Morgunblaðið - 17.03.1961, Page 24
/þrótfir
Sjá bls. 22
63. tbl. — Föstudagur 17. marz 1961
Bœjjarsfjórn
sjá bls. 14.
Sýningar- og
íþmttahúsiö
fokheit 1962
Tekur í sæti jafnmarga og Háskólabíóið,
Austurbæjarbíó, Þjóðleikhúsið og
og Gamla bíó til samans
FULLVÍST má nú telja, að
hafizt verði handa uri bygg-
ingu sýningar- og íþrótta-
húss í Laugardal í vor. —
Grunnurinn hefur verið
grafinn og ríkisstjórnin hef-
ur samþykkt fyrir sitt leyti
óskir byggingarnefndar um
10 milljóna króna lán úr mót
virðissjóði. Beðið er eftir
samþykki bandarískra stjórn
arvalda við lántöku þessari
og allt bendir til þess að það
fáist mjög bráðlega. Verður
þá hægt að láta til skarar
skríða.
Áætlað er, að fullgerð kosti
sýningar og íþróttahöllin í Laug-
ardal um 25 millj. króna, en fok-
beld um 15 millj. kr. Á þessu ári
munu aðilar þeir, sem að fiam-
kvæmdunum standa, leggja fram
hátt á fjórðu millj, króna, a. m.
k. — Er því reiknað með, að
húsið verði fokhelt á næsta ári
og síðan verður lagt kapp á að
íullgera það eins fljótt og kost-
ur er
Verður þetta stórt átak. Hlutur
Reykjavíkurbæjar í mannvirk-
inu er 51%. Sýningarsamtök at-
vinnuveganna leggja fram 41%
og íþrótjtabandalag Reykjevík-
ur og Bandalag æskulýðsfélag-
anna 8%.
★
í fyrra voru lagðar fram til-
lögur að byggingu sýningar- og
íþróttahússins. Síðan hefur ver-
ið unnið að ýmsum tæknilegum
undirbúningi. Teikningar hafa
verið sendar utan til frekari rann
sókna og athugunar. í Svíþjóð
hefur farið fram athugun á burð
arþoli byggingarinnar, í Dan-
mörku var hljóðburðurinn rann-
sakaður. — Undirbúningsfram-
kvæmdirnar hafa kostað á aðra
millj. króna.
★
Rætt hefur verið um að gera
einhverjar breytingar á frum-
uppdráttum, en í þeirri mynd,
sem stórhýsið verður byggt, mun
það taka yfir 2.000 manns í sæti,
þegar um íþróttaleiki á stærsta
velli er að ræða, þ. e. a. s. 22x44
metrar. Annars er yfirleitt ekki
notaður stærri völlur en 20x40
metrar í milliríkjaleikjum. —
Annað meginhlutverkið með
byggingu hússins er að skapa
grundvöll fyrir stórar vörusýn-
ingar hér í Reykjavík.
★
í sýningar- og íþróttasalnum
verður einnig stórt leiksvið, sem
notað verður við hljómleika, fyr-
irlestra, fundahöld eða sýningar,
sem ekki krefjast mikils gólf-
rýmis. Við slík tækifæri mun
þessi stóra höll taka 3.000 manns
í sæti, eða jafnmarga og fjögur
stærstu samkomuhús bæjarins til
samans: Nýja Háskólabíóið, sem
brátt er fullgert, Austurbæjar-
bíó, Þjóðleikhúsið og Gamla Bíó.
Þótt einhverjar breýtingar
verði gerðar á upprunalegri bygg
ingaráætlun, munu þær aldrei
skerða gólfrými í sýningarhúsinu
sem neinu nemur, enda hefur
verið miðað við það m. a., að
íþróttamenn fengju þarna góða
aðstöðu og jafnstóran leikvöll og
tíðkast í fullkomnustu og stærstu
íþróttahúsum erlendis. Áhalda
geymslur, böð, búningsklefar og
allt slíkt verður að sjálfsögðu í
húsinu og fordyrið, sem er stórt
og rúmgott gæti orðið heppilegt
til veitingasölu fyrst í stað.
Hins vegar er hér aðeins um
byrjunarframkvæmdir að ræða
eins og áður hefur verið greint
frá, því bæjarstjórn hefur heitið
þvi að ráðstafa ekki fyrst um
sinn svæðinu austur af bygging-
unni þarna í Laugardalnum. Er
hér um að ræða 10—12 hektara
lands, sem ætlunin er að nota
síðar undir sérstaka sýningar-
skála og annað því um líkt.
Svolítið Örari veiði
hjá togurunum
Frátafir vegna veðurs og iss
MENN gera sér nú vonir um að
fiskveiðar togaranna séu eitt-
hvað að glæðast. Heildarútkom-
an er ekkert betri en áður, vegna
sífelldra frátafa við veiðarnar,
en það er eins og það gangi eitt-
hvað örar hjá sumum en verið
hefur, þegar hægt er að vera við
veiðar fyrir veðri eða ís, sagði
Hallgrímur Guðmundsson hjá
Togaraafgreiðslunni, er við innt-
um hann eftir þessu.
Maí frá Hafnarfirði er ný-
kominn af Nýfundnalandsmiðum
með 340 lestir. Áður voru þar
Júpíter, Þorkell máni og Þor-
móður goði og komu með sæmi-
legan afla. En hjá þessum togur-
um voru sífelldar frátafir vegna
íss.
Nokkrir togarar hafa verið við
veiðar við Austur-Grænland.
Þar voru Hvalfell, Haukur, Ask-
ur og Þorsteinn Ingólfsson. Þar
var líka sæmileg veiði, en skipin
gátu lítið athafnað sig við veið-
arnar vegna sífelldra storma.
Aðrir togarar hafa verið á
heimamiðum, þar er sama sagan;
veður hamlar oft veiðum, en
veiðin svolítið örari hjá sumum
en verið hefur undanfarið.
Síðan þriðja þessa mánaðar
hafa þessi skip komið með afla:
Freyr með 270 lestir, Askur 127
lestir, Karlsefni 123 lastir, Ing-
ólfur Amarson með 181 lest,
Marz 170 lestir, Júpiter 123
lestir, Pétur Halldórsson 122
lestir, Skúli Magnússon 111 lest-
ir, Hvalfell 140 lestir og í gær
landaði Geir 140 lestum.
Dreng dæmdar 400 þús. kr.
í skaðabætur vegna sfyss
Dómendur Hæstaréttar skoðuðu slysstaðinn
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í
gærdag 14 ára dreng nær
400,000,00 krónur í skaða-
bætur, en drengurinn heitir
Jóhannes Tryggvason, ólög-
ráða sonur Tryggva Sigurðs-
sonar, sjómanns, Melgerði
15, hér í bæ. Drengurinn var
í vinnu í hraðfrystihúsi
Júpiters & Marz hf. á
Kirkjusandi sumarið 1957.
Lenti hann þá með vinstri
hönd milli rúllu og reimar
á flutningsbandi með þeim
afleiðingum að hann missti
vinstri handlegg.
Drengurinn var 11 ára, er
þetta gerðist. 1 héraði voru bæt-
ur þær sem Tryggvi Sigurðsson
fór fram á vegna sonar síns alls
rúmlega 550 þúsund krónur.
Lögð óskoruð á frystihúsið
í forsendum dóms undirréttar
Bæjarstjórn
Akraness sam-
þykk lansninni
Akranesi, 16. marz.
TÍU stunda bæjarstjórnarfundur
var haldinn hér í gær með klukku
stundar kvöldverðarhléi. Hann
hófst kl. fimm og stóð til kl. 3
um nóttina. Á fundinum var bor-
in upp svohljóðandi tillaga:
„Bæjarstjórn Akranesskaup-
staðar Iýsir samþykki sínu við
lausn landhelgismálsins og þakk
ar ríkisstjórn, Alþingi og öðrum
aðilum, sem leyst hafa málið til
farsælla Iykta“.
Þessi tillaga var samþykkt með
7 atkv. gegn tveimui.
segir m. a. á þessa leið: „Eins
og gögnum málsins er háttað er
ekki fulljóst hver nákvæm til-
slyssins voru. Þó er sýnt að
drengurinn var að sýsla við fisk
á neðra borði efra færibandsins,
sem þó var þarflaust og hættu-
legt í grend við keflið á enda
þess. Vegna hins imga aldurs
drengsins og annarra atvika, sem
rakin hafa verið, þykir þó ekki,
Framh. á bls. 23.
ÞAR fór eins og Bjöm Guð-
jónsson sagði í samtali við
blaðið í fyrradag að rauð-
magakarlarnir fengu rauð-
maga í fyrsta róðri og komu
með hann að landi í gær.
Hann fékk 30 rauðmaga í
fyrstu lögninni og félagi hans
svipað.
Ljósmyndari blðsins tók
þessa mynd í gær vestur við
Ægissíðu. Pilturinn lyftir upp
tveimur föngulegum rauðmög
um. Hann er matarlegur á
svipinn. Það erum við líka.
Bœjarsljórn
Isafjarðar
fagnar
lausnínni
ÍSAFIRÐI, 16. marz. — Á fundi
bæjarstjórnar ísafjarðar í gær
var eftirfarandi tillaga um land-
helgismálið samþykkt með 7 atkv.
gegn tveimur:
„Bæjarstjórn ísafjarðar telur,
að með samþykkt Alþingis á
þingsályktunartillögu, er ríkis-
stjórnin lagði fram til lausnar
landhelgisdeilunni við Breta, sé
á farsælan hátt bundinn endi á
þessa viðsjárverðu deilu.
Bæjarstjórnin telur, að meS
samþykkt þessarar tillögu só
full viðurkenning fengin fyrir 12
mílna fiskveiðilögsögu íslend-
ina, samfara nýrri útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar, grundvallaðrl
á mikilsverðum breytingum á
grunnlínum án óeðlilegra skuld-
bindinga af hálfu íslendinga varS
andi frekari útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar í framtíðinni“.
Flutningsmenn tillögunnar
voru Matthías Bjarnason og Jón
H. Guðmundsson. Nafnakall var
viðhaft við atkvæðagreiðsluna.
Hinir 4 fulltrúar Sjálfstæðis-
manna og 3 fulltr. Alþýðuflokks
manna greiddu tillögunni atkv.,
en fltr. framsóknarmanna og fltr.
kommúnista greiddu atkv. gegn
henni. — G K.
Drengur drukknar í á
ÞAÐ sviplega slys varð vestur í
Reykhólasveit á þriðjudaginn, að
tveggja ára drengur drukknaði
í Bæjará við Bæ í Króksfirði.
Drengurinn, Þorgrímur Arnar,
var sonur eins bóndans á Bæ,
Hákonar Magnússonar, og konu
hans, Unnar Jónsdóttur.
Drengurinn hafði verið að leika
sér með þriggja ára bræðrungi
sínum og hlupu þeir út að ánni,
sem er tæpan kílómetra frá Bæ.
Þar mun hann hafa runnið á
hjarni fram af árbakka og ofan
í á. Faðir hans kom að honum
látnum skömmu síðar, og tókst
ekki að lífga hann við þrátt fyr-
ir tilraunir til þess í tæpa fjóra
tíma.