Morgunblaðið - 11.02.1961, Qupperneq 10
10
MORGl’NBLAÐIÐ
Laugardagur 11. febrúar 1961
— LYFTA! STOPP! 13 telp-
ur í þröngum balletbuxum og
tveir drengir tóku sér hvíld-
arstöðu. Kennarinn, nýi ball-
etmeisarinn í balletskóla Þjóð
leikhússins, Veit Bethke, ktnn
til okkar blaðamanns og ljós-
myndara frá Mbl.
— Eru strákar í svona mikl-
um minnihluta í öllum skól-
anum? var fyrsta spurningin,
sem lögð var fyrir hann.
— Já, satt að segja eru um
200 nemendur hér — álíka
margir og í Saldler Wells ball
etskólanum — og þar af eru
aðeins 8 drengir á aldrinum
9—14 ára. Þetta er heilmikið
vandamál, því ekki er hægt
að uppfæra neinn ballet nema
hafa bæði karlmenn og kven-
félk í dansflokknum. I erlend-
um balletskólum eru venju-
ega álíka margir drengir og
telpur. E. t. v. er ástæðan fyr-
ir þessu sú, að það er ennþá
meira knýjandi fyrir karl-
menn að geta með starfi sínu
unnið sér a. m. k. fyrir brauði
og smjöri og helzt ofurlítlu af
ávaxtamauki ofan á. Hér eru
dansararnir ekki á launum,
sem kunnugt er, nema hvað
þeir fá ofurlítið greitt fyrir
sýningar. Þetta er því í raun-
inni ekki balletflokkur sem
slíkur, heldur hópur af áhuga
dönsurum með hæfileika.
Af um 200 nemendum ballettskólans eru aðeins 8 drengir. Hér sést Bethke ballettmeistari að
leiðbeina einum þeirra.
DRAMATÍSKUR BALLET
HENTAR SVO LITLUM
'FLOKKI
— Sögðuð þér að nemend-
urnir hjá Saldler Wells væru
ekki fleiri en í Þjóðleikhús-
skólanum?
— Nei, en þar eru kennar-
arnir 15 að tölu. Eg var satt
að segja undrandi að sjá hve
margir nemendur eru hér, það
ber vott um mikinn dans-
áhuga, og ég þykist hafa séð
hæfileika hjá ýmsum þeirra.
Undirstaðan er því til staðar,
en hve langt áhuginn nær,
get ég auðvitað ekkert sagt
um, enda aðeins búinn að vera
hér í 3 vikur. Til að koma upp
íslenzkum ballet þurfa dans-
arnir að leggja mikið á sig og
flokkurinn að njóta heilmikils
stuðnings frá stjórnarvöldun-
um eða einhverjum öðrum að-
ila. Balletflokkur kostar mik-
ið fé. T. d. þarf talsverða pen-
inga í launagreiðslur handa
20 dönsurum, sem fá kennslu
á morgnana, æfa sig daglega
og dansa á sýningum, til
kaupa á sýningarbúningum,
fyrir launum píanóleikara,
helzt tveggja o. s. frv. Og
flokkurinn verður að vera í
áframhaldandi þjálfun meiri
hlutann af árinu. Og þá vakn-
ar þessi spurning: — Hvaðan
eiga peningarnir að koma?
Dansflokkar hafa menningar-
gildi og geysimikið kynningar
gildi fyrir hvert land, því
dansinn er alþjóðlegt mál, sem
alls staðar skilst.
ið þér að henti okkur bezt
hér?
— Og hvers konar dans hald
— Fyrir lítinn flokk er
dramatískur ballet aðgengi-
legastur. Erfðavenjur gefa
slíkum ballet gildi, fólkið
þekkir frásögnina og lærir lög-
in, og svo veitir það dönsur-
unum þjálfun þangað til þeir
geta ráðizt í stærri verk.
Dramatískur ballet er líka
désamlegur, ef hann er vel
upp færður. En þar þurfa Is-
lendingar sjálfir að koma til
og skapa sína dansa. Þegar
flokkurinn hefir fengið ein-
hverja ákveðna línu, er hann
tilbúinn til að taka við áhrif-
um að utan, jafnvel þó þau
séu sín úr hverri áttinni.
FJÖLBREYTTUR
DANSFERILL
Talið berst nú að dansar-
anum sjálfum. Það er ekki
auðveit að segja með einu orði
hverr ar þjóðar hann er. Hann
er ræddur í Þýzkalandi, alinn
að mestu upp í Sviss og er
brezkur ríkisborgari.
Dansferill hans er álíka fjöl-
breyttur. Hann byrjaði að
dansa klassiskan ballet í
Berlin og Múnchen, fór eftir
stríð til Stokkhókns og dans-
aði þar í Malmö Og hafði um
hríð eigin balletskóla í Osló.
Síðan gerðist hann dansari við
Metropolitan ballettinn í Eng-
landi os feraaði-st með honum.
ir tveimur árum tók hann að
fást við kvikmyndagerð.
ÞOTUÖLD I DANSI
— Það er ákaflega skemmti
legt viðfangsefni, því það er
eitthvað alveg nýtt, segir
hann. SAS vildi gera kvik-
mynd um þotuöldina og ég var
fenginn sem balletmeistari til
að sýna viðfangséfnið í dansi
og fékk allfrjálsar hendur. Eg
réði svo 35 dansara víðsvegar
að, jafnvel grænlenzkan og
indverskan, sem allir þurftu
að hafa þjálfun í klassiskum
baliet og moderne dansi.
Myndin heitir „Jet“ og tekur
hálftíma að sýna hana. Hún
hefst á tímum Leonardos da
Vinci og er haldið áfram fram
á okkar daga, þegar manninn
er farið að langa til að fljúga
um geiminn. Einnig sýnum
við með danshreyfingum
hvernig þotuvélin knýr flug-
vélina áfram og loks er reynt
að túlka hvernig þotuöldin
færir alla íbúa jarðarinnar
hvern nær öðrum. Myndin
var gerð 5 Svíþjóð, Frakk-
landi, Englandi og Bandaríkj
unum og það tók eitt ár. Nú
er verið að sýna hana víða og
á sl. ári hlaut hún verðlaun
á kvikmyndahátíðinni í San
Francisco.
— Ætlið þér að halda áfram
að vinna að kvikmyndagerð?
— Ég vildi það gjarnan. En
kvikmynd kostar mikið fé.
Það stóð til að gerðar yrðu
segir nýi balletmeistar-
inn í Þjóðleikhúsinu
Þá sneri hann sér að .dans og
söngleikjum, dansaði í Okla-
homa, Annie get your gun,
Paint your Wagon, sem er eft-
ir sömu höfunda og My Fair
Lady, sem nú er svo vinsælt.
— Þessháttar dans getur verið
mjög skemmtilegur, ef unnið
er af alvöru og eins vel og á
þessum stóru söngleikjasýn-
ingum. En þó kýs ég helzt
dramatískan ballet, segir
hann. Enda sneri hann sér
aftur að klassískum ballet og
hefur dansað hlutverk í flest-
um hinna stóru þekktu ballet-
verka síðan. Jafnframt hefur
hann útbúið sýningar fyrir
sjónvarpið í Englandi, og fyr-
slíkar kvikmyndir fyrir
sænska sjónvarpið, en nú er
það búið að vera. Einnig höfðu
bandarískir aðilar áhuga á
því, en maður veit aldrei hvað
úr verður.
Að lokum spurðum við
balletmeistarann hvað hann
hyggðist fyrir með íslenzka
flokkinn, hvort fyrirhugaðar
væru nokkrar sýningar á þess
um vetri. Hann gaf lítil svör
við því, talaði um að sjá hvað
hægt væri að gera fram að
páskum, en hafði þó á orði að
balletflokkurinn mundi e. t. v.
dansa í söngleik á Þjóðleik-
húsinu í vor og svo halda nem
endasýningu. — E. Pá.
Árni G. Eylands skrifar
Mikið gróðursett
ins 50% af kostnaði, en hrepp-
arnir leggja fram 25%, svo
greiða landeigendur það sem á
vantar. í Norður-Noregi er fram
lag ríkisins 75% af kostnaði, en
í hinum eiginlegu skógarsveit-
um er ríkisframlagið ekki nema
Á UMLIÐNU ári voru alls gróð-
ursettar um 103 millj. trjá-
platna í Noregi. Það er talið
svara til að fullplantað hafi ver-
ið í um 30.000 ha. Þetta er met,
árið 1957 voru gróðursettar 88
millj. plantna, er það hið næst
mesta á einu ári.
Mestur var skriðurinn á gróð-
ursetningunni í sjávarsveitunum
skógsnauðu meðfram vestur-
ströndinni, þar var komizt um
50% fram úr áætlun. Alls voru
gróðursettar í þeim sveitum um
43 millj. plantna og þannig full-
plantaðir um 12500 ha., í stað
8200 ha. sem áætlað var.
Sérstök ástæða er til að minn
ast á Nordland-fylki og trjáplönt
unina þar. Suðurmörk fylkisins
eru um það bil eins og sveit-
irnar á Snæfellsnesi norðan-
verðu, en norðurmörkin ná
langt, langt norður fyrir ísland
eða á 69. gráðu norðlægrar br.
Norðurtær íslands eru mun
sunnar en miðsveitir Nordlands-
fylkis. Stærð fylkisins er 38325
ferkm. og tala íbúa um 230 þús.
Stærstu bæir eru Norvík með
rúml. 12 þús. íbúa og Bodö með
um 9500 íbúa, svo að mest er
hér um að ræða smáþorp og
fiskiver, og svo bændabyggðir.
Ræktað land í fylkinu var 1956
talið vera tæplega 51 þús. ha,
en land „innan túngarða“ alls
um 70800 ha.
í fyrra voru alls gróðursettar
um 12 millj. trjáplöntur í fylk-
inu, og er það 30—40% meira
en árið áður.
í ár reikna ráðamenn, að
gróðursetning trjáplantna í Nor-
egi komist upp í um 130 millj.
plöntur, en annars er stefnt að
því sem fyrsta marki að plöntu-
framleiðsla og gróðursetning
komist bráðlega upp í 150 millj.
í um 70 gróðrarstöðvum og hjá
um 130 mönnum sem stunda
plöntuuppeldi „samkvæmt samn
ingum“ (kontraktdyrkere) er nú
ræktaðar plöntur sem nema því
að handbærar verði á vori kom-
anda um 90 millj. plantna og
undir haustið um 40 millj. í
viðbót. Alls er talið að nú séu
í uppeldi um 800 millj. trjá-
plantna.
Framlög til skógræktar eru
nokkuð mismunandi eftir lands-
hlutum. Á Vesturlandinu og í
Þrændalögum er framlag ríkis-
20%.
Eins og sjá má af tölunum
hér að ofan er framleiðsla trjá-
plantna í gróðrarstöðvunum að
meðaltali um 1,85 millj. plantna
í hverri stöð, þó að frádregnu
því sem einstakir menn ala upp
„samkvæmt samningi“, sem þó
langoftast er á vegum einhverr-
ar ' gróðrarstöðvar. Það þykir
yfirleitt ekki borga sig að fást
við uppeldi trjáplantna af fræi
nema að það nemi svo miklu
að árleg afgreiðsla frá stöðinni
geti numið um 2 millj. plantna
eða meira. Á stöku stað er þetta
þó minna — aðeins 1—2 millj.
plantna, og svo eru alltaf áföll
vegna veðurfars sem skerða
framleiðsluna hér og þar í ein-
stökum árum. En heildarstefn-
an er sem sagt: mikil fram-
leiðsla á hverjum stað, með
kunnáttu og æfðum starfskröft-
um, með því móti fást beztar
plöntur ’ og ódýrastar.
5. janúar 1961
Á. G. E.
Hátíðisdagur Orators
HINN 16. febrúar n.k. mun Ora-
tor, félag laganema, halda hinn
árlega hátíðisdag sinn. Félagið
hefur undanfarin ár haldið hátíð
á stofndegi hæstaréttar 16. febr.
og verður hátíðisdagurinn í ár
óvenju glæsilegur og fjölbreytt
ur.
Hátíðin hefst kl. 10 f.h. í Há
skólanum með fyrirlestri Jó.
hanns Hafstein, forseta neðri
deildar Alþingis, um lögfræð-
Ekki í Osló
•
OSLÓ, Neregi, 7. febr. (Reuter)
Tilkynnt var af opinberri hálfu
í dag að þess hefði ekki verið
farið á leit við norsku stjórnina,
að fundur Atlantshafsbandalags-
ins yrði haldinn í Noregi í maí
n. k.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Rusk, sagði í
Washington í gærkveldi, að nú
væri í athugun að Kennedy for
seti, kæmi til fundar bandalags-
ins í Osló í maí. En opinberir
aðilar skýrðu frá því hér, að jafn-
vel þótt þess yrði farið á leit að
fundurinn yrði haldinn í Osló
yrðu Norðmenn að neita því, sak
ir gistihúsaskorts og ónógra
möguleika til öryggisþjónustu.
inga og leikmenn við löggjöf
og undirbúning mála á Alþingi.
Kl. 13,30 mun háskólarektor,
prófessor Ármann Snævar af-
henda laganemum herbergi, búið
glæsilegum húsgögnum, sem
Orator fær til starfsemi sinnar
í háskólanum.
Að þeirri athöfn lokinni verð
ur settur réttur í bæjarþingj
Orators og tekið fyrir bæjar-
þingsmálið Nr 1/1961.
Eftir málaferlin verður ekið til
Sendiráðs Bandaríkjanna og þar
munu laganemar hlýða á fyrir
lestur um starfsemi sendiráða,
skoða húsakynni sendiráðsins og
Upplýsingaþ j ónustu Bandaríkj -
anna og hlýða síðan á fyrirlest
ur sendiherrans Hr. Thompsons
um diplomatisk samskifti þjóða.
Kl. 19,30 verður svo vegleg
ur fagnaður í Þjóðleikhúskjall
aranum. Hefst fagnaðurinn með
sameiginlegu borðhaldi, síðan
stiginn dans til kl. 3 að morgni.
Laganemar og ungir lögfræff-
'.ingar eru hvattir til þess aff
sækja hátíðina og gera hana sem
glæsilegasta.
Væntanlegum þátttakendum f
fagnaðinum er bent á að snúa,
sér til stjórnarmanna, að öffru
leyti verffa miðar seldir í Há-
skólanum.