Morgunblaðið - 20.04.1961, Síða 15
Fimmtudagur 20. apríl 1961
MORGVNBLAÐID
15
Fdstbræður“ 45 ára
hafa starfað samfleytt lengst
allra islenzkra karlakóra
KARLAKÓRAR hafa lengi
átt vinsældum að fagna hér
á landi. Og þótt tónlistarlífið
gerist nú fjölbreyttara með
hverju árinu sem líður, eiga
karlakórarnir enn sinn
trygga vinahóp, sem glöggt
kemur í ljós, þegar þeir
halda samsöngva sína, en
það mun teljast til undan-
tekninga, að karlakór — hvar
sem er á landinu — haldi
svo „konsert", að áheyrenda
bekkir séu ekki nokkurn veg-
inn fullskipaðir. Á síðari ár-
um hafa íslenzkir karlakór-
ar auk þess getið sér tals-
Vert frægðarorð á erlendum
vettvangi, áem kunnugt er,
svo að þeir eru nú víða tald
ir meðal hinna fremstu slíkra
kóra.
— ★ —
1 Karlakórinn „Fóstbræður" er
meðal þeirra, sem víðast hafa
borið hróður landsins með söng
Bínum. Hann má vel kallast „nes
tor“ íslenzkra karlakóra, því að
Ihann mun hafa starfað lengur
Ragnar Bjömsson — söngstjóri
frá 1954.
samfleytt en nokkur annar. Þessi
merki kór minnist um þessar
amundir 45 ára afmælis síns, m.a.
með þrennum hljómleikum í
Austurbæjarbíói um næstu
Ihelgi, svo sem skýrt hefur verið
frá í blaðinu. — f tilefni þessara
tímamóta í sögu Fóstbræðra
ræddu stjómarmenn kórsins við
fréttamenn yfir kaffibollum í
Nausti sl. miðvikudag og greindu
nokkuð frá helztu áföngum í
sögu hans og starfi frá upphafi.
Verður nokkuð af því rakið hér
á eftir.
Fyrsta ,,brumið“.
i Þar er þá fyrst til að taka, að
enda þótt nú sé minnzt 45 ára
efmælis Fóstbræðra, á kórinn
sér raunar nokkru lengri sögu —
og gæti með nokkrum rétti talizt
eiga 50 ára starf að baki á þessu
ári.
Það var árið 1911, að stofnað-
ar var karlakór innan K.F.U.M.
;Var starfsemi hans nær eingöngu
innan félagsins, og hélt hann
enga opinbera samsöngva. Sú
mun ástæðan til þess, að fimm
fyrstu starfsár þessa kórs eru
ekki talin með í sögu Fóst-
Ibræðra, sem lengi hét karlakór
K.F.U.M., svo sem kunnugt er. —
Ekki hafði þessi fyrsti kórvísir
fastráðinn söngstjóra, en þrír
menn höfðu á hendi stjórn hans
til skiptis — þeir Halldór Jónas-
son, cand. phil., Hallgrímur Þor-
Bteinsson, organleikari, og Jón
Snæland.
Jón Halldórsson — söngstjóri
1916—1950.
ár Tímamót.
Arið 1910 urðu svo þau tíma-
mót í starfi kórsins, að aldur hans
er síðan miðaður við það ár. Þá
kom fastráðinn söngstjóri til
starfa, og kórinn hóf starf á þeim
grundvelli að halda opinbera sam
söngva árlega. Þessi fyTsti fast-
ráðni söngstjóri Karlakórs K.F.
U.M. (nafnið Fóstbræður hlaut
hann 1936) var Jón Halldórsson,
er síðan starfaði óslitið með kóm
um til ársins 1950, eða lengst
allra söngstjóra hans. FyTsti sam
söngur kórsing var haldinn í
„Bárunni" 23. marz árið 1917.
Voru söngmenn kórsins þá um
20 talsins. — Eftir að Jón HaU-
dórsson lét af störfum sem söng-
stjóri Fóstbræðra árið 1950, eftir
langa og giftudrjúga forustu,
hafa tveir merm annazt stjórn
kórsins — Jón Þórarinsson, tón-
skáld, til 1954, og síðan núver-
andi söngstjóri hans, Ragnar
Björnsson.
★ Sjálfsagður hlutur.
Fóstbræður hafa átt marga
dygga og trygga félaga, sem
starfað hafa í kórnum um ára-
tugi. Má þar fyrstan og frægast-
an telja Hail Þorleifsson, sem
enn syngur með, en hann var
einn af stofnendunum. Sögðu
stjórnarmenn á blaðamannafund
inum, að Hallur hefði unnið
manna mest fyrir kórinn, m.a.
verið í stjórn hans lengi og for-
maður um skeið. Synir hans
tveir, Ásgeir og Kristinn, óperu-
söngvari, eru og báðir „Fóstbræð
ur“. Kristinn hefir verið aðal-
einsöngvari kórsins um langt ára
bil, en Ásgeir er nú ritari stjórn-
arinnar. — Þótt þéssir menn séu
hér sérstaklega nefndir, má segja
að allir kórmenn hafi ævinlega
verið boðnir og búnir til að
leggja á sig hvers konar erfiði í
þágu hans. Árangur slíkrar starf
semj byggist líka nær eingöngu
á samtaka- og starfsvilja félags-
manna — eða eins og þeir stjóm
armenn komust svo skemmtilega
að orði við fréttamennina: — Á
íslandi er litið á karlakórana sem
sjálfsagðan hlut, eins og veðrið
og f jöllin í kringum okkur — og
e.t.v. er það þess vegna, að þeim
hefir verið næsta lítill sómi sýnd
ur af hinu opinbera, ekki notið
styrkja of opinberu fé, nema lít-
illega til utanferða. Þann-
ig væru Fóstbræður nú „á göt-
unni“ ef þeir nytu ekki velvild-
ar forráðamanna Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, sem
leigir kórnum húsnæði til starf-
semi sinnar.
■ár Utanfarir.
Fóstbræður urðu fyrstir is-
lenzkra karlakóra til þess að-
syngja inn á hljómplötur, en það
var árið 1929. Nú, í sambandi við
afmæli kórsins, eru væntanlegar
á markaðinn fjórar hæggengar
hljómplötur, sem sungið var inn
á í Norðurlandaferð kórsins vor-
ið 1960. Er það Fálkinn, sem gef-
ur þær út, til sölu á innlendum
og erlendum markaði. — Auk
Norðurlandaferðarinnar, sem hér
var nefnd og enn er í fersku
minni, hefir kórinn farið fjórar
söngferðir til útlanda: Til Noregs
1926, til Danmerkur 1931, til
Norðurlanda 1946 (sú för var
raunar farin á vegum karlakóra-
sambandsins, en % söngmanna
voru úr Fóstbræðrum). Lok-s fór
svo kórinn mikla för til Þýzka-
lands, Hollands, Belgíu, Frakk-
lands, Englands og Sketlands ár-
ið 1954. Mun ékki of sagt, að all-
ar þessar söngferðir hafi tekizt
með ágætum og orðið kórnum og
landinu öllu til sóma og frægð-
ar. , >
Jón Þórarinsson — söngstjóri
1950—1954.
-ár „Gamlir Fóstbræður."
Söngskrá kórsins á afmælis-
tónleikunum um helgina verður
hin fjölbreyttasta. Þar eru m.a.
lög eftir Jónas Tómasson, Sigfús
Einarsson, Árna Thorsteinsson,
Ole Bull, Grieg, Peterson-Berger
og Mendelsohn. Þá verða einnig
fluttir óperukórar eftir Lortzing
og Wagner, og loks verða frum-
flutt tvö lög eftir Jón Nordal. —
Söngstjóri verður Ragnar Björns
son, en auk hans stjórna, sem
gestir, tveir fyrrverandi söng-
stjórar kórsins, þeir Jón Halldórs
son ©g Jón Þóarinsson. Einsöngv
arar verða hvorki fleirri né færri
en sex: Eygló Victorsdóttir, Er-
lingur Vigfússon, Friðrik J. Ey-
fjörð, Gunnar Kristinsson, Vil-
hjálmur Pálmason og Jón Sigun-
björnsson, en hann verður aðal-
einsöngvari kórsins í ár. — Und-
irleik á tónleikunum annast Carl
Billich, sem verið hefur Fóst-
bræðrum mikil stoð og stytta um
fjölda ára.
Afmælissamsöngvarnir hefjast
með þeim nýstárlega hæiti að
„Gamlir Fóstbræður“ hylla kór-
inn með söng undir stjórn Jóns
Halldórssonar. „Gamlir Fóstbræð
ur“ nefnist félagsskapur eldri
kórmanna, sem hættir eru virkri
þátttöku í kómum.
★ Mikið starf.
Það mun óhætt að segja, að
starf Karlakórsins Fóstbræðra
hafi verið mjög þróttmikið að
undanfömu, sem m.a. má marka
af því, að auk venjulegra sam-
söngva og utanfarar á s.l. vori,
hefir kórinn haldið fjölbreyttar
kvöldskemmtanir fyrir almenn-
ing undanfama tvo vetur, er orð-
ið hafa mjög vinsælir. Verður
væntanlega framhald á þeim. —
Við kvöldskemmtanir þessar
hafa Fóstbrœður notið góðrar að
stoðar níu söngmeyja, sem í
þeirra hópi ganga undir nafninu
„Fóstursystur“ — og sögðu þeir
stjómarmenn, að enda þótt nafn-
ið væri kannske ekki myndað af
neinni sérstakri snilli, sýndi það,
hvem þakkarhug kórmenn bæru
tii þessara ágætu kvenna, er lagt
hefðu á sig mikið erfiði, án nokk
urs endureialds.
VERÐLÆKKUN
á kvensokkum
Sokkaverksmiðjurnar í Tékkóslóvakíu, sem eru
hinar stærstu sinnar tegundar í Evrópu, hafa
ákveðið mikla verðlækkun á hinum þekktu og
vönduðu ÍSABELLA kvensokkum
Nú eru að koma á markaðinn
íSABELLA - Grace
Saumlausir
micromesh
kvensokkar
í tízkulitum
Þessir sokkar eru jafnvand-
aðir að því er snertir útlit,
endingu og frágang og aðrir
ÍSABELLA sokkar, sem hér
hafa verið seldir árum sam-
an.
seldir í
verzlunum
á kr. 51.95 parið
Þetta er mikil verðlækkun
þegar þess er gætt, að verð
á sambærilegum sokkum
hefir verið um 65 kr. parið.
Með þessari verðlækkun hefir Tékkóslóvakía gert
ISABELLA-sokka samkeppnishæfa, hvað verð og
gæði snertir, við sokkaframleiðslu hvaða lands
sem er.
Þórður Sveinsson & Co. h.f.