Morgunblaðið - 17.03.1961, Blaðsíða 1
24 siður með Barnalesbok
18. árgangur
63. tbl. — Föstudagur 17. marz 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsiaa
S.-Afríkumenn kvíða
pdiitískri einangrun
Leitast við að halda tengsium við Bretland
' London, 16. marz. — (Reuter) —
ÁKVÖRÐUN Verwoerds um úrsögn úr brezka samveldinu
er óafturkallanleg. í dag gekk hann á fund Elísabetar
Bretadrottningar og tilkynnti henni formlega úrsögn Suð-
ur-Afríku úr brezka samveldinu.
Tilkynningu Verwoerds um úrsögn, sem hann birti í
stuttri ræðu á samveldisráðstefnunni, laust niður eins og
eldingu. —
I Suður-Afríku hefur ákvörðunin vakið áhyggjur og almenn-
an kvíða. Allt í einu rennur það upp fyrir mönnum hve geig-
vænleg áhrif úrsögnin getur haft á fjármála- og efnahagslíf lands-
ins. Þá sjá menn fram á pólitíska einangrun Suður-Afríku. Ekk-
ert ríki í brezka samveldinu mælti kynþáttastefnu hennar bót.
'it SNÝR HIÐ BRÁÐASTA HEIM
Verwoerd hefur ákveðið að hætta Við fyrirhugaða tveggja
daga heimsókn til Bonn í Þýzkalandi. Ástæðan er að hann verður
að hraða sér heim til Suður-Afríku vegna ólgunnar, sem fylgir
í kjölfar ákvörðunar hans.
Hann lýsti því yfir í London á fundi með blaðamönnum, að
stjórn Suður-Afríku myndi nú þegar hefjast handa um aðgerðir
til að draga úr því efnahagslega og viðskiptalega áfalli, sem
íylgir úrsögninni. Hann sagði m. a. að Suður-Afríka myndi halda
áfram að vera á Sterlingssvæðinu og héldi þannig fjármála-
tengslum við Bretland.
'jf SKIPTAR SKOÐANIR
Annars eru skoðanir mjög skiptar um þessa atburði. Full-
trúar hvítra landnema í Afríkulöndum lýsa yfir áhyggjum og
harmi vegna þeirra. Sir Boy Walensky í Ródesíu sagði m. a.:
— Þetta eru þáttask/i. Nú hefjast galdraofsóknirnar gegn hvítum
mönnum í Afríku af fullum krafti.
Hinsvegar er Diefenbaker, forsætisráðherra Kanada, jafn-
^ Alit Gaitskells
Gaitskell foringi verkamanna-
flokksins tók til máls: — Ég held
að okkur sé það öllum ljóst, að
brezka samveldið hefur síðustu
daga þolað mestu þrengingar í
sögu sinni. Víðtækra áhrifa mun
gæta af þessum atburðum, ekki
aðeins innan samveldisins held-
ur miklu víðar.
— Ég veit, sagði Gaitskell, að
sumir eru þeirrar skoðunar að
þessi atvik leiði til hrörnunar og
upplausnar brezka samveldisins.
En við sem sitjum hérna megin í
salnum teljum þvert á móti að
þessir atburðir styrki trú okkar
á samveldinu og þýðingu þess fyr
ir allt mannkynið.
Gaitskell réðist á kynþátta-
stefnu Suður-Afríku. Hann sagði
Frh. á bls. 2
Myndin sýnír Verwored, forsætisráðherra Suður-Afríku, með
hvíta dúfu. Hann Iýsti yfir úrsögn lands síns úr brezka sam-
veldinu. Hann upplýsir nú að Nkrumah frá Ghana hafi sett
honum úrslitakosti.
Allsherjarþing SÞ
vítir Suður Áfrlku
harður í málinu og áður. Hann segir að úrsögn Suður-Afríku
hreinsi andrúmsloftið. En það var einmitt Diefenbaker, sem réðist
harkalegast á Suður-Afríku áður en Verwoerd tók ákvörðun sína.
’jf ÓSIGUR MENZIES OG MACMILLANS
Tveir af mikilhæfustu stjórnskörungum brezka samveldis-
Ins eru taldir hafa beðið alvarlegan persónulegan ósigur við úr-
sögn Suður-Afríku. Þeir eru Menzies, forsætisráðherra Ástralíu,
en svo hagar til í Ástralíu, þótt ekki sé beinlínis ríkjandi kyn-
þáttaaðgreiningur, að það er stefna stjórnarinnar að heimila nær
eingöngu hvítum mönnum landnám þar.
Hinn maðurinn, sem hefur hlotið alvarlegan hnekki, er Mac-
millan, forsætisráðherra Bretlands, en hann tók að sér hlutverk
eáttasemjara á samveldisráðstefnunni og þóttist viss um að ekki
Og Adloi Sfevenson snýsf gegn
nýlendustefnu Portúgoln
New York, 16. marz. — (Reuter) —
EKKI er ein oáran stök fyrir Suður-Afríku-mönnum. 1 dag for-
dæmdi Allsherjarþing SÞ yfirgang þeirra í gæzluverndarsvæðinu
Suðvestur-Afríku. Ályktunartillaga um þetta var samþykkt með
74 samhljóða atkvæðum. Níu ríki lýstu því yfir að þau greiddu
ekki atkvæði. Því var lýst yfir að Suður-Afrika væri ógnun við
heimsfriðinn. —
kæmi til úrsagnar.
Úrslita-
kostir
London, 16. marz. (Reuter)
VERWOERD, forsætisráð-
herra, skýrði nokkrum
blaðamönnum frá því í
kvöld, að hann hefði ein-
skis átt úrkostar annars,
en að segja Suður-Afríku
úr samveldinu. Það hefði
verið Nkrumah, forseti
Ghana, sem setti honum
algera úrslitakosti.
Nkrumah tilkynnti Ver-
woerd, að öll málamiðlun
væri útilokað, — annað
hvort yrði Suður-Afríka
að víkja úr samveldinu —
eða Ghana.
í brezka þinginu
Neðri málstofan brezka var
troðfull síðdegis í dag bæði þing-
sæti og áhorfendapallar. Alvara
grúfði yfir málstofunni, þegar
Macmillan forsætisráðherra gekk
í salinn til að gera þingi grein
fyrir síðustu atburðum.
Hann sagðist verða að viður-
kenna að úrsögn Suður-Afríku
væri alvarlegur og beiskur ósig-
ur. En hann sagði að allt hefði
verið reynt til að miðla málum.
Fyrst það hefði ekki tekizt teldi
hann að það hefði í rauninni ver-
ið útilokað. Og úr því svo var
komið, þá var það eina sæmandi
lausnin að Suður-Afríka gengi úr
samvelrinu.
Macmillan lagði áherzlu á það
að Bretland vildi eftir sem áður
viðhalda hinu nána samstarfi við
Suður-Afríku jafnt á sviði fjár-
mála, menningarmála og land-
varna. Hann kvaðst vona, að ekki
liðu mjög mörg ár, þar til Suður
Afríka fengi að nýju inngöngu
í brezka samveldið, enda væri
öllum heirdil aðild að því án
tillits til uppruna, litarf ars eða j
trúar ]
Diefenbaker
Samve’dið
styrkist
segir Diefenbaker
LONDON, 16. marz (Reuter)
— Diefenbaker, forsætisráð-
herra Kanada, sagði á blaða-
mannafundi í dag, að brezka
samveldið væri sterkara og
andrúmsloftið hreinna í því
eftir að Suður-Afríka er á
brott gengin.
— Samtök verða ætíð sterk
ari við það að stíga skref
fram á við, sagði hann og
bætti því við, að sér virtist
að samveldið styrktist nú
með hverjum fundi sem
haldinn væri.
Frh. á bls. 2.
Bandaríkin voru meðal þeirra
sem greiddu atkvæði með for-
dæmingu á Suður-Afríku, og
eru það skýrustu merki sem
enn hafa komið fram um ein-
arða stefnu Kennedy-stjórnar-
innar í Afríkumálum.
Þá gerðist það í öryggisráð-
inu, að Adlai Stevenson, full-
trúi Bandaríkjanna, greiddi at-
kvæði með tillögu um að rann-
sóknarnefnd SÞ færi til portú-
gölsku Angóla á vesturströnd
Afríku til að kynna sér ástandið
þar.
Stevenson lagði áherzlu á
það, að Bandaríkin litu á Portú
gal sem vinaríki en þau teldu
sig bregðast skyldum sínum ef
þau svikjust um að benda á þá
geigvænlegu hættu sem yfir
vofir í Angóla, ef ekki er taf-
London, 16. marz (Reuter)
ÞAÐ var tilkynnt í London í
kvöld, að fimm af þingmönnum
Verkamannaflokksins hefðu ver-
ið reknir úr þingflokknum, fyrir
að snúast gegn stefnu hans í mik-
ilvægum atriðum.
Hinir brottreknu eru Michael
arlaust hafizt handa um efna-
hagslega og félagslega upp-
byggingu meðal hinna inn-
fæddu. Hann sagði að ef ekkert
væri að gert mætti búast við
því að sama ástand yrði í
Angóla eins og raunin hefur á
orðið í Kongó.
Hann bað Portúgala um að
láta sér segjast í þessu. Þeir*
ættu ekki að spyrna broddun-
um við, heldur taka því meS
þökkum að rannsóknarnefnd
SÞ kæmi til nýlendunnar, þar
sem svo óróasamt hefur verið
að undanförnu. Það væri öll-
um fyrir beztu, Portúgölum
sjálfum og íbúum Angólu, að
vinsamlegt samstarf tækist við
SÞ um lausn vandamálanna í
framtíðinni.
Foot, Sidney Silverman, Emery
Hughes, S. O, Davies og William
Baxter. Þeir tilheyrðu allir hin-
um róttæka vinstri armi Verka-
mannaflokksins, sem hefur hald
ið uppi stöðugri gagnrýni á Gait-
skell foringja flokksins, einkum
í utanríkis- og landvarnarmálum.
Fimm þingmenn reknir