Morgunblaðið - 23.02.1961, Qupperneq 1
20 siður
48. árgangur
44. tbl. — Fimmtudagur 23. febrúar 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hefndarmorð Stanleyville
í WIWM
r»h, ■ v-
stiórnarinnar
rámmtán menn líflátn’r
Leopoldville, Elisábethville,
21. febr. (Reuter-NTB).
FRÁ Stanleyville berast þær
fregnir, að fimmtán pólitísk-
ir fangar, sem voru í haldi
hjá stjórn Gizenga, hafi ver-
ið líflátnir, þrátt fyrir ein-
dregnar aðvaranir fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna um að
láta slíkt ógert. Yfirstjórn
Sameinuðu þjóðanna í Leo-
poldville hefur ekki getað
staðfest fregn þessa opinber-
iega en allar líkur þykja
fcenda til þess, að hún sé á
rökum reist.
Af þessum fimmtán eru tíu
þingmenn Kongóþings en fimm
eru úr hemum. Einn mannanna
er Alphonso Songolo, öldunga-
deildarþingmaður, sem tekihn
var til fanga í október jsl. og
hefur samkvæmt fyrri fregnum
verið misþyrmt á margvísleg-
an hátt — missti meðal annars
annað augað. Songolo fór í haust
til Stanleyville í því skyni að
ræða við fylgismenn Lumumba
um lausn á vanda þjóðarinnar,
en var þá þegar tekinn höndum.
Hlutlaust belti
írskur herforingi úr liði SÞ,
Sean McKeown, kom til Leo-
poldville 1 dag frá Ekvator-hér-
aði, þar sem hann ræddi við
Mobutu um framkvæmd ákvörð-
unar Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðánna. Talsmaður SÞ sagði í
dag, að fundur þeirra hefði farið
Berlingske Tidende skýrir frá þvi, að þátttakendur í Norður-
landaráði hafi verið gestir Niels Bohrs á sunnudaginn og skoS-
að eðlisfræðistofnunina við Blegdamsveg. Fremst til hægri
sjást þeir Niels Bohr og Magnús Jónsson, alþingismaður.
Samræmd aöstoð
vio vanþróuð lönd
Frá fundi Norðurlandaráðs
Kaupmannahöfn, 22. febr. (NTB). i
4 DAG laug umræðum á fundi
Norðurlandaráðs um sameigin-
legan stuðning Norðurlanda við
yanþróaðar þjóðir.
Samþykkt var að skipa nefnd
ráðherra, þar sem hvert Norður-
landanna á einn fulltrúa. og á sú
nefnd að skila áliti innan þriggja
mánaða. Jens Otto Krag utan-
ríkisráðherra Dana boðaði fyrsta
fund nefndarinnar í Kaup-
mannahöfn.
í umræðum um mál þetta lagði
Norðmaðurinn Finn Moe áherzlu
á, að markmiðið væri samvinna
en ekki góðgerðarstarfsemi gagn-
vart hinum vanþróuðu ríkjum.
Sagði hann aðstoð við vanþróuð
Frh. á bls. 19
vinsamlega fram.- McKeown
hefði hvatt Mobutu til þess að
sýna engan ofsopa eða beita
valdi, og stungið upp á að kom-
ið yrði á hlutlausu belti á landa
mærum Ekvator og Orientals-
héraðs. Gæti McKeown þá rætt
við Victor Lundula á því svæði,
en upphaflega ætlaði McKeown
til Stanleyville til viðræðna við
Lundula, en hefur frestað þeirri
för um sinn.
RáSast ekki á hermenn SÞ
Ian Berendsen, fulltrúi SÞ í
ELISABETHVILLE, 22. febr.
(Reuter) — Tilkynnt var í
Elisabethville í kvöld, að
Moise Tshombe hefði fallizt
á það við Ian Berndsen, að
hætta ofsóknum sínum á hend
ur Balubamönnum, en her-
menn Tshombe hafa farið
með báli og brandi um byggð
ir Balubamanna undanfarna
daga.
Elisabethville hefur sent Thsom-
be héraðsstjóra bréf, þar sem
hann biður um, að eiginkona
Mwamba Ilunga, yfirmanns hins
nýstofnaða Lualaba ríkis í Norð
ur-Katanga, verði lótin laus úr
haldi, ásamt öðrum gíslum, sem
Tshombe heldur föngnum. Var-
V æntanlega
27. febrúar
PARÍS, 22. febr. (NTB — AFP)
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum mun fundur þeinra de
Gaulle, Frakklandsforseta og
Bourguiba, forseta Túnis verða
haldinn 27. febr. Verður fundur
þeirra á landsetri de Gaulle,
Rambouillet, rétt fyrir utan París
Forsetarnir munu ræða Alsír
málið og möguleika á samninga
viðræðum milli Frönsku stjórnar
innar og útlagastjórnar Alsír.
ar Berendsen mjög við því, að
fólk þetta verði beitt valdi og
segir það muni hafa hinar alvar
legustu afleiðingar.
Tshombe skírskotaði til íbúa
Katanga-héraðs í dag að halda
ró og reglu, en vera engu að
síður við öllu búnir. Hann sagði,
að hermenn hans myndu ekki
ráðast á hermenn Sameinuðu
þjóðanna, þrátt fyrir herútboð
hans í gær. Sagði hann, að allt
geti komið fyrir á þessum slóð-
um og yrðu menn því að vera
viðbúnir. Er hvítir menn í Elisa
bethville og Leopoldville heyrðu
um þessi ummæli Tshombe,
urðu þeir allmiklu rórri, en frá
því í gaér hafa þeir helzt vilj-
að komast á brott frá Kongó
sem fyrst.
Framhald á bls. 19.
Teiknimynd þessi af Ólafi Thors
forsætisráðherra birtist í Ber-
lingske Tidende sl. mánudag,
/sásamt úrdrætti úr ræðu hans.
Forsætisráöherra
kemur heim í dag
Ræðir við B.T. um handritin og viðreisnina
ÓLAFUR THORS, Forsætisráðherra kemur í dag heim frá Kaup-
mannahöfn af fundi Norðurlandaráðs. Eins og kunnugt er, fór
ráðherrann til Kaupmannahafnar á laugardaginn var. Áður hefur
verið skýrt frá störfum Norðurlandaráðs hér í blaðinu og ræðu
Ólafs Thors, sem hann flutti á fundi þess.
Danska blaðið B.T. á stutt
samtal við Ólaf Thors í fyrra-
dag og spyr hann m.a. um hand-
ritamálið. Þar segir m.a.:
„— Hvað með handritin, sem
ísland vill fá aftur?
— Ég vil ekki segja neitt um
þau. Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar, að hinir dönsku vinir
okkar eigi að hafa frið til að
taka hina réttu ákvörðun. Það
er hin rétta málsmeðferð.
— Hvernig gengur með efna-
hagskreppuna á íslandi?
— Núverandi stjórn, sem var
mynduð haustið 1959, hefur
komið fram með viðreisnará-
ætlun, sem hefur að takmarki
að skapa jafnvægi í efnahags-
málunum. Hingað til hefur allt
gengið vel, en upp á síðkastið
hafa verið nokkur alvarleg verk
föll.
Stjórnin skiptir sér ekki af
þeim, en ég vona að þjóðin
skilji að það séu örlagaríkir
tímar, sem íslendingar nú lifa“.
Orðnir langeygir eftir lausn
Einkskeyti til Mbl.
London, 22. febrúar.
FULLTRÚAR brezkra togaraeig-
enda áttu í dag fund með Home,
lávarði utanríkisráðherra Bret-
lands og Chriopher Soames
fiskimálaráðherra og* * skýrðu
þeim frá því, að þeir bæru
„þungar áhyggjur" vegna þeirr-
ar óvissu, sem nú ríkti í deilu
Breta og íslendinga um fiskveiði
takmörkin.
Fyrir fulltrúum togaraeigenda
fór J.R. Cobley varaformaður
samtakanna. Áreiðanlegar heim-
ildir herma, að togaraeigendur
og togarasjómenn séu nú orðnir
æði langeygir eftir lausn deilunn
ar og leggi mikla áherzlu á, að
bundinn verði endi á núverandi
ástand, áður en vorveiðarnar við
ísland eiga að hefjast fyrir
alvöru.
Fulltrúar togaraeigenda minntu
ráðherrana á, að togaraeigendur
hefðu af frjálsum vilja fallið
frá þeirri ætlun að veiða innan
tólf mílna við ísland — fyrir nær
fellt ári síðan, sökum þess að
þá voru i undirbúningi viðræður
um fiskveiðitakmörkin.
★
í opinberri yfirlýsingu sem
Von um betri
sambúð
WASHINGTON, 22. febr. (Ntb-
Reuter). — Kennedy, Bandaríkja
forseti hefur sent Krúsjeff, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna per
sónulega orðsendingu, þar sem
hann lætur í ljós þá von, að sam
búðin milli ríkjanna fari batn-
andi.
Óskar hann eftir að sambúðin
verði bætt að diplomatiskum leið
um fyrst um sinn svo og að nán-
ari samvinna megi takazt í list-
um og ef til vill vísindum.
Það er sendiherra Bandaríkja-
manna í Moskvu, Llewellyn
Thom,pson, sem flytur Krúsjeff
orðsendingu þessa, en sendiherr-
ann er á förum til Moskvu eftir
nokkra dvöl í Bandaríkjunum.
gefin var út af fundi loknum var
sagt, að fulltrúar hefðu skýrt
ráðherrunum svo frá, að þeix
bæru „þungar áhyggjur vegna
þeirrar óvissu, sem nú ríkti í
þessu máli, einkum þar sem fisk
veiðar við ísland ættu undir eðli
legum kringumstæðum að ná há-
marki innan skamms". Ráðherr-
arnir fullvissuðu togaraeigendur
um, að þeim væri fyllilega Ijóst,
hve núverandi ástand væri alvar
legt og hétu því, að hafa náið
samband um málið við fulltrúa
allra greina fiskiðnaðarins. Ann-
ar fundur þessara aðila verður
haldinn innan skamms og næst-
komandi föstudag munu fulltrú-
ar togaraeigenda og verkamanna
ræða við Soames, ráðherra.
• Kvarta yfir seinaganginum
í skeyti sem Mbl. hefur borizt
frá Grimsby um þennan sama
fund, segir meðal annars, að hann
hafi verið haldinn vegna síauk-
inna kvartana togarasjómanna
yfir seinagangi samningavið-
ræðnanna. Sjómenn krefjast þess,
að konmt verði að einhverri nið
Framhald á bls. 1Q.