Morgunblaðið - 12.02.1961, Page 8

Morgunblaðið - 12.02.1961, Page 8
8 MORGVNBIAÐ1B Sunnudagur 12. febrúar 1961 Gunnar Bjarnason skólastjóri sextugur: Ungmennin eru opin fyrir réttlæti í DAG er Gunnar Bjamason skólastjóri Vélskólans í Reykja vík sextugur. Við skruppum til hans að þessu tilefni og röbbuð um við hann nokkra stund. — Já, ég hef flækst í mörgu um dagana auk skólagöngunnar og allskonar vinnu við járna- rúsl. Eg get t.d. sagt þér að þeg- ar ég var í skóla vann ég við margt á sumrum. Ég ók bíl, vann í banka, var til sjós og í sveit. Það var tvennt sem mig langaði til að verða, þegar ég var imgur, annað hvort vélaverkfræð ingur eða bóndi. Allsstaðar hef ég komizt að þeirri niðurstöðu að það er kunnáttuleysið, sem kostar okkur íslendinga mest. Það kostar okkur milljónir á ári, þótt enginn geti að sönnu reiknað það út nákvæmlega. — Við höfum hér við Vélskól amn verið að reyna að breyta kennslunni í hagrænna form. En það er ekki nóg. Okkur vantar tilfinnanlega menn sem hafa til að bera meiri menntun en vél- stjórar hafa í dag. — Ég hef lengi klifað á því að hér á landi vantaði tækni- skóla, sem lægi milli iðnskóla Og háskóla, og sem gæti veitt mönnum hagræna þekkingu og fræðilega þar að auki. Slíkur skóli mundi t.d. útskrifa vél- tæknifræðinga, raftæknifræð- inga og byggingartæknifræðinga. Þá myndu vélstjórar hljóta menntun sína í einni deild slíks skóla. — Við eigum nú hér á landi um 80 taeknifræðinga dreifða út um allt. En 'þeir hafa yfirleitt ekki næga hagnýta þekkingu, sem svarar til íslenzkra atvinnu- hátta. Við þurfum sjálfir að geta menntað sérfræðinga okkar á sviði síldarvinnslu, fiskimjöls- vinnslu og jafnvel bútækni svo eitthvað sé nefnt. Menn þessir hafa í fyrsta lagi alhliða tækni- menntun en auk þess er sér- grein þeirra á einhverju þessara sviða. Og þessa þekkingu verða þeir að hljóta hér heima, alast upp og nema við okkar atvinnu 'hætti, þekkja þarfir okkar og möguleika. Menntun við okkar hæfi verður aldrei sótt eingöngu til útlanda svo vel sé. — Þetta verða menn líka að nema ungir. Þeir þurfa að hafa lokið námi 22—24 ára og geta þá hafið starf og vinna sig síðan upp. Maður, sem búinn er að leggja í langa skólagöngu, á ef til vill fjölskyldu, verður þegar í stað að hljóta góða stöðu. Hann hefir blátt áfram ekki tíma til að vinna sig áfram. Það er at- hyglisvert að Norðmenn, Danir og Svíar hafa allir nýlega gert á því víðtæka sérfræðilega at- hugun, hver þörf er fyrir aukna tæknimenntun. Og þeir hafa kom ist að þeirri niðurstöðu að ekk ert megi til spara að allir ungl ingar hvort sem eru karlar eða konur, eigi að geta hömlulaust hlotið þá tæknimenntun, sem þeir æskja. —Hér á landi aftur á móti á enginn einasti unglingur færi á því að tæknimennta sig. — Við stöndum nú á mjög al- varlegum tímamótum. Við verð um, til þess að halda og auka efnahagslegt sjálfstæði okkar að taka tæknina í okkar þjón- ustu í mjög auknum mæli, eða dragast aftur úr og bíða óbætan legt tjón ella. Það hefir lengi verið og er enn mín skoðun að tækniframfarir á sviði fisk- vinnslu og matvælaiðnaðar sé okkar stærsta velferðarmál. Við erum þannig settir að hér á ís- landi ætti að vera stærsta fisk- vinnslustöð við Norðurhöf. En til þess að svo megi verða meg um við ekki vera hræddir við að hafa fulla samvinnu við ná-p grannaþjóðir okkar. Við eigum hér á landi að vinna fiskinn og gera hann að girnilegri vöru fyr ir markaði Evrópu og Ameríku og kannske víðar. — En til þess megum við ekki sífellt berja hausnum við stein- inn og einangra okkur. Við meg um ekki óttast samvinnu við aðr ar þjóðir í þessu efni. Við tölum í fjálglegum ræðum um erlent fjármagn til stóriðju. En það má ekki nefna erlent fjármagn eða samvinnu við aðra um fisk- vinnslu eða matvælaiðnað öðru vísi enn að vera nefndur land- ráðamaður. Ef við höfnum þeirri samvinnu er ekkert líklegra en að fram hjá okkur verið gengið og áð þá vérði of seint fyrir okkur að snúa við. — Englendingar tala nú mjög um að útbúa risastór móðurskip til þess að taka á móti og vinna fiskinn. Danir ætla að setja upp fiskmiðstöð á Grænlandi. Við vitum að með nútíma tækni er þetta allt hægt. En væri ekki hagkvæmara að hefja samvinnu við þessar þjóðir og jafnvel fleiri um að annast þetta verk hér á landi á miðju veiðisvæði Skemmíikvöld í G.T.-húsinu í kvöld kl. 8,30 ★ BERTI MÖLLER syngur _______ Vetrarstarfsnefnd þeirra þjóða sem fiskiveiðar stunda í Norðurhöfum. —Við verðum að líta til fram tíðarinnar og athuga það, að nokkur ár eru skammur tími í lífi heillar þjóðar. Skammsýni okkar má ekki verða til þess að arftakar okkar verði að horn- rekum í samskiptum þessara þjóða. — Við þurfum ekki að vinna þetta verk í einni svipan. En framkvæmdir okkar verða að miðast við áætlanir langt fram í tímann. Við flettum vart svo fréttablaði að við rekumst ekki hvervetna á álit sérfróðra manna um að framundan sé matvæla- skortur i heiminum og við höf- um einmitt ótæmandi möguleika til matvælaframleiðslu. — Við þyrftum í þessu efni ekki að byrja stærra en svo að leyfa erlendum fiskiskipum að l^ggja afla sinn hér á land. Við myndum kaupa hann af þeim, vinna hann og selja út, en skip unum mundum við.selja vistir og eldsneyti. Hugsum okkur öll fiskiðjuverin víðsvegar um land- ið, sem standa ónotuð mikinn hluta ársins, sem gætu hæglega tekið við mun meiri afla. Fiski skip langt að hafa ekkert á móti því að losa sig við litinn afla, þegar tregt er um hann, í stað þess að sigla með hann hundruð mílna. Þetta mundi efla efna- hagsafkomu fiskvinnslustöðv- anna, gera þeim fært að búa sig mun betur tæknilega og auka þannig afkastagetu þeirra. — Þessi ótti yið samvinnu við aðrar þjóðir er hreinn barna- skapur. Við íslendingar erum eins vel menntaðir og þær og því á ekki að þurfa að óttast að þær „snuði“ okkur að „snúi ó okkur“, eins og svo margir vilja halda fram. — Eins og er má kannske segja að matvælaframleiðsla okkar sé of dýr. Það þarf því að tækni búa hana betur. Til þess þarf fjármagn. Og um það eigum við óhikað að semja við aðrar þjóðir sem af slíkri framleiðslu hafa hag. Við þurfum heldur ekkert að óttast að stórauka tækni okk ar. Það sem okkur vantar hér fyrst og fremst er viiinuafl, fólk. Tækniþróun annarra þjóða kostar oft þúsundir og milljón- ir manna atvinnuna en þær fram kvæma hana samt. Hér er slíkt vandamál ekki fyrir hendi. — Nei, samkomulag og sam- vinna getur alltaf tekizt þegar fullþroska menn setjast niður og ræða málin, kryfja þau til mergj ar og leita um þau samvinnu. Eru ekki styrjaldir til komnar vegna þröngsýni og þess að menn vilja ekki leita sátta og samkomu lags? Þessi skortur á víðsýni og samkomulagsvilja má ekki verða til þess að við verðum aftur úr á efnahagssviðinu eða komumst jafnvel á kné. Hvað verður þá um þjóðarstolt okkar og sjálf stæði? — Frístundastörfin mín hafa verið margháttuð. Ég hef haft áhuga á svo mörgu og lagt hönd á svo margt. Sumt hefir bland- ast daglegum störfum, annað verið mér til gamnas og dægra- styttingar. Ég kenni eðlisfræði hér við skólann. Þetta hefir leitt mig til að grúska í ýmsu er varðar himingeiminn og atóm- vísindi og heyrir þó að nokkru til frístundaiðju. Það mætti ef til vill kalla það frístundastarf að ég stjórnaði lagningu hluta Ljósa fosslínunnar eða að ég endur- skipulagði fiskverkunarhús Har- aldar Bövarssonar hvorttveggja að sumri til. Slík verk eru ekki síður til skemmtunar en hags. — Já veitt hef ég nokkuð lax. Var allgóður við það framan af, en er nú að letjast með aldrin- um. Ég hafði líka mikinn áhuga á leikstarfsemi og fékkst lengi við hana. Ég vann mikið að því að endurvekja Menntaskólaleik- ina. — Ég hef verið ákaflega hepp- inn með allt sem ég hef lagt hönd að, því mér hefir alltaf íþótt gaman að öllu sem ég hef gert um dagana. Kennsla hefir verið mér yndi. Og það gr mín reynsla að það sé mjög auðvelt að komast af við ungt fólk, ef rétt er að því farið, því ungmenn- in erú mörg opin fyrir öllu rétt- læti. ★ Hér látum við þessu stutta rabbi við Gunnar Bjarnason skólastjóra lokið, en að síðustu viljum við kynna hann nokkru nánar og rekja í stórum drátt- um æviferil hans. Gunnar Bjarnason er fæddur í hjarta Reykjavíkur eða þar sem nú stendur verzlunarhús Geysis. Hann er sonur Nicolai Bjarnason og önnu Emiliu fædd Thorsteinsson- Ættarnafn Gunn- ar er upphaflega Bjarnesen og • síðar Bjarnasen, en afi föður hans fluttist frá Skagaströnd til Vestmannaeyja. Fengust forfeð- ur hans við verzlunarstörf. Gunnar gekk í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist sem stúdent úr máladeild 1921, en. tók síðan aukapróf úr stærð- fræðideild 1922, en þá var hún sérdeild í fyrsta sinn. Síðan sigldi Gunnar til Kaupmanna- hafnar og ætlaðí að nema véia- verkfræði, og tók að stunda verk legt nám hjá Burmeister og Wain. Eftir ársdvöl þar tók hann skæða veiki og lá milli heims og helju í 9 mánuði. Er hann var kominn á ról fór hann aftur heim til íslands 1928 og var í Ferjukoti þar til hann hafði nokkurn veginn náð heilsunni aftur, en þar hafði hann verið í sveit sem ^trákur. Siðan tók hann að vinna við almenna járn- smíði og uppsetningu véla. Var hann síðan hvattur til að sigia á ný og ná sér í réttindi. Fór hann því til Þýzkalands og gekk á véltækniskóla í Mittweida í Saxen. Þaðan kom hann heim að loknu námi 1930. Næsta áratug vann hann við vélsmíðar og járnsmíðar víðsvegar um land, setti meðal annars upp vélar í Dagverðareyrarverksmiðjuna og hafði eftirlit með uppsetningu síldarverksmiðjunnar á Seyðis- firði. Á styrjaldarárunum fékkst hann við byggingarframkvæmd- ir. Árið 1945 gerðist hann kenn- ari við Vélskólann í Reykjavík og 1955 varð hann skólastjóri þar. Árið 1932 kvæntist Gunnar önnu Jónsdóttur prests. Árna- sonar á Bíldudal. Eiga þau tvö börn. Heimili þeirra er rómað fyrir fegurð og gestrisni og er ekki að efa að hugur margra mun hvarfla þangað á þessum tíma- mótum húsbóndans. vig. aMKI:: 1926 35 ára LANDSMÁLAFÉ LAGIÐ VÖRÐL'R AFMÆLISF AGNAÐU verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 20,30. - FJÖLBREYTT DAGSSKRÁ - ÁVÖRP — SKEMMTIATRIÐI — DANS — HÚSIÐ OPNAÐ KL. 20,30 1961 Aðgöngumiðar verða afhentir í skrifstofu Sjálf stæðisPokksins í dag kl. 2—4.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.