Morgunblaðið - 23.03.1961, Page 3
Fimmtudagur 23. marz 1961
MORGUNBLAÐIÐ
3
Ragnheiöur
í Hollywood
RAGNHEIÐUR Jónasdóttir
eða ChrLstina Sveinsson, eins
og hún er kölluð erlendis,
dvelzt í Hollywood um þess-
ar mundir. Hafa blaðinu bor-
izt fregnir af henni asamt
myndum sem teknar eru við
ýmis tækifæri.
Eins og kunnugt er drvald-
ist Ragnheiður við leiknám
í Englandi og lék þar í þrem
ur svo kölluðum „cultur
films“, eða landikynningar-
myndum og þótti takast mjög
vel.
í London kynntist Ragnheið
ur bandaríska kvikmynda-
framleiðandanum John Harr
is og vildi hann fá hana til
Hollywood, til þess að leika
í kvikmyndinni „Honeymons
of terror" er hann ætlaði að
framleiða. Varð úr að Ragn
heiður tæki þessu boði og
hélt hún til Hollywood í febrú
ar s.l. Hefur henni tekizt vel
með hlutverk sitt í myndinni
og John Harris rómar hæfi-
leika hennar og segir, að hún
muni eiga framtíð fyrir sér
bæði í kvikmyndum og á leik
sviði. Einnig lét hann svo um
mælt að mjög gott væri að
vinna með Ragnheiði hún
væri samvinnuþýð og hvers
manns hugljúfi. í Hollywood
hefur Ragnheiður einnig kom
ið fram í sjónvarpi t.d. ásamt
frægum calypso söngvurum
frá Trinidad.
Tökunni á „Honeymoon of
terror" lýkur í maí og mun
Ragnheiður þá halda til Kaup
mannahafnar. Þar ætlar John
Harris að framleiða nýja
mynd í samráði við danskt
kvikmyndafélag og hefur ráð
ið Ragnheiði til þess að leika í
henni. Myndin heitir „Ævin
týri í Kaupmannahöfn“ og
verður að mestu leyti tekin
þar en nokkur atriði verða
tekin á meginlandi Evrópu.
Ragnheiði hafa verið boðn
ir samningar við ýmis kvik-
myndafélög bæði í Hollywood
og Englandi, en þeir eru allir
til svo langs tíma, að hún tel
iu: ekki rétt að taka þeim.
""varpsupptöku í sól á eyðimörk,
H e i I d a r e n á u r s ko ð u n
á vegaiögum
Tillaga Sjálfstœðismanna samþykkt.
FIMM ÞINGMENN Sjálfstæðisflokksins báru fram þings-
ályktunartillögu fyrr í vetur um endurskoðun á lögum
um vegi. Fjárveitinganefnd hafði tillöguna til meðferðar
og flutti við hana breytingartillögu og lagði til, að hún
yrði samþykkt svo hljóðandi með þeirri breytingu:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara
fram athugun og endurskoðun á gildandi lögum um opin-
bera vegi og brýr og láta jafnframt athuga möguleika á
öflun fastra tekjustofna til vega og brúagerða“.
Magnús Jónsson form. fjárveit-
lnganefndar gerði grein fyrir á-
liti nefndarinnar og þeirri breyt-
ingu, sem hún gerði á tillögunni.
í sambandi við þetta benti
Magnús á, að mikið vantaði á
til þess að vegakerfi landsins sé
í viðunandi horfi. Yfir 700 km
af þjóðvegakerfinu væru óbíl-
færir, rúmlega 450 km af sýslu-
vegum og meira en 300 km af
hreppavegum. Þá benti hann á,
að þegar farið verður að gera
vegi úr varanlegu efni mundi
kostnaður við vegagerð hækka
gífurlega, svo að brýnt væri að
fá fasta tekjustofna til þessara
mála og væri síðari hluti tillög-
unar við það miðaður.
Ljóst væri, að ekki væri hægt
að leysa þessi mál með samþykkt
hinna einstöku tillagna, sem
fram hefðu komið um lausn á
þeim, hér þyrfti að koma til
hetldarendurskoðun. Þess vegna
hefði nefndin talið æskilegt, að
nú yrði látin fara fram heildar-
athugun, eigi aðeins á lögum um
þjóðvegi, eins og tillagan hefði
upphaflega gert ráð fyrir, heldur
öllum gildandi lögum um opin-
bera vegi og brýr.
Bjartmar Guðmundsson lýsti
ánægju sinni með álit fjárveit-
inganefndar og sagði flutnings-
menn tillögunnar vel geta fallizt
á, að athugunin yrði gerð á víð-
ara grundvelli en þeir hefðu upp
haflega lagt til.
Höfum séx-stöðu
Helgi Bergs benti á, að við
nytum þess hagræðis umfram
ýmsar aðrar þjóðir að geta ein-
beitt okkur að vegagerð í sam-
bandi við samgöngur á landi, en
þyrftum ekki auk kosnaðarins
við vegagerð að bera kostnað
af lagningu járnbrauta og öðrum
samgöngutækjum á landi. Þá
taldi Helgi, að höfuðáherzlu yrði
að leggja á að steinsteypa eða
malbika þá vegi, sem mest um-
ferð er um.
Markar tímamót
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra sagði, að hér væri vissu-
lega um stórmál að ræða, og
eins og tillagan gerði ráð fyrir,
væri það eitt aðalatriðið, að at-
hugað verði, hvernig fjár verði
aflað til þessara mála.
Það væri rétt, sagði ráðherr-
an, að vegagerð hér á landi þyrfti
að ganga með meiri hraða, en
■með þessari tillögu væri stigið
spor, sem markað geti tímamót
í vegamálum landsins.
Gísli Jónsson kvaðst vonast til,
að í nefnd þá, sem fengi þessi
mál til athugunar yrðu skipaðir
menn, sem sæju út fyrir eitt-
hvert eitt kjördæmi landsina,
þessum lífsgæðum yrði að jafna
á milli þeirra, sem búa í þéttbýli
og strjálbýli.
Helgi Bergs Iagði áherzlu á,
að fjölförnustu vegirnir yrðu
látnir sitja fyrir, ekki mætti loka
augunum fyrir því, hve mikið
það kostar þjóðfélagð að hafa þá
svo slæma sem raun ber vitni.
Eftir þessar umræður var til-
lagan samþykkt með þeim breyt-
ingum, sem f járveitinganefnd
lagði til, að gerðar væru á henni,
og send ríkisstjórninni.
Fundur Sjúlf-
stæðismunnu
í Borgurfjurður-
sýsfu
S.L. þriðjudag var fundur hald
inn í Félagi Sjálfstæðismanna í
Borgarfjarðarsýslu, og hófst hann
kl. 2,30 í Hvítárvallaskálanum. Á
fundinum mættu þeir Bjarni Ben
ediktsson dómsmálaráðherra og
Jón Árnason alþm. Fluttu þeir
ræður um þingmál og stjórnmála
viðhorfið almennt. Var gerður
góður rómur að máli þeirra.
Fundur þessi var vel sóttur
og kom fram mikill áhugi fundar
manna á eflingu hins unga
félags, en það var sem kunnugt
er stofnað á s.l. sumri og voru
stofnendur um 100 talsins úr öll
um hreppum Borgarfjarðarsýslu.
STAKSTEIWAR
Maður út í geiminn
1. maí?
Orðrómur er nú uppi um það
víða í Evrópu, að Nikita Krúsjeff
geri sér vonir um að Rússar geti
sent mannað geimskip út í geim
inn 1. maí n.k. Að sjálfsögðu er
hér um ágizkanir að ræða. En
vitað er að Rússar hafa mikinn
hug á að nota afrék sírr á sviði
geimvísinda í áróðurstilgangi.
Sovétstjórnin hefur gefið vísinda
mönnum sínum fyrirskipanir um
það, að þeir verði umfram allt
að verða á undan Bandaríkja-
mönnu í þessum efnum. Ýmis-
legt bendir einxrig til þess, að
'þeim takist það. Rússar hafai
um töluvert lengri tíma en
jlandarikjamenn einbeitt kröft
um sínum að smíði eldflauga og
geimfara. En bilið milli þessara
tveggja stórþjóða á þessu sviði
visindanna styttist óðfluga. Eft
ir að Bandaríkjamenn áttuðu
sig á því, að Rússar voru komn
ir fram úr þeim hafa þeir hert
mjög á sér og síðan unnið hvert
stórafrekið á fætur öðru.
Ef Rú-sum tækist að senda
mannað geimskip út í geiminn 1.
maí, mundu þeir telja það enn
eina sönnun um yfirburði hins
kommúniska skipulags. En auð
vitað er sú röksemdafærsla fjarri
lagi og styðst ekki við meiri rök
en þótt nazistar hefðu talið það
sanna yfirburði nazismans að
Þjóðverjar stóðu á sínum tíma
fremstir allra þjóða í aldflauga-
gerð. Hafa bæði Rússar og Banda
ríkjamenn síðan byget á reynslu
þeirra, frá árum síðari heims-
styrjaldarinnar.
Góðav sigurhorfur
Adenauers
Úrslit sveitastjórakosninganna
í Vestfalen og neðra Saxlandi I
Vestur-Þýzkalandi, spá góðu fyr
ir Kristilega demókrataflokkinn
og dr. Adenauer í þingkosningun
um, sem fram eiga að fara í land
inu á komandi hausti. Flokkur
dr. Adenauers vann stórkostlega
á í þessum kosningum, en smá-
flokkarnir og jafnaðarmenn töp
uðu að sama skapi. Jafnaðair-
menn hafa eins og kunnugt er
nýlega gert Willy Brandt, borg
arstjóra í Vestur-Berlín að aðal
foringja sínum og hafa byggt
miklar vonir á sigurmösruleikum
hans. Hafa margir talið líklegt,
að Brandt muni reynast sigur-
stranglegri en þeir Ollenhauer
og Schumacher, sem verið hafa
leiðtogar iafnaðarmannaflokks-
ins í Vestur-Þýzkalandi síðan
síðari he:msstyrjöldinni lauk. En
sveitars<:/'rnarkosninearnar, sem
nú er nvieee lok’ð. lofa jafnaðar
mönnum ekki góðu.
þ."* "-n und’rþvr
Nokkur klofningur hefor ríkt
innan Þjóðvarnarflokks íslands
undanfarna mánuði. Hafa átt
sér stað átök milli þeirra flokks
manna, sem viljjcð hafa sam-
vinnu við kommúr)>sta um bar-
áttu gegn 1 átttöku íslands í varn
arsamstarfi vestrænna þjóða og
hinna, sem kjósa að flokkurinn
fylgdi sjálfstæðri stefnu og skipti
sé~ ekki af Moskvumönnxim.
f sambandi við næstu bæjar-
stjórnarkosningar hefur það kom
ið til greina innan Þjóðvarnar-
flokksins að hafa samvinnu við
Framsóknarmenn og jafnvel við
kommúrrista. Hefur þá verið rætt
um það, oe þá. einnig innan Fram
sóknarflokks'ns og kommúnista-
flokksins, að þessir þrír flokkar
stæðu sameiginlega að framboði
við næstu bæjarstjórnarkosning
ar. Þeir menn munu þó vera i
ið til greina innan Þíóðvarnar-
flokksins, sem vilja að flokkur-
inn hafni siíkri sumvinnu og
bjóði einn fram. Framsóknar-
menn munu hinsvegar sækja
fast á um það að koma á slíkri
samfylkingu þriggja flokka.