Morgunblaðið - 08.02.1961, Side 24
íjbróttir
Sjá bls. 22
nttMðMfr
Karpað um öl
á Alþingi — Sjá bls.. 6.
31. tbl. — Miðvikudagur 8. febrúar 1961
IVIik.il sild en versn
andi veður
BLAÐIÐ átti tal við Jakob
Jakobsson fiskifræðing um
borð í Ægi laust fyrir kl. 9 í
gærkvöldi. Var Ægir þá
staddur um 50 mílur vestur
af Kirkjuvogi og lónaði þar
yfir síld.
Telur Jakob að þar sé um að
ræða nýja síldargöngu að norð-
an. Ekki er enn vitað hvernig
sú síld er og þess vænzt að
hún sé góð þar sem svo er yfir-
leitt með síld á þessu svæði.
Versnandi veður
Veður er versnandi og ekki
talið fært að kasta. Nokkur
fiskiskip eru komin í námunda
við Ægi og bíða færis, en jjld-
in stendur djúpt. Er þess
vænst að hún komi á grynnra
vatn upp á Eldeyj.arbankann og
verði þá viðráðanlegri. Veður-
spáin er versnandi og því von-
lítið að mikið verði um síld-
veiði í nótt. .
Góð veiði við Eyjar
Bátarnir köstuðu flestir eða
allir við Vestmannaeyjar milli
kl. 7 og 8 í gærkvöldi. Ekki
var vitað um afla þeirra nema
að Guðmundur í>órðarson fékk
800 tunnur. Kastaði hann fyrst-
ur, en veður var orðið svo vont
að ekki var fært fyrir hann
að kasta aftur. Voru skipin
stödd um 10 mílur austur af
Vestmannaeyjum. Síldin var þar
Málfundir Verka-
lýðsráðs og Óðins
VERKALÝÐSRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins og Málfundafélagið
Óðinn efna til vikulegra mál-
funda, sem haldnir verða í Val-
höll við Suðurgötu frá og með
miðvikudeginum 15. þ.m.
Á fundunum verður leiðbeint í
ræðumennsku, fundarreglum og
framsögn og tekin verða til um-
ræðu m. a. þessi mál.: Vinnulög-
gjöfin, efnahagsmál, atvinnumál,
kjaramál og skipulag og starf
verkalýðsfélaganna og önnur mál
er sérstaklega varða launþega.
Þeir sem hugsa sér að taka þátt
i þessum málfundum eru beðnir
um að láta skrá sig í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
fyrir þriðjudaginn 14. þ.m. Sími
17100.
Ferðamenn hætta
við Islandsheim-
sókn
ALLMIKILL fjöldi Englendinga,
sem hugðu á Islandsferð í sumar,
hefur nú hætt við að koma hing-
að. Þessir brezku ferðaménn ætl-
uðu að fá far með Esju umhverf-
is landið, en jafnan hafa færri
komizt með en vildi í hringferðir
Esju undanfarin sumur. — Astæð
an til þess, að Englendingamir
urðu að hætta við ferðina er sú,
eð Skipaútgerðin gefur nú ekki
út áætlun nema til þriggja mán-
aða í senn og erlendar ferðaskrif-
stofur geta þar af leiðandi ekki
pantað far fyrir útléndinða í
hringferðir í surnar.
Framkvæmdastjóri Skipaút-
gerðarinnar tjáði blaðinu, að
þessi 'nýbreytni — að gefa út
áætlun til þriggja mánaða í senn
— hefði verið tekin upp vegna
endurskipulagningar á strand-
ferðunum.
a grunnu vatni um 40 föðmum
og því vel viðráðanleg. — Um
mikið magn var og að ræða.
Landburður í góðu veðri
Jakob Jakobsson segir að eng
inn vafi sé á því að um land-
burð af síld mundi vera að
ræða, ef veður leyfði, því síld-
in virðist næg.
Engir samningafundir
í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum, 7. febr. ar tollstjóra, og hefir hann
HÉR í Eyjum eru nú dimmir máliö til athugunar. Engir
dagar. Allt athafnalíf er drep- fundir hafa verið boðaðir með
ið í dróma vegna verkfalls deiluaðilum og hafa þeir ekki
Verkalýðsfélags Vestmanna- ræðst við.
eyja. Einnig finnst mönnum
blóðugt að horfa upp á skip- 0 _ m
m moka upp síldinni hér allt SíoUStll Ifi'éttÍl*
í kringum Eyjarnar og engín
aðstaða hér til þess að taka I GÆRKVÖLDI gerðist
á móti henni. Verða skipin því þag { kjaradeilu atvinnu-
að sigla langan veg til þess rekenda Verkalýðsfé-
að koma aflanum fra ser. .
Hér var eins og kunnugt er laSs Vestmannaey]a, að
af fréttum komið upp síldar- sáttasemjaVi ríkisins kall-
verksmiðju í fyrrahaust og er aði fulltrúa deiluaðila til
þar hægt að bræða 2500 mál sáttafunda í Reykjavík. —
a soiarhring. Að sjalfsogðu er . ,X£. ...
svo hin ákjósanlegasta aðstaða Foru te,r með HerJolfl Ul
tii móttöku á síld bæði til sölt Reykjavíkur í nótt. Ekki
unar og frystingar. En allt fer var ákveðið hvort fulltrú-
þetta nú fram hjá okkur ar verkakvennafélagsins
vegna verkfallsins. Deilunni „ ., - . . ...
hefir verið vísað til sáttasemj Snotar færu elnn,S t,!
ara rikisins, Torfa Hjartarson- sáttafundar.
Isiendingar eyddu um
70 milij. kr í happdrætti
Á SL. ári munu íslendingar
hafa eytt um 70 millj. kr. í
happdrættiismiða. Þessi tala
er að vísu ekki nákvæm, en
ekki mjög fjarri lagi. Bróð-
urparturiinn af þessum
greiðslum fer til stóru happ-
drættanna þriggja eða um 60
millj. kr. Önnur smærri
happdrætti fengu leyfi fyrir
sölu á miðum árið 1957 fyr-
ir 13.3 millj. kr. Ef reiknað
er með að aukning á miða-
sölu þeirra hafi verið hlut-
fallslega jafn mikil í krón-
um og þeirra stærri og um
60% af miðum seljist, hafa
þau fengið inn rúmar 11
millj. kr.
Ofannfendar tölur eru brúttó-
greiðsla fyrir miðana eða sú upp
hæð sem mexm greiða fyrir að
spila í happdrættum. Þeir heppnu
fá svo endurgreitt í vinningum.
Vinningar stóru happdrættanna
námu rúmum 40 millj. kr. á sl.
ári, og minni happdrættunum er
skylt að greiða 1/6 í vinning eða
sem því nemur.
A því ári sem nú er byrjað
hækkar heildartalan verulega.
Happdrætti Háskólans hefur t.d.
aukið mjög miðasölu sína og er
búi'ð að selja 93% af viðbótinni.
Eiga miðar happdrættis Háskól-
ans skv. því að seljast fyrir 40
millj. kr. á næsta ári og allt upp
í 43, 2 millj. kr., ef allt selst. Það
millj. kr. árið 1960. Vinningar
hækka að sama skapi 1 yfir 40
millj. kr.
Happdrættisár DAS er talið
frá 1. maí til 1. maí og því ekki
liðið. En forráðamenn þeSs kváð-
ust vona að brúttótekjur á happ-
drættisárinu 1960—61 yrðu um
20 millj. kr. og er hér að ofan
reiknað með þeirri tölu. Fyrir
miða hjá SIBS voru greiddar rúm
ar 16 millj. kr. á síðasta ári.
Varðandi minni happdrættin
höfum við orðið að reikna út frá
tölum frá 1957. Frú Eirika Frið-
riksdóttir, hagfræðingur, hefur
tekið saman þessar tölur fyrir
það ár vegna útreikninga hjá
Framkvæmdabankanum á út-
gjöldum neytenda á Islandi. Það
ár voru félögum veitt 55 leyfi
fyrir happdrættum (bingospil og
þessháttar innifalið) og miðar
áætlaðir til sölu fyrir 13,3 millj.
kr. Kvaðst frú Eiríka reikna með
sölu á um 60% af miðunum í sín
um skýrslum, þar eð hvergi væri
hægt að nákvæma vitneskju um
það atriði og höfum við sama
hátt á.
,Er heildartalan yfir brúttó-
greiðslu fyrir happdraettismiða
árið 1957 þá um 50,9 millj. króna,
þar af um 8 millj. kr. hjá minni
happdrættunum. Við þá tölu
bættum við svipaðri aukningu í
kr. og orðið hefur hjá stærri
happdrættunum, án þess að
reikna með fleiri happdrættis-
leyfum.
Ljósmynðarl blaðslns tók
þessa mynd í gær í portinu
hjá frystihúsi Júpiters h.f. á
Kirkjusandi. Þar eru nú um
3000 tunnur síldar og er fyrsta
söltunin þegar tilbúin til út-
flutnings. Er þar um að ræða
nokkur hundruð tunnur.
Bátarnir voru í gærkvöldi
að koma með síld frá Vest-
mannaeyjum en það er um 12
tíma si'gling og því mun að
líkum megnið af aflanum fara
í bræðslu. Reynt verður að
frysta það stærsta af síldinni
Lentu á stein-
stólpa og
slösuðust
AKUREYRI, 7. febrúair. —-
UM KLUKKAN 10,30 s.l. sunnu
dag voru 3 drengir að renna sér
á sleða á Byggðavegi hér í bæ.
Vildi þá svo til að þeir misstu
stjóm á sleðanum, og lentu á
steinstólpa sem er við veginn að
ullarverksm. Gefjun.
Sá er sat fremst á sleðanum
slapp ómeiddur en sá er var í
miðið Sigurður Hjörleifsson 11
ára hlaut slæmt opið laerbrot, á
hægra fæti, aftasti drengurinn
hlaut einnig nokkur meiðsli
Fólk verður fyrir
árás á götu
í G Æ R var 57 ára gamall
maður hér í bænum hand-
tekinn í sambandi við árás-
armál, sem kært var til rann
sóknarlögreglunnar. Um er
að ræða mjög alvarlegt mál
fyrir mann þennan, og í gær-
kvöldi var hann úrskurðað-
er talsverð aukning úr ca. 24,61 ur í gæzluvarðhald og til
geðheilbrigðisrannsóknar.
Það, sem maður þessi er
dæmdur fyrir, gerðist aðfaranótt
2. þ. m., en vegna villandi upp-
lýsinga, má segja að lögreglan
hafi ekki komizt í það fyrr en
í gærmorgun.
Hér er um árás að ræða,
sem framin var á Hverfisgöt-
unni. Hjón á svipuðum aldri
og árásarmaðurinn voru að
fylgja konu nokkurri, er ver-
ið hafði gestur þeirra, heim
til sín. Árásarmaðurinn kom
á móti þeim með eggvopn að
lofti og stökk með það að
manninum og hótaði honum
lífláti. Gat maðurinn borið af
sér stunguna, en þó fór vopn
ið í gegnum frakka og föt
mannsins og snart síðu hans,
Réðist hann gegn árásarmann
inum af hörku og grimmd og
stökkti honum á flótta.
Fólkið þekkti manninn á
augabragði, því að hér var um
Frh. á bls. 23