Morgunblaðið - 20.04.1961, Page 20
20
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. aprQ 1961
| DÆTURNÁR VÍTA BETÚR
SKALDSAGA EFTIR RENÉE SHANN
I
í
i
í
í
í
í
i
— Enginn gæti nokkurntíma
tekið mig frá þér, elskan min.
Ég vildi bara, að ég vaeri eins
viss um, að enginn gæti tekið
þig frá mér.
— Áttu við mömmu?
— Vitanlega.
Hún hélt sér fast í handlegg
hans og neri höfðinu við ermi
hans. — Lofaðu mér því, Nigel,
að Xáta hana aldrei skilja okkur,
jafnvel þó að ég reyni að brjót-
ast frá þér. Mér finnst aldrei
þegar ég er með þér, að ég muni
gera það, en þegar ég sé hvað
henni líður illa og hvað hún er
veikindaleg ....
Nigel hélt í höndina, sem hún
hafði stungið undir arm hans.
Hann Xaut höfðinu niður að
henni.
— Ég lofa þér því, að hvað
sem fyrir kemur, skal ég aldrei
láta þig fara frá mér, elsku Jan-
et ,
IX.
I fyrsta sinn um langan tíma
hittust þau öll þrjú um kvöldið,
og það aðeins vegna þess, að þau
komu öll lieim samtímis.
Janet kom frá að fylgja Nigel
út á flugvöllinn. Þar hafði hún
séð Sharman, og að því er henni
fannst, brosandi og glaðlega, og
það Iiafði ekki fengið sjálfri
henni neinnar gleði. Philip hafði
verið í golf, og bölvaði því nú
með sjálfum sér, að það hafði
orðið til þess að hann kæmi
heim um leið og kona hans og
dóttir.
Hann leit á konu sína og var
forvitinn að vita, hvort hún færi
nú að minnast á mót þeirra í
veitingahúsinu, kvöldinu áður.
Ef hún léti það ógert, skyldi
hann gera slíkt hið sama. Þau
Cynthia höfðu komið sér saman
um, að ef það kæmi í ljós, að
Margot hefði ekkert á þetta
minnzt við Janet, skyldu þau
heldur ekkert á það minnast.
En Margot átti við hvorugt
þeirra neitt vantalað. Hún hafði
sofið illa nóttina á undan, og
hafði um morguninn látið Marie
t>era manni hennar og dóttur þau
skilaboð, að hún væri með slæm-
an höfuðverk og vildi ekki láta
ónáða sig. Hún lá svo í rúminu
langt fram yfir liádegi, en dróst
þá á fætur og fór að hitta Prisc-
illu, en seinna fóru þær í kvöld-
mat saman og nú var hún að
koma heiman frá henni.
Hún gekk á undan Philip inn
í húsið, leit varla á hann og rétt
aðeins heilsaði Janet. Hún fann
til ískaldra reiði gagnvart þeim
báðum. Hún rétt leit á blaðið við
símann, þar sem skilaix>ð voru
skrifuð, ef einhver voru, i fjar-
veru hennar.
„Ungfrú Liangland hringdi til
ungfrú Janet“ las hún. „Ætlar
að Xiringja aftur“.
Janet, sem stóð við hliðina á
henni og las líka skilaboðin. —
Ég sé, að Cynthia hefur hringt,
sagði hún, til þess að reyna að
draga eitthvert orð upp úr for-
eldrum sínum. En það mistókst.
— Ég ætla tæint í rúmið sagði
Margot kuldalega. — Mér líður
fjandalega.
Janet lei-t á hana, kvíðin.
— Get ég náð í eitthvað handa
þér, mamma? Ég kom ekki inn
til þm í morgun áður en ég fór
að hitta Nigel af því að Marie
sagði mér, að þú vildir ekki láta
ónáða þig.
— Nei, það vildi ég ekki. Ég
svaf svo afleitlega.
— Það þykir mér leiðinlegt.
En hvernig skemmtirðu þér í
gærkvöldi? Hvernig var myndin,
sem þið voruð að sjá?
— Ég tók eiginlega ekkert eftir
því; mér var svo illt í höfðinu.
Philip gekk inn í skrifstofuna
sína, og hugsaði með sér, að lík-
lega mætti hann þakka fyrir,
að Margot skyldi ekki fara að
skamma hann í návist döttur
þeirra. Hann var feginn, að hún
skyldi ekki hafa hellt sér yfir
hann í ofsareiði og farið að spyrja
hann, hversvegna hann hefði ver
ið úti með Cynthiu í gærkvöldi.
En það leit helzt út fyrir, að hún
ætlaði sér alls ekki að minnast
neitt á það. Og betur, að svo
væri. Það væri allra hluta vegna
l>etra, að Janet vissi alls ekki,
að þau hefði verið úti saman,
annars gæti hún farið að gera
sér ýmsar grillur og tilgátur í
því sambandi.
Hann seildist eftir pípunni
sinni og tróð í hana, til þess
að fá sér ofurlítið að reykja áður
en hann færi í háttinn. Það var
kannske ekki nema heimska, en
honum var það eindregið áhuga-
mál, að Janet fengi ekkert að
vita um samband þeirra Cynthiu.
Og það var nú skrítið samt. Og
hver var eiginlega ástæðan? Jú,
hún var dóttir lians og þá vildi
hann ekki láta hana vita, að
hann væri að dingla við hinar
og þessar konur. Fljótt á litið
var þetta ekki nema heimska. Ef
Chynthia aðeins samþykkti það,
sem hann var að biðja hana um,
liði ekki á löngu áður en Janet
vissi allt saman. Og að minnsta
kosti væri henni fullkomlega
Xjóst, að samkomulagið hjá þeim
foreldrum hennar var eins og
hjá hundi og ketti, og hún hlaut
líka þegar að vita, að hann ósk-
aði einskis fremur en að geta
losnað frá henni.
Janet elti hann til stofunnar
og dokaði við í dyragættinni.
— Hefurðu skemmt þér vel,
Poppa? spurði hann.
— Já, ágætlega.
Hann leit allt í einu fast á
hana og datt í hug, að ef til
vill hefði hún verið að gráta.
— Þú sýnist eklú vera neitt sér-
lega hrifin.
— Ég er bara þreytt. Og svo
var það nú kannske ekki heldur
svo sérlega skemmtilegt.
— Hversvegna ekki?
Janet svaraði með ákafa:
— Hvernig átti það að geta verið
það? Nigel vill, að ég gefi sér
ákveðið svar um að giftast hon-
um og fara með honum til Was-
hington, en það get ég ekki.
Allra sizt núna, þegar mamma
er veik og við vitum alls ekk-
ert hvað að henni gengur.
— Það er ekki víst, að það
reynist neitt alvarlegt, þegar til
kemur. Fólki er svo liræðslu-
gjarnt, ekki sízt kvenfólki.
Janet liristi höfuðið þreytu-
lega. — Þetta er allt svo ómögu-
legt. Ég sagði Nigel í gærkvöldi,
að kannske gerðum við réttast
í því að hætta við allt saman.
Svona óvissa er ekkert skemmti-
leg fyrir hann.
Philip Xeit snöggt upp. — Nei,
láttu þér ekki detta í hug að
fara til þess. Og mitt ráð er
beinlínis það að giftast Nigel
undir eins og hann vill — og
gefa fjandann í allan andróður
gegn því, hvaðan sem hann kem-
ur! Og mér er alvara, Janet!
Janet varð hverft við. Þetta
var í fyrsta sinn, sem faðir henn-
ar hafði verið svona einibeittur í
þessu máli.
— En hvað þá um mömmu?
— O, ég fullvissa þig um, að
heimurinn fer ekki á öfuga end-
ann þó að þú farir þínu fram í
þessu. Jafnvel þó að mamma þín
reynist vera veik, getur það
seimilega orðið til þess, að henni
batni. Að minnsta kosti getur
það ekkert gagn gert þó að þú
hættir við allt saman. Hinsvegar
er sennilegast, að þegar það einu
sinni er orðinn hlutur, muni liún
bara sjálf verða hissa á sínum
eigin óhemjuskap í sambandi við
það.
Janet svaraði: — Það er ein-
kennilegt, en mér finnst ekkert,
sem þið Nigel eða Cynthia segið,
hafi nein áhrif á mig. Mér finnst
eftir sem áður, að ég verði að
sfllltvarpiö
Fimmtudagur 20. apríl
(Sumardagurinn fyrsti)
8:00 Heilsað sumri:
a) Ávarp (Vilhjálmur Þ. Gísla-
son útvarpsstjóri).
b) Vorkvæði (Lárus Pálsson
leikari).
c) Vor- og sumarlög.
8:50 Fréttir.
9:00 Morguntónleikar: — (10:10 Veð-
urfregnir).
a) Sinfónía nr. 1 í B-dúr op. 38
Vorsinfónían) eftir Schumann
(Sinfóníuhljómsveit Berlínar-
útvarpsins leikur; Rolf Klein-
ert stjórnar).
b) ,,Sumarið“, þáttur úr Ars-
tíðunum eftir Haydn (Inge-
borg Wenglor, Gerhard Ung-
Skáldið og mamma litla
1) — Ég hef sent Lottu og Egon
út í garð að grafa. Þau fá 25 aura á
fermetrann.
2) — Það var snjallt hjá þér. Þau 3)....af gangstígnum.
eru strax búin að grafa 10 fer-
metra....
a
á
ó
'* “WELU, TKAIL, I WON'T
6AV t'M SORGV 1 MISJUOGED VOU
..I'LL DO SOMETHING BETTER/
t DONT KNOW
WHAT VOU MAKE,
BUT I'LL PAV YOU
OOUBLE... WHAT
DO VOU SAV TO
= THAT? <
VOU AND t
WOULDN'T GET ALONG T
FOR TWO DAYS WITHOUT 1
A FIGHT, McCLUNE...AND
THE NEX.T TIME YOU WCXJLD
PROBABLV WHIP ME /
t WANT VOU TO GO
TO WORK FOR ME...I
NEEP A MAN WHO
CAN HANDLE HIMSELF
THE WAV VOU DO /
— Jæja Markús, ég ætla ekki betra. Ég vil að þú komir ogjum og þú ert! Ég veit ekki hvaða
®ð biðja afsökunar á að hafa haft j vinnir hjá mér .... Mig vantar i laup þú hefur, en ég skal tvö-
á röngu að standa varðandi þig | mann sem er jafn fær í áflog falda þau .... Hvernig lízt þér
„... Ég ætla að gera annað og á það?
— Við gætum ekki verið sam-
an tvo daga án þess að slást,
McClune. Og næst mundir þú
sennilega leggja mig!
er, Theo Adam og kór hljóm-
sveitar Berlínarútv. flytja;
Helmut Koch stjórnar).
c) Fiðlukonsert í D-dúr op. 35
eftir Tjaikowsky (David Oi-
strakh og Ríkishljómsveitin f
í Dresden leika; Franz Kon-
vitsnij stjórnar).
11:00 Skátamessa í Dómkirkjunni —
(Prestur: Séra Öskar J. Þorláks-
son. Organleikari: Ragnar Björns
son).
12:00 Hádegisútvarp.
13:30 Frá útihátíð barna í Reykjavík:
Helgi Elíasson fræðslumálastjóri
flytur ávarp, lúðrasveitir drongja
leika o. fl.
14:00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
Stjórnandi: Páll Pampichler Páls
son.
14:40 „Við, sem heima sitjum** (Vigdís
Finnbogadóttir).
15:10 Miðdegistónleikar: íslenzk söng-
og hljómsveitarlög.
16:00 ,,Á frívaktinni4*: Sjómannaþáttur
í umsjá Kristínar Önnu Þórarins-
dóttur).
17:30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson
kennari):
a) Ölöf Jónsdóttir les ævintýri:
Hervarður konungsson.
b) Kórar úr barna- og miðskólan
um á Selfossi syngja. Stjórn-
andi: Jón Ingi Sigurmundsson.
c) Svala Hannesdóttir les frásögn
eftir Halldóru B. Björnsson.
18:30 Miðaftanstónleikar: íslenzk píanó
lög.
18:55 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir og íþróttaspjall.
20:00 „Hugann eggja bröttu sporin",
frásöguþáttur (Sigurður Bjarna-
son ritstjóri frá Vigur).
20:25 „Allra meina bót“: Lagasyrpa eft
ir Jón Múla Arnason. Söngfólk:
Kristín Anna Þórarinsdóttir, Árnl
Tryggvason, Brynjólfur Jóhannea
son, Gísli Halldórsson, Karl Guð-
mundsson og Steindór Hjörleifs-
son. Jón Sigurðsson stjórnar
hljómsveitinni, sem leikur.
21:09 „Blíðviðrið á byljavængjum hvíl-
ir“: Sumarvaka í samantekt dr.
Brodda Jóhannessonar.
22:09 Fréttir og veðurfregnir.
22jDanslög, þ. á. m. leikur H.S.-
sextettinn í Neskaupstað.
01 jF Dagskrárlok.
Föstudagur 21. apríl
8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morg
unleikfimi. — 8:15 Tónleikar. —
8:30 Fréttir. — 8:25 Tónleikar —
10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. 12:25
Fréttir og tilkynningar).
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 „Við vinnuna**: Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:0ð
Tónleikar — 16:00 Fréttir og tilk.
— 16:05 Tónleikar — 6:30 Veður-
fregnir).
18:00 Börnin heimsækja framandi þjóð
ir: Guðmundur M. Þorláksson
segir frá Eskimóum í Thule.
18:30 Tónleikar: Harmonikulög.
18:50 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Efst á baugi (Björgvin Guðmunds
son og Sigurður Hreiðar Hreiðars
son).
20:30 Tvö tónverk eftir Beethoven —
(Casals-hátíðarhljómsv. í Porto
Rico flytja. Einleikari á píanó:
Rudolf Serkin. Stjórnandi: Pablo
Casals).
a) „Coriolan‘*-forleikur. \
b) Fantasía í c-moll op. 80.
21:00 „Nóttin á herðum okkar“; Svala
Hannesdóttir les ljóð eftir Jón
Öskar.
21:10 Islenzkir píanóleikarar kynna són
ötur Mozarts: Rögnvaldur Sig-
urjónsson leikur sónötu í G-dúr
(K283).
21:30 Utvarpssagan: „Blítt lætur veröld
in“ eftir Guðmund G. Hagalín;
XVII. — sögulok. (Höf. les).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Ferðaþáttur: Þvert yfir Suður-
Ameríku; fyrri hluti (Vigfús Guð
mundsson gestgjafi).
22:35 „Undir suðrænum himni“: Los
Espangoles syngja og leika.
23:05 Dagskrárlok.
Laugardagur 22. apríl
8:00 Morgunútvarp (Bæn. 8:05 Morg
unleikfimi. — 8:15 Tónleikar. —
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar. —
10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónlelkar 12:23
Fréttir og tilkynningar).
12:50 Öskalög sjúklinga (Bryndís Sig-
urjónsdóttir).
14:30 Laugardagslögin. (15:00 FréttirK
15:20 Skákþáttur (Baldur Möller).
16:05 Bridgeþáttur (Hallur Símonar-
son).
16:30 Danskennsla (Heiðar Astvalds-
son danskennari).
17:00 Lög unga fólksins (Þorkell Helga
son).
18:00 Útvarpssaga bamanna: „Petr*
litla“ eftir Gunvor Fossum; X.
sögulok. (Sigurður Gunnarsson
kennari þýðir og les).
18:30 Tómstundaþáttur barna og ungl
inga (Jón Pálsson).
18:50 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir. v
20:00 Upplestur: „Spor i sandinum",
smásaga eftir Runar Schildt, f
þýðingu séra Sigurjóns Guð-
jónssonar (Gestur Pálsson leik-
ari).
20:40 Tónleikar: Hljómsveitin Fílharm
onía í Lundúnum leikur forleile
eftir Weber; Wolfang Sawallisch
stjórnar.
21:10 Leikrit: „Peningatréð** — eftip
Gunnar Falkás. Þýðandi: Þor-
steinn Ö. Stephensen. — Leik-
stjóri: Baldvin Halldórsson.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:103 Danslög. — 24:00 DagskrárlólC*