Morgunblaðið - 26.03.1961, Blaðsíða 5
Sunnudagur 26. marz 1961
MORCUNBLAÐIÐ
5
DAGSms
HVAÐA götu í Reykjavík þykir
yöur vænst um eða finnst falieg-
ust?
.Valtýr Pétursson, listmálari:
Þegar ég er spurður slíkrar
spurningar, svara ég hiklaust:
Næst hjarta mínu stendur Vest-
,,, urgata. Þar hef
' ' ég búið lengi og
málað slæmar og
ágætar myndir,
og ailtaf átt þar
athvarf eftir
margan flæking
e r 1 e n d i s;
ávallt hefur hún
verið jafn elsku
leg, þegar ég
hef verið kominn á rölt með-
fram vinalegum, rauðum, veður-
börðum bárujárnshúsunum, þar
sem smáhríslur gægjast fram úr
húsasundum. Þá finnst mér allt-
af ég vera kominn í höfn. Það er
stutt til sjávar frá Vesturgötu,
og maður lifir og hrærist í nánu
sambandi við hið iðandi líf hafn-
arinnar. Og þegar hvessir að
ráði, dynur seltan í augu manns,
og maður veit, að hafið er næsti
nágranni. Það er gott fólk við
Vesturgötu, og í nágrenni hennar
er uppruninn hinn eini sanni að-
ail Reykjavíkur. Það vita allir,
hvað ég á við með því.
Auðvitað eru margar aðrar
fallegar götur í Reykjavík, en
það er annað mál. Fegurð er hug-
tak, sem lengi má teygja í allar
áttir, en þar sem hjartahlýja er
finnanleg, þar er fegurð. Og ekki
verður um það deilt, að Vestur-
gata er ein virðulegasta og elzta
gata Reykjavíkur, og þaðan hef-
ur ýmislegt komið, meira gott
en slæmt. Vesturgatan er mitt
svar.
* * *
Arndís Björnsdóttir, leikkona:
Mér finnst Smáragatan vera
fegursta gata bæjarins.
■— Þar er svo mikill gróður,
og sumarið er
svo mikið þar á
sumrin. Mér
finnst hvergi
eins hlýtt og
yndislegt
í Reykjavík og
þar. Ég hef lengi
búið syðst við
Smáragötuna, og
þar er dásamlegt
útsýni til Suðurfjallanna.
* ♦ *
S! rnrður Ólason, hæstaréttarlög-
m..ður:
Öilum Reykvikingum, og ekki
síður okkur, sem aðflutt erum
frá landsbyggðinni, þykir vænt
um bæinn okk-
ar; hitt get ég
fyrir mitt leyti
ekki merkt, að
mér þyki vænna
um eina götu en
aðra. Ég get því
e k k i svarað
spurningunni. —
Hvaða gata er
fallegust? Þar
koma ekki aðeins til greina falleg
hús, fallegir garðar, gatan sjálf
o. s. frv., heldur ekki síður um-
hverfi, „útsýni“, ef svo má að
orði kveða. Sú gáta, sem samein-
ar þessa kosti bezt, er líklega
Hringbraut, frá Miklatorgi vest-
ur að Þjóðminjasafni. Þar reis
hin stílmikla háskólabygging við
vesturloftin, þar til að nú hefir
endilega þurft að staðsetja Bænda
höllina þannig á bak við, að
hvorugar þessar fegurstu bygg-
inga bæjarins njóta sín lengur.
«— Þegar hringurinn Austurbrún
»— Vesturbrún verður fullgerður
mun hann sennilega verða falleg-
asta gata eða götusamstæða bæj-
arins, þar er fegurst útsýni yfir
Sundin og síðan yfir bæinn, og
þar er hvert hús öðru fallegra,
en sjálf gatan, garðar etc., að
vísu enn e-kki komið í endanlegt
horf.
Dr. Bjarni Jónsson, vígslubisk-
up, segir:
Fallegasta gat-
a n ? Tvímæla-
laust Vesturgata.
Að þekkja hana
er að þykja vænt
um hana. Hið
sama má segja
u m umhverfi
hennar á báðar
hliðar.
Líttu á húsin
við götuna og í nágrenni hennar
og rifjaðu upp fyrir þér marga
fróðlega kapítula úr sögu Reykja
víkur. Andaðu þar að þér hinu
heilnæma lofti. Þarskalt þú horfa
á sólarlagið. Hægt og rólega ætt-
ir þú oft að leggja leið þína um
þessa nafnkunnu götu.
Það bætir áreiðanlega skap þitt
að ganga um fegurstu götu
Reykjavíkur.
* *
P. V. G. Kolka:
Mér þykir langvænst um Amt-
mannsstíginn.. Fyrsta húsið, sem
ég kom í hér í Reykjavík, var
Amtmannsstígur 1. Þetta er
mjög merkilegt
hús, byggt fyrir
130 árum síðan
af Stefáni Gunn
laugssyni bæjar-
fógeta, sem var
íslenzkastur í
anda allra em-
bættismahna.
Seinna bjuggu
þar margir þjóð
kunnir menn, svo sem bræðurn
ir Björn og Jón Jenssynir, bróð-
ursynir Jóns forseta, síðar
Hannes Hafstein og svo um 40
ára skeið Guðmundur Björns-
son landlæknir, frændi minn,
og hjá honum var ég öll min
skólaár þangað til ég varð slú-
dent. Andspænis þessu húsi er
Menntaskólinn með öllum sin-
um mörgu minningum um
ágæta félaga og ýmsa afbragðs-
menn í kennarastétt. Nokkru
ofar er KFUM, þar sem ég
kynntist fyrst séra Friðriki og
átti margar ógleymaniegar stund
ir. Á blettinum fyrir framan hús
frænda míns var stytta Jónasar
Hallgrímssonar, skáldsins og
blómavinarins, þar sem nú er
stytta séra Friðriks, skáldsins
og mannvinarins. Fyrir enda göt
unnar var tvílyft timburhús í
klassiskum stíl. Þar bjugga þeir
Júlíus Havsteen amtmaður, sem
gekk með fjaðrahatt, gullskúfa á
öxlum og korða við hlið við há-
tíðleg tækifæri, og Guðmundur
Magnússon, síðar prófessor, snjall
asti skurðlæknir landsins. Amt-
mannsstigur var kúltúrmiðstöð í
þá daga.
Minningar frá þessari litlu
götu, þar sem ég átti mitt annað
heimili frá 13 til 18 ára aldurs,
eru blandnar nokkrum trega, því
að nú eru þeir allir horfnir af
sjónarsviði, sem þar áttu sinn
þátt í að búa mig undir lífið. Á
Amtmannsstíg heyri ég fótatak
liðins tíma mitt í skarkala borg
arlífsins og sé skýjarof, þótt loft
ið sé annars þrútið. Því er sá
staður mér kær.
Letin svæfir þungum svefni, og iðju-
laus maður mun hungur þola
Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og
sá, sem fer með lygar, tortímist.
Auður fjölgar vinum, en fátækur mað-
ur verður vinum horfinn.
— Orðskviðirnir.
Latur maður dýfir hendinni ofan í
skálina, en nennir ekki að bera hana
upp að munninum.
Vel ráðin áform fá framgang, haf því
holl ráð‘, er þú heyr stríð.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Wismar. — Askja er á leið
til íslands.
Hafskip hf. — Laxá fór 24. frá Hav-
anna áleiðis til Rvíkur.
Skipadeild SÍS. — Hvassafell er á Ak
ureyri. Arnarfell er á leið til'Gdynia..
Jökulfell er á Hornafirði. Dísarfell er
í Rotterdam. Litlafell er í Faxaflóa.
Helgafell er í Hafnarfirði. Hamrafell
er á leið til Rvíkur.
Lífs er orðinn lekur knör,
líka ræðin fúin,
hásetanna farið fjör
og formaðurinn lúinn.
I»ví er bezt að vinda’ upp voð,
venda undan landi
og láta byrinn bera gnoð
beint að heljar sandi.
Þar mun brim við bláan sand
brjóta um háa stokka.
En þegar ég kem á lífsins land,
ljær mér einhver sokka.
Páll Ölafsson:
Lífs or orðinn lekur knör.
Söfnin
Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1,30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 eh.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. 8—10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
Bæjarbókasafn Reykjavikur sími:
12308 — Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29a
Útlán: Opið 2—10, nema laugard. 2—7
og sunnud. 5—7 Lesstofa: Opin 10—10
nema laugard. 10—7 og sunnud. 2—7.
Útibúið Hólmgarði 34: Opið alla
virka daga 5—7.
Útibúið Hafs vallagötu 16: Opið allp
virka daga frá 17.30—19.30.
Tæknibókasafn IMSÍ í Iðnskólahús-
inu Skólavörðutorgi er opið virka
daga frá kl. 13—10, nema laugardaga
kl. 1,30—4 e.h.
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund .. 106,36 106,64
1 Bandarikjadollar .... — 38.10
1 Kanadadollar ........ — 38.50
100 Danskar krónur ....... — 551,60
100 Norskar krónur ....... — 533,00
100 Sænskar krpnur........ — 737,60
100 Finnsk mörk ........ — 11,88
100 Svissneskir frankar .. — 881,30
100 Austurnskir shillingar — 147.30
100 Belgískir frankar .... — 76,42
100 Franskir frankar ..... — 776,44
100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45
100 V-þýzk mörk ........... — 959,70
MYND þessi er af fjórum með
limum hinnar vinsælu hljóm-
sveitar Svavars Gests í gerf-
um Los Paraguios, en þannig
koma þeir meðal annars fram
á hljómleikunum, sem þeir
gangast fyrir í Austurbæjar-
bíói um þessar mundir. Þriðju
hljómieikarnir verða í kvöld
kl. 11,15, en á hinum tveimur
hefur verið húsfyllir og gífur-
leg hrifning áheyrenda.
Olíumálverk tekin til viðgerðar og hreinsunar. (Bæjarbóka- safninu) Þingholtsstræti 29A. Kjallari syðri dyr. Ungur lögfræðingur óskar eftir atvinnu. Vanur skrifstofuvinnu, góð mála- kunnátta. Tilb. sendist afgr Mbl. merkt: „X-222 1601“
Eldavél Keflavík
með miðstöðvarelementi íbúð til leigu, 2 herb. og
óskast til kaups. Sími 12128 eldhús. Uppl. í síma 1777
Peysuföt til sölu á háa og granna dömu — ásamt svuntusetti og húfu Tækifærisverð. Uppl. í síma 22935. Ódýr matur Reyttar hænur í páskamat inn. Fást á kr. 25 stk. — heimsendar. — Pantanir í síma 1-89-75.
Georg
Gústafsson
trúboði
talar í Fíladelfíu í síðasta
j sinn í kvöld kl. 8,30.
1 Gústafsson er óvenjulega
góður ræðumaður, enda
kunnur á Norðurlöndum,
sem Orðsins þjónn. Hann
biður einnig fyrir sjúkum á
sainkomunum.
Opel Reckord
eða Kapitan. Vil kaupa nýjan eða í mesta Iagi
1 árs gamlan Opel Reckord (2ja eða 4ra dyra) eða
Opel Kapitan, milliliðalaust, með góðum skilmálum.
Upplýsingar í síma 13273 eftir kl. 7 e.h.
tjtvegum ARMSTRONG hljóðeingranur-plötur gegn
gjaldeyris og innflutningsleyfum beint til kaupenda.
Þ. Þorgrímsscn & Co.
Borgartúni 7 — Sími 2 22 35.
r N. manufacturas oe corchc
Afmstrong
*'Ociedad Anönima
Cushiontone
loftplötur
Fyrir skrifstofur, skóla, sjúkraliús
og vinnusali — skrautlegar
Áhrifamikil hljóðeinangrun.