Morgunblaðið - 12.03.1961, Síða 23
Sunnudagur 12. marz 1961
MORGVJSBJ/AÐIÐ
23
— Bændahöllin
Framh. af bls. 8
Veitingasalur og 4 fundarsalir
1 Á 2. hæð að norðan verður aðal
veitingasalur hússins. Hann tek-
ur yfir 500 fermetra og nær yfir
alla bogabygginguna og nyrsta
ihluta aðalbygingarinnar. Um mið
■bik 2. hæðar verða 4 fundar-
salir, einn stór og þrír minni, en
hægt verður að sameina þá alla
í einn sal. Þessir salir verða not-
aðir fyrir aðalfundi Stéttarsam
bandsins. Syðst á 2. hæð er gert
ráð fyrir 4 nokkuð stórum skrif-
stofuherberg j um.
Hótel
Þriðja hæð hússins verður aðai
skrifstofuhæð fyrir búnaðarsam-
tökin í landinu. Næstu 4 hæðir
eru allar jafn stórar, um 1000
fermetrar. Á 4. 'hæð verða um
30 skrifstofuherbergi eins og á
þeirri þriðju. Gert er ráð fyrir
að leigja 4. hæð fyrst um sinn.
Fimmta og 6. hæð eru hvort
tveggja hótelhæðir, og verða 30
ihótelherbergi á hvorri. Sjöunda
hæðin er nokkuð minni, um 700
fermetrar rúmlega, þar sem hún
er inndregin. Þar verða einnig
39 gistiherbergi og svalir með
hverju þeirra. Gistiherbergi
verða þá alls 90, 60 tveggja
xnanna 'herbergi og 30 eins
xnanns. Hverju herbergi fylgir
snyrtiherbergi með baðkeri eða
steypubaði. Áttunda hæðin er
rúmlcga 400 fermetrar. Þar á að
vera veitingasalur fyrir 100
manns, ásamt lítilli setustofu, eld
húsi og snyrtiherbergjum. Þar
eru og lyftuhúsin, herbergi fyrir
loftræstingarkerfi o. fl.
Kjallart
í kjallara hússins að norðan-
verðu gert ráð fyrir að verði
hárgreiðslustofa, rakarastofa og
gufubaðstofa. Þar á að vera stór
fatageymsla og einnig er þar stórt
ketilhús með 2 stórum miðstöðv-
arkötlum. Símamiðstöð og
Herrarykfrakkar ný-
komnir í úrvali.
Stuttir, Hálfsíðir, Síðir.
MARTEINI
LAUGAVEG 31
spennustöð er í kjallaranum og
geymsluherb. fyrir hótelrekstur
og búðir í byggingunni. f húsinu
eru 3 stiga- og lyftuhús, en lyft-
urnar eru 5. Við anddyri verða
tvær sjálfvirkar og samhliða
lyftur, sem ganga frá 1. hæð og
upp á 8. hæð. f miðju hússins
eru stigahús með 2 vöru- og
matarlyftum. Við þær er stigi,
sem nær frá kjallara upp á 8.
hæð. Stigahús er eldtraust og
því einnig ætlað til öryggis.
Syðst í húsinu er stigahús og
gengur lyfta frá kjallara á 7. hæð,
sem er ásamt stigagangi í sam-
bandi við fundarsali og skrif-
stofur á 2. hæð.
Á 1. 2. og 8. hæð verða sam-
felldir gluggar á þrjá vegu. Út-
sýni frá veitingarsalnum, sem er
í 20 metra hæð frá jörðu, verður
því hið ákjósanlegasta, þar sem
engar byggingar skyggja á.
Húsið verður væntanlega full-
gert eftir tvö ár. Um 20 milljónir
króna hafa þegar runnið til bygg-
ingarinnar, eða um 500 krónur á
rúmmetra. Megin hluti fjárins er
frá bændasamtökunum kominn.
Ný sókn
kommúiiista í Laos
Vientiane, 11. marz (Reuter)
HER Pathet Lao og komm-
únista hefur byrjað nýja
stórsókn eftir þjóðveginum
frá Luang Prabang í áttina
til Vientiane. Tókst þessum
hersveitum vinstrisinna að
vinna hug á hersveitum
hægrimanna í helzta virki
þeirra, Moung Kassy. Her
hægrimanna hefur látið
undan síga.
Fréttirnar af þessari sókn
kommúnista kemur daginn eft-
ir að tilkynnt var að stjórn
hægrisinna hefði náð samkomu-
lagi við Souvanna Phouma,
foringja hlutleysingja, um
myndun nýrrar stjórnar. Óttast
menn nú að samkomulag það
kunni að fara út um þúfur,
vegna þessarar nýju hættu.
Her vinstrimanna stefnir nú
að bænum Vang Vieng. Flug-
vélar stjórnarinnar 1 Vientiane
eru nú teknar að annast stöð-
uga flutninga á vopnum og vist-
um til þessa bæjar og búast
menn við örlagaríkri orustu við
hann á næstunni.
Útvarpsstöð kommúnistastjórn
arinnar í Norður-Vietnam seg-
ir, að kommúnistaherinn í Laos
hafi unnið mikilvægan sigur
nýlega, fellt eða sært um 300
hermenn í liði hægri stjórnar-
innar.
Vöruflutniiigar
AKRANBS, 11. marz. — f gær
kom hingað vélskipið Baldur
frá Dalvík og lestar tómar síld-
artunnur til Vestmannaeyja. Að
því búnu mun Baldur flytja á
vegum varnarliðsins ýmsar vör-
ur frá Reykjavík og Njarðvík,
þar á meðal tvo bíla til Horna-
fjarðar og Langaness. Auk þess
vörur til Verktaka, m. a. tíu
tonna kranabíl.
— Blygöunarleysi
Framh. af bls. 3
inn nákvæmlega í byrjun svo
að lagið fór nokkuð hátt. En
þeir Guðmundur Símonarson,
Jón Guðmundsson og Ingi-
mundur létu sér hvergi bregða
en sungu lagið fullum hálsi og
af þeim kynngikrafti að ferða
fólkið um borð var furðu lost-
ið. Ég gæti trúað, að þetta
væru ein hraustlegustu söng-
átök, sem ég man eftir.
— Að síðustu langar mig til
að spyrja þig Hallur, hvort þú
hyggist halda lengi áfram að
syngja ef heilsan lofar?
— Ég þarf eiginlega að vera
í Dómkirkjukórnum þangað
til 1963, en þá er ég búinn að
vera þar í 50 ár, segir þessi
söngglaði unglingur að lolt-
um. — vig.
Yfirlýsing
f SAMBANDI við grein er birtist
í Vikutíðindum í dag um útgáfu
Passíusálmanna, sem Menningar
sjóður fól Líthóprent að fram-
kvæma, vil ég taka það fram, að
Menningarsjóður, Hörður Ágústs
son og ég undirrituð berum enga
ábyrgð á þessum skrifum. Það
sem blaðið segir um pappírinn er
rétt, en ég var í alla staði ánægð
með prentunina á teikningunum.
Kópavogi, 10. marz 1961.
Barbara Árnason.
Opef Caravan
Vil kaupa Opel Caravan 1955—6, milliliðalaust. Þarf
að vera í góðu lagi. Útborgun kr. 40 þús. Öruggar
mánðargreiðslur. Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjudags
kvöld merkt: „Opel Caravan — 86“.
Verzlunarhúsnæði
við Laugaveg ásamt mjög góðu geymsluplássi
til leigu.
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON, heildverzlun
Grettisgötu 2 — Sími 24440.
Simirstöðin Sætuni 4
Seljum allar tegundir £if smurolíu. Seljum frostlög
og Lqui-Moly.
Fljót og góða afgreiðsla. — Sími 16227.
5-6 herb. íbúð
\
óskast til leigu í vor eða fyrri part sumars.
Upplýsingar í síma 35231.
Þrjú
dauðsföll
VALDASTÖÐUM 9. marz. —
Þrjú dauðsföll hafa borið að hér
í sveitinni nú með nokkurra daga
millibili. Fyrst andaðist Guðrún
Magnúsdóttir frá Eyjum. (aust-
urbæ.) Hún var fædd 3. maí
1897. Dóttir hjónanna Margrétar
Jónsdóttur og Magnúsar Ólafs-
sonar, sem lengi bjuggu í Eyjum.
Guðrún giftist ekki. Hún dvald-
ist alla ævi með foreldrum sín-
um og systkinum. Guðrún var
vel látin af þeim, sem höfðu af
henni veruleg kynni. Einstaklega
barngóð, mikill skepnuvinur,
og dugmikill til verka, á meðan
heilsan leyfði.
Önnur var Lilja Guðnadóttir,
frá Eyjum (vesturbæ.) f. 4. apríl
1913, dóttir hjónanna, Guðrúnar
Hansd. Stephensen, og Guðna
Guðnasonar, og bjuggu þau
lengi í Eyjum. Lilja var að upp-
lagi vel gerð stúlka, en naut sín
ekki vegna langvarandi sjúk'-
leika, svo að árum skipti. Og
varð hún þá langdvölum að
vera að heiman vegna þess.
Þriðji í röðinni var Jón Bjarna
son frá Sandi Hann var fæddur
5. októbar 1874. Sonur Kristinar
Guðmundsdóttur og Bjarna Hall
dórssonar á Sandi.
Kona Jóns var Guðrún Guðna •
dóttir frá Eyjum, en hún andað-
ist fyrir allmörgum árum.
Bjuggu þau allmörg ár á Sandi.
Eignuðust þau 3 börn, 2 dætur
og 1 son, en hann andaðist á
bezta aldri hinn mesti efnismað-
ur.
En dætur þeirra búa hér í
sveitinni. Guðrún á Möðruvöll-
um, en Kristín á Vindási. Jón
frá Sandi, var góður og gegn
bóndi Gerði allmiklar umbætuir
á jörð sinni. Bæði að húsabótum
og ræktun.
Jón var veill á heilsu allmörg
hin síðari ár ævinnar. Tók þá
við búi Oddur Jónsson uppeldis-
sonur Jóns. Jón var greindur í
betra lagi, las mikið og virtist
hafa gott minni af svo fullorðn-
um manni. Verður útför hans
gerð á laugardaginn kemur, 11.
þessa mánaðar.
— Kúba
Frh. á bls. 23
an ‘ sjálfur áhrifamikla varnar-
ræðu. Hann lýsti því yfir að hann
væri saklaus. Sagðist 'hann aldrei
hafa tekið þátt í neinni gagn
byltingarstarfsemi. Ef dómstóll-
inn dæmdi hann sekann kvaðst
hann hinsvegar vera reiðubúinn
að ganga óstuddur fram fyrir af-
tökusveitina. Það þyrfti ekki að
binda klút um augu sín.
• Stuttur frestur
Allir hinir ákærðu voru fundn-
ir sekir. Morgan og einn Kúbu-
mannanna að nafni Jesu Carrer-
as voru dæmdri til dauða. Hinir
átta voru hver um sig dæmdir í
30 ára fangelsi. Sakborningarnir
fengu frest í einn sólarhring til
að ákveða hvort þeir vilja áfrýja
dóminum til Hæstaréttar Kúbu.
Hafi þeir ekki tekið slíka ákvörð-
un verða þeir leiddir fyrir aftöku
sveit og skotnir eftir einn til tvo
daga.
Dóttir okkar
JÓNA ARNÓRSDÓTTIR
lézt í Amsterdam 10. þ.m. — Jarðarförin auglýst síðar.
Málfríður Halldórsdóttir,
Arnór Stígsson, Isafirði.
Móðir okkar
ÞÓRA EIRlKSDÓTTIR
sem andaðist 7. marz, verður jarðsett þriðjudaginn 14.
marz kl. 2 frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði. —
Blóm vinsamlega afþökkuð
Guðlaug Magnúsdóttir, Guðrún E. Magnúsdóttir
Konan mín,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
andaðist í Landspítalanum 8. þ.m. — Jarðarförin hefur
farið fram. — Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð.
Árni Skúlason
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
JÓN BJÖRNSSON
trésmiður frá Ljótsstöðum
andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, föstu-
daginn 10. marz.
Pálína G. Pálsdóttir, börn og tengdaböm
Innilega þakka ég samúð og hluttekningu við fráfall og
jarðarför dóttur minnar
LILJU GUÐNADÓTTUR
Guðni Guðnason, Eyjum, Kjós
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
GUÐRÍÐAR GUÐLAUGSDÓTTUR
frá Hóli.
Aðstandendur.
Hugheilar þakkir sendum við öllum, er sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar og
bróður
JÓNS HJALTALBNS HÁKONARSONAR
Fanney Ingólfsdóttir,
Hákon Hjaltalín Jónsson,
Ingólfur Hjaltalín,
Gunnar Hjaltalín.