Morgunblaðið - 06.04.1961, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.04.1961, Blaðsíða 20
20 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 6. apríl 1961 | DÆTURNAR VÍTA BETUR SKÁLDSAGA EFTIR RENÉE SHANN l--------------- 22 ------------ ! í í í í í í í — Mamma — pabbi — þetta er ungfrú Langland. Augun í Margot mældu Cynt- hiu frá hvirfli til ilja. Hún sá snyrtilega og velbúna konu, sem virtist vera rúmlega þrítug. Kannske svolítið eldri. Það var ekki svo auðvelt að geta upp á aldri hennar. Hún horfði í augu hennar og af einhverri ástæðu, sem hún sjálf hefði alls ekki getað gert grein fyrir, fékk hún strax óbeit á henni. En úr því að Janet var nú svona bjánalega hrifin af henni, varð maður víst að vera altileg við hana. — Sælar, ungfrú Langland. Það var fallegt af yður að vilja koma hingað í dag. — Það var líka fallegt af yður að lofa Janet að bjóða mér. — Janet, elskan, sagði Margot. — Segðu Marie, að við þurfum að fá fleiri glös. Við erum orðin fjölmerinari en mér datt í hug. En við Cynthiu sagði hún: — Af- sakið, það eru víst fleiri að koma. Það er ekki eintóm sitj- andi sæla að vera húsmóðir, bætti hún við brosandi. — Þá getur maður helzt ekki talað við neinn. Ég ætla að afhenda yður manninum mínum. Pljilip, sjáðu um, að ungfrú Langland fái glas. Philip leit á Cynthiu. Hann átti bágt með að trúa því, að hann sæi þarna fyrir sér konu, sem væri komin fast að fertugu. Hann mætti hreinskilnislegu augnaráði hennar og spurði sjálf an sig, hversvegna hann hefði látið undan þeirri freistingu að koma heim í dag og hitta hana. Það hefði hann ekki átt að gera. Fortíðin var liðin. og hann hefði átt að vera svo nærgætinn að lofa henni að vera það. Hann hafði því miður vel vitað, hvaða áhrif það mundi hafa á hann að sjá hana aftur — alla þá ókyrrð sem það mundi valda í sálu hans. — Mér finnst þú ættir að út- vega mér glas, Philip, sagði hún brosandi, — í stað þess að standa og stara á mig! — Jú, vitanlega .... En þetta er orðið svo langt .... — Jæja. Tuttugu ár. — Og þú hefur ekkert breytzt. — Æ, vertu ekki að þessari vitleysu! Hún leit um öxl og sá, að Janet var að koma í stofuna aftur. — Janet veit ekkert, að við höfum nokkurntíma þekkzt flýtti hún sér að segja. — Mér skildist það líka á henni. — Mér fannst engin ástæða til að fara að segja henni það. Janet kom nú til þeirra og brosti til þeirra beggja á víxl. — Cynthia mín, þú ættir að taka þér þetta til inntekta. Venjulega kemur pabbi alls ekki í samkvæmin, sem mamma er að halda. Hann segist enginn sam- kvæmismaður vera. — Ég er nú heldur ekki nein samkvæmismanneskja, ef út í það er farið. — Þarna sér maður! Ég vissi, að þið munduð eiga margt sam- eiginlegt. — Þér eigið heima í París, sagði Philip, að því er virtist alveg áhugalaust, rétt eins og hann hefði verið að tala við ein- hvem annan gest, sem hann væri að sjá í fyrsta sinn. — Já. Ég vinn í sendiráðinu okkar þar. Ég er fulltrúi hjá Freemantle hershöfðingja. — Það er afskaplega áríðandi staða, pabbi, greip Janet fram í. Hún hefur skrifstofu út af fyrir sig og nafnið hennar er á hurð- inni. Philip lyfti brúnum. — Með öðrum orðum kona með embætt- isframa? — Já, það verður víst að heita svo. Enda þótt margar konur mundu láta sér fátt um finnast um þann frama. sem kom nú til þeirra. — Sím- — Ungfrú Janet, sagði Marie, sem kom nú til þeirra, Sím- tal við París. Einkasamtal. Andlitið á Janet ljómaði. — Ég kem aftur, sagði hún og flýtti sér út. Skvaldrið í stofunni um- lukti þau Cynthiu og Philip, svo að þau voru eins og út af fyrir sig og verða mátti. Cynthia leit á Philip. Dóttir þín er afskaplega ást- fangin. Og maðurinn er líka á- gætur og hennar verðugur. Mér þykir fyrir því að heyra um Blómaborð nýgerð, blómalampar, blómagrindur með ljósum. — Nú er rétti tíminn að kaupa pottablómin áburð o. fl. Úrvalið er í ióm Ln ut Kjörgarði. — Sím1 16513 VERZLUNARHllSNÆÐI Verzlunarhæðin í húsi mínu á Laugavegi 26, þar sem nú er sýning húsgagnaarkitekta, verður til leigu. Leigist í einu lagi eða fleirri aðilum saman. HJÖRTUH Jð^SSQ^ Símar 12841 og 15186 þessa erfiðleika þeirra. — Hefur hún sagt þér af þeim? — Já.4 — Þú sérð, að sagan endur- tekur sig. — Já. En í þetta sinn finnst mér ekki rétt að lofa henni að endurtaka sig. — Sagðirðu það við hana? — Já. Hann horfði á hana. — Það var nú sama ráðið og ég gaf þér fyrir tuttugu árum. Hann lækk- aði röddina. — Er það hugsan- legt, að þú hafir iðrazt þess æ síðan að fara ekki að þeim ráð- urn? — Mér finnst ekki sanngjarnt að spyrja svona. Og heldur ekki er hér rétti staðurinn til þess. — Þá ætla ég að spyrja þig um það annarsstaðar. Við skul- um koma út og borða saman, annað kvöld. — Það get ég ekki. — Getur ekki eða vilt ekki? — Hvorttveggja, ef satt skal segja. — Hrædd? — Gæti hugsazt. — Ég býst við, að Janet hafi sagt þér, hvemig samkomulag- ið er hjá okkur Margot? — Já, og mér þótti það svo leitt, Philip. Ég hafði verið að vona, að þú værir hamingjusam- ur. — Guð minn góður. Nú orðið hlýturðu að vita, að mjög fáir eru hamingjusamir — ef nokkr- ir. Þegar hún svaraði ekki, hélt hélt hann áfram: — Cynthia mín .... við getum alls ekki talað almennilega saman hérna, og nú þegar við höfum hitzt, finnst mér snubbótt að gera ekki annað en heilsast og kveðjast. Ég vil fá að vita, hvað fyrir þig hefur borið öll þessi ár, sem liðin eru. Eigum við ekki að hittast klukk- an sjö annað kvöid í Savoy, eða hvar sem þú vilt. En áður en hún fengi svarað, var Margot komin til þeirra, því að hún var orðin forvitin um þessa konu, sem Janet hrósaði svo mjög og Philip virtist nú sýna alveg óvenjulegan áhuga. — Jæja, nú eru víst loksins allir búnir að fá í glösin! Þér eruð að verða búin úr glasinu yðar, ungfrú Langland. Lofið mér að fylla það fyrir yður. — Nei, þakka yður fyrir. Ég á svo mikið eftir. En hvað þetta er indæl stofa, frú Wells. — Finnst yður það. Já, ég hef gaman af innanhússskreytingu. Ef ég hefði lagt fyrir mig eitt- hvað sérstakt, held ég, að ég hefði farið út í þá grein. Ég er jafnvel að hugsa um að benda Janet á að leggja það fyrir sig. Hún þarf að hafa eitthvað fyrir stafni. Mér finnst allar stúlkur eigi að hafa eitthvað sérstakt starf, jafnvel þó að feður þeirra hafi efni á að ala önn fyrir þeim. — Já, það finnst mér líka. En hvað Janet snertir, skilst mér, að hún sé rétt að því komin að gifta sig. Margot rak upp stuttan, hvell- Á ú } * And knowing HE WILL BE NO MATCH FOR THE POWERFUL MAN AT CLOSE GRIPS, AAARK SKILLFULLY EVADES MCCLUNE'S LUNGES BUT THEV HAVE LITTLE EFFECT ON THE TRADER AS McCLUNE MOVES IN TO CLAMP ON HIS FAMOUS BACK BREAKING HOLD, MARK HAMMERS THE GIANT ' WITH TERRIFIC BLOWS TO A THE HEAD 1 U s I! Þegar McClune hleipur að til að ná sínu alþekkta hrygg- ^pennutaki á Markúsi, kemur Markús á hann nokkrum þung- ! McClune. Og vitandi það að um höfuðhöggum með hægri jötunninn befur yfirburði í ná- hendi. En þau hafa lítil áhrif á | vígi, víkur Morkús sér fimlega undan áhlamaum hans. an hlátur. Nú vissi hún að minnsta kosti, hversvegna það var, að hún hafði óbeit á þessari konu. Hún stóð með Janet. Og var það ekki einmitt hún, sem kynnti þau Nigel? Sennilega hafði hún áðan verið að stappa í hana stálinu að rísa öndverð gegn vilja móður sinnar! Hún svaraði því hægt: — Hún hefur víst eitthvað verið að hugsa um það undanfarið, en ég tek bara ekkert mark á því. Eða réttara sagt: ég legg b^in- línis á móti Því. Mér finnst það sérlega óráðlegt fyrir unga stúlku að fara að giftast fyrsta manninum, Sem hún verður skotin í. Ég vona, ungfrú Lang- land, að ef hún færir þetta í tal við yður, að þá neytið þér þess, að þér eruð þroskuð kona með lífsreynslu og fáið hana ofan af því að fara út í slíka vitleysu. Philip sagði: — En nú er ekki víst, að ungfrú Langland telji það vera neina vitleysu. — Nei, ég er ekki viss um, að ég telji það, sagði Cynthia. Nú var hún í vafa um, hvort hún þyrði að segja meira. Sízt af öllu vildj hún stofna til fjand- skapar við móður Janets. Báð» legra að hafa hana með sér en móti. En hún vissi nú Samt með sjálfri sér, að það gæti aldrei ajlltvarpiö Fimmtudagur 6 april 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik- ar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tón- leikar — 10.10. 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — ?.2. 25 Fréttir og tilk.) 12.50 ,,A frívaktinni": Sjómannaþáttur 1 umsjá Kristínar Önnu Þórar- insdóttur. 14.40 „Við, sem heima sitjum" (Vigdfs Finnbogadóttir). 15.00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15.05 Tónleikar. — 16.00 Veðurfregnir). Fréttir. — 16.30. 18.00 Fyrir yngstu hlustendurna (Gyða Ragnarsdóttir og Erna Aradóttirj. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar — 19.20 Veður- fregnir — 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: Píanókonsert nr. 1 1 í fis-moll eftir Rachmaninoff (Svjatoslav Rikter og sinfóníu- hljómsveit rússneska útvarpsins leika; K. Zanderling stj.), 20.30 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Páls saga biskups; I. (Andrés Björnsson) b) Þjóðleikhúskórinn syngur Öl- afs rímu Grænlendings eftir Jórunni Viðar; dr Victor Ur- bancic stj.) e) Minnzt aldarafmælis fræða«» þulsins Kristleifs á Stóra- Kroppi: Guðmundur Hlugason flytur stutt erindi og Páll Bergþórsson les úr ritum Kristleifs. 21.45 íslenzkt mál (Asgeir Blöndal Magnússon cand. mag). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Ur ýmsum áttum (Ævar R. Kvar an leikari). 22.30 Kammertónleikar: Marína Jas- hvíli og Elena Llvsjits leika á fiðlu og píanó. a) Sónata í d-moll op. 104 eftir Schumann. b) Rondó í C-dúr eftir MozarL c) Habanera eftir Sarasate. 23.10 Dagskrárlok. Föstudagur 7. apríl * 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi — 8.15 Tónleikar — 8.30 Fréttir — 8.35 Tónleikar — 10,10 Veðurfregnir). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar — 12.25 Fréttir — 12.35 Tilkynningar — Tónleikar). 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 15.00 Miðdegisútvarp (Fréttir — 15.05 Tónleikar. — 16.00 Fréttir og til- kynningar. — 16.05 Tónleikar. — 16.30 Veðurfregnir). 18.00 Börnin heimsækja framandi þjóð- ir: Guðmundur M. Þorláksson lýsir lífinu í Tíbet. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. — 19.20 Veður- fregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Efst á baugi (Björgvin Guð- mundsson og Tómas Karlsson). 20.30 Einsöngur: Gérard Souzay syng- ur lög eftir Purcell, Beethoven og Duparc; Dalton Baldwins jeik- ur undir. 21.00 „Malbikuð hjörtu": Jóhann Hjálmarsson les úr nýrri ljóða- bók sinni. 21.10 íslenzkir píanóleikarar kynna sónötur Mozarts; HI: Guðmund- ur Jónsson leikur sónötu í Des- dúr (K281). 21.30 Útvarpssagan: „Blítt lætur ver- öldin“ eftir Guðmund G. Haga- lín; XIII. (Höfundur les). 22.10 Ferðaþáttur: Heimsókn á Aule- stad, heimili Bjömstene Björns- ons (Sigurður Gunnarsson kenn- ari). 22.30 Létt tónlist frá Moldárbökkum: Hljómsveit tékkneska útvarps- ins leikur. 23.00 Daeskrárloi*-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.