Morgunblaðið - 12.02.1961, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 12. febrúar 1961
x
Myrkraverk
2 eftir Beveriey Cross
í þýðíngiL Bjarna Arngrímssonar
Án þess að hugsa mig um,
hljóp ég með þeim. Á hægri
hönd mér hljóp dökkhærður
maður í beltisfrakka, með fána-
stöng, sem hann virtist hafa þrif-
ið upp af götunni. Andlit hans
var djöfullegt, afmyndað og ná-
fölt af reiði. Hann hélt stál-
bryddri fánastönginni eins og
byssusting og stefndi beint á lög-
reglusveitina, er barðist með
hnefum og riffilskeftum með
bakið upp við vagn sinn. Ég
hljóp með bonum. Feitt, grátt
andlit birtist fyrir framan mig.
Undir svörtum stálhjálmi glitti í
grísaraugu. Maðurinn sveiflaði
rifflinum eins og sleggju til að
keyra skeftið í andlit mér, en
banjóið skall á vanga hans rétt
neðan við hjálminn. Ég heyrði
bresti í beini og strengirnir
'hljómuðu annarlega, þegar þeir
strukust við hökuband hans.
„Bravo, jeune homme“, æpti
félagi minn með stinginn, um
leið og hann rak hann illsku-
lega ákaft í hálsinn á borða-
skreyttum liðþjálfa og barði
honum við vagninn.
„Bravo, jeune homme“.
Augnabliki síðar var öllu lok-
ið. Litli hópurinn lá flatúr í
götunni við hlið vagnsins. Þeir
höfðu greitt fyrir heimsku hins
unga félaga síns, sem hafði
misst stjóm á sér við að sjá
nokkra regnskelfda Alsírmenn
'hlaupá í skjól. Sundurlamihn
líkami hans húkti milli drengs-
ins og eins af mótorhjólalögregl-
unni, er lá og stundi undir farar-
tæki sínu, í polli af blóði og olíu.
Öllu var lokið. Okkur svimaði
og við stóðum á öndinni eins og
hlauparar eftir langt hlaup. Við
tókum ekki eftir vælinu í lög-
regluflautum og sírenum bif-
reiða þeirra. Önnur mínúta leið
og allar göturnar að staðnum
fylltust lögreglu og þjóðverði.
Þrír fangavagnar lokuðu aðal-
götunni og keðja af vopnuðum
mönnum lokaði götunum þrem-
ur er lágu til norðurs og vesturs.
Alsírmennirnir biðu og drúptu
höfði, eins og þeir skömmuðust
sín. Ég fann að einhver togaði
í ermi mína, leit við, og sá vopna
bróður minn.
„Viens, jeune homme“, sagði
hann og benti á þrjá menn, vopn
aða rifflum. sem stefndu að okk-
ur yfir gatnamótin.
Ég hikaði augnablik. Reiði mín
var horfin og nú sá ég skyndi-
lega, hversu viðbjóðslegur |Og
heimskulegur atburðurinn var.
Ég ættí að hafa verið kyrr, en
ég var hræddur eins og barn við
stóra lögreglumanninn með kylf-
una. Ég ákvað að fylgja félaga
mínum og elti hann um- leið og
hann hljóp bak við lögreglubíl-
inn og hentist upp einu mann-
lausu götuna. Við fyrstu sýn virt
ist hún óravegur af auðri stein-
lagningu, glampandi í birtunni
frá götuljósunum og hvergi skjól
til hliðanna. En ég fylgdi. Úr
því ég hafði ákveðið að hlaupa,
sá ég enga aðra leið til að
sleppa. Ein af riffilskyttunum sá
okkur fara, en við vorum komn-
ir um það bil 100 metra frá
vagninum, áður en ég heyrði
trampið í stígvélum þeirra og
ópið „Arrétez!"
LéttsaStað dilkðkjöt
FYRIR SPRENGJUDAG
Gulrófur — Gulrætur — Gular baunir
Kjotbúðin Bræðraborg,
Bræðraborgarstíg 16
Okkur vantar
Vélsefjara og
pressumann
Talið við verkstjórana.
ísafoldarprenlsmitlja h.f.
Félagi minn fór nú að hlaupa
í krókum og beygði sig. Ég
hermdi eftir honum um leið og
riffilskothríð mölvaði glugga til
vinstri við okkúr og hvínandi
kúla endurkastaðist af Ijósa-
staur. Félagi minn henti frá sér
stingnum og beygði skyndilega
í átt að hálfföldum stíg. Ný
skothríð gaus upp á bak við
okkur, og ég fann skyndilega
brennandi sársauka í fætinum.
Ég reyndi að hlaupa áfram, en
fóturinn neitaði að hlýða og ég
datt á annað hnéð, bölvandi af
sársauka. Maðurinn sneri sér við,
hikaði, tók síðan í kraga mér
og dró mig fyrir hornið og inn
á stíginn. Lítill Renault stóð
framan við fyrstu dyrnar. Öku-
maðurinn, í stuttermaðri skyrtu
og víðum stuttbuxum, hímdi
taugaóstyrkur við vegginn. Fé-
lagi minn fór að troða mér í
aftursætið á bílnum. Eigandinn
kallaði og ég fann mjúka hönd
hans á öxl mér. Hann var sleg-
inn aftur á bak inn í gegnum
opnar dyrnar. Feitir leggir hans
héngu yfir þröskuldinn. Ég
heyrði fótatakið færast nær. En
áður en þeir komust fyrir horn-
ið fór bíllinn af stað og skauzt
upp stíginn með miklum drun-
um og var brátt horfinn.
„Hafðu auga með þeim gegn-
um afturgluggann“, hreytti björg
unarmaður minn út úr sér.
,Kallaðu ef einhver eltir“. Hann
skyrpti orðunum út úr sér.
Reyndu að binda um fótinn á
þér með þessu‘0, og hann rétti
mér vasaklút.
Ég gerði mitt bezta, starði
gegnum gluggann og fálmaði
urn fótinn til að reyna að stöðva
blóðrásina.
„Kennir þig til?“ spurði hann.
Ca va, v — ekki alvarlegt,
ég held rétt komið við
mig“.
J li. alefli að vera
jr og félagi minn, en
C _ki dulið skjálftann í
; mi. Satt að segja var ég
s._ ar nú, þegar æðið var
horfið. Árás er eðlishvöt.
Eins og Norður-Afríkumennirnir
skammaðist ég mín og var
hræddui; við það, sem hafði ver-
ið gert, og ennþá hræddari en
þeir við afleiðingarnar. Dreng-
urinn í rennusteininum skipti
ekki máli lengur. Ég vildi að-
eins komast burtu.
„Hvað varst þú að gera í bar-
daganum?“ spurði hann. Við
þræddum hliðargöturnar suð-
vestur á bóginn, í áttina að Pont
Mirabeau. Ég sagði frá drengn-
um og hann virtist mér sam-
þykkur.
„Varst þú í kröfugöngunni? “
spurði ég og mundi eftir fánan-
um.
„Nei, nei, áhorfandi1*.
„Hvers vegna gerðist þú þátt-
takandi?“
Hann yppti öxlum: „Je n’aime
pas les flics. Og ég hata heimsku
og ofbeldi í öllum myndum", var
það eina sem ég gat fengið út
úr honum, en ég dáðist að hon-
um fyrir það á sama hátt og ég
dáðist að rósemi hans nú. Hefði
dauði drengsins ekki komið við
mig, hefði ég látið mér nægja
að horfa á og lýsa yfir vanþókn-
un minni. En þessi maður virtist
hafa gerzt þátttakandi vegna
réttlætishugsjónar sinnar. Ég
dáðist að því.
Okkur tókst að komast yfir
brúna og héldum góðan spöl til
vesturs áður en við beygðum
framhjá Neuilly og héldum til
baka í áttina til Champerret
gegnum norðvestur úthverfin.
Rólegra var á götunum og lög-
reglumenn færri.
Við stönzuðum framan við
þokkalega íbúðarbyggingu milli
Levallois og Avenue des Ternes.
„Ég ætla að skilja hér við þig
og aka bílnum til baka niður
götuna, unz ég finn mannþröng.
Þá skil ég við hann og kem beint
til baka. Hringdu bjöllunni ofan-
frá og einhver kemur og hjálpar
þér innfyrir. Segðu að Lucien
komi aftur eftir fimm mínútur".
Ég mótmælti ekki. Á sama hátt
og ég hafði hlýtt fyrstu skipun
hans að hlaupa, hlýddi ég honum
nú. Ég taldi sjálfum mér trú
um, að ég væri forvitinn en í
raun og veru var ég tilneyddur.
Auk þess var ég illa á mig kom-
inn og þarfnaðist hjálpar.
„Geturðu gengið?“ spurði
hann.
„Það tekst", svaraði ég og
dróst yfir gangstéttina í átt til
dyranna.
Um leið og hann ók burtu,
lyfti hann hendinni í kveðju-
skyni: „Bonne, chance, jeune
homme“ kallaði hann og ég
reyndi að veifa í svarskyni með
blóði drifinni hendi. Skugga bar
á ándlit hans, en hann brosti
eins og hann vildi uppörva mig.
,Bonne, ohance .... vel af sér
vikið!“
3
Ég hallaði mér upp að stein-
veggnum og leitaði að þriðja
bjölluhnappnum eins og hann
hafði sagt mér. Neðan við hnapp-
inn var spjald með snoturri á-
letrun, en svo smágerð var skrift
in að ég varð að kveikja á eld
spýtu til að geta lesið hana. Á
því voru tvö nöfn. Lucien
Carnac og Francoise Ducis. Eft-
ir seinna nafninu var punktalína
og orðin: artiste peintre.
Eg hringdi aftur og dyrnar
opnuðúst. Úr skugganum heyrði
ég kvenrödd, er hvíslaði lágt:
„Hvað viltu?"
,Hann sagði, að hann kæmi
eftir 5 mínútur . . . Lucien sagði
það . . . Eg hef meitt mig í
fótinn".
Eg sýndi henni blóðið á hönd
um mínum og hún dró mig
inn í steinlagðan húsagarð. Hún
leit ekki á mig en hélt beint
fram hjá myrkvuðum dyrum hús
varðarins og upp dauft lýstan
stigann. Hún var grönn vexti
og var í víðu pilsi og stífum
undirpilsum, sem þaut og skrjáf
aði í, þegar hún hreyfði sig.
Hælar hennar glumdu á berum
stigaþrepunum og ég staulaðist
á eftir. Banjóið barðist við mig
í hverju skrefi.
„Réttu mér höndina", hvisl-
aði hún og greip svalri hendi
um heita, blóðuga fingur mína.
Hár hennar snerti andlit mitt og
ilmurinn af henni var ferskur
og hreinn.
Á skörinni voru dyrnar opn-
ar og við gengum inn í kyrrláta,
L
COME ON, ANDY...
LET'S SEE WHAT
THOSE WOLVES
' ARE FIGHTING
A OVER/
AS MARK AND ANDY MOVE
SILENTLY TOWARD THE
WINDFALL, THE WOLVES
RUSH MA-HEEN-GUN
And THOUGH THE
GREAT DOG'S TEETH
SELDOM MISS THEIR
TARGET, THE OVER-
WHELMING STRENGTH
OF THE PACK SOON
BRINGS HIM TO EARTH
— Komdu Andy, við skulum gá
út af hveriu úlfarnir eru að bít-
Og meðan Markús og Andy
læðast varlega að fallna tréinu,
Og þótt vígtennur hundsins missi
sjaldan marks, fær úlfahÓDurinn
ast.
ráðast úlfarnir gegn hundinum.
fljótt yfirtökin.
hlýja, vel-upplýsta vinnustofu
listamanns. Hún studdi mig í
armstól með háu baki, lagði fót
inn á mér upp á málarastól og
byrjaði að skoða sárið.
SHUtvarpiö
Sunnudagur 12. febrúai
8,30 Fjörleg músík í morgunsárið.
9.00 ^réttir.
9.10 Veðurfregnir.
9.20 Vikan framundan.
9.35 Morguntónleikar:
a) Kóral nr. 1 í Es-dúr eftir Césai*
Franck (Fernando Germani
leikur á orgel).
b) Dietrich Fischer-Dieskau syng
ur lög eftir Schumann við ljóð
eftir Heine, þ. á. m. Lieder-
kress op. 24.
c) Píanókonsert nr. 1 í e-moll op.
11 eftir Chopin (Friedrich
Gulda og Fílharmoníusveitin í
Lundúnum leika; Sir Adrian
Boult stjórnar).
11.00 Messa í Fossvogskirkju (Prestur:
Séra Gunnar Árnason. Organleik
ari: Jón G. Þórarinsson).
12.15 Hádegisútvarp.
13.15 Erindi: Vísindin og Guð (Séra
Pétur Magnússon).
14.00 Miðdegistónleikar:
a) Slavnesk messa fyrir einsöngv*
ara, kór, orgel og hljómsveit
eftir Leos Janácek (Tékkneskif
listamenn flytja; Bretislav BalC
ala stjórnar).
b) Sinfónía nr. 5 í d-moll op.
47 eftir Sjostakovitsj (Sinfóníu
hljómsveitin í Leningrad leik«
ur; Evgenij Mravinskij stj.).
15.30 Kaffitíminn: — (16.00 Veðurfr.).
a) Magnús Pétursson og félagar
hans leika^
b) Öperettulög eftir Paul Abra«
ham og Nico Dostal.
16.35 Endurtekið leikrit: „Gestir herra
Birowskis'* eftir Gúnther Eich.
(Áður útv. 8. ókt. sl.). Þýðandi:
Ingibjörg Stephensen. Leikstjóri:
Lárus Pálsson.
17.30 Barnatími (Helga og Hulda Val«
týsdætur):
a) Leikrit: ..Hraðfrysti sjóræn-
inginn“ eftir Brendal og Krist-
ensen. — Leikstj.: Klemena
Jónsson.
b) Sagan ..Klifurmús og hin dýr-
in í Hálsaskógi"; VII. (Kristín
Anna Þórarinsdóttir leikkona).
c) Upplestur og tónleikar.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Þetta vil ég heyra: Kristján Sæ-
mundsson velur sér hljómplötu.
19.10 Tilkynningar.
19.30 Fréttir og íþróttaspjall.
20.00 Hugleiðing um Gunnlaug Blön-
dal og list hans (Eggert Stefáns-
son söngvari).
20.20 Hljómsveit Ríkisútvarpsins leik-
ur. Stjórnandi Bohdan Wodiczko.
a) Lítil svíta eftir Árna Björns-
son.
b) „Shylock", svíta eftir Gabriel
Fauré.
20.50 Spurt og spjallað í útvarpssal. —
Flytjendur: Kristmann Guð-
mundsson skáld, Páll Kolka lækn
ir, Ragnar Jónsson forstjóri og
Sigurður Reynir Pétursson hrl. —
Sigurður Magnússon fulltrúl
stjórnar umræðum.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Danslög, valin og kynnt af Heið-
ari Ástvaldssyni.
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 13. febrúar
8.00 Morgunútvarp. — Bæn (Séra
Jón Auðuns dómpróifastur). —
8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón-
leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tón
leikar. — 9.10 Veðurfregnir. --
9.20 Tónleikar. —
12.00 Hádegisútvarp. r
(12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.15 Búnaðarþáttur: Séð og heyrt t
vesturför. (Jón Guðmundsson
bóndi á Reykjum í Mosfellssveit)
13.30 „Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Miðdegisútvarp: Fréttir. — 15.05
Tónleikar. — 16.00 Fréttir og til-
kynningar — 16.05 Tónleikar.
18.00 Fyrir unga hlustendur: „Forspil
bernskuminningar listakonunnar
Eileen Joyce; XV. — (Rannveig
Löve).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.00 Tilkynningar.
1930 Fréttir.
20.00 Um daginn og veginn (Andréa
Kristjánsson ritstjóri).
20.20 Einsöngur: Sigurður Björnsson
syngur; Jón Nordal leikur undir
á píanó:
a) „Kirkjuhvoll" eftir Árna Thor-
steinsson.
b) „Vögguljóð'* eftir Jón Leifs,
c) „Sáuð þið hana systur mína**
eftir Pál Isólfsson.
d) „Mamma" eftir Sigurð Þórðar-
son.
e) Fjögur lög eftir Schubert:
„Silungurinn", „Mynd hennar'*.
„Unaður" og „Heiðarrósin".
20.40 Úr heimi myndlistarinnar (Björn
Th. Björnsson listfræðingur.)
21.00 Tónleikar: Tríó í d-moll op. 4ð
eftir Mendelssohn (Artur Rubin-
stein leikur á píanó, Jascha Hei-
fetz á fiðlu og Gregor Piatigorsky
á knéfiðlu).
21.30 Utvarpssagan: „Blítt lætur veröld
in“ eftir Guðmund G. Hagalín; IIf
(Höfundur les).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (13).
22.20 Hljómplötusafnið (Gunnar Guð-
mundsson).
23.10 Dagskrárlok.