Morgunblaðið - 19.03.1961, Blaðsíða 24
íþróttir
Sjá bls. 22
flíi0íri0imMaíí>ií<j>
65. tbl. — Sunnudagur 19. marz 1961
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
Ráðstefna um neyzlu-
aukningu á fiskimjöli
Dr. Þóiður Þorhjarnarson íuðllrúi íslands
í NÆSTIJ viku hefst í aðal-
stöðvum Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna ráðstefna, sem á
að fjalla um leiðir til að
auka neyzlu fiskimjöls vegna
hinnar gífurlegu framleiðslu-
aukningar í heiminum og þar
af leiðindi verðfalli á mjöl-
inu. Á sl. 5 árum hefur fram
leiðslan aukizt um ca. 700
þús. lestir og verð lækkað úr
20-6 sh. lestin niður í 11 sh.,
en mun nú aðeins hafa hækk
að aftur eða í 13 sh.
Fyrir fslands hönd situr ráð
Sjoundi hver verk-
fræðingur erlendis
A NÝAFSTÖÐNUM aðalfundi
Verkfræðingafélags íslands kom
m. a. fram að í félaginu eru nú
296 félagar, þar af 16 nýir verk-
fræðingar. Af meðlimum félags-
ins eru 40 erlendis en í fyrra
voru erlendis 24.
Stjóm félagsins er nú þannig
skiþuð: Jakob Gíslason, raf-
orkumálastjóri, formaður, Hauk
ur Pétursson, mælingaverkfr.,
Hallgrímur Björnsson, efna-
verkfr., Gunnar B. Guðmunds-
son, byggingaverkfr., og Hjálm-
ar R. Bárðarson, skipaverkfr.
Tveir þeir síðasttöldu voru
kjörnir í stað Aðalsteins Guð-
johnsens og Braga Ólafssonar,
sem gengu úr stjórninni.
Á starfsárinu hélt stjórnin 33
bókaða fundi og tók til með-
ferðar 110 mál. Tíu félagsfund-
ir voru haldnir að meðtalinni
árshátíð og auk þess jólatrés-
skemmtun fyrir börn félags-
manna. Ýmsar nefndir starfa
í félaginu að lausn tæknilegra
og félagslegra viðfangsefna, og
það á fulltrúa í ýmsum öðrum
samtökum, bæði hérlendis og á
Norðurlöndum.
Á sl. hausti hafði Verkfræð-
ingafélagið fyrstu ráðstefnu ís-
lenzkra verkfræðinga, sem
kunnugt er og er von á sér-
prentuðum erindum frá ráð-
stefnunni. Stjórnin hefur hug
á að halda nýja ráðstefnu í
sambandi við 50 ára afmæli fé-
lagsins í apríl 1961 og var gerð
samþykkt þar að lútandi á aðal
fundinum.
Erindi um hjú-
skaparlöggjöfina
Á FUNDI Kvenréttindafélagsins
annað kvöld flytur Ármann
Snævarr, Háskólarektor, erindi
um hjúskaparlöggjöfina. Fundur
inn verður haldinn í félagsheim-
ili prentara, Hverfisgötu 21 og
hefst kl. 8,30.
stefnuna dr. Þórður Þorbjam-
arson og mun hann skýra að-
stöðu íslendinga í þessu sam-
bandi. En verðfallið á fiskimjöl-
inu á heimsmarkaðinum hefur
valdið íslendingum stórkostlegu
tjóni. Ekki eru þó miklar fiski
mjölsbirgðir í landinu. Fyrra
árs framleiðslan er öll seld, en
seldist fyrir lágt verð. Og vegna
lítils fiskafla er framleiðslan í
ár mjðg líitl.
Ráðstefnan hefst mánudaginn
20. marz og stendur í 9 daga.
21 þjóð sendi rfulltrúa og auk
þess verða áheyrnarfulltrúar frá
5 alþjóðastofnunum. Dr. Norman
C. Wright, varaframkvæmdastj.
Matvælæ og landbúnaðarstofin
unarinnar, sér um móttöku full
trúanna.
Tveggjamannaleikritið „Tvö á saltinu", sem ÞjóðleikhúsiS
sýnir um þessar mundir hefur vakið verðskuldaða athygll,
og hafa þau Jón Sigurbjörnsson og Kristbjörg Kjeld hlotið
ágæta dóma fyrir túlkun sina á hinum vandasömu hlutverk-
um. Leikstjóri er Baldvin Halldórsson. — Næsta sýning verð-
ur í kvöld.
Bdndinn keypti
föðurleifð sína
fyrir rúmlcga 1,1 millj. kr.
287 brunaköll
BLAÐINU hefur borizt skýrsla
frá Slökkviliði Reykjavíkur um
útköll og bruna í Reykjavík á
árinu 1960.
Bílar slökkviliðsins voru 287
si-nnum kallaðir á vettvang. í
skýrslunni eru eldsupptök suríd-
urliðuð. Kemur þar í ijós að ekki
hefur tekizt að grafast fyrir um
eldsupptök í 95 tilfellum. Líka
er athyglisvert að íkveikjur eru
hvorki meira né minna en 65
sinnum. Ýmsar orsakir eru tald-
ar hafa verið á 34 stöðum. Á 48
stöðum eru eldsupptökin út frá
raflögnum eða rafmagnstækjum.
í skipum kom eldur upp 15 sinn-
um á árinu. Slökkviliðið var
gabbað 52 sinnum á árinu. Bruha
tjón er talið hafa orðið mikið á
fimm stöðum, talsvert á 34, ekk-
ert í 130 tilfellum og lítið á 118
stöðum.
FERJUBAKKA, Borg, 18. marz:
—■ Á hinu opinbera uppboði
sem fram fór í dag að Hvítár-
völlum, komu alls fram 10 boð
í jörðina, og var hún seld á kr.
1.160.000,—
Þegar uppboðið hófst um
klukkan tvö á hlaðinu að Hvít-
árvöllum, lá fyrir tilboð frá
Davíð Ólafssyni bónda þar, á
kr. 1.050.000,— Það boð var
strax hækkað um 10 þúsund
krónur,— upp í kr. 1.060.000,—
af Hauki Jónssyni lögmanni í
Reykjavík. — Þriðja boðið var
frá Davíð Ólafssyni bónda. Tals
maður hans við uppboðið, Þor-
valdur Lúðvígsson lögmaður,
bauð kr. 1.080.000,—. Þeir hækk
uðu svo boð sín í jörðina á vixl
lögmennirnir tveir, unzt Sigurð-
Samstarísnefnd laun-
þega og vinnuveitenda
Á FUNDI Óðins í dag ræðir Pétur ] háðum til hagræðis og hagsbóta.
Sigurðsson alþingismaður þetta Erlendis þar sem þróun þessara
mikla og athyglisverða framtíðar mála er lengra á veg komin en
launþega og; hér hjá okkur hefir reynslan af
| samstarfsnefndum ótvírætt sann
að gildi sitt, og ekki hvað sízt
verkalýðsstéttunum í hag, er því
ekki að efa að menn muni fjöl-
menna á fundinn sem er opinn
í samskiptum fyrrgreindra aðila öllu sjálfstæðisfólki.
mál í samskiptum
vinnuveitenda.
Málið hefir borið talsvert á
góma að undanförnu, og er það
álit margra að slíkar samstarfs-
nefndir myndu gerbreyta ýmsu
Sáratregur
afli Eyjabáta
VESTMTNNAEYJUM, 18. marz.
—. í gær var sáratregur afli hjá
Vestmannaeyjabátum, einkum í
netin. Fengu bátarnir niður í 1—2
lestir. Hæsti báturinn, Gullborg,
Binna í Gröf, hafði um 3 þús.
fska ca. 25 lestir, en það var eini
báturinn sem fékk nokkurn afla.
Sem dæmi um aflaleysið má
geta þess að í Vinnslustöðinni
sem er stærsta vinnustöðin, sem
tók við afla úr 23 bátum, var
heildaraflinn 71 lest. En alls var
aflinn í Eyjum í gær um 250 lest-
ir. — Brúarfoss kom hingað í dag
í fyrsta skipti og lestaði freðfisk.
— Bj. Guðm.
ur Guðbrandsson Borgarnesi,
bauð kr. 1.130.000,— í nafni Bún
aðarsambands Borgafjarðar. Það
boð hækkaði Þorvaldur Lúð-
vigsson, í nafni Davíðs bónda
um 10 þús. krónur, og Búnaðar
sambandið hækkaði sitt boð um
önnur tíu þúsund. Þá bauð tals
maður Daviðs kr. 1.160.000,—- í
Hvítárvelli. — Sýslumaður leit-
aði eftir frekari boðum, en þau
komu ekki fram, og þar með
var lokið hinum allsögulegu
uppboðum á Hvítárvöllum.
Davíð bóndi var orðinn eig-
andi föðurleifðar sinnar, sem
faðir hans Ólafur Davíðsson
keypti árið 1903 fyrir 28.000
krónur. — Hörður.
Beittu loðnu
AKRANESI, 18. marz. — Allir
bátar héðan eru á sjó í dag. í gær
bárust á land 118 lestir af 22 bát-
um. Aflahæstir voru Sigurvon
17.3 lestir, Sæfari 17 og Keilir
12.3 lestir. Línubátarnir fiskuðu
10—11 lestir á bát. Voru þeir í
fyrsta sinn á vertíðinni með lín-
una beitta loðnu, sem flutt var
á bílum alla Vleið sunnan úr
Grindavík. — Oddur.
Höfundur 1
Kurdimommu-
bæjarins
hemur hinguð
i vor
HÖFUNDUR hins vlnsæla
bannaleikrits HKardimommu> Zl
bærinn", Norðmaðurinn Thor- J
björn Egner, er væntanlegurl
til íslands í maimánuði í vor.
Tildrög þessarar heimsókn-
ar hans eru þau, að er sýn-
ingar hófust aftur á Kardi-
mommubænum hjá Þjóðleik-
húsinu í haust, þá tilkynnti
höfundurimt að hann gæfi
höfundarlaun sín i vetur og
skyldi haldin fyrir þau veizla
fyrir alla þá, sem unnið hafa
að sýningunum. Hefur höft
undinum nú verið boðið til
íslands af því tilefni, og hann
þáð boðið.
Sýninrgarnar á Kardimomu-
bænum eru nú orðnar 65, og
hefur sýningaf jöldi á leik-
ritinu líklega hvergi verið
meiri. f Noregi var það sýnt
62 sinnum, en það hefur verið
fært upp á öllum hinum Norð
urlöndunum og er nú sýnt í
Þýzkalandi.
Alltaf hefur verið uppselt
á leiksýningar hér, en nú orð-
ið er aðeins sýnt um helg-
ar. Er í ráði að vanda
sérstaklega til einnar sýning-
ar þegar höfundurinn kemur. |
Rif í bátakvínni
AKRANESI, 18. marz. — Nýlega
hafa menn veitt því athygli að
dálítið bogadregið rif er að mynd
ast í bátakvínni hér. Talið er að
þetta stafi af frákasti frá grjót-
garðinum mikla, sem byggður
hefur verið undir Halakotsbökk-
um. — Oddur.
Vorboða-fundur
annað kvöld
HAFNARFIRDI. — Það er
annað kvöld kl. 8,30, sem Sjálf
stæðiskvennafélagið Vorboff-
inn heldur fund sinn í Sjálf-
stæðishúsinu. Þar fara fram
venjuleg fundarstörf, en einn
ig verða skemmtiatriði og
kaffi verður fram horið. —
Vorboðakonur eru hvattar til
að f jölmenna og taka með sér
gesti.