Morgunblaðið - 12.02.1961, Page 23
Sunnudagur 12. febrúar 1961
MORCVNBLAÐÍÐ
23
Sjöfugur
Helgi Kr.
HELG-I Kr. Jónsson, verzlunar-
stjóri hjá Alliance hf., er fæddur
13. febr. 1891, og verður því sjö-
tugur á morgun. Hann er Árnes-
ingur að ætt, fæddur í Mjósundi
í Villingaholtshreppi, og voru
foreldrar hans Jón Jónsson, bóndi
í Mjósundi og kona hans, Alexia
Guðmundsdóttir, af góðum ætt-
um komin.
Helgi ólst upp í Mjósundi til 17
éra aldurs, en þá byrjaði hann
búskap sjálfur á Vatnsenda í
sömu sveit og bjó þar til 1921.
I’að ár fluttist hann til Reykja-
víkur og fékkst þar við verzlun-
erstörf og fleira, ýmist hjá öðr-
um eða hann rak sína eigin verzl-
un. Meðal annars var hann eitt
lár (1925) í Scotlandi að kenna
Skotum að fletja fisk, því lengst
ef hafði Helgi stundað sjóróðra
og sjómennsku einhvern tíma
ársins. Hann var formaður um
skeið í Þorlákshöfn og gerði það-
#n út teinæring sjálfur.
Eftir heimkomuna frá Skot-
landi réðist Helgi árið 1927 til
Alliance hf., fyrst sem bílstjóri,
til ársins 1934, en það ár var haf-
in bygging síldarverksmiðju Alíi-
ance hf. í Djúpuvík við Reykja-
fjörð á Ströndum. Þá fór Helgi
þangað og vann við bygginguna.
Þegar verksmiðjan tók til starfa
árið eftir (1935), var sett upp
verzlun í sambandi við hana fyr
ir starfsfólkið og gerðist Helgi
verzlunarstjóri hennar. Því starfi
hefur hann haldið til þessa dags,
tn að vetrinum hefur hann starf-
eð í skrifstofu Alliance hf. í
Reykjavík.
Helgi kvæntist árið 1910 Ingi-
björgu Sigmundsdóttur frá Vatns
enda, hinni ágætustu konu. Hitt
læt ég fræðimönnum á ýmsum
eviðum eftir að skýra, að hann er
bóndi á Vatnsenda frá árinu 1909,
©g giftist svo heimasætunni það-
#n árið 1910.
Þau hjónin eignuðust tvo syni,
annar dó nýfæddur, hinn er Sig-
mundur Ragnar, starfsmaður í
Iðnaðarbanka íslands.
Helgi er föngulegur maður og
inikill á velli, en þar sem þetla
er afmælisgrein en ekki ævi-
minning, þá mun ég ekki lýsa
hans ytra manni nánar, því við,
sem þekkjum hann, vitum hvern-
ig hann lítur út, en hina skiptir
það litlu. Hitt varðar fleiri að
vita, að hann er einn af hinum
styrku stoðum okkar þjóðlífs,
tryggur og góður vinur vina
Einna, traustur starfsmaður og
Eamvizkusamur svo af ber, Ijúf-
lir í lund og kátur og góður félagi,
enda hefur hann eignast góða
vini. Hann hefur sagt mér, að af
öllum samferðamönnum sínum á
lífsleiðinni séu þeir sér minnis-
I.O.G.T.
St. Framtídin nr. 173
Fundur mánudag kl. 8.30. —
43 ja ára afmælis stúkunnar
St. Daníelsher í Hafnarfirði
kemur í heimsókn.
Æ. T.
Barnastúkan jólagjöf nr. 107
Fundur fellur niður í dag
vegna veikinda. Verður senni-
lega haldinn næsta sunnudag.
Gæzlumaður.
St. „Verðandi" no. 9
Fundur verður þriðjudags-
kvöld 14. febrúar kl. 8.30. _
Systrakvöld: systir frú Sigur-
jóna Jakobsdóttir upplestur o. fl.
Stúkan Freyja kemur í heim-
eókn. — Félagar fjölmennið, og
eysturnar eru beðnar að koma
með kökuböggla.
Æ. T.
St. Víkingur
Fundur annað kvöld.
Bollufagnaður. — Skemmtiatriði.
Félagar komið með kökuböggla.
Fjölsækið stundvíslega. — Æ. T.
morgun
Jónsson
stæðastir, Gestur heitinn Einars-
son á Hæli og Jón heitinn Ólafs-
son, bankastjóri, enda munu þsir
hafa verið honum kærari en aðr-
ir.
Hann mun dvelja á æskustöðv-
um sínum á afmælinu, og sendum
við vinir hans, hlýjar afmælis-
kveðjur til hans þangað.
Helgi H. Eiríksson.
Æskulýðsvika
KFUM ojí K
KFUM og KFUK í Reykjavík
hafa undanfarin ár haldið svo-
nefndar æskulýðsvikur með sam
komuhöldum fyrir æskuna á
hverju kvöldi í heila viku. Hafa
samkomur þessar verið vinsælar
og oft mjög fjölsóítar.
í kvöld hefst æskulýðsvika í
húsi félaganna að Amtmannsstíg
2 B. Verður mikið um söng og
hljóðfæraslátt á samkomunum
að venju, m. a. leika ungar stúlk
ur á gítara undir sönginn. Einnig
verður einsöngur, tvísöngur og
kórsöngur, eftir því sem við verð
ur komið, en megináherzla lögð
á almennan söng.
Ræðumenn á fyrstú samkom-
unni verða þeir Gunnar Sigur-
jónsson, cand. theol., og Birgir
G. Albertsson, kennari. Síðan
verða, tveir ræðumenn flest
kvöldin, og má nefna meðal
þeirra Felix Ólafsson, kristni-
Lest af þurr-
mjólk til Kongó
I GÆR barst Kongósöfnuninni 1
lest af þurrmjólk frá Mjólkur
samsölunni og verður hún fljót
lega send til Kongó. Áður var
búið að senía 15 lestir af skreið
þangað.
Kongósöfnuninni er nú lokið
og nam hún í peningum 425 þús.
kr. Blöðin hafa ekki séð sér fært
að birta þann langa lista yfir
alla þá sem gefið hafa í söfnun
ina, en listinn liggur frammi á
skrifstofu Rauða Krossins í
Bjartsýní í Kína
með nýju ári
Peking, 11. febrúar.
—• (Reuter) —•
KÍNVERSK dagblöð
tilkynna í dag, að sér-
stakur aukamatar-
skammtur verði veittur
í tilefni vorhátíðarinnar
í næstu viku, í þeim
héruðum þar sem hung-
ursneyðin hefur verið
verst að undanförnu.
Vorhátíð þessi er
leifar hinnar gömlu ára-
mótahátíðar Kínverja.
Þjóðin hefur nú tekið
upp tímatal Evrópu-
manna, en gömlu ára-
mótin eru ennþá mesta
þjóðhátíðin. Það kemur
fram í mörgum hinna
kínversku blaða, að Kín
verjar eru bjartsýnir á
nýtt ár samkvæmt
gamla tímatalinu. — Ár
það sem er að ljúka var
„ár rottunnar“ og er
það að gamalli hjátrú
ár hungursneyðar.
Nú tekur við „ár hins
hjálpsama uxa“ og segja
kínverskar kerlingabæk
ur, að þá megi vænta
góðæris. Við það binda
kínversku blöðin góðar
vonir og telja að neyð-
inni fari að Ijúka í
landinu.
Prófessor Þor-
björn taiar um
svifflug
Svifflugfélag íslands gengst um
þessar mundir fyrir almennri
fræðslu um svifflug. f dag kl. 2
flytur prófessor Þorbjörn Sigur-
geirsson fyrirlestur um svifflug
í 1. kennslustofu Háskólans. Að-
gangur er ókeypisjog öllum heim-
ill.
Leiðrétting
Leiðinlegar prentvillur komust
inn í stutta frásögn af útför
Ingibergs Karlssonar frá Grinda
vík, hér í blaðinu í gær. Nafn
föður hans misritaðist. Hann hét
Karl Karlsson, en ekki Ágúst
Guðmundsson. Mannskaðaveðrið,
sem móðir Ingibergs frú Guðrún
Steinsdóttir, missti fyrri mann
sinn í, var 1915 en ekki 1955. Eru
aðstandendur beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
— Máiverk
Framh. af bls. 1
höfuð til af frægustu mönnum
víkingaaldar og fornaldar.
Haraldur harðráði var uppi
1015—1066. Hann var 15 ára
þegar hann tók þátt í Stikla-
staða orrustu með Olafi Har-
aldssyni hálfbróður sínum og
flúði eftir orrustuna til Garða-
ríkis. Haraldur var einn víð-
förlasti maður á sinni tíð.
Hann stjórnaði frægri herferð
Væringja um Svartahaf og út
á Miðjarðarhafið all aleið til
Sikileyjar. Er hann kom aftur
til Rússlands úr þessari svað-
ilför fékk hann Ellisifjar kon-
ungsdóttur.
Til er brot úr gamankvæði
Haralds til Ellisifjar í Heims-
kringlu og eru í því þessi vísu-
orð, sem fræg hafa orðið:
Þó lætur Gerður í Görðum
gollhrings við mér skolla.
Haraldur átti tvær dætur
með Ellisif.
boða, Ástráð Sigursteindórsson,
skólastjóra, og Norðmennina
Erling Moe og Thorvald Fröyt-
land, sem hafa verið hér á landi
undanfamar vikur og talað á
fjölmennum samkomum.
Samkomur æskulýðsvikunnar
eru einkum ætlaðar ungu fólki,
en allir eru velkomnir, meðan
húsrúm leyfir. Þær hefjast að
jafnaði kl. 8.30 e. h.
Churchill kom-
inn á kreik
London, 11. febr. (Reuter).
Winston Churchill flaug í dag
suður á Bláströnd Frakklands,
en þar hyggst hann dveljast
sér til hvíldar í hálfan tnánuð,
mest í dvergríkinu Mónakó.
Lafði Churchill, kona hans
varð eftir í London, en fylgdi
horaim út á Lundúnaflugvöll.
Churchill virtist vera hinn
keikasti og var að sjá, sem
honum væri að fullu batnað
eftir álfallið, er hann beinbrotn
aði skömmu fyrir afmæli sitt í
nóvember sl.
Ný viðhorf
Guðfræðinemar í Háskóla fs-
lands gangast í vetur fyrir mán
aðarlegum fundum um guðfræði
leg efni. Á fyrsta fundinum, sem
haldinn var 1 desember, talaði
prófessor Jóhann Hannesson um
existeníalismann.
Annar fundurinn á þessum
vetri verður haldinn í Neskirkju
n.k. þriðjudagskvöld kl. 8. Þar
talar dr. Þórir Þórðarson, pró-
fessor um ný viðhorf í nútíma-
guðfræði.
Don Pasquale
í síðasta sinn
NÚ ERU síðustu forvöð að sjá
óperuna Don Pasquale sem sýnd
er í Þjóðleikhúsinu um þessar
mundir. Síðasta sýningin verður
í kvöld og er óhætt að benda
öllum óperu unnendUm á að
nota þetta síðasta tækifæri til
að tryggja sér miða. Aðalhlut-
verkið er sungið af okkar vin-
sæla söngvara Kristni Hallssyni,
en aðrir söngvarar eru Guðmund
ur Jónsson, Þuríður Pálsdóttir
og Guðmundur Guðj ónsson.
bbbbbbbbbbbbbicbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
P e n s 1 a r
Málningarrú llur
Hörpu-silki
S p r e d
Slml 35697
ggingavorur h.t. Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
Kærar kveðjur og þakkir til allra, sem glöddu mig
á áttræðisafmæli mínu 2. febr. sj. með heimsóknum, gjöf
um og skeytum.
Sigurður Jóhannesson, Víðimel 37.
Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig á sjötugs-
afmælinu.
Ingibjörg Lárusdóttir, Fagralandi.
SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR
frá Tungufelli í Svarfaðardal
andaðist í Landspítalanum 7. þessa mánaðar. Hún verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju n.k. þriðjudag kl. 3 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda^
Snorri Hallgrímsson
Maðurinn minn ,faðir okkar, tengdafaðir og afi
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
Ásbúðartröð 5, Hafnarfirði
verður jarðsettur þriðjudaginn 14. febrúar kl. 2 frá
Þjóðkirkjunni.
Anna Halldórsdóttir,
Guðmunda Ólafsdóttir,
Halldór Ólafsson,
Steinunn Magnúsdóttir
og barnabörn.
Faðir okkar og bróðir
JÓHANNES LOFTSSON
sem andaðist 6. þ m. verður jarðsettur þriðjudaginn 14.
þ.m. — Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju kl. 13,30.
Loftur Jóhannesson, Bjarni M. Jóhanuesson
Kristin Loftsdóttir
Eiginmaður minn, faðir og sonur okkar
BJARGMUNDUR SIGURÐSSON
málarameistari, Þorfinnsgötu 14,
verður jarðsunginn mánudaginn 13. febr. kl. 1,30. Blóm
vinsamlega afbeðin.
Gíslína Kjartansdóttir, Kjartan Bjargmundsson
Valgerður Guðmundsdóttir, Sigurður Bjargmundsson.