Morgunblaðið - 17.03.1961, Síða 2

Morgunblaðið - 17.03.1961, Síða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 17. marz 196x Furðuleg ályktun í Képavogi um skipu- lagssamkeppni „Klýtur að vera byggð á misskilningi", segir borgarstjóri FURÐUL.EG áilyktan, frá bæj- arstjórn Kópavogs í tilefni af norrænu samkeppninni um skipulag Fossvogsdalsins, kom til umræðu á fundi bæjarstjóm- ar Reykjavíkur síðdegis í gær. Auk Reykjavíkurbæjar stendur að samkeppni þessari Skipulags- nefnd ríkisins, sem hefur með höndum skipulag Kópavogs, þar sem ekki er starfandi skipulags- nefnd. Var að tilhlutan nefnd- arinnar og með vitund bæjar- stjóra Kópavogs ákveðið, að samkeppnin skyldi einnig ná til aðliggjandi svæðis, sem Kópa- vogskaupstað tilheyrir, en hon- nm J»ó að kostnaðarlausu, þar eð ekki væru horfur á að svæði þetta yrði byggt fyrr en að all- mörgum árum liðnum. Þó að margsinnis hafi verið haft sam- ráð við bæjaryfirvöldin í Kópa- vogi og þeim verð fullkunnugt um þessi áform, er það fyrst nú um það bil sem samkeppnin er auglýst, að áðurnefnd ályktun er gerð, en í henni er lýst mik- illi óánægju með þessa ráðstöf- un. Það var Alfreð Gíslason, bæj- arfulltrúi Alþýðubandalagsins sem á fundinum í gær vakti máls á þessari ályktun bæjarstjórnar Kópavogs, en þar er m. a. komist svo að orði, að mótmælt sé „ein- dregið því tiltæki bæjaryfirvalda Reykjavíkur að efna til sam- keppni utanlands og innan um skipulagningu á stóru landssvæði sem tilheyrir Kópavogskaupstað, þ. e. ræktuðu landi nýbýlanna norðan Nýbýlavegar, án samráðs og samþykkis bæjaryfirvalda í Kópavogi. Ennfremur segir, að stjórnin telji „sig með öllu ó- bundna af niðurstöðum þessarar samkeppni og muni ekki taka þátt í kostnaði við hana“. Innti Alfreð Gíslason borgarstjóra eft- ir nánari málavöxtum. Algjör misskilningur Borgarstjóri, Geir Hallgríms- son, kvaðst ekki hafa gert álykt- unina að umtalsefni, þar sem hún virtist vera byggð á algjprum misskilningi, sem æskilegast hefði verið að eyða í vinsemd og vináttu. Að gefnu tilefni kvaðst hann hins vegair mundu rekja gang málsins. Skýrði borgarstjóri síðan frá því, að Skipulagsnefnd ríkisins, sem ásamt Rvíkurbæ stæði að samk., hefði með að gera skipulag Kópavogs, eins og annarra staða úti um land, þar sem ekki eru 'starfandi skiplagsdeildir. Hefði nefndin talið eðlilegt að nota það taekifæri, sem samkeppnin gæfi, til þess að fá fram tillögur að skipulagi svæðisins, sem þá jafn framt væru samræmdar þeim til lögum, er gerðar yrðu fyrir Reykjavík. Það væri því að und- irlagi Skipulagsnefndarinnar, er samkeppnin hefði verið látin ná til landssvæðis Kópavogskaup- staðar, en engar ákvarðanir um slíkt verið teknar af bæjaryfir- ■v "’dum Reykjavíkur. Ósk bæjarstjóra Las borgarstjóri upp bréf frá skipulagsstjóra ríkisins, Zophóní asi Pálssyni, í tilefni ályktunar- innar, þar sem greint var frá ýmsu samráði um málið við bæj- arstjórann í Kópav., Huldu Jak- obsdóttur, allt síðan samkeppnin var fyrst á döfinni, auk þess sem skipulagsstjóri rifjaði upp bréflega ósk bæjarstjórans firá í maí 1958 um að gerðar yrðu skipulagstillögur á hluta þess svæðis úr landi Kópavogs, sem samkeppnin nær nú til, en þar sagði m. a. svo „ . . . vil ég hér með leyfa mér að óska eftir því að skipulagningu austasta hluta þess svæðis, Digranesland að Fífuhvammslæk og að austur- takmörkum bæjarlandsíns, verði hraðað eins og unnt er, og í því sambandi sérstaklega að óska tillagna um samræmingu þess bæjarhluta við skipulag Reykja- víkurmegin, sem nú mun vera unnið að, a. m. k. með tilliti til aðalumíerðaræða“. Með hliðsj. af því, að bæjarstjóri Kópavogs hefði í viðræðum um málið ekkL talið samkeppni um skipulag spildunnar milli Fossvogslækjar ög Nýbýlavegs tímabæra, sagði í bréfi skipulagsstjóra, að ákveð- ið hefði verið að samkeppnin skyldi vera án nokkurs kostnað- ar fyrir bæjarstjórn Kópavogs og það verið tilkynnt bæjarstjóra þegar í haust. Var máliff vel kunnugt f framhaldi af tilvitnun þessari I bréf skipulagsstjóra skýrði borg arstjóri frá því, m.a., að í sam- bandi við undirbúning samkeppn innar hefði af hálfu Reykjavíkur- bæjar oftsinnis verið haft sam- band við yfirvöldin í Kópavogi. Og þann 23. nóv., skömmu eftir að bæjarráð hefði samþykkt af- mörkun fyrirhugaðs samkeppnis svæðis fyrir sitt leyti að því er tók til Reykjavíkur, hefði samrit af tillöguuppdrættinum yfir svæð ið í heild verið sent bæjarstjórn Kópavogs, og jafnframt greint frá gangi málsins. Þar sem ekk- ert hefði heyrzt frá bæjarstjórn Framh. á bls. 23 — SamveldiB Frh. af bls. 1 Ég tel að það sem gerðist í gær tákni grundvallarbreyt ingu. Merkin eru nógu skýr, — héðan í frá mun enginn geta haldið því fram, að kyn þáttamisrétti geti farið sam- an við aðild að samveldinu. Diefenbaker var meðal ákveðnustu andstæðinga Ver- woerds á samveldisfundin- um. Hann gekk óskorað í lið með svertingjaþjóðum sam- veldisins, sem kröfðust af- náms og breytinga á kyn- þáttastefnu Suður-Afríku. — Hann bar m. a. fram tillögur um að samin yrði skorin- orð mannréttindayfirlýsing brezka samveldisins. Diefenbaker hafði meðal annars í hyggju að bera fram tillögur um að samin yrði skorinorð mannréttinda- yfirlýsing brezka samveldis- ins. En á blaðamannafund- inum í gær sagði hann: — Nú, eftir að Suður-Afríka er farin úr, er kannski óþarfi að semja nokkra slíka yfir- lýsingu. Enga eftirsjá var að heyra hjá Diefenbaker, þótt Suður- Afríka gengi úr samveldinu. Sagði hann að úrsögnin hefði ekki komið sér á óvart og verið fullkomlega eðlileg, kynþáttastefna Suður-Afríku hefði ekki getað samrýmzt grundvallarreglum samveldis ins. —■ s s s s s s s s s s s s s s s s LÆGÐIN fyrir sunnan land var á hreyfingu NA í gær, og ný lægð yfir Labrador fylgdi á eftir. Veður var allillt á Norðurlandi í gær, snjókoma og víða strekkingur, en vægt frost. Á Austfjörðum var. all- hvasst og slydda. Veffurspáin kl. 10 í gær- kvöldi. SV-land til Breiðafjarðar og miðin: Norðan átt, sumsstað- s ar stinningskaldi í kvöld, i skýjað með köflum, þykknar ^ sennilega upp með SA átt ann s að kvöld. b Vestfirðir til NA-lands og J miðin: Norðan og NA átt, víða \ stinningskaldi í nótt en hæg- S ari á morgun, snjókoma með | köflum. \ Austfirðir, SA-land og mið- S in: Léttir til með NV stinnings • kalda. \ Rauðigaldur á Islandi ÞJÓÐVILJINN heldur í gær áfram hinum hrottalegu ár- ásum á eistneska flótta- manninn, sem fengið hefur íslenzkan ríkisborgararétt og býr hér með fjölskyldu sinni. Kommúnistamálgagnið krefst þess nú blygðunar- laust, að hann verði fram- seldur í hendur hinna rúss- nesku kúgara, svo að þeir geti pyndað hann og líflátið. Með þessari afstöðu hafa íslenzkir kommúnistar und- irstrikað að siðferði þeirra sé hið sama og skoðana- bræðra þeirra fyrir austan járntjald. Þeir krefjast þess að einn samborgara þeirra verði myrtur, án þess að nokkuð, sem siðaðir menn geta talið sannanir fyrir af- brotum, hafi verið lagt fram. Það eru svo sem engin stór- tíðindi, þó að rússneskir ráðamenn hefji „réttarhöld“ yfir andstæðingum sínum fjarverandi. Slík „réttar- höld“ hafa ritstjórar Þjóð- viljans alltaf lofsungið, og minnast menn í því sam- bandi læknamálsins svo- Dómnefnd skipuð við Háskólann SKIPUÐ hefir verið dómnefnd til þass að dæma um hæfni umsækj- enda um prófessorsembættið í sögu við heimspekideild Háskóla íslands. í nefndinni eiga sæti dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, prófessor, af hálfu heimsspeki- deildar, og er hann jafnframt formaður nefndarinnar, dr. Kristján Eldjám, þjóðminjavörð- ur, af hálfu Háskólaráðs, og Finn- ur Sigmundsson, landsbókavörð- ur, skipaður af Menntamálaráðu- neytinu. Sex umsóknir bárust um em- bættið en einn umsækjenda Gunn ar Finnbogason cand. mag., hefir tekið umsókn sína aftur. nefnda og annarra slíkra réttarhneyksla, sem leiða hugann að galdrabrennun- um. En sem betur fer hefur rauðigaldur aldrei áður verið framinn hér á landi gegn ís- lenzkum ríkisborgara, en það sýnir okkur nú betur en flest annað hvað hér tæki við, ef þessir herrar kæmu sínum áformum í fram- kvæmd. Siðferðið er hið sama alls staðar. Yfirboðarar Þjóðviljarit- stjórnarinnar, rússneska sendiráðið, virðist líka hafa undirbúið árásina vel, því að í gær dregur Þjóðviljinn upp úr pússi sínu tvær myndir frá þessum svokölluðu rétt- arhöldum og sjálfsagt verð- ur þeim útvegað eitthvað meira af „sönnunargöngum“. Um mál þetta er annars rætt í Staksteinum í dag. Togarasölur f FYRRADAG seldi togarinn Vík ingur frá Akranesi í Bremerhav- en 190,1 lest fyrir 106.886 mörk. f dag selur Hárðbakur í Cuxhav- en. Skellinöðru stolið MILLI kl. átta og hálf-ellefu á miðvikudagskvöldið var skelli- nöðru stolið frá húsinu nr. 20 við Stóragerði. Hjólið var rautt að lit, af tegundinni H. M. V., og skrásetningarnúmer þess R-536. Þeir, sem kynnu að geta veitt einhverjar upplýsingar um stuld inn, eru beðnir að hafa sam- band við Rannsóknarlögregluna. Vorboða-bazar HAFNARFIRÐI: — Þaff er i bvöld kl. 8,30, sem Sjálfstæff- iskvennafélagið Vorboffinn heldur bazar í Sjálfstæffishús- inu. Eru Vorboffakonur beðnar að koma munum eftir kl. eitt. Sanistarfsnefndir launþega og vinnuveitenda MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óffinn efnir til fundar í Sjálfstæffishús- inu n.k. sunnudag kl. 2. Þar verff ur rætt um sam- starfsnefndir launþega og vinnuveitenda, og hefur Pétur Sigurðsson, al- þingism., frami- sögu um máliff. Mál þetta hef- ur borið mjög á góma aff undan- förnu, enda er þaff álit margra, aff slíkar nefndir myndu ger- breyta samskiptum fyrrgreindra affila, báðum til hagræðis og hags bóta. — Suður-Afríka Framh. af bls. 1 að hún væri stöðugt svívirða og móðgun í garð mikils meirihluta íbúa brezka samveldisins. — Við hefðum óskað þess af alhug, að Suður Afríka breytti kynþátta- stefnunni. Fyrst hún var ófáan- • eg til þesss, var það heppilegast að hún hyrfi úr samtökunum. ( Verwoerd sár og reiður Verwoerd forsætisráðherra situr áfram Samveldisráðstefnuna, þar sem Suður-Afríka gengur ekki úr samtökunum fyrr en lýðveldi er lýst yfir 31. maí n.k. Af við- tölum Verwoerds við blaðamenn kemur það í ljós, hve sár hann er yfir meðferðinni á sér á ráð- stefnunni. Hann staðhæfir að úr- sögn Suður-Afríku, sé ekkert annað en byrjun endaloka sam- veldisins. Það muni hhynja til grunna við slíkar starfsaðferðir. Verwoerd bendir á það, að i nokkrum ríkjanna sem harðast hafa ráðizt á Suður-Afríku við- gangist skæð mismunun milli þjóðflokka, t. d. í Ghana, Ind- landi, Malaja og Ceylon. Gagnrýni í S-Afríku Verwoerd ætlar að fljúga af stað heimleiðis á mánudaginn. Þegar heim kemur bíða hans án efa heit ar umræður. Stjórnarandstaðan hinn svonefndi Sambandsflokkur, sem er aðallega studdur af ensku mælandi mönnum hefur þegar gagnrýnt harðlega skyndiákvörð un Verwoerds um úrgöngu úr samvelrinu. Foringi Sambandsflokksins Villers Graaf bar í dag fram þingsályktun, þar sem hin skyndi lega ákvörðun Verwoerds er vítt og er þar sagt, að Verwoerd hafi brugðizt trausti yfirgnæfandi meirihUjta kjósendanna. Graal krafðist þess í þinginu, að málin yrði þegar tekið til umræðu, en þingforseti neitaði því. Var mik- ill hiti í þingmönnum. Hefur Sam bandsflokkurinn lýst því yfir, að þjóðaratkvæðagreiðsla ætti að fara fram um svo alvarlega á- kvörðun sem úrsögn úr sam- bandinu. Er nú almennt talið, að Verwoerd myndi tapa slíkri atkvæðagreiðslu. Ef málið veldur miklum æsingum er talið skyn— samlegra fyrir hann að rjúfa þing og efna til nýrra þingkosninga, því engin hætta sé á að stjórn- arflokkurinn tapi þingkosning- um. Dagskrá Alþingís DAGSKRÁ efri deildar kl. 1,30 í dagj 1. Stofnlánadeild sjávarútvegsins, frv, 1. umr. 2. Lögreglumenn, 1 umr. 3» Minnispeningur Jóns Sigurðssonar, U umr. 4. Fjáröflun til íþróttasjóös, 1. umr. 5. Jarðgöng á þjóðvegum, 3. umr, 6. Heimild til að veita Guðjóni Ár- manni Eyjólfssyni stýrimannsskírteinl 2. umr. 7. Sala Þingeyjar 1 Skjálfanda fljóti, 2. umr. Dagskrá neðri deildar 1 dag: 1. Með ferö opinberra mála, 2. umr. 2- Raf- orkulög, 2. umr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.