Morgunblaðið - 08.02.1961, Page 15
Miðvik'udagur 8. febrúar 1961
MORGVNBLAÐIÐ
15
ristmann Gubmundsson skrifar um.
BÓ KMENNTIR
Þrjú vegabréf
Eftir Höllu og Hal Linker
Hersteinrr Pálsson ísl.
Bókfellsútgáfan
HALLA og Hal Linker eru öll-
uua íslendingum kunn. Þau hafa
farið um víða veröld og gert
mafn fslands kunnugt hvarvetna
á leið sinni. Nú er ferðasaga
þeirra komin í frumútgáfu á ís-
lenzku, og hefur Hersteinn Páls-
son þýtt hana með ágætum. Af
eðlilegum ástæðum hef ég ekki
borið saman frumritið og þýðing-
una, því að frumritið er enn ekki
komið út, en bókin er þýdd á
lifandi og hressilegt íslenzkt mál,
er virkar alls ekki eins og þýðing
heldur miklu fremur frumrit.
Þótt bók þessi hafi komið út
fyir jólin og verið seld sem ein
af jólabókum ársins 1960, er hún
alls ekki bundin við neinn sér-
stakan tíma, heldur bók sem
imenn munu lesa allt árið um
kring og ekki sízt í fríum sínum
og ferðalögum, því hún er létt og
skemmtileg aflestrar, samtímis
sem hún er full af fróðleik um
heimsbyggðina og fólkið sem
hana byggir. Sagt er frá hlut.
unum blátt áfram, létt og leik-
andi, án óþarfa orðamælgi. Þetta
er blaðamennska af beztu teg-
und og fjarska þekkileg aflestr-
ar.
Athyglisverð eru „Inngangsorð"
höfundanna, en í þeim segir svo:
„í leit okkar að Undrum verald-
ar“, sem við gætum nóð á kvik-
mynd og sýnt sjónvarpsnotend-
ttm, hefur okkur aldrei gleymzt
„undrið" mesta, sá æðri máttur,
sem tekur karl og konu við hönd
sér og leiðir þau um langa vegu
til að gera þau að lífsförunaut-
um, sem ekki aðeins unna hvort
öðru, heldur bera og virðingu
hvort fyrir öðru. Hvenær sem
nýgift hjón verða á vegi okkar,
^skum við þess fyrst og fremst
að þau geti orðið eins hamingju-
söm og við erum“. — Fyrsti kafli
bókarinnar fjallar um spennandi
ævintýri í Khyber-skarði, en síð
an segir Hal Linker frá þeim
einkenniiegu tildrögum sem urðu
til þess, að hann ferðaðist til
íslands, þar sem hann hitti konu
efni sitt. Er til Reykjavíkur var
!komið sat hann um kvöld á
Hótel Borg og mataðist, og eitt
sinn er hann leit upp frá matnum
sá hann að inn gengu í salinn
tvær stúlkur og var önnur þeirra
há, grönn og ljóshærð. „Henni
varð litið í áttina til mín, er ég
horfði á hana“, segir höf. „Eg
sá að augu hennar voru sæblá.
Þetta var víkingaprinsessa hoidi
klæíd. Svo brosti hún til föru-
mautar síns er bauð henni hand-
legginn og þau gengu að borði í
salnum".
Var nú ekki að sökum að spyrja
að Amor gamli hafði komið skoti
á þennan víðförla Ameríkumann,
svo að hann gat ekki framar haft
augun af hinni ljóshærðu, ís-
lenzku mey. Hann varð heillað-
ur af henni þegar í stað og sár-
öfundaði unga manninn, er hjá
henni sat. Einhver hafði sagt hon
um að á íslandi væru fegurstu
stúlkur í heimi og þóttist hann
nú hafa fengið sönnur fyrir því.
Kaffið varð kalt í bollanum hans
meðan hann braut heilann um
það, hvernig í ósköpunum hann
ætti að fara að því að kynnast
henni. Loks datt honum ráð í
að festa hugann við veiðarnar
og verður þeirri stundu fegnast-
ur er hann kemst aftur á land.
Tekur hann þegar á rás að næsta
símatóli og leitar í símaskránni
að nafninu Guðmundsdóttir, því
að hann er vanur að fólk sé skráð
undir eftirnöfnum sínum. En
hvergi tekst honum að finna
neina Guðmundsdóttur; verður
hann loks að leita hjálpar hjá
féiaga sínum íslenzkum og tekst
þeim í sameiningu að finna frök.
enina. Höfundur segir stamandi
að nú sé hann kominn aftur og
að hann þurfi endilega að finna
hana þegar í stað, það sé óskap-
lega mikilvægt, hvort hún vilji
hitta hann einhversstaðar. Úr
því fer að færast amerískur hraði
í hlutina og innan stundar eru
þau trúlofuð, Hal og Halla. Næsti
kafli heitir: „Hveitibrauðsdagar
æ síðan“.
Eftir að þau eru gift fara Hal
og Halla í hvert ferðalagið á
fætur öðru um hnöttinn og er
bókin frásögn af reisum þeim.
Lesandinn fær að fylgjast með
þeim norður til Lapplands, suð-
ur tií ísraels, vestur til Kúbu,
niður til Kongó í Afríku, Egypta
lands, Thaiti, Grikklands, Rúss-
lands og víðar. Og lesandanum
leiðist vissulega ekki á því ferða
lagi, hjónakomin sjá um það.
Það er hreint og beint sjaldgæft
að fá í hendur jafnskemmtilega
ferðabók og þessa, og mundu ís-
lenzkir lesendur vissulega kunna
að meta það; spái ég henni met-
sölu, enda þótt hún kæmi svo
nærri jólum að hún gæti þá ekki
tekið þátt í kapphlaupinu. En
þetta er sem sagt engin jólabók
heldur bók alls ársins, prýðiieg
til lestrar á hvíldarstundum, því
að hún kostar enga andlega á-
reynslu ,efnið er þannig framreiti
að lesturinn hressir og gleður.
En auðvitað er þetta „létt“ bók,
höfundamir reynir ekki að leysa
nein heimsvandamál, og er ekki
með neinar heimspekilegar vanga
veltur. Þau hjón eru aðeins
skemmtilegir ferðafélagar, sem
taka vel eftir öllu því er ferða-
mönnum ber að sjá. í löndum
þeim, er þau fara um, og kunna
vel að segja frá því.
Ofan í kaupið er svo bókin
prýdd hinum ágætustu myndum
víðsvegar úr veröldinni. Myndir
eru af höfundunum og syni
þeirra Davíð, víðförlasta dreng
af íslenzkum ættum, — á ein-
um stað sést hann heilsa
maóríakonu með nefkossi; á öðr-
um stað siglir hann á „skipi eyði
merkurinnar“. Myndirnar eru
vel teknar, sem vænta má af slík
um „fotograf‘“ sem Hal Linker
og eru þær hin mesta prýði á
bókinni.
Loks er skruddan vel og
smekklega útgefin, „fer vel í skáp
og er falleg í hendi“, eins og ein_
hver komst að orði nýlega, i
einu orði sagt fyrirmyndar bók,
sem gaman er að mæla með.
Signal
Nýtt tannkrem með munnskol-
unarefni í hverju rauðu striki
Signal er fremra öllu öðru tannkremi.
því aðeins það gerir tennur yðar skínandi hvítar
og gefur yður hressandi munnbragð.
Sérhvert gott tannkrem hreinsar
tennurnar, en hið nýja SIGNAL
gerir miklu meira!
Hvert og eitt hinna rauðu strika
SIGNALS inniheldur Hexa-
Chlorophene, hið þekkta rotvarn-
arefni, sem er mikið notað í þágu
læknavísindanna. Samtímis því,
sem hreinsunarefni SIGNALS
gætir og verndar tennur yðar,
blandast þetta kröftuga rotvarn-
arefni munnvatninu og drepur
sóttkveikjur um leið og það
hreinsar munninn.
Burstið því tennur yðar reglulega
lega með SIGNAL og njótið
þar með bezta fáanlega tann-
kremsins, sem inniheldur hvort-
tveggja í senn, ríkulegt magn
hreinsunar- og rotvarnarefna.
Látið alla fjölskyldu yðar njóta
hinnar öruggu varnar gegn tann
skemmdum, sem þetta nýja
undra-tannkrem, með munnskol-
unarefni í hverju rauðu striki
veitir. Byrjið að nota SIGNAL,
strax í dag.
hug: Hann var kominn til að
Ikvikmynda garðyrkju í gróður-
húsum og sá í hendi sér að þessi
yndislega stúlka myndi sæma
sér vel innan um blómaskrúðið í
glerhöllum Hveragerðis og Mos-
fellssveitar, einkum ef hún feng-
ist til að klæðast þjóðbúningn-
vm. Sagan heldur svo áfram og
er þessi samdráttur þeirra
tveggja, Hal og Höllu, einn af
ekemmtilegustu köflum bókar.
innar. í miðjum kliðum fer höf.
í hvalaleiðangur en á bágt með
X—SIG l/IC 9658
IÞetta er ástæðan fyrir því, að SIGNALi
inniheldur munnskolunarefni í hverju
rauðu striki