Morgunblaðið - 27.05.1961, Side 2
2
MORGVNBLAÐIE
Laugardagur 27. maí 1961
>
4.
\
A
Atlantshafsbandalagíð
tryggt ðryggi og
Fróðlegt erindi um varnamál I
á stúdentafundi i gærkvöldi
AÐALSALUR Tjarnarkaffis
var þéttskipaður áheyrend-
um í gærkvöldi, þegar Ro-
bert E. Button flutti þar stór
fróðlegan fyrirlestur um
varnir Atlantshafsbandalags-
ríkjanna, á fundi, er Stúd-
endafélag Reykjavíkur hafði
boðað til.
Formaður Stúdentafélagsins,
Matthías Johannessen, s^tti fund-
inn og kynnti fyrirlesarann.
Til verndar frelsi
Því næst hóf Robert E. Button
fyrirlestur sinn og minnti í upp-
hafi á það takmark vestrænna
þjóða að standa vörð um friðinn
í heiminum. Þær stæðu ekki
gegn neinum manni, neinni þjóð
eða stjórnskipulagi, nema því að-
eins að slíkt væri nauðsynlegt
frelsinu til vemdar.
•
Fyrirlesarinn kvaðst einkum
mundu ræða hernaðarhliðina á
hinu annars víðtæka og fjöl-
þætta samstarfi Atlantshafsríkj-
anna og vék fyrst í fáum dráttum
að skipulagi varnanna. stjórn
þeirra mála og starfsháttum inn-
— SuBur-Kórea
Framh. af bls. 1.
ráðsmönnum. Macgruder sam-
þykkti á hinn bóginn, að herfor-
ingjaráðið fengi áfram að hafa
yfirráð yfir nokkrum fámennum
sveitum og lögreglusveit.
Talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna í Seoul minnti í dag á, að
Macgruder hefði þegar nokkrum
klukkustundum eftir að uppvíst
var um byltinguna lýst yfir and-
stöðu sinni við hana, enda hefði
hann verið í þeirri stöðu að menn
hefðu getað álitið að hún væri
með hans samþykki gerð. Síðan
hefði hann stöðugt haldið uppi
viðræðum við byltingarmenn til
þess að fá herinn aftur undir
stjórn SÞ.
• Kennedy fylgist með þeim
Talsmaður sendiráðs Banda-
ríkjamanna í Seoul hefur lagt á
það áherzlu við byltingarráðið,
að Bandaríkjamönnum sé mjög í
mun, að stjórn landsins komist
sem fyrst aftur í hendur borg-
aralegrar stjórnar. Sagði tals-
maðurinn, að Kennedy, forseti
hefði nú strangt auga með því,
að yfirlýsingar herforingjanna
þar að lútandi yrðu ekki innan-
tóm orð. Nú hafa allir ráðherrar
úr stjórn John Changs verið látn
ir lausir utan tveir, þar af er
annar fjármálaráðherrann.
Forystumaður byltingarmanna
Yung Chang, hefur sem fyrr hef-
ur verið sagt frá, óskað eftir að
ræða við Kennedy Bandaríkja-
forseta í Washington, en honum
var neitað um vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna og borin orðsend-
ing frá forsetanum þess efnis, að
hann væri nú svo önnum kafinn
við undirbúning að för sinni til
Parísar og Vínarborgar, að hann
hefði ekki tíma um sinn til að
ræða við herforingjann,
an bandalagsins. Hann rakti ein-
staka hlekki varnarkerfisins um
alla álfuna og gerði grein fyrir
Robert E. Button
helztu þýðingu einstakra varnar-
stöðva.t. d. hefði Keflavík mjög
mikilvægu hlutverki að gegna
fyrir flutninga og samgöngur,
og sem eftirlits- eða leitarstöð.
í stöðvum Atlantshafsbandalags-
ins væri nótt sem nýtan dag ver-
ið á verði til að mæta þegar í
stað hugsanlegri árás.
KAUPMANNASAMTÖK íslands
efna til kynnisferðar til Norður-
landa og Þýzkalands hinn 10.
júní. Ferðaskrifstofan Sunna ann
ast um þessa ferð fyrir samtök-
in, en fararstjóri verður Jón
Helgason ritstjóri Verzlunartíð-
inda. Ferðin er miðuð við það
að hún geti Orðið þáttakendum
bæði til fróðleiks og skemmtunar.
Flogið verður héðan til Ósló
og dvalið þar í nkokra daga.
Ferðazt meðal annars inn á Þela-
mörk. Frá Noregi er haldið til
Gautaborgar. Þaðan til Kaup-
mannahafnar og svo loks til Ham
borgar. Að lokinni 16 daga dvöl
á þessum stöðum er snúið heim
á leið með viðkomu í Kaupmanna
Ógnlr Rússa
Þá ræddi Button um orsakir
þess, að varnir af þessu tagi væru
nauðsynlegar, ógnanir Sovétveld
isins. Af þeirra hálfu hefði verið
marglýst yfir hugsjónalegum á-
greiningi og lögð sérstök áherzla
á þýðingu hernaðar í því tilliti.
Vitnaði fyrirlesari m.a. í þau orð
Lenins, að vopnin tækju við af
stjórnmálabaráttunni, svo og
seinni ummæli bæði Stalins og
Krúsjeffs á sömu lund. Sá síðar-
nefndi hefði m.a. lýst-stefnu sinni
í orðunum „Við munum grafa
ykkur“. Barátta kömmúnismans
væri háð á mörgum sviðum, m.
a. í efnahags- og menningarmál-
um, en að því yrði ekki vikið
að þessu sinni, heldur hernaðar-
aðgerðum þeirra einum. íhug-
unarverð væru þau orð rúss-
nesks marskálks, er hann við-
hafði í ræðu nýlega, að herinn
væri verkfæri flokksins.
Gífurleg hervæðing
Brá ræðumaður síðan upp
skýrri mynd af hinum gífurlega
hernaðarmætti Sovétríkjanna, er
hefðu 3 milljónir manna undir
vopnum í 175 herdeildum, og
meira en tvöfalt fleiri tiltæka.
Með stórefldum vopnaiðnaði á
undanförnum árum hefði þeim
tekist að margfalda vopnaförða
sinn og réðu sovézkar hersveitir
nú yfir nýtízku vopnum og hern-
aðartækjum til árása bæði í lofti,
láði og á legi. T.d. hefðu þeir
komið sér upp um 1000 flugvöll-
um í þeim löndum er liggja að
vestur Evrópu, auk valla annars-
staðar í Sovétríkjunum sjálfúm.
Það mætti hins végár hafa í
huga, þegar rætt væri um þann
niöguleika að til styrjaldar kæmi,
að ekki gætu ráðamennirnir
treyst um of á hollustu fólksins
í þeim löndum, sem kommúnism-
inn hefði lagt undir sig.
öflugar vamir afstýra
Að svo mæltu vék Robert E.
Button að þeim aðgerðum, sem
Atlantshafsbandalagið hefur grip
höfn, þar sem ferðafólkið getur
orðið eftir á eigin vegum.
Það skal tekið fram, að þó að
þessi ferð sé sérstaklega ætluð
kaupmönnum og þeirra fólki er
ekkert því til fyrirstöðu að aðrir
geti komizt með í ferðina, þó að
ferðin sé að nokkru miðuð við
það að þeir, sem vinna að verzl-
unarstörfum, geti um leið haft
sérstök hagnýt not af ferðalag-
inu. Hafa verið gerðar ráðstaí-
anir til þess að menn geti kynnt
sér búðir og verzlunarhætti sér-
staklega í öllum þeim fjórum
löndum, sem gist er í ferðinni.
Nánari upplýsingar um feröina
veita Ferðaskrifstofan Sunna og
skrifstofa Kaupmannasam,taka ís
lands.
Kynnisför kaup-
mannasamtakanna
ið til í því skyni að mæta ógn-
unum Rússa. Markmiðið með
stofun bandalagsins hefði verið
það fyrst og fremst að aftra
stríði, en verja landssvæði að-
ildarríkjanna, ef á þau yrði
ráðizt. Stefnt hefði verið að því,
að koma upp svo styrkum vöm-
um, að fjandsamleg ríki áræddu
ekki að ráðast gegn þeim. Lýsti
hann síðan á hverju varnirnar
byggðust, vopnabúnaði banda-
lagsins og öðrum einstökum at-
riðum. Einbeittur ásetningur að-
ildarríkjanna væri sá, að sporna
gegn árás til hins ítrasta. Ef
ekki hefði verið snúizt til varnar,
stæðu frjálsar þjóðir berskjald-
aðar fyrir aðsteðjandi ógnunum.
Eins og málum væri nú komið,
þyrfti árásaraðilinn vissulega að
hugsa sig um tvisvar.
Samstillt átök — fullur árangur
Fyrirlesari rakti í megindrátt-
um, hvernig umhorfs var, þegar
hafizt var handa, drap á ein-
stök vandamál, sem þurft hefði
að leysa við uppbyggingu varn-
anna og hvernig þau hefðu ver-
ið leyst. Það fullkomna varna-
kerfi, sem nú væri upp komið,
væri árangur samstilltra átaka
aðildarríkjanna. Þrátt fyrir
skiptar skoðanir bandalagsaðila
í ýmsum efnum, hefði bandalag-
ið stöðugt haldið áfram að efl-
ast og mundi svo enn verða
meðan nauðsyn krefði. Það,
sem bandalagið hefði í upphafi
ætlað sér, hefði fram til þessa
tekizt öryggi og friður hefðu
verið tryggð á Atlantshafssvæð-
inu og framsókn kommúnismans
stöðvuð.
Stóðu fram undir miðnætti
Þegar fyrirlesarinn hafði lokið
máli sínu var áheyrendum gefinn
kostur á að leggja fyrir hann
spurningar. Varð sú athöfn all-
kostuleg, því upp spruttu nokkr-
ir kommúnistar og „hernámsand-
stæðingar“ með skrifaða pistla og
hófu að lesa hinum erlenda gesti
fyrir með heldur fruntalegum
hætti. Þó örlaði á kurteisi inni
á milli, einkum hjá Haraldi Jó-
hannssyni hagfræðingi.
Fundi var slitið skömmu fyrir
miðnætti.
Siglingin til íslands
konungi kærkomin hvíld
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt einkaskeyti frá Osló, þar sem
segir frá undirbúningi að hinni
opinberu heimsókn Ólafs Nor-
egskonungs 31. maí til 2. júní.
Konungur leggur úr höfn í Berg
en á sunnudagsmoirgun. 1
skeytinu segir m. a.:
Laugardaginn 3. júní, þegar
hinni opinberu heimsókn er
lokið mun hans hátign fara í
einkaheimsókn að Reykholti
ásamt forseta íslands, Ásgeiri
Ásgeirssyni. Árið 1947 afhjúp-
aði Ólafur konungur styttu
Gustafs Vigelands af Snorra
Sturlusyni. „Snorra-ferðin“,
sem þá var farin, var einstæður
viðburður öllum þátttakendum
og mátti þakka það hinni hjart-
anlegu og stórbrotnu gestrisni
Islendinga.
Sjóferðin til Islands verður
Ólafi konungi án efa kærkomin
hvíld því að síðustu mánuði hef-
ur hann verið óvenjulega önn-
um kafinn. I gær, fimmtudag,
opnaði konungur listahátíð í
Bergen og mun hann jafnframt
taka þátt í einhverjum athöfn-
um varðandi hátíðina, á föstu-
dag og laugardag.
Áður en konungur fór til
Bergen með næturlestinni á mið
vikudagskvöldið ók hann til
Fornebu-flugvallar til þess að
kveðja Persíukeisara og drottn-
ingu hans Farah. Þau fóru fljúg
andi til Bergen að aflokinni
opinberri heimsókn í Noregi.
Ennfremur höfðu þau áformað
að ferðast meira um Vestur-
Noreg, en verða að hætta við
það, sennilega vegna stjórnmála-
ástandsins heima í Persíu. Frá
Bergen fara þau síðdegis á föstu
dag með einkaflugvél keisarans.
í Noregi er ferð konungs til
íslands tekið með miklum á-
huga. Aðeins fáir Norðmenn
þekkja ísland af eigin raun, en
telja sig á einhvern undarleg-
an hátt bundna þessu landi vest
ur í Atlantshafi og þjóðinni
vegna sameiginlegra sögulegra
minja og ennfremur sökum þess
að hvert barn í Noregi veit að
íslendingar eru upphaflega að
nokkru leyti útflytjendur frá
Noregi.
í ferð með konungi verður
meðal annarra Odd Grönvold
hirðmarskálkur, Th. Lunds-
gaard ofursti og Arne Haugh,
major.
Nokkrir norskir blaðamenn
fara til Islands í tilefni konungs
heimsóknarinnar og um borð í
„Norge“, verða tveir starfs-
menn frá NTB-fréttastofunni.
1 ^ NA /5 hnú/ar [ S V 50 hnútar Snjihma • osimm V Skúrtr K Þrumur W/,y.t
. Kutíash
Hi/ts/ti/
HÆÐIN fyrir sunnan ísland verði hér um helgina. Norð-
þokast austur eftir og lægð- an og austan lands mun
arsvæðið við Suður-Græn- verða sérstaklega fagurt veð-
land hreyfist norðaustur á ur, en sunnan lands yfirleitt
bóginn. Eru því horfur á, að skýjað og sums staðar rign-
suðlæg átt og hlý veðrátta ing. —
A.