Morgunblaðið - 20.04.1961, Page 5

Morgunblaðið - 20.04.1961, Page 5
Fimmtudagur 20. april 1961 MORGVNBLAÐIÐ 5 Undanfarið hefur Reykvík- ingtum gefizt kostur á að skoða glæsilegasta happdrættisvinn- ing D.A.S. á næsta ári, ein- býlishús á þakinu (Penthause) á Hátúni 4. Þegar blaðamaður Mbl. hugðist skoða íbúðina s.l. sunnudag, var margföld bið- röð á götuhæðinni og hin ný- tízkulega lyfta hússins hafði ekki við að flytja fólk upp á efstu hæð og niður aftur. Við urðum því að hverfa frá við svo búið. Það var ekki fyrr en á þriðýudag s.l., sem okkur gafst tækifæri til að litast um í þessari eftirsóknarverðu íbúð, þegar forráðamenn happ drættisins buðu blaðamönnum og öðrum gestum upp á kaffi í hinni vistlegu borðstofu happ- drættisíbúðarinnar. — • — - Toppíbúðin í Hátúni 4, eins og hún hefur stundum verið nefnd, er 5 herbergi, eldhús og bað, 120 ferm. að stærð. Hí- býladeild Markaðsins sá um að búa hana húsgögnum und ir forystu frú Guðrúnar Jóns dóttur, híbýlafræðings, með hjálp frá ýmsum fyrirtækjum og verzlunum, sem góðfúslega léðu vörur sínar til skreyting ar íbúðarinnar. Einnig prýddu íbúðina listaverk eftir Engil- berts, Barböru Árnason og Gerði Helgadóttur. Þessi mikla aðsókn að íbúð inni sýnir, að Reykvíkingar hafa áhuga og ánægju af að kynnast og skoða nútíma hí- býli „sett á svið“ af kunnáttu mönnum. fbúðinni var skipt í setustofu, borðstofu, svefnher- bergi, gestaherbergi og skrif- stofu húsbóndans og útbúin samkvæmt því. Ýmsar getgát ur voru uppi um, hvað allt innbúið myndi kosta, og fannst mönnum 200—250 þús. hæfilega áætlað, með heimilis vélum og öllu. Verðmæti íbúð arinnar var hins vegar áætlað um eina milljón kr. Skiptar skoðanir voru í hópi kvenfólksins í blaða- mannastétt um notagildi eld- hússins, þó útlit þess væri ó- umdeilanlega upp á það allra bezta. Benedikt Björnsson, arkitekt, sem útfærði íbúðina, var hinsvegar ekki á sama máli og sýndi fram á tækni- lega galla á hverri breytingar tillögu, sem fram kom. Voru flest allar að lokum sammála um, að eldhúsið hefði ekki getað verið öðruvísi. — • — Forráðamenn happdrættis- ins skýrðu frá því, að íbúðin yrði dregin út í lok happdrætt isársins og væri hún langsam- lega verðmætasti vinningur- inn, sem þeir hefðu boðið fólki upp á. í sumar hefðu þeir í hyggju að útbúa svalirnar á smekklegan hátt með sóltjöld um, garðstólum o.fl. og gefa fólki tækifæri til að skoða garðinn á þakinu, ef svo mætti segja. Sökum mikillar aðsókn ar væri ákveðið að hafa íbúð ina opna til sýnis á sumardag inn fyrsta frá kl. 7—11 og tvo næstu laugar- og sunnu- daga milli kl. 2—6. í dag verða gefn saman í hjóna band af dr. theol Eiríki Alberts- syni, ungfrú Þorbjörg Jónsdóttir og Edvard Ragnarsson. Heimili þeirra verður að Austurbrún 2. S.l. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband af séra Jóni Thor arensen, ungfrú Kristín Halldórs- dóttir og Björn H. Magnússon, stýrimaður. Heimili þeirra verð- ur að Kaplaskjólsvegi 51. S.l. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband af séra Óskari J. Þorláksssyni, ungfrú Ragnheiður Hilmarsdóttir, Bústaðabletti 24 og Jóhannes Viggósson, rafvirki, Jófríðarstöðum. Heimili þeirra verður að Birkihvammi 9, Kópa- vogi. S.l. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband af sr. Jóni Thor- arensen Kristín K. Halldórsdóttir og Haukur Magnússon Kapla- skjólsveg 51. 80 ára er í dag Guðnj Stígs- lon Veghúsastíg 1, - M ESSU R - Mosfellsprestakall. Messa í Árbæjar- kirkju kl. 2 séra Sigurður Pálsson, prédikar. — Get/urðu alls ekki talað um neitt annað en veðrið? ★ Ferðamaður í Napóli, sem var eltur af betlara varð gramur og spurði: — Hvers vegna gangið þér um og betlið — hvers vegna virinið þér ekkert? — Eg vinn svo sannarlega, ég vinn að yfirgripsmikilli skýrslu- gerð, sem fjallar um hve mörg prósent manna eru nirflar. ★ Grínleikarinn Red Skelton var VoriS er komið, ob grundirnar gróa, gilin og lækirnir fossa af brún; syngur í runni, og senn kemur lóa, svanur á tjamir og þröstur í tún; nú tekur hýrna um hólma og sker, hreiðra sig blikinn og æðurin fer; hæðirnar brosa og hlíðarnar daia, hóar )>ar smalinn og rekur á ból; lömbin sér una um blómgaða bala, börnin sér leika að skeljum á hól. Jón Thoroddsen: Vorvísa. eitt sinn spurður hvernig hann færi að því að vera fyndinn: — Það er vegna þess að ég hef sjötta skilningarvitið, en vantar hin fimm. ★ Það var troðningur í strætis- vagninum og maður nokkur fékk oddinn á kvenmannsregnhlíf inn á milli rifjanna. Hann var þögull um stund, en sagði að lokum: — Afsakið, en ég vona að rifin í mér fari ekki í taugarnar á regn- hlífinni yðar? Árni Tryggvason í hlutverki sínu í Pókók, en það verður sýnt í næst síðasta sinn í kvöld Til sölu niðurrifinn Chevrolet ’37. Uppl. gefur Einar Jónsson bifreiðaverkst. Laugav. 168 og í síma 33344 eftir kl. 7. 2—3 herberg'ja íbúð óskast til leigu. Fyrirfram- greiðsla. Uppl. í síma 16198. 3—4 herbergja íbúð óskast til leigu. Fyrirfram- greiðsla. Uppl. í síma 17049 Vatnabátur Vil kaupa léttan og þægi- legan vatnabát. Uppl. í síma 16435. Stór lítið notaður pels til sölu. Uppl. í Ingólfs- stræti 21a eða í síma 24790. Tækifærisverð Fjölbreytt úrval góðra mynda verða til sýnis og sölu næstu daga. Innrömmunarstofan Njálsgötu 44. Peningalán Viljum kaupa viðskipta- vöruvíxla fyrir ca. 400 þús. strax. Tilboð merkt: „Lán — 1910“, sendist afgr. Mbl. Sumarbústaður í nágrenni Reykjavíkur óskast til leigu í sumar. — Uppl. í síma 32297 — 19687. Sælgætisgerð er til sölu strax. Góðir atvinnumöguleikar (fyrir karl eða konu) Tilboð merkt: „Sælgætisgerð — 1909“, sendist afgr. Mbl. Húsasmíðameistari getur bætt við sig verk- efnum í úti- og innismíði. Uppl. í síma 18079. 3—4 herbergja íbúð óskast til leigu 1. eða 14. maí. Fyrirframgreiðsla eft- ir samkomulagi. — Tilboð sendist afgr. Mbl. sem fyrst, merkt: „Sjómaður — 1053“. Ungur lögfræðingur (ríkisstarfsmaður) óskar eftir aukastarfi. — Tilboð, merkt: „1, 2, 3. 1064“, send- ist blaðinu. 3—4 herbergi og eldhús óskast til leigu. Uppl. í síma 12618. Service-þvottavél sem ný til sölu. Verð kr. 6000,-. Uppl. í síma 37175. fbúð óskast 2—3 herbergja íbúð óskast fyrir 14. maí, 3 í heimili. Uppl. í síma 36680. Fjölritun — Fjölritun Fljót og góð afgreiðsla. Háteigsveg 24 kjallara Sími 36574. Vaktavinna óskast Rösk stúlka (24 ára) óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Tilboð merkt: „Sumar — 1147““ sendist Mbl. f. h. laugard. Volvo ’58 til sölu Keyrður 17500 mílur og í mjög góðu standi. Til sýnis á Suðurgötu 42, Keflavík. Sími 1836. Ford sendiferðabíll í góðu standi til sölu. — Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir 25. þ. m. merkt: „180 — 1546“. 1—2 herbergi, helzt í Miðbænum, óskast til leigu strax. Tilb. merkt: „Einhleypur — 1055“. sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld. Hjólbarðaviðgerðir Opið öll kvöld og helgar. Hjólbarðastöðin Langholtsvegi 112 B. Stúlka óskast Hótel Borg. TIMBUR Seljum móta- og innitimbur Pappa og saum — Vélavinnu HÚSASMiÐJAN Súðarvogi 3 — Sími 34195 Pensngamenn Óska eftir að taka 40.000.00 kr. til 1 árs. Fasteigna- veð. — Tilboð óskast send afgr. Mbl. fyrir mánu- dagskvöld, merkt: „Strax — 472“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.