Morgunblaðið - 17.03.1961, Qupperneq 5
Föstudagur 17. marz 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
MENN 06
= MALEFNt=
Skagfirðingurinn
rœddi við
Kennedy
SVERRIR Hólmarsson er nem
andi í fimmta bekk MR. Hann
er borin og barnfæddur á
Sauðárkróki, sonur hjónanna
Oddnýjar Þorvaldsdóttur og
Hólmars Magnússonar, sem nú
eru búsett í Reykjavík.
Sverrir hefur siðan um ára-
mót dvalizt 1 Bandaríkjunum
og tekið þar þátt í æskulýðs-
móti, sem til er stofnað af stór
blaðinu New York Herald
Xribune í samvinu við ýmsa
skóla þar vestra og Pan Am.
flugfélagið. Þátttakendur í
mótinu eru frá 37 þjóðum og
eru þeir valdir með ritgerða-
samkeppni, sem menntamála-
ráðuneyti viðkomandi landa
auglýsa meðal æskufólks.
Sverrir hefur sótt tíma i
menntaskólum og sagt jafn-
öldrum sínum frá íslandi. Einn
ig hefur hann komið fram í
sjónvarpi við góðan orðstír og
tekið þátt í tilraun með sjón-
varpskennslu. Sverrir hefur
búið hjá handarískum fjöl-
skyldum og þess á milli ferð-
azt um, skoðað markverða
hluti og heilsað upp á fyrir-
fólk meðal innfæddr a .
Fyrir skömmu voru þátttak-
endur í mótinu á ferð í Wash-
ington og virðist sem helztu
stórmennl borgarinnar hafi
heilsað upp á þá. Þannig
snæddu Sverrir og félagar
hans morgunverð með full-
trúadeildarþingmönnum frá
Kalifomíu og Pennsylvaníu
hádegisverð með öldunga-
deildarmönnum frá Haway,
New York og Rode Island
og síðan kvöldverð hjá
sendiherra Pakistans, hr. Aziz
Ahmed. Þeir skálmuðu um sali
þingsins í fylgd með fulltrúa
Kaliforniubúa, sem Miller
heitir og loks var þeim boðið
að hafa viðtal við blaðafull-
trúa forsetans, Pierre Saling-
er, sem hefur skrifstofu sína
í Hvíta húsinu.
Þegar hópurin kom til Hvíta
hússins var Salinger ekki við-
láitinn í bili og meðan þau biðu
styttu þau sér stundir við að
syngja sönginn um Klement-
ínu, sem vinsæll er meðal
menntskælinga um allan heim.
Skyndilega birtist Kennedy
forseti, sem sennilega hefur
komið til að athuga hvaða ó-
hljóð þetta væru. SIó þögn á
hópinn, en Kennedy tók þeim
ljúfmannlega og bauð þeim
inn á einkaskrifstofu sína.
Ræddi hann þar við þau og
svaraði m. a. spurningum
Sverris viðvíkjandi svokall-
aða friðarsveit, sem Banda-
ríkjastjórn hyggst koma á lagg
irnar. Hinir marglitu mennta-
skólanema spjölluðu við for-
setann í tuttugu mínútur og
færðu sumir lionum gjafir,
sem þeir höfðu haft með sér,
í von um að geta komið á
framfæri.
Sverrir Iætur vel af dvöl
sinni vestra, sem vonlegt er.
Honum finnst að bandarískir
unglingar búi ekki við jafn
mikið frelsi og íslenzkir ung-
lingar á sama reki og að of
fáir þeirra hafi áhuga á góð-
um bókmenntum. Hann segir
að þótt hann hafi séð full-
komnustu söfn af nútímalist,
sem til séu eins og t. d. Guggen
ham safnið, þá séu húsgögn
manna og híbýlasmekkur
furðulega gamaldags. Hvergi
hefur hann rekizt á góða „jazz
músík“ og segir hann að fólk
geri yfirleitt engan grcinar-
mun á slíkri tónlist og venju-
legu „rokkvæli“ Sverrir var
mjög hrifinn af verzlunum, er
þarlendir kalla „dug staares“.
og segir hann að þar
fáist flest milli him-
ins og jarðar og opið sé mest-
allan sólarhringinn. Slík búð
er bæði apótek, skranbúð,
sjoppa og bókabúð í einu og
er Sverrir góður viðskipta-
vinur í bókahorninu eins og
sjá má á myndinni.
Sverrir dvelst nú hjá fjöl-
skyldu, sem býr í borginni
East Orange í New Jersey-
fylgi. Borg þessi er á stærð við
Reykjavík og sækir hann tima
í einum af menntaskólum bæj-
arins. í lok marz mun hann
taka þátt í ráðstefnu, sem hald
in verður í Waldorf Astoria
hótelinu í New York og Pan
Am flugfélagið mun vænta-
lega sjá um að koma honum
heim áðuir en prófin byrja í
MR.
Árshátið
Dagsbrúnar
-ærður í Iðnó laugard. 18. marz og hefst kl. 7,45.
DAGSKRA:
Borðhald íslenzkur matur á borðum.
Stutt ávarp.
I.eikþátiur Gunnar Eyjólfsson o. fl.
D a n s .
Góð hljómsveit. Söngvari með hljómsveitinni
Sigurður Ólafsson.
Aðgöngumiðar seldir í skrifstofunni í dag. Sími 13724.
Verkakvennafélagið Framsókn
Aðalfundur félagsins verður sunnud. 19. marz n.k.
í Alþýðuhúsinu kl. 2,30 s.d.
Fundarefni: Venjuleg aðalfunúarstöri.
Konur fjölmennið á fundinn.
Sýnið skírteini við innganginn.
STJÓRNIN.
Aða/fundur
Garðyrkjufélags Islands verður haldinn í Tjarnar-
café laugard. 15. apríl kl. 2 e.h.
Fundarefni:
Lagabreytingar. Aðalfundarstörf
og önnur mál.
STJÓRNIN.
Verz'unarhúsnœði
Um 80 ferm. á I. hæð á hitaveitusvæði í Austur-
bænum ti lsölu. Er nú verzlun í fullum gangi
Nýja Fasleignas lan
Bankastræti 7 — Sími 24300
kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546.
K jö aðnaðar maðu r
eða maður vanur kjötvinnslustörfum, óskast
nú þegar.
Upplýsingar hjá Kjötver h.f. Laugavegi 32.
— Ég hefði bara átt að vita
þetta, þegar þú bauðst mér í
mat.
Jón: — Ég held að það sé ekk
ert varið í nýju skrifstofustúlk-
una.
Jónas: — Nei, áreiðanlega
ekki. Hún virðist ekkert taka
eftir mér heldur.
Veðurfræðingurinn: — Skrif-
aðu að það rigni með kvöldinu.
Aðstoðarmaðurinn: — Ertu
viss um að það rigni?
Veðurfræðingurinn: — Já, ég
er alveg viss um það. í fyrsta
lagi hefi ég týnt regnhlífinni
minni, í öðru lági var mér boð-
ið að taka þátt í golfkeppni í
kvöld, og í þriðja lagi er kon-
unni minni boðið á útisamkomu.
Eimskipafélag Reykjavíkur hf. —
Katla fer frá Reykjavík í kvöld til
Póllands. Askja er í Napoli.
Skipadeild SÍS: — HvassafelT er í
Odda. Arnarfell losar á Vestfjöiðum.
Jökulfell er á leið til Keyðarfjarðar.
Dísarfell er á leið til Huil Litlafell
er væntanlegt til Reykjavíkur í dag.
Heígafell er í Reykjavík. Hamrafell
er á leíð til Reykjavíkur.
Eimskipafélag íslands hf. — Brú-
arfoss er í Reykjavík. Dettifoss er á
leið til NY. Fjallfoss er á leið til
Reykjavíkur. Goðafoss er í Hamborg.
Gullfoss fer frá Reykjavík kl. 06.00
í fyrramálið til Hafnarfjarðar og
Hamborgar. Lagarfoss er á leið til
Hamborgar. Reykjafoss fer frá Eski-
firði í dag til Norðfjarðar. Seifoss er
á leið til Reykjavíkur, Tröllafoss er
í NY. Tungufoss fer frá Ölafstirði
í dag til Reykjavíkur.
H.f. Jöklar: — Langjökuíl er á leið
til Reykjavíkur. Vatnajökuil er í
Amsterdam.
Hafskip hf. — Laxá er i Santiago
á Kúbu.
Loftleiðir: — Leifur Eiríkssson er
væntanlegur frá Glasgow og London
kl. 21,30. Fer til NY kl. 23.00.
Laugardaginn 4. marz voru geíin sam
an í hjónaband af séra Oskari J. Þor-
lákssyni, ungfrú Guðrún Oddsdóttir,
Flatatungu, Skagafirði og Knútur H.
Olafsson, Ránargötu 21. Heimili ungu
hjónanna verður að Flatartungu í
Skagafirði.
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Frogner Kapellet í
Osló, ungfrú Ragnhildur Péturs-
dóttir og Ian Paus, stud. jur.
AHEIT og GJAFIR
Sóllieimadrengurinn: — Þakklát
móðir 25; Þórunn Vilh.iálmsdóttir
100; Vilborg 100.
BIBEÍAN og SAMBANDIÐ
við dána menn nefnist er-
indi sem
Júlíus Guðmnndsson
flytur í Aðventkirkjunni
í kvöld kl. 8,30.
Allir velkomnir.
Oeorg
Gustafsson
trúboði
FRA SVÍÞJÓÐ
talar í Fíladelfíu í kvöld og
næstu kvöld kl. 8,30. Gústaf
son er óvenjulega góður
ræðumaður, enda kunnur á
Norðurlöndum, sem Orðsins
þjónn. Hann biður einnig
fyrir sjúkum á samkomun-
um.