið 1918 keypti það húsið Bristol við Suðurgötu og voru haldnir fundir þar til ársins 1928 að húsið við Hverfisgötu var byggt. Var mikið átak fyrir fátsékt félag að koma því upp á sínum tíma. Fyrir nokkrum ár- um voru á því gerðar miklar end urbætur, og er það hið vistleg. asta í alla staði. Einn liður í starfi KFUM og K var að koma sér upp skála í Kaldárseli og var það gert á- samt piltum úr félagsskapnum í Reykjavíík. Hafnfirðingar eign- uðust þó brátt skálann einir, og hefir hann verið stækkaður og endurbættur síðan. Á sumrin er þar dvalarheimili fyrir telpur og drengi og hefir starfsemin t'arið sívaxandi. Síðustu árin hafa þau Guðfinna Gísladóttir og Arn. grímur Guðjónsson verið for- menn þessara deilda. Af starfsemi Kristilegs félags ungra manna og kvenna í dag er það annars að segja, að skráðir félagar eru nú milli 70 og 80, en þess fyrir utan sækja fleiri fundi. Starfið er fólgið í samkom um fyrir fullorðna, drengja- og unglingafundum og kvenna, fundum. Þá eru sérstakar æsku lýðs- og kristniboðsvikur og verður sú næsta 26. febrúar. Og ekki má gleyma sunnudagaskól- anum, sem jafnan er vel sóttur. Ekki verður svo skilið við þessar fáu línur, að ekki sé get. ið þess manns, sem einna mest og dyggilegast hefir unnið fyrir félagið, en það er Jóel Fr. Ingv- arsson, sem verið hefir formað- ur þess og umsjónarmaður frá fyrsta afmælisfundi árið 1912. Hann hefir að öðrum ólöstuðum verið „faðir“ félagsins í Hafnar- firði og lagt því af mörkum allt það, sem hann hefir mátt. Hon- um ber þakkir fyrir hin góðu uppeldisáhrif, sem fjöldi hafn- firzkra æskumanna hafa orðið aðnjótandi í hinum kristilegu samtökum, sem hann hefir svo lengi veitt forystu og minnist nú hálfrar aldar afmælis síns. —■ Aðrir í stjórn og mikið hafa lát. ið að sér kveða í KFUM eru Gestur Gamalíelsson, Guðjón Arngrímsson, Jóhann Pedersen og Guðbergur Jóhannsson. Formaður kvennadeildarinnar er Jóhanna Eiríksdóttir, sem unnið hefir mikið í félagslífinu ó löngum starfsdegi. Með henni í stjórn eru Valgerður Erlends- dóttir, Guðrún Einardóttir, Mar. ía Guðnadóttir og Þorbiörg Guðnadóttir. Hefir deildin starf. að vel og dyggilega og margar konur lagt þar fram sinn skerf félaginu til eflingar. Ekki er hér rúm að rekja frek ar starfsemi KFUM og K, en ým islegt mætti fram koma, sem. fél- agið hefir unnið að og látið gott af sér leiða á þessu tímabili. Það hefir jafnan unnið i anda hinnar kristnu trúar, eins og áður seg- ir, og markvisst að því að boða ungmennum og öldnum boðskap Krists. Það er ekki að efa, að ma' gir hafa orðið fyrir góðum áhrifum af því að sækja fundi í Kristi. legu félagi ungra manna og kvenna í Hafnarfirði. Eru því nú sendar beztu árnaðaróskir á hálfrar aldar afmælinu og þakk að göfugt starf. — G. E. ROSS GRÆÐIR Brezka fiskitímaritið Fishing News skýrir frá kauptilboði þessu, en kveðst ekki hafa upp- Rithöfundi boðin dvöl EINS og undanfarin ár hefur Rithöfundasambandi íslands bor- izt tilboð frá Vár Gárd, — Fræðsludeild Sænsku samvinnu- félaganna, um ókeypis dvöl fyrir einn íslenzkan rithöfund í heim- kynni þeirra Vár Gárd, dagana 10.—30. apríl n.k. Þeir sem kynnu að hafa hug á slíku sendi umsóknir sínar til stjórnar Rithöfundasambandsins eða skrifstofu þess Hafnarstræti 16, er veitir allar nánari upplýs- ingar. Umsóknir þurfa að ber- ast hið fyrsta. (Fréttatilk. frá Rithöfunda sambandi íslands). * Sursum cordg Maður kom að máli við Vel- vakanda og spurði hvað hann hefði eiginlega átt við með því að í leikritinu Pókók eftir Jök. ul Jakobsson, sem Leikfélagið er að sýna, væri boðskapur og væri sá á latínu. Aðeins einn maður hefur spurt um þetta, svo sennilega eru allir aðrir leikhúsgestir fyrir löngu búnir að átta sig á latnesku tilvitnun" inni, sem minnzt var á. En þessum eina verðum við að svara. Tilvitnunin er „Surs- um corda“, sem þýðir „lyftum hjörtum vorum“ sjálfsagt und irskilið til himna. Þetta er mik ið notað í kirkjunnar máli. í leikritinu kemur þetta fyr. ir, þegar Pókók-farsóttin er komin á hástig og börnin veikj ast unnvörpum af þessu æði. Þá er einasta lækningin „Surs um corda“-pi!lur. Sem sagt þegar þetta æði, sem þjáir mannkynið í dag er orðið óvið ráðanlegt, þá er einasta lækn- ingin að „lyfta hjörtum vor- um“. Velvakanda þykir trúlegt að höfundurinn hafi átt við þetta. * Alveg retti timinn Nokkrar mæður sátu á tali og Velvakandi heyrði á tal þeirra. Þær voru að ræða um bamatímana í útvapinu og kom saman um að það væri hreinasta afbragð að hafa þá kl. 6 á kvöldin. Þá eru börnin orðin þreytt og ergileg — og mæðumar reyndar líka. Og þ:' er hægt að fá rólega stund fyr- ir framan útvarpið. Mæðurnar viðurkenndu líka, að þær hefðu sjálfar mjög gaman af sumum barnatímunum, sem þær heyrðu út undan sér með- an þær væru að taka til kvöld- matinn, óáreittar. Nú eru barnatímar í útvarp inu alla daga vikunnar, mið- aðir að nokkru við börn á mis. munandi aldri. Virðist fyr. irkomulag þeirra alveg ágætt, hæfilega mikið af fræðandi efni og hæfilega mikið af skemmtiefni og þessu tvennu vel blandað saman. Velvakandi skaut því að konunum, að sums staðar er- lendis væru barnatímar fyrir yngstu börnin á morgnana, til að hafa ofan af fyrir þeim meðan mæðurnar annast hús- störfin. En þessar íslenzku kon ur fullyrtu, að þær vildu aljg ekki skipta á morguntímum og síðdegistímum. •^JIáttvísi^arf^ekki aðvera^vingandi En úr því við erum að taia um dagskrá útvarpsins, ætla ég að koma á framfæri skoðun eins kunningja míns á öðru efni. Honum finnst miður að slík stofnun skuli leyfa það að viku eftir viku komi menn í útvarpið, sem varla kunni mannasiði. Þeir minni sig ó- þægilega á þessar tiltölulega fáu afgreiðslustúlkur, sem á- varpa viðskiptavinina með: „Hvað viltö?“ og kunna ekki að þéra ókunnugt fólk; leggja fyrir það dónalegar spurn- ingar. Telur þessi kunningi minn að lágmarksháttvísi verði að krefjast af þeim sera í út'varp koma, enda þurfi húr» ekkert að vera þvingandi, nema ef viðkomandi er ekki vanur almennri kurteislegri umgengni. Þá verður hann auð vitað klunnalegur og missir létta og eðlilega framkomu, um leið og hann lætur af götustrá'catalinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.