Morgunblaðið - 17.03.1961, Page 23

Morgunblaðið - 17.03.1961, Page 23
Föstudagur 17. marz 1961 MORGVNBLAÐIÐ 23 Sambúð Fi'amh. af bls. 13 treysti og bæti fiina góðu sam- Ibúð milli landanna. Áhrif lausnar fiskveiðideilunnar — Hvaða áhrif álítið þér að íslenzk-brezka samkomulagið um lausn fiskveiðideilunnar muni Ihafa, að því er snertir Færeyjar og Grænland? — Danska stjórnin hefur kynnt sér þetta nýja samkomu- lag af miklum áhuga. Hún hefur fjallað um fiskveiðitakmörkin við Færeyjar og Grænland af mikilli alúð og áhuga. Þess vegna mun damska stjórnin nú með gaumgæfni yfirvega hin nýju viðhorf, sem íslenzk-brezka sam- komulagið hefur skapað. En ég (hefi ekki fengið neinár upplýs- ingar um afstöðu ríkisstjórnar- innar frá utanríkisráðuneytinu. — Hvernig hafið þér og kona yðar kunnað við yður hér á ís- landi? — Við hlökkuðum til þess að koma hingað í fyrra og ennþá meira til þess að koma heim eftir ,,sumarfríið“ í vetur, segir Bjarne Paulson, sendiherra að lokum. Sendiherrahjónin eiga eins og kunnugt er tvö börn, 20 ára son, Olaf Bjarne, sem stundar nám í stærðfræði og eðlisfræði við ÍNiels Bohrs stofnunina við Kaupmannahafnarháskóla, og 18 éra dóttur, Brita Agnete, sem einnig stundar nám í Danmörku og verður stúdent á næsta ári. Bjarne Paulson sendiherra er eins og kunnugt er íslenzkur í föðurætt og hefur rækt góðan frændskap við hina íslenzku ættingja sína. En hann er að öllu leyti uppalinn í Danmörku og hefur frá því hann lauk námi verið danskur embættismaður. Ber.diherrann og kona hans, frú Agnete Paulson, hafa þann stutta tima sem þau hafa dvalið hér á íslandi getið sér ágætt orð sem glæsilegir og dugandi fulltrúar hinnar dönsku frændþjóðar. — Bæiarstjórn Frh. af bls. 2 Kópavogs um málið af hálfu Eeykjavíkurbæjar og ennfremur verið litið svo á, að Skipulags- nefndin fjallaði um það að því er Kópavog snerti, hefði ekki þótt ástæða til frekari ráðstaf- ana. Sér hefði einnig verið kunn ugt um að skipulagsstjóri ríkisins hefði margsinnis rætt þessi mál við bæjarstjórann, auk þess sem, skipulagsstjórinn hefði í janúar mánuði sl. farið suður í Kópavog ásamt próf. Bredsdorff, ráðu- nauti Rvíkurbæjar í skipulags- málum, og skipulagsstjóra Reykja víkurbæjar gagngert til að ræða þessi mál. Hefði Þar verið ákveð- ið að setja inn í samkeppnisskil- málana, að skipuleggja ætti land- ið bæði á svæði Kóbavogs og . Reykjavíkur sem eina heild, en jjþó þannig, að koma mætti því í 1 framkvæmd í hvoru sveitarfélagi jum sig óháð hinu. Loks sagði fiborgarstjóri, að taka bæri tillit ■ til þess að hér væri um hug- myndasamkeppni að ræða, sem hvort sveitarfélagið um sig gæti iagt til grundvallar við endan- legar skipulagsákvarðanir, en hvorugt væri bundið af. Leysist vonandi * Alfreð Gíslason tók stuttlega til máls aftur, kvað leitt að til þessa skyldi hafa komið og spurð ist fyrir um hvort líkur væru á að ágreiningur þessi mundi hafa á- hrif á framkvæmd samkeppninn ar. Geir Hallgrímsson benti í því sambandi m.a. á það, að í skil- málum samkeppninnar væri gert ráð fyrir því, að hægt yrði að framkvæma tillögurnar óháða hvor annarri, enda þótt samræmi væri haft með þeim. Að öðru leyti lét borgarstjóri í ljós þá von, að þessi ágreiningur, sem, telja yrði standa milli skipulags- stjóra ríkisins og bæjarstjórnar- innar í Kópavogi, leystist á vin- samlegan hátt. — Skaðabætur Frh. af bls. 24 þrátt fyrir þetta gáleysi hans, næg ástæða til að skipta sök á slysinu, o.g verður hún lögð óskoruð á dtefnda (frystihúsið). Varanleg örorka Jóhannesar af völdum slyssins, var metin 75 prósent. í héraði voru honum dæmdar alls tæplega 32© þús. krónur auk vaxta. f Hæstarétti Hæstiréttur hækkaði bótakröf- urnar um nokkra fjárhæð, eða upp í nær 366.000 krónur auk vaxta. f forsendum dómsins segir m. a. á þessa leið. eftir að kröf- um hefur verið lýst, en Tryggvi Sigurðsson krafðist einnig þar rúmlega 550 þús krónur í bætur til handa syni sínum. Gagnáfrýjendur hafa krafizt þess, að þeir verði aðeins taldir bera að hálfu fébótaábyrgð á tjóninu og að þeim verði aðeins dæmt að greiða aðaláfrýjanda kr. 162.841,50 með 6% ársvöxt- um frá 21. júní 1957 til greiðslu- dags og málskostnað í héraði og að mati dómsins, en málskostnað ur fyrir Hæstarétti verði látinn falla niður. Síðan segir í forsendu á þessa leið: „Eftir að dómur var kveðinn upp í héraði hefur verið lagt fram vottorð frá Árna Björns- syni, lækni, dags, 7. marz sl., þar sem hann telur ekki ástæðu til að breyta örorkumati því, sem lagt var fram í héraðsdómi. Þá hafa dómarar Hæstaréttar farið á slysstaðinn og athugað að- stæður þar. 1. Með vísan til 39. greinar laga nr. 29/1947 um vernd bama og ungmenna og 16., 18. og 19. greina laga nr. 23/1952 um ör- yggisráðstafanir á vinnustöðum má fallast á þá skoðun héraðs- dómsins, að ekki sé ástæða til að. skipta sök á slysinu og að hann beri að leggja óskoraða á gagnáfrýjendur . . . Síðan er fjallað um einstaka liði fjár- krafnanna og loks segir í dóms- orðum: „Gagnáfrýjendur, Júpiter hf., greiði in solidum aðaláfrýjanda, Tryggva Sigurðssyni f. h. sonar hans, Jóhannesar Tryggvasonar, kr. 365.683,00 með 6% ársvöxtum frá 21. júní 1957 til greiðsludags og kr. 42.000,00 í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, að viðlagðri aðför að lögum.“ Stofustúlkur — Danmörk 2 duglegar stofustúlkur geta komist að á 1. fl. hóteli í Kaup- mannahöfn frá maí—nóvember. Umsóknir ásamt meðmælum send ist til fru direkt0r Hauberg, Park Hotel, Jarmers Plads Kþbenhavn V. Danmark. Samhomur Æskulýðsvika K.F.U.M. og K. í Laugarneskirkju í kvöld tala Jóhannes Sigurðs- son, prentari og Benedikt Arn- kelsson, oand. theol. Kórsöngur og einsöngur. Allir velkomnir. Kristniboðsfélagið í Reykjavík Aðalfundur mánud. 20. marz kl. 8.30. — Áríðandi að meðlimir fjölmenni. Stjórnin. Fíladelfía Georg Gústafsson frá Svíþjóð talar í kvöld. og næstu kvöld kl. 8.30. Verið með frá byrjun. Allir velkomnir. — Minningarorb Fram. af bls. 17 litla, á leiðinni til sjúkrahússins. Jóna var vel greind og sérstak lega prúð og hæglát að eðlisfari, sem nú kom sér vel i þeim erfiðu veikindum sem hún átti við að búa sl. eitt ár. Hún tók veikind- um sínum með slíku jafnaðargeði að fullorðnir mættu vera sæmdir af þeirri stillingu sem hún sýndi. Hún gladdist yfir hverju smá- vægislegu sem fyrir hana var gert eða að henni rétt, eins og henni hefðu verið færðar stórar gjafir. Og þegar maður á hraðri ferð, sem oft kom fyrir, rétt að- eins lét hana sjá sig í dyragætt- inni, var þakklæti hennar og bros ið slíkt, að hún vék ekki úr hug- anum lengi á eftir. Þess vegna veit ég, að þótt æviskeið hennar yrði ekki lengra, skilur hún hér eftir margaj; ljúfar og fagrar minningar, hjá öllum þeim er henni kynntust, eðlilega mestar og beztar hjá foreldrum, systkin- um og öðrum nákomnum ættingj- um, en einnig meðal hinna mörgu vandalausu sem höfðu orðið því láni aðnjótandi að geta talist til vina hennar eða kunningja. Þann ig heldur hún áfram að lifa með- al okkar, í hugljúfum og fögr- um minningum sem við eigum um hana. Ég lýk þessum fátæklegu orð- um mínum með því að senda þeim hjónunum Málfríði Hall- dórsdóttur og Arnóri Stígssyni mínar innilegustu samúðarkveðj ur í hinni miklu sorg þeirra, — svo og öllum öðrum ættingjum og vinum litlu hjartkæru stúlk- unnar, sem nú verður flutt heim á ísafjörð til greftrunar þar. Helgi Helgason Félagslíf Knattspyrnufélagið Fram Æfing verður fyrir Mfl. 1. fl. og 2. fl. karla á Framvellinum í kvöld kl. 8 e. h. Þjálfarinn. Sandvíkurhreppsfólk Skemmtikvöld í Skátaheimil- inu laugard 18. marz kl. 8.30. — Mætið öll. ;\Vikan er komin út < ► ; ;efni blaðsins er ÍMEÐAL ANNARS. Marzgreinin. Helgi Sæm- undsson skrifar um tungu- málanámið í skól-uium. Næturlíf í París. Blaða- maður Vikunnar segir frá viðburðum næturinnar í borg borganna. Konan í samfélagri 20. ald- arinnar. Grein eftir Dr. Matthías Jónasson. Slappið af við vinnuna. Nokkur góð læknisráð til húsmæðra. Lýst eftir fegurðardrottn- ingu. Vikan tekur að sér hluta fegurðarsamkeppn- innar og heitir þeim góð- um fundarlaunum, sem bendir á „þá réttu.“ I næsta blaði á eftir birtist fyrsta myndin af þátttak- anda. Hamingjuleitin. Ástarsaga eftir Margaret Causins. Krákusilfur fyrir fimm þúsund pund. Sagt frá svæsnum svikahrappi. Júdó, japönsk glíma, sem konur og karlar í Reykja- vík iðka. O0 o» o* Innilega þakka ég öllum sem heimsóttu mig á 60 ára afmælinu með gjöfum, skeytum, og blómum, Guð blessi ykkur öll. Guðmunda Guðmundsdóttir, Sólbrekku, Garðahreppi Innilega þakka ég öllum nær og fjær, sem auðsýndu mér vinsemd á 70 ára afmæli mínu 15. febr. s.l. með símskeytum, heimsóknum og gjöfum. — Kær kveðja. Ebenezer Sívertsen, Stykkishólmi. Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig með gjöfum, skeytum og heimsóknum í tilefni 70 ára afmælinu mínu 6. marz sL Cuð blessi ykkur öll. Margrét Gísladóttir, Grundarfirði í‘CMJSF'S €MA.JL/ Kvöld 17. marz 1961 Gðte de pors Portuqaise Svínakótiletta með ristuðum ferskjum og sósu að potrú- gölskum hætti. Fransksteiktar kartöflur. IB WESSMAN. Verzlun í Hafnarfirði Til sölu er matvöru- og nýlenduvöruverzlun í full- um gangi á góðum stað í Hafnarfirði. Upplýsingar gefur ÁRNI GUNNLAUGSSON, hdl., Austurgötu 10, Hafnarfirði sími 50764 kl. 10—12 og 5—7. Nýkomið Hvítar ermastuttar peysur úr hollnzku ullargarni á telpur 2ja—10 ára. Verð frá kr. 88.00. Einnig mikið úrval af telpugolftreyjum. Mjög gott verð. Verzlunin ÁSA Skólavörðustíg 17 — Sími 15188. ARBORITE Plast-plötur listar — lím H. Benediktsson hf. sími 38300. Móðir okkar og tengdamóðir 4i ÁGUSTA guðrún jónsdóttir Lækjargötu 5, Hafnarfirði, sem andaðist 11. þ.m. verður jarðsungin frá Fríkirkj- unni £ Hafnarfirði laugardaginn 18. þ.m. Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu kl. J,30. Börn og tcngdabörn. Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur 3ja herb. íbúð ásamt einu herbergi í kjallara, samtals um 100 ferm. í fjölbýlishúsi í Vesturbænum er til sölu. Ibúðin er á mjög góðum stað á hitaveitusvæði í suðurenda hússins. Upplýsingar í síma 19176. samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður ÞÓRU EIRlKSDÓTTUR Skerseyrarvegi 2 Hafnarfirði Guðlaug Magnúsdóttir, Ingimundur Jónsson, Guðrún E. Magnúsdóttir, Bjarni Þ. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.