Morgunblaðið - 26.03.1961, Page 10
10
MORGVISBLAÐIÐ
Sunnudagur 26. marz 1961
X
l£J
ADOLF EICHMANN er
fæddur 19. marz 1906 í
hnífabænum fræga, Soling
en í Ruhrhéraði. Hann
var elzti sonur foreldra
sinna. Faðir hans var
vélaverkfræðingur. Þau
eignuðust þrjá syni og
eina dóttur til viðbótar,
en þegar Adolf var tíu ára
dó móðir hans. Varð þá
úr að faðir hans fluttist
til Linz í Austurríki með
börn sín og settist þar
að og komst brátt í tölu
betri borgara.
Adolf var settur til náms
í menntaskólanum í Linz, en
fáum árum áður hafði annar
Adolf með ættarnafnið Hítler
Hópar Gyðinga koma til eyðingarstöðvarinnar í Auschwits.
Sagu Eichmanns
— mannsins sem skipulogði
„hinoendanlegu lausn“
Gyðingavandomólsins
stundað nám í sama skóla.
Honum gekk námið illa og
loks féll hann á stúdentsprófi.
Þá var hann settur til náms í
vélskóla, en hætti því námi.
Faðir hans var nú farinn að
líta á hann sem vandræða-
bam.
Eichmann kom í fyrsta
skipti til Vínarborgar. Hann
fékk þá þegar sérstakan á-
huga fyrir Gyðingahverfi
borgarinnar og við frekari
dvöl í Vín dvaldist hann lang
dvölum í hverfinu, kynntist
Gyðingunum og lifnaðarhátt
mn þeirra, lærði mál þeirra
Jiddiskuna svo hann talaði
hana reprennandi og komst
niður í fornmáli þeirra Hebr
eskunni.
Þessi kynning Eichmanns af
Gyðingum og sambúð við þá
var mjög undarleg, því ekki
var hún af neinni aðdáun eða
vináttu til þeirra. Hann til-
heyrði flokki Gyðingahatara.
Hann hugsaði mikið um Gyð
ingana og menn halda að
hann hafi orðið svo -gagntek
inn af þessu, vegna þess að út
lit hans sjálfs líktist Gyðingi.
Það var sérstaklega nefið sem
gaf honum gyðingalegan svip,
mjótt og íbjúgt með stórum
nösum. Það kom oft fyrir
hann, að ráðizt var á hann
vegna útlitsins og hann rek
inn út af því að hann væri
Gyðingur.
Ekki er nákvæmlega vitað,
hvenær Eichmann kynntist
fyrst nazisma Hitlers, en á-
stæða er til þess að ætla að
hann hafi hlustað á ræðu sem
Hitler flutti í Berchtesgaden
rétt hjá austurrísku landa-
mærunum.
Ofsóknir í Munchen
Árið 1932 gegngur Eich-
mann í þýzka nasistaflokkinn
þá var nn aðeins einskonar
þá var einn aðeins einskonar
lífvörður Hitlers. Það var mað
ur að nafni Himmler, sem tók
við eiði hans.
Hann bjó enn og starfaði í
Austurríki, en kom hvenær
sem á hann var kallað til
Múnchen í Bæjaralandi. Eitt
skipti kallaði flokkurinn á
hann í marz 1933. Það var eft
ir þinghúsbrunann í Berlín.
Nazistar tóku nú endanlega
öll völd í Þýzkalandi og þurrk
uðu út mannréttindin. Þeir
sendu SS-liðið gegn pólitísk
um andstæðingum síhum,
kommúnistum, jafnaðarmönn-
um og Gyðingum.
Við höfum upplýsingar um
það, að Eichmann gaf á seinni
árum út fyrirskipanir um tor
tímingu milljóna manna. En
★ ★ * * ★
INNAN skamms hefjast í
ísrae! réttarhöld yfir hinum
fyrrverandi SS-foringja Adolf
Eichmann, sem i stríðsárun-
um stjórnaði hinum ægilegu
f jöldaaftökum Gyðinga í
Evrópu.
Allt frá stríðslokum hefur
Eichmann tekizt að dyljast.
Það var loksins á s.1. ári, sem
leyniþjónusta Gyðinga hafði
upp á honum suður í Argen-
tínu. Hún handtók hann og
flutti á laun til ísraels.
Hér er sagt frá því hvernig
Eichmann hækkaði í tign unz
hann var orðinn yfirmaður
Gyðingaofsókna Þjóiðverja og
hafði komið á fót eyðingarbúð
unum í Auschwits.
★ ★ 'k ★ ★
engar upplýsingar eru til um
það, hvað marga menn hann
pyntaði og myrti með eigin
hendi þessar brjálæðislegu
nætur í Múnchen.
Nokkru síðar missti hann
atvinnu sína í Austurríki og
var ráðinn fangavörður í ný-
stofnuðum pólitískum fanga-
búðum nazista við Dachau
skammt norðvestur af Múnch
en. En honum líkaði ekki það
starf, það var óhreint. Hann
hafði líka kynnzt háttsettum
manni í SS-liðinu, sem nefnd
ist Heydrich og var ráðinn
starfsmaður í skrifstofu SS-
lögreglunnar. Nú kom sér vel
fyrir hann að hafa kynnzt
lífi Gyðinganna í Vinarborg.
Það var bráðlega farið að
líta Eichmann sem sérfræðing
í málefnum Gyðinga.
í marz 1938 hernámu Þjóð-
verjar Austurríki. Þau atvik
urðu Adolf Eichmann mikil
lyftistöng. Það vildi svo vel
til fyrir hann, að hann hafði
alizt að mestu upp í Austur-
ríki og hann þekkti mjög vel
til Gyðinganna í Vin sem naz
istar ætluðu nú að glíma við.
Þann 11. marz sameiningar
daginn flaug Himmler yfir
maður SS-sveitanna til Vín
arborgar og með honum nokkr
ir útvaldir menn þeirra á með
al Heydrich og Adolf Eich-
mann.
Aðeins liðu fáeinar klst. frá
því að flugvél þeirra hafði
lent á Aspern-fliugvellinum
við Vín, þar til aðgerðir Eich-
manns gegn Gyðingum voru
hafnar. Á hverju horni voru
Gyðingar á hækjum sínum að
þvo strætin með klútum og
yfir þeim stóðu vopnaðir SS-
menn.
En aðalhlutverk Eichmanns
var að vísa Gyðingum úr
landi. Hann gekk að því með
oddi og egg. Eignir Gyðing-
anna voru gerðar upptækar en
alþjóðasamtök þeirra urðu að
greiða ferðakostnaðinn. Á
þeim átján mánuðum, sem
liðu fram að stríðsbyrjun sá
Eichmann um brottrekstur 100
þús. Gyðinga frá Austurríki.
Þeir fengu hæli í öðrum Vest
ur Evrópulöndium og Banda-
ríkjunum.
En hlutverk Eichmanns átti
eftir að stækka. Það vakti
hrifningu hinna æðstu og
valdamestu nazista, hvað hann
vann starf sitt sköruglega í
Austurríki. Á það var bent
til samanburðar, að Frick inn
anríkisráðherra Þýzkalands
hefði aðeins getað rekið 19
þús. Gyðinga úr landi.
Krystalsnóttin
Kvöld hins 7. október 1938
hefur verið kallað Krystalls-
nóttin. Þá nótt hófst hin hræði
lega atlaga nazista að þýzkum
Gyðingum. Tilefni atburðanna
var, að ungur Gyðingur hafði
í hefndarskyni við meðferð er
foreldrar hans urðu að þola í
Þýzkalandi, myrt fulltrúa í
þýzka sendiráðinu í París.
Foringjar nazista létu þá
sem Gyðingaofsóknir þessar
hefðu orðið sjálfkrafa, en það
er nú vitað að þær voru skiþu
lagðar af nazistunum og þá
sérstaklega af Heydrich. Á
einum degi voru 36 Gyðingar
myrtir, 20 þús. handteknir og
varpað í fangabúðir, 816 Gyð
ingabúðir eyðilagðar og 191
Gyðingakirkja brennd.
Þann 30. janúar voru mál-
efni Gyðinganna í öllu Þýzka-
landi fengin Adolf Eichmann
sem stofnaði þá „Aðalskrif-
stofu Gyðinga-útflutningsins".
Á þeim sama degi flutti Hitl-
er ræðu og lýsti því yfir að
Gyðinga-kynþættinum skyldi
útrýmt úr Evrópu. Enn sem
komið var þýddi orðið „Út-
rýmt“ þó aðeins að þeir
skyldu fluttir úr landi. Þó
sagði Hitler, að ef Gyðingarn-
ir ekki fengjust fluttir burt,
væri aðeins um eina aðra leið
að ræða, — að þurrka þá út.
Þýzki herinn fór inn í
Tékkóslóvakiu í marz 1939.
Jafnskjótt opnaði Eichmann
Gyðingaskrifstofu í Prag.
Hann hafði þá aðferð að fara
til foringja Gyðinga á staðn-
um og tilkynna þeim að þeir
yrðu að hjálpa honum við
skipulagningu á brottflutn-
ingi 70 þúsund Gyðinga frá
Tékkóslóvakíu á einu ári.
. Forseti Gyðingaráðsins í
Prag dr. Kafka reis upp og
mótmælti og sagði að þetta
væri útilokað.
Eichmann lét sem sér væri
skemmt og tilkynnti Gyðinga-
ráðinu, að ef það hæfist ekki
handa um brottflutninginn
og hann gengi eftir áætlun
þá myndi lögreglan fara skipu
lega um borgina og taka 300
Gyðinga á dag í Prag og
senda þá í fangabúðir í Dac-
haú. Hann kvaðst halda að
Gyðingarnir myndu verða fús
ir að flytja á brott úr landinu
eftir nokkurra mánaða vist í
Dachau. Það þarf ekki að
taka það fram, að skipunum
Eichmanns var fylgt. Á þeim
fimm mánuðum sem liðu áður
en styrjöld brauzt út höfðu
35 þúsund ..Gyðingar verið
fluttir úr landi.
Deild IV-B-2
Síðari heimsstyrjöldin hófst
með innrás Þjóðverja í Pól-
Adolf Eichmann
er han var handtekinn 1960
land, en svo vildi til, að Pól-
land var það ríki Evrópu, þar
sem Gyðingar voru fjölmenn-
astir. Úm 3 milljónir Gyðinga
bjuggu þar, aðallega í stærstu
borgunum. Nú var gerð mikil
skipulagsbreyting á öryggis-
málum Þýzkalands og þeim
var öllum skipað undir sér-
stakt öryggismálaráðuneyti.
Því var aftur skipt niður í
margar deildir, sem raðað var
niður með rómverskum bók-
stöfum.
Ein deildin var kölluð deild
IV, — hún kallaðist almennt
öðru nafni: Gestapo. í henni
voru líka margar undirdeild-
ir. Ein þeirra var skrásett B-2.
Og hér erum við komnir að
þeirri umfangsmiklu stofnun
sem Adolf Eichmann veitti
forstöðu öll stríðsárin, hún
gekk almennt undir nafninu
IV-B-2. Starfsemi hennar
varð í rauninni miklu meiri
en svo að hún ætti aðeins að
vera ein af mörgum undir-
deildum Gestapo og vald yfir
manns hennar Adolfs Eich-
manns miklu meira en þetta
skipulag virtist benda til. En
af vissum ástæðum, þótti
betra að reyna að fela starf-
semi hennar innan ramma
annarrar skuggalegrar stofn-
unar, Gestapo. Og yfirmaður
hennar var aldrei sérstaklega
fyrir það að láta auglýsa sig
mikið eða taka af sér mynd-
ir.
Starfsemi þessarar undir-
deildar bólgnaði svo gífúVlega
út að bráðlega varð nauð-
synlegt að útvega henni stórt
fjögurra hæða skrifstofuhús
við Kurfúrstenstrasse. Hún
hafði stórar útbúskrifstofur t
öllum herteknu löndunum.
Þegar loftárásirnar á Berlin
hófust flutti Eichmann aðal-
bækistöðvarnar til Prag I
Tkkkóslóvakíu og þaðan
stjórnaði hann starfseminni
síðustu tvö árin.
Eichmann lét sér ekki fyrir
brjósti brenna þótt fjöldi Gyð
inganna væri mikill í Pól-
landi. Nú var að vísu ekki
hægt að reka þá til Vestur-
landa, en eins og til bráða-
birgða var ákveðið að koma á
fót sérstöku lokuðu lands-
svæði Gyðinga við borgina
Lublin í suðurhluta Póllands.
Þessu landssvæði var í raun-
inní breytt í eitt gífurlega
stórt fangabúðasvæði, þar
sem Gyðingarnir voru látnir
vinna erfiðisvinnu undir eftir
liti SS-manna.
Stórkostlegir nauðungar-
flutningar voru skipulagðir
þangað. Gyðingunum var
smalað saman og fluttir með
járnbrautarlestum austur á
bóginn. Nú hófust deilur við
hernámsstjóra Þjóðverja í Pól
landi, Blaskowitz hershöfð-
ingja sem krafðist að þessir
þrælaflutningar yrðu stöðvað
ir af því að þeir rugluðu
allri stjórn landsins og at-
vinnulífi. í svissnesku blaði
var skýrt frá flutningunum og
því haldið fram að 30% fólks-
ins léti lífið í fangalestunum
af vosbúð og kulda. Tilkynn-
ing var gefin út í Berlín, að
flutningunum yrði hætt. En
sú tilkynning var innantóm.
Adolf Eichmim
á hátindi valdaferil* sína
1 janúar var búið að flytja
78 þúsund Gyðinga til
Lublin og Heydrich og Eich.
mann gáfu út fyrirskipun urn
að hraða flutningunum stór-
lega. í næsta mánuði skyldi
flytja 400 þúsund Gyðinga til
Lublin. Eichmann sagði mönn
um sínum í Póllandi að halda
áfram án vitundar hernaðar-
legra eða borgaralegra yfir-
valda.
Nú gerðist skammt stórra
högga milli í heimsstyrjöld-
Danmörk, Noregur, Holland,
Belgía og Frakkland féllu.
Við hernám Niðurlanda og
Frakklands komst um hálf
milljón vestrænna Gyðinga
undir stjórn Eichmanns. Um