Morgunblaðið - 20.04.1961, Blaðsíða 12
12
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. apríl 1961
Utg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: ýaltýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannesser.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðabtræti 6.
Auglýsingar og afgieiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
GLEÐILEGT SUMAR
ITeturinn, sem er að kveðja,^
* er einn hinna mildustu,
sem þjóðin hefur lengi lifað.
Meginhluta hans hafa ríkt
hlýindi og blíðviðri um land
allt. Síðustu vikur hefur þó
kólnað verulega og umhleyp
ingasamt hefur verið til sjáv-
arins. Hafa sjóróðrar torveld-
azt nokkuð við það í ýmsum
landshlutum.
I sveitunum hefur þessi
vetur verið mjög hagstæður.
Sauðfénaður hefur verið létt-
ur á gjöf og afurðaflutningar
hafa gengið mjög vel.
Vetrarvertíð vélbátaflotans
hefur yfirleitt gengið illa. —
Síldveiði hefur að vísu verið
í mesta lagi hér suðvestan-
lands, en þorskveiðin hefur
verið svo treg að segja má að
um mikinn aflabrest sé að
ræða. Davíð Ólafsson, fiski-
málastjóri, upplýsti þannig á
fundi Sjálfstæðisfélaganna
nú í vikunni, að útlit væri
fyrir að gjaldeyristekjur
þjóðarinnar yrðu 350—400
millj. kr. minni í ár en á sl.
ári vegna þessa aflabrests.
Má af þessum upplýsingum
marka, hversu alvarlega
horfir í þessum efnum.
Tilfinnanlegastur hefur
aflabresturinn orðið í Vest-
mannaeyjum, langsamlega
stærstu verstöð landsins.
★
En þrátt fyrir ýmiskonar
erfiðleika á liðnum vetri
gengur íslenzka þjóðin þó
enn sem fyrr fagnandi móti
nýju sumri. Yfir hinum
fyrsta sumardegi hvílir jafn-
an hugþekkur blær í hugum
fólksins. Við hann er tengd
vissan um hækkandi sól og
vonin um hlýtt og hagstætt
sumar. Stundum bregðast
þessar vonir í okkar norð-
læga landi og vorkuldamir
ná^langt fram á sumar. En
oft gengur Harpa í garð með
sunnanþey og leysingu. Grös-
in gróa, kjarrið ilmar og
þjóðin gengur vonglöð til
starfa í sveitum og við sjó.
Þetta sumar felur í sér mikla
möguleika. íslenzka þjóðin er
nú færari um að bjarga sér
og lifa farsælu og hamingju-
sömu lífi í landi sínu en
nokkru sinni fyrr. Enda þótt
sjávarafli sé brigðull og gras
spretta misjöfn, standa þó
bjargræðisvegir landsmanna
á breiðari grundvelli en
nokkru sinni fyrr. En hið
mikla verkefni framtíðarinn-
ar er að gera þá ennþá fjöl-
breyttari og óháðari fiski-
göngum og veðurfari.
★
En auk þess sem sumarið
er aðalbjargræðistími ís-
lenzku þjóðarinnar veitir það
henni einnig dásamleg tæki-
færi til þess að kynnast landi
sínu og njóta fegurðar þess.
Það er eðlilegt að íslending-
ar vilji eins og aðrir sjá sig
um í veröldinni og kanna
ókunna stigu. En við skyld-
um þó ekki gleyma því, að
landið sjálft býður okkur
glæsilegustu tækifæriri til
þess að njóta náttúrufegurð-
ar og hrista um leið af okk-
ur doða hins norræna vetrar.
Morgunbla&ið óskar öllum
lesendum sínum, allri hinni
íslenzku þjóð, gleðilegs sum-
ars. —
RÚSSNESKA
"HLUTLEISIÐ"
að er fallegt og einlægt
rússneska „hlutleysið“!
Það má nú segja. Sú stað-
reynd ætti að vera mönnum
nokkurn veginn ljós við lest-
ur yfirlýsingar þeirrar, sem
Nikita Krúsjeff hefur gefið í
tilefni uppreisnarinnar á
Kúbu.
„Við munum veita Kúbu
allan nauðsynlegan styrk til
þess að hrinda aftur hinni
vopnuðu árás. Svokallað smá
stríð getur hæglega breiðzt
út með keðjuáhrifum?.
Þetta voru ummæli úr
ræðu Krúsjeffs sl. þriðjudag.
Forsætisráðherra Sovétríkj-
anna lýsir því hreinlega yfir,
að Rússar muni hefja þátt-
töku í borgarastyrjöldinni á
Kúbu.
Allur heimurinn veit, að á
Kúbu eigast nú við hin
kommúníska einræðisstjórn
Fiedels Castros og uppreisn-
armenn, sem ekki vilja una
ofbeldisstjórninni. Vitanlega
er hér fyrst og fremst um að
ræða innanríkismál Kúbu-
manna sjálfra. — Leiðtogar
kommúnistaríkanna hafa að
vísu sakað Bandaríkin um
að eiga þátt í undirbúningi
uppreisnarinnar. En á sama
tíma sem Krúsjeff hinn rúss-
neski lýsir því yfir, að hann
muni „veita Kúbu allan nauð
synlegan styrk til þess að
Vírus veldur
krabbameini
STÓRBLAÐIÐ The New
York Times skýrir frá því
fyrir nokkru að í fyrsta
sinn, svo vitað sé, hafi
vírus orsakað krabbamein
í manni.
Áður hafa fundizt smáagnir
hrinda hinni vopnuðu árás“,
þá lýsir Kennedy Bandaríkja
forseti því yfir, að Banda-
ríkin muni ekki hlutazt til
um málefni Kúbu. Hann
kvaðst einnig vona að Rúss-
ar notuðu þetta mál ekki til
þess að efla ófrið í öðrum
hlutum heims. En af um-
mælum Krúsjeffs virðist ein-
mitt mega ráða, að Rússar
hyggist nota borgarastyrjöld-
ina á Kúbu sem yfirskin til
þess að beita yfirgangi ann-
arsstaðar. „Svokallað smá-
stríð getur hæglega breiðzt
út með keðjuáhrifum", sagði
Krúsjeff. Hann virðist engan
áhuga hafa á því að koma í
veg fyrir slík keðjuáhrif. —
Þvert á móti lýsir hann þvi
yfir, að hann muni veita
öðrum hernaðaraðilanum á
Kúbu „allan nauðsynlegan
í krabhameini, sem líktust
vírusum, en ekki hefur fyrr
tekizt bS orsaka meinsemd
með þessum smáögnum. »Á
nýafstöðnu þingi bandaríska
krabbameinsrannsókna félags-
ins voru birtar skýrslur sem
gefa í skyn að:
— Líklegt er að vírusar
eða smáagnir, sem líkjast
vírusum geti orsakað marg-
ar, ef ekki allar tegundir
krabbameins.
— Sumir vírusar. sem
orsaka krabbamein í dýr-
um, eru náskyldir þeim vír-
usum, sem hugsanlega geta
orsakað krabbamein hjá
mönnum.
— Að minnsta kosti sum
ar tegundir krabbameins
geta verið smitandi.
— Að því getur komið að
unnt verði að fyrirbyggja
krabbamein með bólusetn-
ingu eins og aðra vírus-
sjúkdóma, svo sem lömun-
arveiki og bólusótt.
— Vonandi verður í
framtíðinni unnt að lækna
krabbamein þegar fundið
hefur verið lyf sem vinnur
á vírusunum.
SMITANDI KRABBAMEIN
Vírusamir, sem orsökuðu
krabbamein í mönnum, feng-
ust úr sýktum apa, sem náðist
fyrir tveim árum nálægt Yaba
í Nigeríu í Afríku. Apinn var
settur í búr með öðrum öp-
um í rannsóknarstöð þar.
Elmer T. Feltz, visindamaður
frá Roswell Park Memorial
stofnuninni í Bufíaio, New
York, skýrði frá því á ráð-
stefnunni að fljótlega hafi all-
ir apamir í búrinu sýkzt af
krabbámeini. I>ar sem rann-
sóknarstöðin vann ekki að
rannsóknum á orsökum krabba
meins, sendi hún sýnishorn
af meinsemdinni til Bretlands.
Millhill rannsóknarstofurnar
í London fengu sýnishorn til
athugunar. Þar var unninn
vökvi úr þeim, sem sprautað
var í aðra apa. Illkynjuð bólga
myndaðist í öpunum, og töldu
vísindamennirnir að það væri
stór vírus, sem olli meinsemd
inni.
APARNIR FRÁ ASÍU
Ný sýnishorn voru nú send
til Roswell Park. Þar tókst
einnig að sýkja apa með inn-
sprautunum, en því aðeins að
apamir væru frá Asíu. Apar
frá Afríku voru mjög mis-
næmir fyrir sprautunum, sum-
ir algjörlega ónæmir, en hjá
öðrum myndaðist ígerðin mjög
hægt. Dr. Feltz komst að því
að allir aparnir í búrinu í
Yaba, svo og aparnir sem
sýktir voru í London, voru
Asíutegundir.
Næst var haldið áfram til-
raunum með því að sprauta
vökvanum í fimm menn, sem
þjáðust af krabbameini á loka
stigi og buðu sig fram sem
tilraunadýr. Illkynjaðar bólg
ur mynduðust í öllum sjúkl-
ingunum. Úr þeim bólgum
var unninn vökvi sem spraut-
að var inn í enn einn sjálf-
boðaliða, og myndaðist þegar
illkynjuð bólga í honum.
★
Þetta var í fyrsta sinn að
vírus, sem valdið gat krabba
meini, var fluttur milli manna.
Ekkert benti hins vegar til
þess að vírusinn gæti borizt
milli manna sem smitun, eins
og átti sér stað hjá öpunum
í Yaba.
styrk“.
TRYGGIR ÞAÐ
HEIMSFRIÐINN
jþannig er hið rússneska
„hlutleysi“, sem komm-
únistar hér á íslandi og
annarsstaðar hafa útbásúnað.
Það er þetta „hlutleysi“, sgm
Guðni Jónsson, prófessor, og
fleiri aðstoðarmenn komm-
únista við undirskriftasöfn-
unina á Moskvuvíxilinn
segja að sé bezta trygging
heimsfriðarins og frelsi og
öryggi almennings á íslandi!
Um yfirlýsingu Krúsjeffs
um stuðning hans við komm-
únistastjórnina á Kúbu má
annars segja það, að hún fel-
ur í sér stórkostlega ógnun
við heimsfriðinn. Um það
þarf ekki að fara í neinar
grafgötur, að íhlutun Rússa
um innanríkismál Vestur-
heimsríkja getur hæglega
kveikt bál, sem breiðzt gæti
út um lönd og álfur. Forsæt-
isráðherra Sovétríkjanna ætti
ekki að gera leik að því að
,kveikja slíkan eld.
Stikker framkv
stióri NATO
PARÍS 18. apríl (Reuter) Fasta
ráð Atlantshafsbandalagsins
samþykkti í dag einróma að
bjóða Dirk Stikker, fyrrum ut-
anríkisráðherra Hollands að taka
við embætti framkvæmdastjóra
NATO.
Með þessari ákvörðun hefur
ná.ðst samkomuiag í deilu sem
Hollendingurinn Dirk Stikker.
var orðin all viðkvæm. Voru
uppi tillögur um tvo menn í em-
bættið. Stærri hópurinn undir
forustu Bandarikjamanna vildl
fá Stikker til starfans, — en
minni hópurinn undir forustu
Frakka hafði augastað á ítalan-
um Manlio Brosio.
Fyrir nokkru var það þó Ijóst,
að Brosio myndi ekki hljóta
þann starfa, því að hann var
skipaður sendiherra ítala i
Frakklandi. Hefði hann ekki
fengið það skipunarbréf, ef hann
hefði haft nokkra von um starf
framkvæmdastjóra NATO.
Hinn nýi framkvæmdastjóri er
64 ára að aldri. Hann verður
eftirmaður Belgíumannsins Paul
Henri Spaak og er eins og hann
þekktur að áhuga fyrir evrópsku
og vestrænu samstarfi. Stikker
var upphaflega auðugur banka-
og verksmiðjueigandi, en fékic
áhuga á stjórnmálum upp úr
stríðslokunum. Hann hefur nú
um nokkurra ára skeið verið
sendiherra Hollands hjá NATO,
Fregnin um útnefningu Stikk-
ers barst skjótt til Briissel. Var
undanmaður, Spaak á þingfundi
í belgíska þinginu. Þegar blaða.
menn sögðu Spaak frá útnefn-
ingunni varð hann glaður við og
sagði að ekki hefði verið hægt
að fá betri og hæfari mann en
Stikker til starfans. Hann hefði
og til að bera óvenju mikla
þekkingu á öllu starfi NATO.