Morgunblaðið - 08.02.1961, Síða 23
Miðvikudagur 8. febrúar 1961
MORGVNBLAÐIÐ
23
-jx.
SÉÐ yfir fundarsal bæjarstjórn-
ar Reykjavíkur í gær, er fuli-
trúar á fundi Samibands íslenzkra
sveitarfélaga sátu þar á rökstól-
«im. A fundinum eiga sæti Bjart-
mar Guðmundsson, alþm. odd-
viti Aðaldælahrepps; Björn
'Finnbogason, oddviti Gerða-
Ihrepps; Magnús Astmarsson,
bæjarfulltr. Reykjavík; Sigurður
Gunnarsson, Vopnafirði; Agúst
H. Pétursson, sveitastj. Patreks-
firði; Hermann Eyjólfsson, odd-
yiti Ölfushreppi; Auður Auðuns,
forseti bæjarstjórnar Reykjavík-
ur; Hálfdán Sveinsson, bæjar-
stjóri Akranesi; Jón Eiríksson,
oddviti Skeiðahrepps: OlafurGuð
mundsson, sveitarstjóri Stykkis-
hólmi; Tómas Jónsson, borgar-
lögmaður Reykjavík; Birgir
Finnsson, alþm. Isafirði; Sigurð-
ur S. Haukdal, oddviti V.-Land-
eyjahrepps; Björn Dúason, sveit-
arstjóri Miðneshrepps; Karl Krist
jánsson, alþm. Húsavík; Jónas
Guðmundsson, formaður Samb.
ísl. sveitarfél.; Guðmundur Vig-
— Kongoher
Frh. af bls. 2
Marokko-hermenn úr liði Sam-
einuðu þjóðanna. Þegar þeir
væru farnir, sagði talsmaðurinn,
að einungis 2.500 hermenn yrðu
eftir af liði SÞ í Katanga. Her-
menn þeir væru dreifðir í smá-
hópum um allt fylkið, sem að
verulegu leyti »r í höndum Bal-
uba-manna, en þeir eru and-
stæðir stjórn Tshombe.
í Leopoldville var upplýst í
dag, að Mobutu, öfursti, hefði
skipað hermönnum sínum að
vera við öllu búnir og bannað
hermönnum SÞ að hafa not af
herstöðvum Kongóhers, meðan
Kongómálið væri til umræðu
hjá Sameinuðu þjóðunum. Tals-
í»’ maður SÞ sagði hins vegar, að
stjórn SÞ í Leopoldville hefði
ekkert verið tilkynnt um þetta.
Þó telja menn, að Mobutu und-
irbúi nú þann mótleik, sem
hann hyggst leika, ef samþykkt
verður í New York að afvopna
herinn í Kongó.
Belgíska fréttastofan Belga
skýrir frá því að undanfarna
daga hafi verið stöðugur straum
ur Evrópumanna frá Kivu-hér-
aði, síðan stjóm undir forsæti
Kashamura, sem er stuðnings-
maður Lumumba, komst til
valda. í höfuðstaðnum, Bukavo,
munu nú aðeins vera 150 Ev-
rópubúar, en fyrir nokkrum dög
um voru þeir eitt þúsund.
— Kynnir ísland
Framhald af bls 22.
myndir, auk þess sem hún sýnl
háhýsi, skóla, sjúkrahús og bók-
söfn hins nútíma Islands. Einnig
er klippingu myndarinnar hrós
að. Að lokum segir blaðið að
,,This is Iceland" sé góð auglýs-
ingamynd fyrir Island og að
Kalsbþll muni áreiðanlega takast
að fá marga í lið með sér til að
tala máli landsins.
fússon, bæjarfulltr. Reykjavík
Sigurður O. Olafsson, alþm. Sel
fossi; Þórður Halldórsson, Naut
eyrarhrepps oddviti; Magnús Guð
jónsson bæjarstjóri Akureyri;
Stefán Gunnlaugsson, bæjarstjóri
Hafnarfirði; Guðlaugur Gíslason,
alþm. Vestmannaeyjum; Jón
Jónsson, oddviti, Hofshrepps
Skagaf.; Stefán Jónsson, bæjar-
fulltrúi Hafnarfirði; Gunnþór
Björnsson, bæjarstjóri Seyðis-
firði.
Fulltrúaráðsfundur Sambands
ísl. sveitarfél. hafinn
í GÆR hófst hér í Reykja-
vík fulltrúaráðsfundur Sam-
bands ísl. sveitarfélaga. —
Stendur þessi fundur þar til
á föstudagskvöld og fer fram
í fundarsal bæjarstjórnar
Reykjavíkur að Skúlatúni 2.
Fundurinn var settur kl. 10
árd. í gær. Meðal gesta var borg
arstjórinn Geir Hallgrímsson og
flutti hann ávarp. 1 gær var kjör
ið í nefndir og formaður Samb.
ísl. sveitarfélaga flutti ársskrýrsl
una. Hann gat þess m.a. að Unn
ar Stefánsson viðskiptafræðing-
ur hefði verið ráðinn fulltrúi hjá
Sambandinu. í ræðunni vék hann
mokkru máli að stofnun sameign
arfyrirtækisins Malbik. Höfðu
mokkrir bæir og kauptún bund
izt samtökum um að stofna til
sameiginlegra kaupa á vélum til
gatnagerðar. í fyrstu var talið
heppilegt að kaupa malbikunar-
vélar. En stjórn Malbiks hefur
átt ítarlegar viðræður við stjórn
Sementsverksmiðjunnar um
möguleika á sementskaupum til
gatnagerðar og hefur því verið
frestað kaupum á malbikunarvél
Um. Sagði formaður Samb. ísl.
sveitarfélaga, Jónas Guðmunds-
eon, að endanlegt svar frá stjóm
Sementsverksmiðju ríkisins um
(þetta mál myndi liggja fyrir þeg
ar aðalfundur Matbiks verður
haldinn í næsta mánuði.
i Þá gat ræðumaður þess að hann
og Páll Líndal skrifstofustjóri
ihefðu á síðastliðnu sumri farið
utan til að afla sér upplýsinga
um tekjustofna sveitarfélaga í
jaágrannalöndum okkar Fór þessi
athugun fram í sambandi við
endurskoðun útsvarslaga og þá
jninntist hann á Bjargráðasjóð
fslands, á hinar stórfelldu breyt
ingar er urðu á útsvarslögunum
á síðasta ári.
Þá hafði ráðuneytisstjórinn
( félagsmálaráðuneytinu gert
grein fyrir nýrri löggjöf um tekju
6tofn sveitarfélaga.
i Formaðurinn gat þess að fyrir
þessum fundi lægi að taka af-
stöðu til hinna nýju útsvarslaga,
sem fram myndu verða lögð á
Alþingi innan skamms. Gat hann
þess í sambandi við þetta mál,
að gert væri ráð fyrir að leggja
niður það sem kallað er veltu-
útsvar fyrirtækja, eða breyta
því mjög. Taldi ræðumaður
sveitarfélögin ekki geta misst
þennan tekjustofn. Hefði verið
um það rætt að leggja á í staðinn
sérstakt aðstöðugjald. Myndi
hverskonar fyrirtækjum, og líka
ríkisfyrirtækjum, er ekki hafa til
þessa greitt nein gjöld til sveitar
félaga, verða gert að greiða slíkt
aðstöðugjald.
Annað stórmál er fyrir fund
inum liggur er stjórnarfrumvarp
um ríkisáibyrgðir, og er gert ráð
fyrir því að með frumv. verði
gerð gangskör að því að semja
um þær skuldir sem eru í van-
skilum. Einnig liggur fyrir þess
um fulltrúaráðsfundi að fjalla
um frumv. um ríkisfangelsi, hér
aðafangelsi og vinnuhæli.
í dag munu nefndir starfa, en
þær eiga að skila af sér á fimmtu
— Arás
Framh. af bls. 24.
að ræða gamlan heimilisvin
þeirra hjóna. Var konan, sem með
þeim var, eitt sinn ráðskona hjá
árásarmanninum, en þau höfðu
slitið samvistum á sl. hausti. Læt-
ur hann í það skína, að hann hafi
verið því mótfallinn að þessi fyrr
um ráðskona hans væri á ferli á
götum úti seint á kvöldin.
Eggvopn það, sem maðurinn
notaði, er gamall byssustingur,
mikið vopn og flugbeitt. Hann
segist hafa sótt hann heim til sín
þegar hann sá til ferða ráðskon-
unnar.
Rannsókn þessa máls er mjög
skammt á veg komin, en seint
í gærkvöldi var maðurinn úr-
skurðaður í 45 daga varðhald, en
í svo langan tíma eru menn úr-
skurðaðir í þegar um er að ræða
alvarleg mál. Einnig verður eins
og fyrr segir látin fara fram á
honum geðheilbrigðisrannsókn,
að því er Ármann Kristinsson,
sakadómarafulltrúi skýrði Mbl.
frá í gær.
dag, og föstudag, en síðd. þann
dag er gert ráð fyrir að fulltrúa
fundinum ljúki.
— Gervihnöttur
Framh. af bls. 1
athugunarstöðvarinnar í Eng-
landi eru þeirrar skoðunar, að
þau merki séu frá bandaríska
gerfihnettinum Könnuði VII sem
sendur var á loft 13. okt. 1959.
Geimskot þetta vekur vísinda-
mönnum mikla forvitni, því að
slík leynd hefur ekki fyrr verið
yfir sendingum gervihnatta. í
fréttasendingu Moskvuútvarpsins
til Bandaríkjanna í dag var haft
eftir rússneskum visindamanni,
Zeuovy Chukhanov, að sú stund
sé ekki langt undan, að Rússar
sendi mann út í geiminn. Hann
sagði, að þeir gætu nú séð hilla
undir gervitunglstöðvar úti í
geimnum, sem nota mætti til þess
að endurnýja orku hinna ýmsu
geimfara. Einnig sagði Chukhan-
ov, að stóra gervihnetti mætti
einnig nota í sambandi við sjón-
varpssendingar eða sem afkasta-
miklar rannsóknarstöðvar.
Starfsmenn Meudon-athugun-
arstöðvarinnar fyrir utan París
og starfsmenn Belfield athugun-
arstöðvarinnar í Ástralíu hafa lát
ið í ljós þá skoðun, að leynd sú,
er hvíli yfir þessu „geimskoti“
Rússa sé í hæsta máta forvitnileg
og sé allt með felldu hljóti hnött-
urinn að senda á leynilegri bylgju
lengd.
Formaður Bochum-stöðvarinn-
ar í Vestur-Þýzkalandi, Heinz
Kaminski, sagði í dag, að hann
teldi, að rússneski hnötturinn
hefði ekki verið sendur á loft
á laugardag, heldur á fimmtudag,
en þá hefði hann heyrt hljóð- j
merki, sem trúlega hefðu getað
verið frá hnettinum.
Halvard nokkur Torgersen við
tækniháskólann í Þrándheimi í
Noregi hefur skýrt frá því, að
hann hafi heyrt sérkennileg hljóð
merki á bylgjulengdum, sem oft
séu notaðar við gervihnetti, en
svo virtist sem skipt væri af og
til um bylgjulengd og að sent
væri frá fleiri en einni stöð. —
Torgersen kvaðst hafa heyrt þessi
merki á 105 mínútna millibili þar
til seint í gærkvöldi.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á
sjötugsafmæli mínu 29. jan., með heimsóknum, gjöfum
og heillaóskum. — Lifið heil.
Halldóra Oddsdóttir, HjallanesL
Kærar kveðjur og þakkir, sendi ég öllum, sem glöddu
mig og heiðruðu á áttræðisafmæli mínu.
Benedikt Kröyer, Skálafelli, R.
Innilegt þakklæti til allra, sem glöddu mig á áttræðis-
afmæli mínu 2. febrúar s.I. með heimsóknum, gjöfum
og skeytum.
Símon Pétursson, Vatnskoti
Eiginmaður minn og tengdasonur
TÓMAS HANSEN
múrarameistari,
lézt að heimili sínu í Danmörku þann 6. jan. s.l.
Birna Melsted Hansen, Ólína Melsted.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir
KRISTÓFER JÓNSSON
frá Galtarholti,
verður jarðséttur frá Fossvogskirkju föstudaginn 10.
febrúar kl. 3 e.h.
Guðbjörg Jónsdóttir, börn og tengdasynir.
Við þökkum af alhug öllum þeim, sem hafa sýnt okkur
samúð og vinsemd við andlát og jarðarför
HÓLMFRlÐAR VALDIMARSDÓTTUR
Vandamenn.
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
SÓLVEIGAR JÓNDÓTTUR
frá Nesi.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför móður minnar
NIKULÍNU j. ÞORSTEINSDÓTTUR
Fyrir hönd aðstandenda
Sigríður Þorsteinsdóttir
Þökkum innildega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa,
HANS WIUM BJARNASONAR
Eydís Hansdóttir,
Emmy og ÓIi Valur Hansson,
Gyða og Ólafur Eyjólfsson,
oe barnabörn.
Þökkum hlýhug og vináttu vegna fráfalls og útfarar
MARlU BRYNJÖLFSDÓTTUR
Hrepphólum.
Fyrir hönd vandafólks.
Elísabet Kristjánsdóttir, Jón Sigurðsson.