Morgunblaðið - 12.02.1961, Blaðsíða 24
Af AU ROI S
Sjá bls. 6.
Reykjavíkurbréf
Sjá blaðsíðu 13.
35. tbl. — Sunnudagur 12. febrúar 1961
Dómur í máli IVfiagn-
úsar lögregluþjóns
í G Æ R var í Sakadómi
Reykjavíkur kveðinn upp
dómur í máli, sem ákæru-
valdið höfðaði hinn 8. okt.
sl. gegn Magnúsi Guðmunds-
syni, fyrrv. lögregluþjóni,
Vesturgötu 27.
Niðurstöður dómsins eru sem
hér segir:
1) Talið er sannað, að ákærð-
ur hafi í janúarmánuði 1960 sent
Sigurjóni Sigurðssyni lögreglu-
stjóra tvö hótunarbréf, þar sem
honum var hótað lífláti. Brot
þetta er talið varða við 233. gr.
alm. hegningarlaga, en hinsveg-
ar ekki við 138. eða 139. gr. sömu
laga( brot í opinberu starfi), svo
sem krafizt hafði verið í ákæru.
2) Akærði átti skammbyssu og
skotfæri, án þess að hafa fengið
leyfi lögreglustjóra til þess að
eiga slíka hluti. Með því var á-
kærður talinn hafa brotið gegn
3 gr. reglugerðar nr. 105/1936
sbr. 1. 69/1936.
3) A dómþingi 4. apríl 1960
bar ákærður fimm lögreglumenn
þeim sökum, að þeir hefðu verið
ölvaðir við skyldustörf. Einnig
bar hann það á einn lögreglu-
mann, að hann hefði komið ölv-
aður akandi í bíl til vinhu, og
að varðstjórinn hefði látið hann
fara af vaktinni akandi í því
ástandi, að Erlingur Pálsson yfir-
lögregluþjónn hefði ekið bíl sín-
um undir áhrifum áfengis og að
Sigurjón Sigurðsson lögreglu-
stjóri æki iðulega ölvaður. L#oks
kvað ákærður tiltekinn lögreglu-
mann (Sigurjón Ingason) eiga
eða hafa átt talsverðar birgðir
af smygluðu áfengi. I þinghaldi
8. apríl hélt ákærður því fram,
að Sigurjón hefði sagt sér að
hann hefði sent lögreglustjóra
hótunarbréf.
Allar þessar sakargiftir eru
taldar rangar, enda hefur ákærð.
ur ekki rennt undir þær nein-
um stoðum. Þykir ákærður með
þeim hafa leitazt til að koma því
til leiðar, að saklausir menn yrðu
sakaðir um refsiverða verknaði,
og þannig gerzt brotlegur við 148.
gr. hegningarlaga. Hinsvegar er
hann ekki talinn hafa með þessu
gerzt sekur um brot í opinberu
starfi (brot gegn 138. eða 139.
gr. hegningarlaga), eins og kraf-
izt er í ákæru.
FRIÐRIK ÓLAFSSON er
kominn heim. Hann hafði
langa útivist að þessu sinni,
fór fyrir jól og tefldi í öllum
helztu borgum Hollands, en
í lokin tók hann þátt í litlu
skákmóti þar ytra.
Refsing ákærðs var ákveðin 3
mánaða varðhald, skilorðsbund-
ið til 3 ára. Haft er í huga að
ákærður hefur misst stöðu sína
í tilefni af málsókn þessari
Skotvopn og skötfæri voru gerð
upptæk. Þá var ákærður dæmd-
ur til að greiða sakarkostnað
þar á meðal málssóknarlaun skip
aðs sækjanda, Páls S. Pálssonar
hrL, kr. 11.000,00 og málsvarnar-
laun skipaðs verjanda, Guðlaugs
Einarssonar hdl. kr. 5000,00.
Við ákvörðun málsvarnar-
launa er tillit tekið til þess, að
verjandi hefur gert meðferð máls
ins miklu flóknari og tafsamari
en efni stóðu til, svo sem með
framlagningu þýðingarlausra
skjala og margvíslegum kröfum
um öflun gagna, málinu með
öllu óviðkomandi. Eru málsvarn
arlaun ákveðin með tilliti til
þessa og framkomu verjanda í
heild.
Níu unglingar '
fórust í snjó
Lenzerheide í Svisslandi,
11. febr. (Reuter). —
FLEIRI fórust en í fyrstu var
talið í snjóflóðinu í gær. Hafa
100 björgunarmenn unnið í
alla nótt að því að reyna að
grafa unglinga út úr snjónum.
Er nú komið í ljós, að 18 ungl-
ingar urðu fyrir snjóflóðinu.
Sex þeirra tókst að sleppa eða
halda sér ofan á snjóbylgj-
unni. Þremur var bjargað fljót
lega á eftir upp úr snjónum.
Síðan hafa átta lík verið graf
in út úr skaflinum en eitt er
enn ófundið, af 14 ára stúlku.
Krafa var gerð á hendur á-
kærðum um sviptingu kosningar
réttar og kjörgengis, en hún var
ekki tekin til greina enda kem-
ur slík réttindasvipting ekk'i til
greina þegar refsing er skilorðs-
bundin.
Friðrik tefldi v/ð
700 í Hollandi
Fréttamaður Mbl. náði tali
af Friðrik í gær. Hann var
ferðalúinn, enda hefur hann
haldið vel á spöðunum.
— Ég tefldi 18 fjöltefli 1
ferðinni, venjulega við 40
manns í senn. Þetta voru eilíf
hiaup úr einni borginni í
aðra. Samtals tefldi ég við
liðlega 700 manns og hafði
91% vinninga svo að ég uni
vel við, sagði Friðrik.
— Skákáhugi er mikill í
Hollandi, meirj en i nokkru
öðru V-Evrópulandi, enda er
skáklífið þar mjög þróttmikið.
Áður en ég kom heim tók ég
þátt í skákmóti, sem árlega
er haldið í Bieverweig. Kepp
endur voru um 100 í mörgum
flokkum. Ég varð fjórði og
læt mér það í léttu rúmi
liggja.
— Og hvað er næst?
— Millisvæðamótið í sum
ar, sennilega í Riga.
Somkomudagur
Alþingis 1961
FRUMVARP TIL laga um sam-
komudag regluíegs Alþingis 1961
var tekið til fyrstu umræðu í
Nd. Alþingis í fyrradag. í frv.
segir, að þing skuli koma saman
10. Október 1961, hafi foíseti fs
lands ekki tiltekið annan sam-
komudag fyrr á árinu.
Ölafur Thors, forsætisráðherra,
gerði grein fyrir frumvarpinu í
fáum orðum, en síðan voru hafð
ar um það þrjár umræður í Nd.
og frv. afgreitt til Ed.
Smygl í bíl
Tvær konur og karlmaður handtekinn
HJÁ sakadómaraembættinu er
hafin rannsókn á nýju smygl-
máli. í gær var rannsókn þess
svo algjörlega á byrjunarstigi,
að rannsóknardómarinn Gunn-
laugur Briem kvaðst ekki á því
stigi geta gefið neinar upplýs-
ingar málið varðandi.
★ NÆLONSOKKAR
Upphaf máls þessa er það að
yfirmanni tollgæzlunnar, Unn-
steini Beck, bárust fregnir um
það síðdegis á föstudaginn, að
leigubíll væri á ferðinni milii
bæja í Mosfellssveit, og þeir sem
í honum voru, hefðu boðið fólki
nælonsokka til kaups.
★ 960 PÖR
Farið var þá þegar á vett-
vang og billinn sem um var rætt
fannst fljótlega þar efra. Voru
í honum tvær konur og einn
karlmaður og í bílnum fundust
allmiklar birgðir af nælonsokk
um, sem báru það með sér að
þeir væru framleiddir suður á.
Ítalíu. Var fólkið handtekið og
hald lagt á alla nælonsokkana,
sem í bílnum voru. Síðar um
daginn funduzt í vörzlu fólksins
fleiri sokkapör. Alls voru það
960 pör af sokkum, sem hald
1 LISTASAFNI ríkisins 1
stendur nú yfir yfirlitssýn-
ing á verkum Gunnlaugs
Blöndal. Myndin hér að of-
an er af einu verkanna á i
sýningunni. — Ber myndin
heitið „Kona með hanzka“.
var Iagt á, allt smyglvarningur.
Eftir því sem þegar við hand-
töku mannsins kom í ljós þá mun
hann hafði að eigin sögn selt
um smyglaði inn til landsins, en.
hann hafði af eigin sögn selt
bíl, sem hann átti og hafði feng
ið a.m.k. hluta af andvirði bíls
ins borgað í þessum smygiuðu
nælonsokkum.
Hafnarfjörður
STEFNIR, félag ungra Sjálf-
stæðismanna, heldur málfund
'í Sjálfstæðishúsinu annaðl
kvöld kl. 8,30. Þar lytur Árni
Grétar Finnsson ræðu um
sjálfstæðisstefnuna.
Þvottakonan sigr-
aði innbrotsþjófinn
ÞVOTTAKONAN, SEM ræst|
ir hinn vinsæla skemmtistað
bæjarbúa, Leikhúskjallar-
um, vann það afrek snemma
í gærmorgun að handtaka
innbrotsþjóf þar í Kjallaran
um.
Þegar hún kom til ræstingar-
starfa klukkan um 8 í gærmorg-
un, mætti hún á gangi framan
við eldhús ungum manni. Hún
hafði fljótlcga áttað sig á þvi,
að hér var óboðinn gestur. Hafði
hún snarast fram og læst hurð-
um sem hún hafði opnað, er hún
kom, til þess að loka þjófinn
inni. Og hún mun einnig hafa
lesið honum pistilinn. Hafði
manninum sem er þrítugur að
aldri fallið allur ketill í eld við
reiðilestur og skammir ræsting-
ar konunnar, sem gerði lögregl-
unni strax aðvart. Var maður-
inn því vel geymdur er hún
kom á vettvang.
Varð eftir inni
Við rannsókn kom í ljós að
maðurinn hafði ekki brotizt inn
í Leikhúskjallarann, heldur
hafði hann farið þangað í fyrra-
kvöld ölvaður nokkuð, og látið
loka sig inni.
• Náði engu
Hann hugðist láta vel fara
um sig í veitingasölunum um
nóttina. Fá sér áfengi eftir
lyst og þörfum, ná sér í pen-
inga. En þetta fór allt á ann-
an veg. Hann hafði gert æðis-
gengnar tilraunir til þess að
sprengja upp hurðina að Vín-
kjallaranum, einnig að kæli-
skáp, sem áfengi er geymt í.
Er bersýnilegt af verksum-
merkjum, að maðurinn hefur
hvorki neytt svefns né matar
alla nóttina, en allt að einu:
Allir skápar héldu. Eini skáp-
urinn sem gaf sig var gos-
drykkjakælir, en maðurinn
hafði ekki haft neina lyst á
gosdrykkjum. Svo leið nóttin
og smám saman hafði runnið
af manninum, við innbrotstil-
raunina. Og svo hafði hann
snúið sér að peningakassan.
um og honum tókst að
sprengja hann upp og ná ein.
hverju af peningum, sem þó
höfðu ekki komið að neinu
gagni.
Ekkert benti til þess að mað.
urinn hefði reynt að brjótast út
úr Leikhúskjallaranum. I gær.
dag sat maðurinn í gæzluvarð.
haldi, en um það leyti sem þetta
var skrifað átti hann að mæta til
yfinheyrslu hjó xannsóknarlö'g- .
reglunni.