Morgunblaðið - 08.02.1961, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.02.1961, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLAÐIh Miðvikudagur 8. febrúar 1961 Áburðarverksmíðjan hf. 10 ára í dag Kjarnaaburður framfeiddur fyrir 265 millj. krdna Gjaldeyrissparnaður áællaður samsvara tvö- til þrefaldari * þeirri fjárhæð, sem Aburðar- verksmiðjan kostaði okkur í gjaldeyrir í DAG eru liðin 10 ár síðan hlutafélag var stofnað um byggingu Áburðarverksmiðj- unnnar. Verksmiðjan hóf starfsemi sína í marz 1954 og hefur reynzt, eins og menn væntu, hið mesta þjóð- þrifafyrirtæki. Hún .hefur sparað þjóðarbúinu mikinn erlendan gjaldeyri og getur nú framleitt um 24,000 lestir af áburði á ári. — ★ — „Það munu vera liðnir um fimm áratugir síðan fyrst var rætt um vinnslu tilbúins áburðar eða áburðarefna hér á landi“, sagði Vilhjálmur Þór, formaður stjórnar Áburðarverksmiðjunnar h.f.„ er stjórnin og aðrir for- ráðamenn áttu fund með frétta- mönnum í tilefni afmælisins. — Rakti Vilhjálmur aðdraganda að stofnun hlutafélagsins og sagði síðan: „Hlutafé í félaginu var 10 milljónir kr., þar af var eign ríkis sjóðs 6 millj. kr., en 4 millj. kr. voru lagðar fram af félögum, einstaklingum og Reykjavíkur- bæ. Samkvæmt ákvæðum Áburð arverksmiðjulaganna má ekki greiða hærri arð af hlutafénu en 6 af hundraði, og var það gert í fyráta skipti árið 1960. Skömmu eftir stofnun félagsins tókst að fá tryggingu fyrir nauð synlegu fjármagni til þess að reisa og fullgera verksmiðjuna og semja við verkfræðinga, er teikna skyldu hana og skipu- leggja. Útboð voru síðan gerð á vélum og efni og samið um kaup á tækjum og vélasamstæð- um. — ★ —■ 1 ársbyrjun 1952 var gerð lokaákvörðun um, að verksmiðj- an skyldi reist í Gufunesi. Um svipað leyti var Hjálmar Finns- son ráðinn framkvæmdastjóri og skrifstofurekstur hafinn. Nokkru síðar, eða hinn 19. apríl sama ár, voru gerðir samningar við Reykjavíkurbæ um land fyrir verksmiðjuna og litlu síðar við Sogsvirkjunina um kaup á raf- orku til reksturs hennar og loks við Reykjavíkurhöfn um hafnar- og bryggjuaðstöðu. Hinn 25. apríl 1952 hófust störf við byggingu verksmiðjunnar í Gufunesi. Með sameiginlegu á- taki innlendra og erlendra að- ila tókst síðan að gera mann- virki og koma fyrir vélum og útbúnaði svo fljótt, að verk- smiðjan hóf störf rúmum 22 mánuðum síðar. Fyrsti áburð- urinn var tilbúinn og sekkjaður 7. marz 1954. Hornstein að iðju- verinu lagði forseti Islands herra Ásgeir Ásgeirsson, 22. maí sama ár, en landbúnaðarráð- herra, Steingrímur Steinþórsson vígði það til starfa sama dag. — ★ — Kostnaður við verksmiðjuna fullbúna nam 130 milljónum króna. Fjármagn þetta varð allt að fá að láni nema hlutaféð, 10 millj. kr. Hafði ríkissjóður tekið erlendis rúmlega 30 millj. króna lán og endurlánað það verksmiðjunni. Ábyrgð sú, sem ríkissjóður tók þannig á sig, og annarra efna 265 milljónum króna. Á árunum 1954—1956 voru fluttar og seldar til út- landa 10 þús. smálestir af Kjarna. Á árunum 1957—1959 minnkaði nokkuð áburðarmagn það, sem unnið var, sökum þess að ekki fékkst nægileg raforka, til þess að verksmiðjan væri fullnýtt. Afleiðingar þess urðu vitanlega þær, að framleiðslu- kostnaður varð nokkru hærri en annars hefði orðið, en sölu- verð þó ekki hærra en erlendur áburður hefði kostað. — ★ — Nú við lok þessa tiu ára tíma bils, sem liðið er, síðan Áburð- arverksmiðjan h.f. var stofnuð, og að fenginni nærri sjö ára reynslu um rekstur áburðar- verksmiðju þykir hlýða í fám orðum að gera þess nokkra grein, hver árangurinn í aðal- atriðum hefir orðið og hvað áunnizt hefir: I fyrsta lagi hefir innlend samtals að minnsta kosti 12 millj. króna. ★ I fjórða lagi hefir verksmiðj an samkvæmt lögum myndað sjóði — varasjóð og fyrninga- sjóð — til tryggingar rekstrin- um, endurbyggingar verksmiðj- unnar, er til kemur, og stækk- unar hennar, ef æskilegt þykir. Er þetta mjög mikilsvert fyrir framtíðarstarfsemi verksmiðjunn ar og skiptir miklu í þjónustu- hlutverki hennar fyrir þjóðina. ★ Nokkrar athuganir hafa ver ið gerðar á seinustu árum um skilyrði til vinnslu annarra áburð arefna, svo sem fosfatáburðar, blandaðs áburðar. Fyrirhugaðar eru framkvæmdir til stækkunar á kornum Kjarnaáburðar með eða án kalkblöndunar. — ★ — Vilhjálmur Þór bætti því við, að væntanlega yrði lokið við þær framkvæmdir, sem þyrfti til stækkunar Kjarna-kornanna á þessu ári. Hins vegar væri engu hægt að spá um það hve- nær hægt yrði að hefjast handa um framleiðslu anarra áburðar- efna. Þrjú sl. ár hefði farið fram athugun á því hvort hagkvæmt yrði að reisa fosfatverksmiðju hér — svo og verksmiðju til framleiðslu á blönduðum áburði. Væri það von manna, að það mál fengi jafnfarsælan endi og undirbúningur að stofnun Áburð arverksmiðjunnar. Þá gat Vilhjálmur þess, aS til framleiðslu fosfatáburðar þyrfti fosfatgrjót, sem við yrð- um að flytja inn, ef til kæmi. Þetta grjót er nú aðeins unnið á þremur stöðum í heiminum —■ í Bandarikjunum, Florida nánar tiltekið, Rússlandi og N- Afríku. — ★ — Loks gat stjórnarformaður þess, að töluverðar birgðir Kjarna væru nú fyrirliggjandi. Sem fyrr greindi væri fram- leiðslugeta verksmiðjunnar full- nýtt, en ekki væri gott að segja fyrir um það hve lengi verksmiðjan fengi nægilegt raf- magn til starfseminnar. Færi það eftir því hve þörf byggð- arinnar ,sem tengd er Sogsvirkj ununum, yxi ört. Hin vegar yrði framleiðslan á þessu ári 4—5 þús. tonn umfram þarfir iinnanlands. Reynt yrði að selja þann áburð úr landi eins og áður, en Vilhjálmur sagði, að samkeppnin á heimsmarkaðnum væri óhemju hörð og okkar að- staða ekki jafngóð og margra annarra þjóða vegna mikils flutningskostnaðar. Stjórn Áburðarverksmiðj- unnar hf., Vilhjálmur Þór, form., Pétur Gunnarsson, Ingólfur Jónsson, ráðherra, Kjartan Ólafssona* Halldór H. Jónsson, varamaður Ing- ólfs Jónssonar í stjórninni, og Jón fvarsson. nam um 23 af hundraði af stofnkostnaðiinnum, en sjálft hef ir fyrirtækið staðið straum af því láni sem öðrum. Allt fjár- magn annað fékk verksmiðjan lánað innanlands án ábyrgðar ríkissjóðs og annast að sjálf- sögðu sjálf greiðslur þeirra án aðstoðar annarra aðila. — ★ — Síðan verksmiðjureksturinn hófst 7. marz 1954 eru liðin tæp sjö ár. Á þeim tíma hefir reynslan sýnt, að verksmiðjan getur unnið 24000 smálestir af Kjarnaáburði á ári, og er það um 1600 smálestum meira en verkfræðingar þeir, sem skipu- lögðu hana, áætluðu og ábyrgð- ust. Verksmiðjan hefir verið rekin af innlendu starfsliði að undanskildum verkfræðingum, sem við hana störfuðu á fyrstu rekstrarmánuðunuh og einum á öðru starfsárinu. Reksturinn hefir gengið vel og án veru- legra áfalla og tafa, og ber starfsemin þess vott, hversu þeim, er hana skipulögðu og reksturinn annazt, hefir tekizt í því efni. Starfslið er um 100 manns að jafnaði. Rúmur helmingur þess er ao stafi til skiptist, því unn- ið er allan sólarhringinn allt ár- ið, jafnt helga daga og sýkna. — ★ — í árslok 1960 hafði verksmiðj- an frá byrjun skilað 130 þús. smálestum Kjarnaáburðar. Auk þess hefir verið unnið ammoní- ak, sem fullnægt hefir þörfum frystihúsanna í landinu ,og salt- péturssýra til mjólkurbúanna og fleiri aðila. Einnig er nú selt vatnsefni til lýsisherzlu. Frá upphafi og til ársloka 1960 nem- ur heildarverðmæti áburðarins áburðarvinnsla veitt einum að- alatvinnuvegi þjóðarinnar, land- búnaðinum ,og um leið þjóðinni allri, auið öryggi, með því að í landinu sjálfu er unnin og er fáanleg ein af höfuðnauðynjum til áframhaldandi og aukinnar ræktunar landsins, og með því fengin styrkari undirstaða að hagkvæmum búrekstri og mat- vælaframleiðslu. -í öðru lagi hefir að mestu leyti verið komizt hjá að kaupa köfnunarefnisáburð frá útlönd- um og með því verið sparaður erlendur gjaldeyrir í ríkum mæli. Mætti áætla, að hann samsvari milli tvö og þrefaldri þeirri fjárhæð, sem varið var til byggingar verksmiðjunnar í er- lendum gjaldeyri. Á þessu tíma- bili hefir áburðarnotkun í land- inu aukizt mjög og átt veruleg- an þátt í bættri afkomu land- búnaðarins. Sá erlendi gjaldeyr- ir, sem sparazt hefir við að vinna áburð innanlands, hefir komið og orðið til mikilvægra nota fyrir þjóðina alla vegna kaupa annarra óhjákvæmilegra nauðsynja erlendis frá, bæði til landbúnaðarins og annarra at- vinnuvega. ★ 1 þriðja Iagi hefir það, að köfnunarefnisáburður er unninn í landinu sjálfu ,sparað hverjum þeim, er þann áburð keypti á árinu 1960, veruleg útgjöld vegna lægra verðs hins inn- lenda áburðar en þess erlenda, eftir hina miklu hækkun á er- lendum gjaldeyri, er varð snemma á því ári. Hefir sá út- gjaldasparnaður verið áætlaður um eða yfir 2000 krónur að meðal tali á hvern bónda, en fer að sjálfsögðu eftir magni þess köfnunarefnisáburðar, sem hann kaupir. Nemur þessi fjárhæð VotheylS otf vot- heyseferðitn H I N N kunni fóðurfræðingur, próf. Knut Breirem, sem flestir eða allir búnaðarfróðir íslenzkir menn kannast við, skrifar gréin í Samvirke 15. janúar um það hvort hægAgé að fóðra gripi á voiAieyi einu, að því er kemur til heyfóðurs. Hann fer fljótt yfir en er greinagóður að vanda. — Til. greinir hann nokkrar tilraunir, sem benda eindregið til þess að einhliða votheysfóðrun megi vel takast, gildir það bæði um naut- pening og sauðfé. Aðrar tilraunir telur hann benda til þess að ung. viði í vexti fáist yfirleitt ekki til þess að éta nógu mikið af vot. hey til þess að ná fullum þrifum við einhliða votheysgjöf. — Aðr- ar tilraunir — hollenzkar — benda þó til þess að það geti ver- ið varhugavert að fóðra jórturdýr á votheyi einu, sérstaklega ef vot. heyið er ekki jafngott og öruggt um gæði. Loks ræður Breirem til þess að fara að ráðum Svía (Jordbrukstekniska instituttet) og haga heyverkun þannig að verka mikið vothey en jafnframt því að súgþurrk'a töðu — þannig sé öllu bezt borgið. Hlutföllin milli þessara verkunaraðferða telur hann geta farið mjög eftir ástæðum. „Eftir okkar reynslu er hæfilegt að verka Vz—% af töð- unni sem vothey“, segir prófessor inn að lokum. Jón Nedkvitne — sem hefur kynnt sér sauðfjárrækt á íslandi og rökrætt fast við Halldór — segir í leiðbeiningagrein nú ný- lega: „Þeir sem eru svo vel á vegi staddir að þeir geta gefið dá lítið af votheyi með þurrheyinu, geta eins vel gefið 2 kg af votheyi annan hvern dag eins og að gefa (hverri kind) 1 kg á dag — ef þeim finnst að því verkasparnað- ur. En bezt eru þeir farnir sem geta gefið mikið af góðu votheyi daglega allan veturinn“. Ekki er vafi á því að Sviar eru mjög í fararbroddi um rannsókn. ir að því er kemur til heyverkun. ar, bæði votheysgerðar og súg- þurrkunar. Er það Jordbruks- tekniska Instistuttet sem þar vinnur mikil þarfaverk. Á árinu sem leið komu frá því tvær skýrslur, sem eru með ágætum, og eiga stórmikið erindi til ís« lenzkra búnaðarráðunauta eigi síður en til starfsbræðra þeirra annarsstaðar á Norðurlöndum. Fyrri skýrslan heitir: Försök med ensilering í gravsilo och torncilo samt av hackat och ohakat foder, Þetta er 35 bls. pési. Hin skýrslan er sínu meiri og ennþá gagnmerkari: Hur fá ett bra ensilage? Metoder och tekn. iska hjálpmedel vid ensilering. Ritið er 112 bls. og kostar s. kr. 3,75. — Vonandi verða þeir ráðu. nautar sem leiðbeina á þessu sviði sér úti um þetta rit, það er áreiðanlega þarfaverk að útvega þeim það. Jaðri, 26. janúar 1961.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.