Morgunblaðið - 08.02.1961, Qupperneq 6
6
MORGUIVBLAÐ'Ð
Miðvikudagur 8. febrúar 1961
Þingmenn
karpa um ölið
1. umræðu ek!ii
lokið
FYRSTU umræðu um öl-
frumvarpið var fram haldið
í neðri deild Alþingis í gær.
Töluðu fjórir þingmenn,
Gísli Jónsson, Halldór E. Sig
urðsson og Gunnar Jóhanns-
son, sem allir mæltu gegn
samþykkt frumvarpsins. Þá
talaði flutningsmaður, Pétur
Sigurðsson, en hann hafði
ekki lokið máli sínu, er um-
ræðu var frestað og fundi
slitið laust fyrir klukkan
hálfátta í gærkvöldi.
Umbætur ofan að
Gísli Jónsson rakti gang áfeng-
ismála á þingi síðustu áratugina
Happdrætti
Djörfunp;ar
í FRÁSÖGN blaðsins af happ-
drættj UMF Djörfungar á Aust-
fjörðum í blaðinu í gær féllu
niður lokalínur greinarinnar. Átti
þar að standa, að Sigmar Péturs-
son Bfeiðfirðingabúð í Rvík
gæfi allar upplýsingar um happ
drættið og seldi miða fyrir félag
ið.
Þá varð sú prentvilla í grein
inni að vegarkaflinn sem leggja
á fyrir ágóða happdrættisins
væri yfir svonefnda Öxl. Þar
heitir Öxi.
Frv. til laga um
r _ r
Utvegsbanka Isl.
1 GÆR var lagt fram á Aliþingi
stjórnarfrumvarp til laga um Út
vegsbanka íslands. Segir í at-
hugasemdum við frumvarpið, að
það sé flutt til þess að samræma
löggjöfina um Útvegsbanka ís-
lands öðrum lögum um viðskipta
bankana og þá sérstaklega með
hliðsjón af frumvarpi því, er nú
liggur fyrir um Landsbanka ís-
lands.
Efnisbreytingar í frum-
varpinu eru ekki aðrar en þær,
að ný ákvæði eru um hvernig
bankaráð skuli skipað, sem eru
í samræmi við ákvæði þeirra
bankafrumvarpa, er fyrir þing
inu liggja. Þá er sú breyting frá
gildandi lögum, að ráðherra get
ur ekki vikið bankastjóra, en til
þess þarf ákvörðun bankaráðs.
Ennfremur eru í frv. tvímæla-
laus ákvæði um, að framkvæmda
stjórn Fiskveiðasjóð íslands
heyri undir bankastjóm Útvegs-
bankans, en ekki bankaráð.
og skýrði frá átökum, sem átt
hafg sér stað um áfengislöggjöf-
ina á Alþingi. Þá ræddi hann
einnig áfengisbölið, og sagði að
umbæturnar í áfengismálum, þjóð
arinnar yrðu að koma að ofan, en
þetta frumvarp, ef samþykkt
yrði, myndi ekki stuðla að því.
Þá gerði ræðumaður grein fyr-
ir breytingartillögu sinni, sem
birt var í blaðinu í gær, en breyt-
ingartillögunni er ætlað að koma
í stað heimildarinnar um bjór-
söluna. Tók ræðumaður það fram,
að ef sín tillaga yrði samþykkt,
væri ölbruggunarheimildin þar
með úr sögunni.
Að jokum lagði Gísli Jónsson
til, að málinu yrði vísað til
menntamálanefndar.
Slæmt álstand
Halldór E. Sigurðsson sagði að
afstaða sín til áfengismála væri
sú, að hann væri þar á sveif, sem
unnið væri að minni áfengis-
neyzlu. Kvaðst hann hafa fylgzt
með umræðum um þetta mál að
undanförnu og virtist sér ástand-
ið í áfengismálum þjóðarinnar
mun verra en hann hefði haldið.
Vitnaði ræðumaður til greinar
Helga Ingvarssonar, yfirlæknis,
í Mbl. máli sínu til stuðnings.
Taldi hann fulla ástæðu til þess
fyrir Alþingi, að kynna sér þessi
mál betur en það gerði.
Ástæðuna til aukins drykkju-
skapar taldi ræðumaður þá, að
dregið hefði verið úr hömlum og
myndi drykkjuskapur enn auk-
ast, ef ölfrumvarpið yrði sam-
þykkt.
Efni á 2 bjórflöskum
Gunnar Jóhannsson ræddi um
böl drykkjuskaparins hér á landi
og sagði, að sízt væri ástæða til
að auka drykkjuskap unglinga
og fullorðinna með því að fram-
leiða áfengan bjór. Myndi marg-
ur unglingurinn, sem ekki teldi
sig hafa efni á að kaupa heila
„Svartadauðaflösku“, telja sig
hafa efni á að kaupa |vær bjór-
flöskur.
Þá rakti ræðumaður sögu áfeng
isins á fslandi frá fyrstu tíð til
þessa dags, og sagði að það væri
því miður sorgarsaga. Að lokum
sagði hann, að verkalýðssamtökin
á íslandi hefðu ætíð barizt gegn
vínneyzlu, og vitnaði í nokkra
forvígismenn verkalýðssamtak-
anna máli sínu til stuðnings.
Minnka neyzlu sterkra drykkja
Pétur Sigurðsson talaði næstur.
Svaraði hann einstökum atriðum
í ræðum ölandstæðinga og leið-
rétti þar sem þeir höfðu mis-
skilið hans framsöguræðu. Kvað
Pétur það sannfæringu sína, að
ef ölið yrði leyft, myndi það
draga úr neyzlu sterkra drykkja.
Pétur Sigurðsson hafði ekki
lokið máli sínu er umræðu var
frestað og fundi slitið. Einhverj-
ir fleiri munu hafa verið á mæl-
endaskrá. Umræðu verður vænt-
anlega fram haldið á morgun.
Aðeins með
milligöngu SÞ
London, 7. febr. — (Reuter).
SÚDAN hefur neitað beiðni So-
vétstjórnar um að senda lyf og
matvæli til héraða Kongó, sem
eru undir stjórn stuðningsmanna
Lumumba, að því er talsmaður
sendiráðs Súdans sagði í dag.
Hann sagði jafnframt, að stjórn
Súdans gæti ekki veitt slíka að-
stoð, nema með milligöngu Sam-
einuðu Þjóðanna sökum hlut-
leysisstefnu stjórnarinnar.
Ein af myndum Gunnlaugs Schevings listmálara, sem
ljóðabókina prýða.
Jörð úr œgi
Ný Ijóðabók eftir Matthias Johannes-
sen — Myndir eftir Gunnlaug Scheving
í GÆR kom í bókabúðir ný
ljóðabók eftir Matthías Jo-
hannessen. Er það þriðja
ljóðabók hans. Hin fyrsta,
BORGIN HLÓ, kom út árið
1958 og önnur ljóðabók
hans, HÓLMGÖNGULJÓÐ,
kom út árið 1960. Þá átti
hann hlut að bókinni SEX
LJÓÐSKÁLD, sem kom út
hjá AB í fyrra.
Þessi nýja ljóðabók Matthíasar
Johannessens nefnist Jörð úr
ægi og er gefin út af Helga-
felli eins og fyrri ljóðabækur
hans. Bókin er í óvenjulega
stóru broti, 70 blaðsíður að
lengd. Þetta er ljóðaflokkur,
eins og Hólmgönguljóð, í 7 köfl-
um. Það gefur bókinni sérstakt
gildi, að Gunnlaugur Scheving
listmálari hefur gert 14 mynd-
ir við efni hennar, og er ein
þeirra prentuð í litum.
Til neðri deildar
Frumvarpið um sameiningu
Áfengisverzlunar ríkisins og
Tóbakseinkasölu ríkisins var tek
ið til 3. umr. í efri deild Aliþingis
í gær. Var frumv. afgreitt til
neðri deildar með samhljóða at
kvæðum.
* Póstkassar
nauðsynlegir
J. H. skrifar:
Ég sá nýlega auglýsingu i
einu dagblaði bæjarins, þar
sem auglýstir voru póstkass-
ar fyrir fjölbýlishús, en íbúa
slíkra húsa hafa kvartað um
það, að vanskil hafi orðið á
póstsendingum vegna þess
m. a. að bréf og aðrar póst-
sendingar hafi verið skilið eft
ir í göngum og stigum húsa,
þar sem engir póstkassar
hafa verið fyrir hendi.
Bréfadeild pósthússins hef-
ur oft kvartað um það, að
þegar íbúðir eru læstar og
íbúarnir ekki heima, þá hafi
bréfberarnir þurft að skilja
póstsendingar eftir á göngum
og hurðarhúnum, og geti því
þessar sendingar oft glatast
og ekki komið til skila til
móttakenda.
Nú veit ég, að fyrir nokkr-
um árum voru samin lög þess
efnis, að húseigendum beri
að hafa t>óstkassa á hurðum
eða rifu til þess að póstur
ekki glatist, og þá ekki sízt
í margbýlishúsum, þar sem
margir ganga um. Þar skulu
vera póstkassar í neðsta
gangi, þannig að bréfberinn
geti afhent allan póst í kassa
hverrar einstakrar íbúðar,
það hlýtur að vera óvinnandi
verk fyrir þann sem ber út
póst, að ganga í sérhverja
íbúð í húsum, þar sem eru
e. t. v. milli 40 og 60 íbúðir,
sbr. nýju háhýsin í austur-
hluta Reykjavíkur.
Vanskil á póstsendingum
ættu ekki að geta átt sér
stað, ef húseigendur vilja
skilja nauðsyn slíkra póst-
kassa, erlendis þykir það ör-
yggi að hafa póstkassa á
hverri íbúð, því þá þarf mót-
takandinn ekki að óttast að
bréf hans glatist.
• Pósturinn fer hjá
Flestir eru vafalaust sam-
mála J. H. um nauðsyn þess
að hafa póstkassa á húsum,
og ekki sízt fjölbýlishúsum.
Víða erlendis er það skylda
og póstur ekki borinn í- hús,
þar sem verður að skilja hann
eftir á glámbekk.
T. d. sagði mér kona, sem
býr í nýju hverfi í bæ einum
1 Bandaríkjunum, að ná-
granni hennar einn hafi ekki
komið upp póstkassa á ný-
byggðu húsi sínu um leið og
flutt var í það. í fimmta
skipti sem póstmaðurinn
kom í hverfið eftir það, gekk
FERDIIMAIMP
hann framhjá þessu húsi, án
þess að skilja póstinn eftir.
Auðvitað var póstkassinn þá
settur upp.
• Blöðin fara á f læking
Vandræðin eru að bera blöð
in í sambýlishús, þar sem
ekki eru póstkassar fyrir
hverja fjölskyldu. E. t. v.
kaupa 5 af 10 íbúum hússins
blaðið. Þá verður að fleygja
þessum 5 blöðum í neðsta
stigann og enginn getur
fylgst með hvað af þeim
verður. Kaupendur kvarta
svo yfir því að þeir fái ekki
sitt blað, barnið sem ber út
segist hafa skilið eftir nægi-
lega mörg blöð, og þetta
veldur bæði kaupendum og
blöðunum óendanlegum erfið
leikum. Á sunnudögum er
víða ekki búið að opna hús,
þegar komið er með blöðin.
Ef ekki er rifa í hurðinni,
verður annað hvort að setja
blöðin á hurðarhúninn í
hvaða veðri sem er eða velja
einhverja bjöllu og vekja
íbúa þeirrar hæðar upp.
Hvorugur kosturinn er góð.
ur.
Það virðist semsagt í allra
hag, að komið sé upp póst-
kössum fyrir hverja íbúð og
höfð rifa á útihurðum.