Morgunblaðið - 12.02.1961, Síða 5
Sunnudagur 12. febröar 1961
MORGUWRLAÐ1Ð
5
Vill ekki giftast feitum og sköll-
óttum manni
FYRIR skömmu fékk veit-
ingahúsið Lídó þrjá nýja
skemmtikrafta, sem að
undanförnu hafa skemmt
þar. Er þetta spánskt
danstríó, tvær stúlkur og
piltur, sem nefnir sig
„Trio Capricho Espanol“.
Öll eru þau mjög ung, pilt
urinn tvítugrur, en stúlk-
urnar 18 og 19 ára. —
Blaðamönnum var boðið
að sjá þetta unga listafólk
skemmta.
Þessi skemmtilegu dansend-
ur sýndu spánska dansa af
mikilli leikni svo að unun er
á að horfa. Fjör þeirra er að-
dáunarvert og leikni þeirra og
þokki mikill. Dansarnir segja
allir einhverja sögu, sem sýnd
er með látbragði en undir-
hljómurinn taktfastir og leift-
urfimir fótaskellir, sem bland-
ast skellum kastanettanna, er
þau nota óspart.
Fyrsti dans þeirra er frá
Granada og sýnir sígaunahjón,
sem tjá hvort öðru ást sína.
Síðan kemur ljóshærð aðals-
mær, sem vill heilla eigin-
manninn og tekst það um sinn.
En hún kann aðeins að syngja,
ekki að dansa og það gerir
gæfumuninn. Endirinn verður
sá, að hún verður að víkja en
hjónin halda áfram dansi sín-
um.
Eftir sýninguna gafst okkur
tækifæri til þess að ræða við
þetta viðkunnanlega unga fólk
skamma stund. Túlkur talaði
á milli, því Spánverjarnir
skilja ekkert nema spönsku.
Ungi maðurinn heitir Juan
Soriano og er frá Valencia,
ljóshærða stúlkan heitir Pep-
ita Fernandez og er frá Se-
villa, hin dökkhærða heitir
Curra Montes og er frá Mad-
rid.
Fyrir 10 ánum síðan byrjuðu
þau dansnám í Madrid, en sl.
6 áir hafa þau ferðast víða og
skemmt.
Þau láta vel yfir móttökum
íslendinga, sem þau bjuggust
við að taka myndu sér fremur
dauflega. Hér munu þau
skemmta til 1. marz, en þá
fara þau tii London. Hingað
komu þau beint frá Madrid.
Við fregnum að Pepita og
Juan séu gift og raunar sé
þessi för þeirra hingað til ís-
lands eins konar brúðkaups-
ferð. Við spyrjum hann hvers
vegna hann hafi valið sér Ijós-
hærða konu. Hann segist dást
að grönnum og ljóshærðum
konum.
Við spyrjum Curra hvort
hún sé í nokkrum giftingar-
hugleiðingum. Hún segir svo
vera, vildi gjarnan ná sér i
mann hér á íslandi.
Þegar hún er spurð hvernig
hann eigi helzt að lita út, seg-
ist hún ekki vita það íyrir
víst.
— En hann á ekki að vera
stór og sköllóttur eins og blaða
maðurinn þarna, segir hún og
bendir á einn af oss.
Pepita afhendir hertogahjónunu m af Windsor blómvendi.
Sunnudaglnn 5. þ.m. voru gef-
!n saman í hjónaband í Dómkirkj
tinni af séra Óskari J. Þorlákssyni
ungfrú Dóra Skúladóttir, blaða-
maður og Þorvarður Brynjólfs-
son, bankastarfsmaður. — Heim-
ili þeirra er að Austurbrún 2.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Kristrún Kjartans, Grett-
isgötu 6 og Aðalbjörn Þór Kjart-
ansson, Grettisgötu 90. Tilkynn-
ing þessi er birt aftur vegna mis-
ritunar í gær og eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á því.
Stína litla kom ekki í skólann,
en skrifaði þetta bréf:
— Eg gat ekki komið í morg-
un vegna þess að það fjölgaði
heima hjá okkur, en það var
samt ekki mér að kenna.
★
Mamma hafði sent Kalla til
frænku sinnar svo að hann skyldi
leika sér við drengina hennar.
Hann kom að vörmu spori aftur
og mamma vildi fá að vita hvern-
ig á því stæði.
— Mér fannst hún frænka ekki
vilja hafa mig, sagði Kalli.
— Sagði hún það?
— Ónei, ekki sagði hún það,
en hún fleygði mér út og skelti
hurðinni í lás.
Það er skömm skeggi, ef haka ein
hlýtur að danza.
Það er einum skemmtan, sem öðrum
er angur.
Eftir er sporður, þótt af sé höfuð.
Frjáls er spökum spurnin.
Úlfur er svína sættir.
Engi af úlfi bitinn er að vargi orðinn.
Ei kemur allt óskatt af úlfs munni,
sem í kemur.
Úlfur breytir hárum en ei háttum.
Úlfur fæðist af ylgi jafnan.
ííslenzkir málshættir).
— Já, en góða mín, ef maður-
inn þinn gefur þér allt sem þú
bendir á, þá þýðir það að þú
bendir of lítið!
★
Á daginn kafinn óðaönn
í að fá að lifa.
Stel af nóttu stuttri spönn
stundum til að skrifa.
Stephan G. Stephansson:
Vellíðanin.
Keflavík Til leigu 2 herb. og eldhús. Sími, bað. Húsgögn geta fylgt. Uppl. í síma 1811 eftir kl. 1 í aag. Reglusamur miðaldra maður óskar eftir herbergi með baði. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudag merkt: „A 1470“.
Ford - 31 Góður jeppi
til sölu og sýnis ájHlemm- óskast. Staðgreiðsla. Sími
torgi í dag frá kl. 1—3. 19029.
3 herbergi og eldhús til leigu. Tilb. merkt: „Smáíbúðahverfi — 1471“, sendist blaðinu fyrir þriðju dagskvöld. Til sölu lítið notaður Tan Sad barnavagn. Uppl. í síma 14276 milli kL 12—1.30 í dag.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Tónleikar
í Þjóðleikhúsinu n.k. þriðjudag 14. febrúar
kl. 20,30.
Stjórnandi :
BOHDAN WODICZKO
Einleikari :
HANSJANDER
EFNISSKRÁ:
RESPIGHI: ,,Fuglarnir“ svíta.
MOZART: Píanókonsert í d-Moll.
RIMSKY - KORSAKOW: Capriccio Espagnol
MORTON GOULD: Spirituals.
Aðgöngumiðasala í Þjóðieikhúsinu.
Hlutavelta
Húnvetningafélagsins er í dag í Miðstræti.
Margir sérstaklega góðir munir.
— Ekkert happdrætti —
Nefndin
Æ skulýðsvikan
Æskulýðsvika KFUM og K, Amtmannsstíg 2B, hefst
í kvöld kl. 8,30. Tveir ræðumenn hvert kvöld vikunn-
ar. Mikill söngur og hljóðfærasláttur. Einnig ein-
söngur, tvísöngur og kórsöngur. Á samkomunni í
kvöld tala Birgir Albertsson, kennari, og Gunnar Sig-
urjónsson, guðfræðíngur.
Allir velkomnir!
„Camlir Fóstbrœður"
KVÖLDSKEMMTUN fyrir félagsmenn og gesti
þeirra verður í Stork-klúbbnum (Framsóknarhús-
inu) föstudaginn 17. þ.m. kl. 8,30 síðd. Þátttaka til-
kynnist sem fyrst.
STJÓRNIN.
Hafnarfjdrður — Hafnarf jö'rður
Slysavarnadeildin Hraunprýði heldur fund þriðjud.
14. febr. kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gamanvísur — Félagsvist — Kaffi.
Konur fjölmennið. STJÓRNIN.
Kvöldvinna óskast
Ungur langhentur maður, 22ja ára, óskar eftir ein-
hverskonar aukavinnu, þrjú kvöld í viku, t. d. kl.
6—10. Er til viðtals í dag í síma 24407, kl 12—6 e.h.,
en einnig er tekið á móti skriflegum tilboðum til
n.k. miðvikudagskvölds, merkt: „Aukavinna — 1400“,